Þjóðviljinn - 23.05.1984, Page 12
12 SIÐA - ÞJOÐVILJINN Migvikudagur 23. maí 1984
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Vorhappdrætti - Drætti frestað
Alþýöubandalagið í Reykjavík gengst fyrir glæsilegu vorhappdrætti.
Vinningar eru 6 ferðavinningar í leiguflugi meö Samvinnuferðum-
Landsýn, að heildarverðmæti 105.000 krónur.
Drætti frestað
Þar sem enn vantar nokkuð á að skil hafi borist frá öllum, og vegna
tilmæla frá félagsmönnum, hefur drætti í happdrættinu verið frestað
um óákveðinn tíma.
Gerið skil
Þess er vænst að félagar og stuðningsmenn Alþýðubandalagsins,
sem enn hafa ekki gert skil, bregði skjótt við og greiði heimsenda miða
hið fyrsta í næsta banka/pósthúsi, eða á skrifstofu Alþýðubandalags-
ins aö Hverfisgötu 105.
Sláum saman!
Stöndum saman í slagnum!
Styrkjum baráttu Alþýðubandalagsins! Stjórn ABR
Alþýðubandalagið í Kópavogi
- Bæjarmálaráð
heldur fund miðvikudaginn 23. maí kl. 20.30 í Þinghóli.
Fundarefni: 1) Skipulagsmál. 2) Önnur mál.
Allir nefndarmenn og aðrir félagar hvattir til að mæta.
Alþýðubandalagið í Keflavík
Félagsfundur verður haldinn mánudaginn 28. maí í húsi verslunar-
mannafélagsins Hafnargötu 28, kl. 20.30. 1. Umræða um störf og
stefnu Alþýðubandalagsins. 2. önnur fólagsmál.
Stjómln
Fylkingin
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins
Stjórn ÆFAB minnir á opnu stjórnarfundina sem haldnir eru annan
hvorn sunnudag. Næsti fundur er nú á sunnudag, 26. maí, kl. 16.30
í flokksmiðstöðinni að Hverfisgötu'105. - Stjórnin.
UTBOÐ
Siglufjaröarkaupstaöur óskar eftir tilboöum í
byggingu sorpbrennsluþróar. Útboðsgögn
veröa afhent á Tæknideild Siglufjaröarkaup-
staðar gegn 1000 kr. skilatryggingu.
Tilboöum skal skila á sama stað mánudag-
inn 4. júní kl. 13.00 og veröa þau þá opnuð aö
viðstöddum þeim bjóöendum sem þar mæta.
Bæjartæknifræðingur.
Frá
menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður.
Lausar eru til umsóknar stööur viö eftirtalda skóla:
Flensborgarskólann í Hafnarfirði staða aðstoðar-
skólameistara, kennarastaða í viðskiptagreinum, að-
allega hagfræði og ein til tvær kennarastöður í stærð-
fræði.
Menntaskólann við Sund staða þýskukennara.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf skal sendatil menntamálaráðuneytisins, Hverfis-
götu 6, 101 Reykjavík fyrir 15. júní næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið.
Aðalfundur
Aðalfundur Félags matreiöslumanna veröur
haldinn miðvikudaginn 30. maí, aö Óö-
insgötu 7, kl. 15.
Fundarefni:
Venjuleg aöalfundarstörf.
Önnur mál.
Listi uppstillingarnefndar liggur frammi á
skrifstofu, ásamt reikningum fyrir áriö 1983.
Aðrir listar þurfa aö berast fyrir kl. 15,30. maí.
Félagar fjölmenniö.
Stjórnin.
íslandsmótið í tvímenning
s
Urslit um næstu helgi
lagi. Það er EKKI eðlilegt að menn
viti upp á hár í lokaumferð hvers
móts hvað andstæðingurinn hefur,
né þú sjálfur, og geta hagað seglum
eftir vindi, með hliðsjón af stöðu
mála. Að ekki sé minnst á mann-
lega þáttinn í svona málum.
Hvað ef sveitarfélagar lenda
saman í síðustu umferð í viðkvæmu
móti þarsem annað parið er að
berjast um efsta sætið, en hitt parið
löngu hætt að „berjast". Hver álas-
ar þeim sem tapar? (Væntanlega
vita nú allir hver tapar, séu menn í
svona aðstöðu). Enginn. En, það á
ekki að líðast að menn geti lent í
svona stöðu. Enginn hefur gaman
af að sigra á þennan hátt og ekki
líður hinum betur, sem hafa „fórn-
að“ sér.
Vonandi sjá lesendur hvað um-
sjónarmaður er að fara. Lausnin á
þessu er einföld. Einfaldlega hætta
að spila barometer. Taka upp
Mitchell eða álíka fyrirkomulag.
Að því er þátturinn best veit, er
þetta barometer-fyrirkomulag að
verða séríslenskt fyrirbæri. Fróðir
menn segja mér að í Norður-
Noregi noti menn svona fyrir-
komulag. Þetta er sennilega svipað
og með Vínarkerfið. Jafnvel
Austurríkismenn spila það ekki
lengur. Aðeins við og nokkrir
frændur okkar í N-Noregi.
Er ekki kominn tími til að gera
eitthvað í málinu?
Sumarbridge
f kvöld verður Sumarbridge
fram haldið í Borgartúni 18. Mjög
góð þátttaka var á 1. kvöldi sl.
fimmtudag, eða 60 pör. Væntan-
legir keppendur eru því minntir á
að mæta tímanlega til skráningar,
en spilamennska hefst í síðasta lagi
kl. 19.30.
Þó verður hafin spilamennska í
fyrstu riðlum um leið og þeir fyll-
ast, þannig að A-riðill gæti þess
vegna hafist 18.30 (hefur áður
gerst...).
Öllum er frjáls þátttaka meðan
húsrúm leyfir. Keppnisgjald er kr.
100 á mann, sem greðist við skrán-
ingu.
Til vara eru:
Hjálmtýr Baldursson og Ragnar
Hermannsson Reykjavík,
Hallgrímur Hallgrímsson og Sig-
mundur Stefánsson Reykjavík,
Gyifi Baldursson og Sigurður B.
Þorsteinsson Reykjavík.
Þegar síðast hafði frést (sunnu-
dag) höfðu engin forföll verið boð-
uð í 24 para hópnum.
Nú, spilamennska hefst einsog
áður sagði kl. 13., á laugardag og
verður spilað um daginn. Síðan
verður næsta lota um kvöldið og
þriðja lotan verður spiluð á sunnu-
dag.
Þegar litið er yfir þátttökupörin í
fljótu bragði virðist manni að þessi
keppni verði athyglisverð. Aðal-
steinn og Óli og Guðmundur og
Jón Hj., eru vægast sagt athygli-
sverð. „Gömlu" mennirnir, Jón og
Símon og Ásmundur og Karl eru
þó líklegir til að gefa lítið eftir, þeg-
ar í slaginn er komið. Yngri
„gömlu“ mennirnir, Þórarinn og
Guðmundur, Sigurður og Valur og
Jón B. og Hörður, geta allir sett
strik í útreikning og útkomu ann-
arra og ekki má gleyma pörum
einsog Hrólfi og Jónasi, Hermanni
og Ólafi, Birni og Guðmundi og
Jóni og Eiríki, auk Ásgeirs og Guð-
brands. Ekkert af þessum pörum
er auðunnið og gætu hæglega stað-
ið uppi sem sigurvegarar.
Þátturinn hefur þá bjargföstu
trú, að þessi pör skipi 8-9 efstu sæt-
in (enda helmingur upptalinn...)
og sigurvegarana sé að finna í upp-
talningunni. En hart verður barist
og hvert stig dýrmætt, enda hefur
það sýnt sig undanfarin ár að oftast
skilur aðeins eitt spil efstu pörin
frá. Og það er naumt í 115 spila
móti í tvímenning.
FÓSTRUR
Starfsfólk meö fóstrumenntun vantar viö
barnaheimili Siglufjaröarkaupstaðar, m.a. til
að veita heimilinu forstöðu.
Bæjarstjórinn Siglufirði.
Sorphaugar -
gæsla -
vélavinna
Hafnarfjaröarbær leitar tilboða í gæslu og
vélavinnu á sorphauginn viö Hamranes.
Einnig er óskað eftir tilboðum í flutning jarð-
efna til verksins. Útboösgögn veröa afhent á
skrifstofu bæjarverkfræöings Strandgötu 6
gegn 1000 króna skilatryggingu. Tilboö
veröa opnuð á sama stað miðvikudaginn 30.
maí kl. 14.
Bæjarverkfræðingur.
ÓDÝRARI
barnaföt
bleyjur
leikföng
,e\^
,sk\Pv
•s<
Dúllá
Snorrabraut 22
íslandsmótið í tvímenning, úr-
slit, verða spiluð um næstu helgi.
Spilað verður á Loftleiðum og hefst
spilamennska þar kl. 13.
24 efstu pörin úr 96 para undan-
rás munu spila til úrslita, 5 spil milli
para, allir við alla. Eftirtalin pör
spila:
Rúnar Magnússon og Stefán
Pálsson Reykjavík,
Ásgeir P. Ásbjörnsson og Guð-
brandur Sigurbergsson Reykjavík,
Aðalsteinn Jörgensen og Óli Már
Guðmundsson Reykjavík,
Ingvar Hauksson og Orwell Utley
Reykjavík,
Sigurður Sverrisson og Valur Sig-
urðsson Reykjavík,
Guðmundur Sveinsson og Jón
Hjaltason Reykjavík,
Sigurður Vilhjálmsson og Sturla
Geirsson Kópavogi,
Ásmundur Pálsson og Karl Sigur-
hjartarson Reykjavík,
Steingrímur Þórisson og Þórir
Leifsson Borgarfirði,
Sigfús Ö. Árnason og Sverrir Krist-
insson Reykjavík,
Hrólfur Hjaltason og Jónas P. Er-
lingsson Reykjavík,
Halla Bergþórsdóttir og Kristjana
Steingrímsdóttir Reykjavík,
Jón Ásbjörnssori og Símon
Símonarson Reykjavík,
Jón Alfreðsson og Eiríkur Jónsson
Akranesi,
Hermann Lárusson og Ólafur Lár-
usson Reykjavík,
Jón Baldursson og Hörður Blöndal
Reykjavík,
Björn Eysteinsson og Guðmundur
Sv. Hermannsson Reykjavík,
Ólafur Valgeirsson og Ragna Ól-
afsdóttir Hafnarfirði,
Guðmundur Páll Arnarson og Þór-
arinn Sigþórsson Reykjavík,
Július Snorrason og Sigurður Sig-
urjónsson Kópavogi,
Arnar Geir Hinriksson og Einar
Valur Kristjánsson ísafirði,
Georg Sverrisson og Kristján
Blöndal Reykjavík,
Vilhjálmur Sigurðsson og Vil-
hjálmur Vilhjálmsson Kópavogi,
Jakob R. Möller og Páll Bergsson
Reykjavík.
Nýtt fyrirkomulag
á útreikningi
í landsliðskeppninni á dögunuir
var reynt nýtt fyrirkomulag á stiga-
gjöf, vinningsskali.
Hann var á þessa leið:
0-2 imp: 15-15
3-7 imp: 16-14
8-10 imp: 17-13
11-14 imp: 18-20
15-18 imp: 19-11
19-22 imp: 20-10
23-26 imp: 21-9
27-30 imp: 22-8
31-34 imp: 23-7
35-38 imp: 24-6
39-43 imp: 25-5
44-48 imp: 25-4
49-54 imp: 25-3
55-60 imp: 25-2
61-66 imp: 25-1
67-yfir: 25-0
Ólafur Lárusson
skrifar um
bridge
Með þessum vinningsskala fellur
út þetta leiðinda mínus-
fyrirkomulag, sem hvergi þekkist í
neinni íþróttagrein nema í bridge.
Eða hver hefur heyrt um íþrótta-
mann sem er lélegri í bridge en svo
að núllið nái ekki að segja allt um
getu viðkomandi? Þarf endilega að
stimpla það svo rækilega, þegar
menn tapa að gefa mönnum mínus-
stig og segja um leið: Heyrðu vin-
ur, snúðu þér frekar að vistinni?
Umsjónarmaður skorar því
hérmeð á Bridgesambandsstjórn
að gera gangskör í því að koma
þessum vinningsskala á í sveita-
keppni. Einnig í leiðinni að endur-
skoða barometer-fyrirkomulagið í
tvímenning. Það er til háborinnar
skammar að landsmót skuli enn
spilað eftir barometer-fyrirkomu-