Þjóðviljinn - 22.05.1984, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þrigjudagur 22. maí 1984
Formannafrum-
varpið óbreytt
Á þeirri forsendu að nýtt frumvarp
verði lagt fram á haustþingi!
Samband byggingamanna hélt
11. þing sitt um helgina. Samþykkti
þingið hvatningu til aðildarfélaga
sambandsins um að efna nú þegar
til umræðufunda í félögunum um
stöðu kjaramála og hugsanlegar
aðgerðir. Segir í ályktun um kjara-
mál að tíminn til ákvarðanatöku sé
naumur ef nota eigi samningslegan
rétt til þess að koma fram nauðsyn-
legum kjaraleiðréttingum, en það
tækifæri gefist 1. september. Var
ákveðið að kalla saman
sambandsstjórnar- og formanna-
Verðlauna-
hátíð
Verðlaunahátíð Æskulýðsráðs
Reykjavíkur var haldin nýlega. Þá
var 130 nemendum í grunnskólum
borgarinnar veitt verðiaun fyrir
þátttöku og sigur í fjölmörgum
mótum sem haldin voru í vetur.
Veitt voru verðlaun fyrir sigur í
skákmóti, borðtennismóti, ljós-
myndakeppni, kvikmynda- og
myndbandagerð. Einnig var keppt
í brigde og forritagerð fyrir tölvur
auk þess sem leiklistarmót var
haldið.
Tölvuforritasamkeppnin var
haldin í fyrsta sinn í vetur. 15 þátt-
takendur voru í henni og fékk
Helgi Björnsson Laugarlækjar-
skóla fyrstu verðlaun. Brigdemót
var einnig í fyrsta sinn í grunnskól-
unum, 4 sveitir kepptu og varð
Vogaskóli hæstur í stigum. _j
fund fyrir 1. júlí til að taka ákvörð-
un um uppsögn kjarasamninga.
Þing SBM sóttu 53 fulltrúar frá
19 félögum og deildum sambands-
ins. Þingið sat kona í fyrsta skipti í
nær 20 ára sögu sambandsins.
í ályktun um utanríkismál lýsir
11. þing SBM yfir andstyggð sinni á
vígbúnaðarkapphlaupi stórveld-
anna og lýst er fullum stuðningi við
hugmyndina um kjarnorkuvopna-
laus Norðurlönd og þær hreyfingar
sem vinna að friði og afvopnun. Þá
var samþykkt tillaga þar sem lýst er
vanþóknun á því „að á sama tíma
og sultaról íslenskra launþega er
spennt til hins ýtrasta, skuli hátt-
settir ríkisstarfsmenn gefa sjálfum
sér afmælisgjafir fyrir hundruð
þúsunda króna sem greitt er af al-
mannafé".
- v.
Alþlngisgarðlnn þarf a& slá sem og aðra garða. f gær hamaðist hún Kata við
sláttinn því þeir spáðu rigningu. Mynd: Atli.
Samband byggingamanna með þing sitt um helgina
Tíminn er naumur
segir í ályktun um kjaramálin
„Nefndin hefur tekið frumvarpið
til meðferðar en ekki náð
samkomulagi um afgreiðslu þess“,
segir í meirihlutaáliti stjórnar-
skrárnefndar efri deildar alþingis
um kosningalagafrumvarpið. Segir
þar að meirihiuti nefndarinnar
mæli með samþykkt frumvarpsins
óbreyttu (þ.e. formannafrumvarp-
ið) einsog það kemur frá neðri
deild.
Nefndarmenn segja svo: „Þessi
11. þing Málm- og skipasmíðasambandsins
Uppsögn samninga!
Febrúarsamningarnir stöðvuðu ekki kaupmátt-
arhrapið, segir Guðján Jónsson
11. þing Málm- og skipasmíðasambands íslands, sem lauk á laugardag,
beinir því til sambandsfélaga sinna að hefja nú þegar undirbúning að
uppsögn kjarasamninganna, mótun kröfugerðar og aðgerða til að knýja
fram fulla leiðréttingu á kaupmáttarskerðingu þeirri sem orðin er frá 1982
í áföngum. Jafnframt telur þingið að afnám eftirvinnu í áföngum án
skerðingar á heildartekjum eigi að vera meginkrafan í komandi samning-
um. Þá segir í ályktun þingsins um kjaramál að vegna örra tæknibreytinga
eigi atvinnuvegirnir að greiða 1% af launum til að standa undir eftir-
menntun málmiðnaðarmanna.
Guðjón Jónsson var endurkjör-
inn formaður MSÍ til næstu tveggja
ára: „Um leið og ríkisstjórnin tók
þá ákvörðun að stórminnka niður-
greiðslur á landbúnaðarvörum og
hækka um leið verð þeirra eru for-
sendur kjarasamninganna frá í fe-
brúar brostnar. Við töldum því
Hjúkrunar-
fræðingar
athugið
Ráöstefna verður haldin um hjúkrunarrann-
sóknir- kennslu og menntun dagana 28. og
29. maí.
Fyrirlesari veröur Randi Nord lektor.
Upplýsingar í síma 21177 á skrifstofu
Hjúkrunarfélags íslands.
nauðsynlegt að hefja þegar undir-
búning að uppsögn samninganna
og sóknar til betri kjara", sagði
Guðjón að þinginu loknu.
„Út af fyrir sig skiptir ekki máli
hvort dagsetningin er 1. september
heldur hitt að strax í haust verði
menn undirbúnir undir átök. Ætli
menn sér að sækja fram verða þeir
að fara að vígbúast því sóknin til
betri kjara verður ekki létt“, sagði
Guðjón ennfremur. „Menn gera
sér hins vegar grein fyrir því að
vegna hinnar gífurlegu kjaraskerð-
ingar á stuttum tíma verður
kaupmættinum ekki náð í einum
áfanga. Aðalatriðið er að stöðva
hrapið sem verið hefur“.
Nú var ein forsendan fyrir samn-
ingagerð í febrúar sú að með þeim
samningum yrði hægt að stöðva
kaupmáttarrýrnunina?
„Jú, það er alveg rétt og það má
kannski segja að við höfum verið
svo barnalegir að trúa því að það
tækist. Aðgerðir ríkisstjórnarinn-
ar, nú síðast vegna fjárlagagatsins,
eru með þeim hætti að kaupmátt-
arrýrnunin hefur haldið áfram í
einu eða öðru formi og því hlýtur
verkafólk að mæta af hörku strax í
haust“.
- v.
tillaga nefndarinnar ergerð á þeirri
forsendu að unnið verði áfram að
málinu milli þinga og niðurstöður
verði lagðar framí frumvarpsformi
á næsta haustþingi“.
Þeir sem stóðu að þessu meiri-
hlutaáliti í efri deild eru Ragnar
Arnalds, Þorvaldur Garðar, Eiður
Guðnason, Jón Kristjánsson, Sa-
lome Þorkelsdóttir og Valdimar
Indriðason.
Minnihluta nefndarinnar skipaði
Stefán Benediktsson sem vill að
frumvarpið verði fellt.
-óg.
t
„Það er með fyrra fallinu
sem farið er að slá í höfuð-
borginni í ár“, sagði Haíliði
Jónsson garðyrkjustjóri borg-
arinnar við ÞjóðvUjann í gær.
Um helgina voru bæjarbúar
margir hverjir að slá garðflöt-
ina sína fyrsta slátt í sumar.
Þótti mörgum snemma af stað
farið og töldu í huganum
hversu margar vinnustundir
væru framundan á nástu mán-
uðum við þessa iðju. Efalaust
munu menn þó ekki kvarta ef
veðurblíðan verður söm og á
sunnudaginn.
Hafliði Jónsson tjáði okkur
að það væri ekki óalgengt að
borgarbúar færu að slá flatir
sínar um 20. maí. Sagði hann
það fara eftir hitastigi og að nú
hefði verið „hagstæð tíð fyrir
grös“. _jp.
Unnlð af kappi við uppboðslóðir Sjálfstæðisflokksins við Stigahlíð I gær. -
Framkvæmdir hafnar við_
Miljónalóðir
borgarstjórans
Framkvæmdir eru hafnar við
nýja hæstbjóðendakerfið hans Da-
víðs í Stigahlíðinni. Áætlað er að
Aðalfundur
Aðalfundur SÍM verður haldinn í Ásmundar-
sal (Driöjudaginn 22. maí kl. 20.30. Félagar
mætiö vel og stundvíslega.
Stjórnin
11. þing SBM
Fordæmir lög á flugmenn
11. þing Sambands byggingar-
mánna lýsir andúð sinni á nýsam-
þykktum lögum frá Alþingi, sem
svipti einn hóp launamanna verk-
fallsrétti. Þingið telur að verk-
fallsréttur sé í raun einasta vopnið
sem launafólk hefur þegar til átaka
kemur og er því lagasetningin árás
á grundvallarréttindi launafólks,
segir í ályktun 11. þings SBM
vegna laga ríkisstjórnarinnar og
raunar flestra þingmanna er banna
flugmönnum að beita verkfalls-
vopninu. _ v.
götur verði malbikaðar og hægt að
hefja byggingar á lóðunum um
miðjan júlí.
Ingi U. Magnússon sagði Þjóð-
viljanum að verkið hefði verið boð-
ið út og lægsta tilboði tekið, 3.029
þús. í gatnagerð, lagnir holræsa og
vatns.
Reiknað er með að hver lóð fari
á um eina miljón, en lóðirnar eru
21 talsins. Lóðauppboðinu lýkur
um mánaðarmótin og bíða spá-
kaupmenn spenntir hverjir vinna í
happdrættinu og hverjir eru af-
lögufærir um svoddan upphæð.
-jp-