Þjóðviljinn - 08.06.1984, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 08.06.1984, Blaðsíða 3
Föstudagur 8. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Eignarmissirinn og snyrtivörufyrirtækið Jóhanna Heiðdal Allt var í lagi með fyrirtækið En Kristjana og nýja félagið klúðraði viðskiptunum „Af minni hálfu var allt í lagi með þetta fyrirtaeki“, sagði Jóhanna Heiðdal sem seldi hlutafélagi snyrt- ivörufyrirtaekið sem Kristjana Helgadóttir greindi frá í Þjóðvilj- anum í gær. Jóhanna sagðist hafa farið með Kristjönu, syni hennar og tengda- dóttur til London til að kynna um- boðið sem aðallega væri rætt um. Talað hefði verið við lögfræðing fyrirtækisins sem lagði blessun sína yfir sölu umboðsins. Jóhanna kvað Kristjönu hafa misst umboðið vegna vanrækslu í bréfasamskipt- um og fleiru. Jóhanna kvaðst hafa unnið þetta fyrirtæki upp á mörgum árum, en hins vegar hefði fólk verið með fyr- irtækið í skamman tíma en lagt síð- an árar í bát, - og síðan kært til Rannsóknarlögreglunnar. „Það finnst mér ekki rétt aðferð í við- skiptum", sagði Jóhanna. Jóhanna Heiðdal sagði að þessu máh væri ekki lokið af hennar hálfu. Þetta fólk ætti eftir að heyra frá henni síðar. - ss. Lögfræðingur Kristjönu segir: Skuldir Jóhönnu lokuðu rekstrinum ,JÉg stóð að því að kæra þessi við- skipti til Rannsóknarlögreglu rfkis- ins. Ljóst er að Jóhanna Heiðdal stóð í óbættri sök við umbjóðendur erlendis. Þegar Kristjana Guð- mundsdóttir og synir hennar ætl- uðu að hefja rekstur snyrtivöru- fyrirtækisins sem þau keyptu af Jó- hönnu Heiðdal, þá var ekki hægt að Fjárfestingarmarkaðurinn veitir öllum sömu þjónustu Það er mitt starf að reikna út greiðslubyrði fyrir fólk segir Anna Heiðdal festingarmarkaðurinn veitir hverj- um sem er og ég geri útreikninga af þessu tagi hverri“. margsmms - Nú kom fram hjá Kristjönu að skuldabréfin hefðu verið í sölu- meðferð hjá Fjárfestingarmarkað- inum? „Hluti bréfanna kom þar inn eins og ótal önnur bréf í sölumeð- ferð, en eigandinn tók þau aftur eftir tvo eða þrjá daga, þannig að þau fóru í raun aldrei þar í gegn. Ég kvittaði fyrir móttöku bréfanna á sínum tíma, en hafði engin frekari afskipti af þeim, eða málinu sjálfu.“ . - ÁI. halda viðskiptum áfram. Erlendis hafði verið lokað á þau vegna vangreiddra skulda frá fyrri eiganda“, sagði Ammundur Bac- kman í viðtali við Þjóðviljann í gær en hann er lögfræðingur Kristjönu Guðmundsdóttur. í blaðinu í gær var rakin saga Kristjönu af viö- skiptum hennar við Jóhönnu Heiðdal. Kristjana Guðmundsdóttir og fjölskylda hennar sáu þá einu leið færa að selja hús sitt til að þau gætu staðið í skilum. Þau fengu ekki vömr til landsins. Það hafði verið kippt fótum undan rekstrinum. Auk þess seldi Jóhanna fyrirtækið á gífurlegu yfirverði og var það mál m.a. fólgið í að ofmeta lagerinn. Fyrirtækið er nú að verða verðlaust og þess vegna hefur skjólstæðingur minn misst eigur sínar“, sagði Am- mundur Backman lögfræðingur. „Það er einfaldlega mitt starf að reikna út greiðsluby rði fyrir fólk og ég skorast ekkert undan slíku þó systir mín eigi I hlut“, sagði Anna Heiðdal, starfsmaður Fjárfesting- armarkaðarins í gær. Eins og fram kom í viðtali Þjóðviljans í gær við Kristjönu Guðmundsdóttur reikn- aði Anna út greiðslubyrði af skuldabréfum sem Kristjana gaf fyrir heildverslun Jóhönnu Heið- dal. „Ég hef ekkert meira um þetta mál að segja“, sagði Anna. „Þetta er einfaldlega þjónusta sem Fjár- Starfsreglur lögmanna Vísa mönnum til rannsóknarlögreglu Lögmönnum ber að starfa innan ramma laganna og ef þeim er kunn- ugt um að einhver ákveðinn aðili er flæktur í net okurlánara þá er al- menn regla að þeir bendi viðkom- andi að leita til Rannsóknarlögreglu ríkisins. Þess- ar upplýsingar fékk Þjóðviljinn hjá Lögmannafélaginu í gær. Bent var á að aðili sem telur að á sér hafi verið brotinn réttur af lög- fræðingum getur kvartað til stjóm- ar Lögmannafélagsins sem hefur visst aga- og eftirlitsvald með lög- mönnum auk þess sem dómstóla- leiðin sé ávallt opin. Þá sé lögmönnum einnig skylt að benda skjólstæðingum sínum á að jafnvel þó að mál kunni að vinnast á pappírnum, þá gæti ekkert feng- ist úr úr því ef gagnaðili væri eigna- laus og þá þyrfti skjólstæðingurinn að borga kostnað vegna málsins. Innan Lögmannafélagsins gilda á- kveðnar siðareglur þar sem megin- atriðið er að lögmaður gæti í hví- vetna hagsmuna skjólstæðings síns. Ef lögmaður bregst þessum starfsskyldum getur komið til kasta stjórnar Lögmannafélagsins. Bókin semhlýtur aðveröa bönnuð Bréf Úlfars Þormóðssonar útgefanda Spegilsinsti/ Þórðar Björnssonar r/kis- saksóknara með nokkrum vinsam- iegum ábendingum erkomið út. Götusala í fullum gangi. Tryggið ykkur eintak áður en Þórður tryggir sér þau öll.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.