Þjóðviljinn - 22.05.1984, Side 3

Þjóðviljinn - 22.05.1984, Side 3
Þriðjudagur 22. maí 1984ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Bankaskattar í barnaheimili Stjórnarandstæðingar deila hart á stjórnina vegna 360 miljón króna lækkunar skatta á viðskiptabanka Stjórnarandstæðingar héldu uppi harðri gagnrýni á stjórnarsinna í neðri deild alþingis í gær vegna þeirra tillagna stjórnvalda að lækka álögur á viðskipt- abankana um 360 miljónir á næstu 3 árum. Héldu þingmenn langar tölur um þetta örlæti ríkisstjórnarinnar við bankakerfið á sama tíma og tekin eru Enginn fundur var haldinn í efri deild í gærkvöld þrátt fyrir miklar annir í þinglok. Ástæðan var sú að flestir þingmenn deild- arinnar sátu mikla „kartöflu- veislu“ á Hótel Sögu. Upphaf máls var það að þing- menn landbúnaðarnefndar deild- arinnar höfðu ákveðið að borða saman og vegna mikillar umræðu í nefndinni undanfarna daga um skemmdar kartöflur. Kom upp sú hugmynd að formaður nefndar- innar Egill Jónsson frá Seljavöll- um útvegaði ætar kartöflur í veisluna. Egill gekkst við því og stórfeld erlend lán til að fylla upp í fjár- lagagatið og framlög til félags- og heilbrigðismála eru stórlega skertar. Hjörleifur Guttormsson lagði í gær- kvöld fram breytingatillögu við tillögur stjórnarinnar þar sem lagt er til að í stað þeirrar lækkunar á sköttum innlánastofnana, komi sérstakt og jafn- lét senda að heiman vænan skammt af „Egils rauðum“. Þegar fréttist af þessari kart- öflusendingu að austan vildu fleiri þingmenn fá að sitja að her- legheitunum og er yfirlauk voru flestir deildarmenn búnir að til- kynna þátttöku. Varð því ekki fundarfært í efri deild í gærkvöld sem kom þó ekki að sök þar sem afgreiðsia mála gekk fljótt og vel fyrir sig í deildinni í gærdag. Engar fregnir höfðu borist af kartöfluveislunni þegar blaðið fór í prentun um miðnæturbil. -lg. hátt gjald á hinar sömu innlánsstofnanir. Tekjum af því gjaldi yrði varið til dagvistunarstofnana á þessu ári og framvegis og mætti það ekki verða til rýrnunar á öðrum fjár- veitingum til dagvistarmála. Skyldi gjaldið halda verðgildi sínu og breytast í hlutfalli við breytingar á byggingavísi- tölu frá 1. janúar að telja. í>að kom greinilega fram í máli stjórnarandstæðinga í gær að þeir lögðu áherslu á að vekja athygli á því hneyksli sem lækkun skatta á viðskiptabanka er, á sama tíma og almenningur verður að þola stórfellt kjararán og niðurskurð á félagslegri þjónustu. Samkvæmt tillögum ríkisstjórnarinn- ar munu skattar af bönkum lækka um 250 miljónir á næstu árum og lækkun á gjöldum vegna gjaldeyrisviðskipta mun nema 110 miljónum á sama tíma eða samtals skattlækkun uppá 360 miljónir. Sögðu stjórnarandstæðingar að ríkis- tjórnin hefði gefið þjóðinni vel til kynna með hverjum hjarta hennar slær. Síðustu fréttir Seint í gærkvöld ákváðu stjórnarf- lokkarnir að draga úr tekjutapi ríkis- sjóðs vegna skattalækkunar á bankana um 90 miljónir, eftir hin hörðu mótmæli stjórnarandstæðinga. Mun eftirgjöfin til bankana því nema 270 miljónurn í stað 360 sem upphaflega var lagt til. Töldu menn að þessi ákvörðun myndi flýta fyrir afgreiðslu mála á þingi og að öllum Iðdndum yrðu þingislit síðdegis í dag. -Ig- Kartöfluveisla á Hótel Sögu: „Egils rauðar“ Framsóknarbrandarl úr Flóanum? Þreytumerkin á ríkisstjórnlnnl leyna sér ekki á alþingi. (Mynd í gær Atli). Flugmannadeilan í Kjaradóm Lítið bar á er viðrœður sprungu í fyrrinótt Maraþon á fjöllum Fjallamaraþonkeppni sem Landssamband hjálparsveita skáta gengst nú fyrir I 4. sinn fer fram á suð- vesturlandi helgina 25.r26. ág- úst í sumar. Keppninni mun ljúka á Laugar- vatni en upphafsstaður hennar er leyndarmál þar til á síðustu stundu. Þeir sem hyggjast keppa í mara- þoni á fjöilum uppi ættu að skrá sig á næstunni í Skátabúðinni eða á skrifstofu LHS. -JP Þegar viðræður flugmanna hjá Flugleiðum og fyrirtækisins fóru út um þúfur hjá ríkissáttasemjara í fyrrinótt, vantaði mjög lítið upp á að samningar tækjust. Höfðu flug- menn sæst á ákveðna lausn sem svo strandaði á afstöðu flugmanna á DC 8 þotum Flugleiða þar sem þeir voru óánægðir með vinnutíma samkvæmt samkomulagsdrögun- um. Guðlaugur Þorvaldsson ríkis- sáttasemjari sagði í gær að afskipti hans af deilunni væru á enda og nú tæki Kjaradómur við. Kjaradóm- ur, sem er skipaður af Hæstarétti, fellir sinn úrskurð í síðasta lagi 15. júní og verða báðir aðilar að hlýta niðurstöðum hans. Hins vegar er búist við því að innanhúss viðræður muni áfram fara fram og fær Kjara- dómur öll gögn í málinu jafnóðum og þau verða til. Flugmenn hafa ekki orðið fyrir meirháttar veikindum eins og fyrir helgi og er búist við að þeir haldi heilsu sinni í góðu lagi enn um sinn. Innan verkalýðsforystunnar hafa * Nýgift á leið til Júgó! Nýgiit hjón, Steinhiidur Hildimundardóttlr og Leifur Eysteinsson akandi á bitreið í átt til ferðaskrifstofunnar Samvinnuferðir-Landsýn til að fá farseðla til Júgóslavíu f gær. Hér er um að ræða boð frá ferðaskrifstofunni til hinna nýgiftu - en ferðamálaráð Júgóslavíu efnir tii sérstakrar brúðhjónahátíðar þar eystra á næstunni. 50 nýglft hjón munu njóta samvistanna meðal Júgó- slavneskra. Ekki er að efa að þar eystra verði kærleikar með fólki. milli menn mjög rætt aðferðir flug- manna í deilunni og margir þeirrar skoðunar að þar megi sjá leið til að endurheimta kaupmátt launa hjá almenningi. Hjá Birni Helgasyni hæstarétt- arritara fengust þær upplýsingar í gær að Hæstiréttur hefði skipað eftirtalda menn í Kjaradóm vegna deilu flugmanna og Flugleiða: Guðmund Skaftason hæstarétt- arlögmann, formaður. Bárð Daní- elsson arkitekt og Þóri Einarsson prófessor. _v Framkvæmda- stjóri Borgar- spítalans Jóhannes Pálmason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Borgar- spítalans frá 1. júní næstkomandi. Hann hefur undanfarin misseri verið aðstoðarframkvæmdastjóri spítalans. Jóhannes er Akureyring- ur að uppruna. Nýr sjúklinga- skattur ríkis- stjórnarinnar Geðhjálp mótmælir „Fyrir hönd fólks með geðræn vandamál mótmælir félagíð Geð- hjálp harðlega þeirri hugmynd að hækka göngudeildargjald úr kr. 100 í kr. 300“, segir í frétt frá Geðhjálp sem Þjóðviljanum hef- ur borist. „Við viljum benda á að rnargir þeirra sem þurfa á göngudeildar- þjónustu að halda, t.d. vegna geðrænna vandamála, þurfa að sækja slíka þjónustu reglulega um lengri tíma. Jafnframt er al- gengt að á sama tíma séu viðkom- andi óvinnufærir". Þá segir í frétt Geðhjálpar að reynslcn sé sú að 100 krónu gjald- ið sé þungur baggi á mörgum og því telji félagið þessa hækkun nú algerlega óviðunandi. -óg Landssamband iðnaðarmanna_ Ritgerðarsam- keppni um iðnað Landssamband iðnaðarmanna hefur ákveðið að efna til ritgerðar- samkeppni meðal íslensks náms- fólks um innlendan iðnað. Verða veitt þrenn verðlaun, 25.000 kr., 15.000 kr. og 10.000 kr. Að auki verða veittar 10 viðurkenningar fyrir ritgerðir sem dómnefnd telur athyglisverðar. í trétt frá Landssambandi iðnað- armanna segir að tilgangurinn með samkeppninni sé að vekja ungt fólk til umhugsunar um gildi innlends iðnaðar. Jafnframt er ætlunin að leita eftir hugmyndum hjá því fólki um uppbyggingu iðnaðar og fá fram sjónarmið um starfsskilyrði og aðbúnaðarmál iðnaðarins. Þátttaka í ritgerðarsamkeppn- inni er heimil öllum skólanem- endum í íslenska skólakerfinu. Við mat á gildi ritsmíðanna verður tekið tillit til aldurs og menntunarbrauta. Skilafrestur ritgerða er til 1. des- ember 1984. -v.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.