Þjóðviljinn - 08.06.1984, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 08.06.1984, Blaðsíða 16
DWDVIUINN Föstudagur 8. júnl 1984 Aöalsimi Þjó&viljans ar 81333 kl. 9 -20 mánudag til föstudags. Ulan þess túna er hægt að ná í blaðámenn og aðra startsmenn blaðsins í þes$um símum: Ritstjórn Aöalsími Kvöldsími Helaarsíml 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 Borgarstjórn Reykjavíkur Adda Bára hættir Finnst 20 ár nokkuð eðlilegur hámarkstími Adda Bára Sigfúsdóttir borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins staðfesti í viðtali við Þjóðviljann í gær að hún hyggst ekki gefa kost á sér til setu í borgarstjórn að loknu yfirstandandi kjörtímabUi. „Ég hef skýrt borgar- málaráði flokksins frá ákvörðun minni fyrir nokkru“, sagði Adda Bára, en af síðastliðnum tuttugu og fjórum árum hefur hún setið tuttugu í borgar- stjórn. Aður hafði hún verið varamaður í tvö kjörtímabil. Adda Bára var önnum kafin við að búa sig undir borgarstjórnar- fund sem halda átti síðar í gær, en gaf sér þó tíma til að lýsa yfir að hún hefði haft mikla ánægju af starfinu í borgarstjórn. „Hæst ber að sjálfsögðu þegar meirihluti Sjálfstæðisflokksins féll í kosning- unum 1978, það var ógleymanlegt. Og það var mikill lærdómur fólginn í því að geta tekið þátt í stjórn borg- arinnar um sinn“. Aðspurð hví hún hefði tekið á- kvörðun um að hætta sagði Adda Bára að sér fyndist tuttugu ár vera nokkuð eðlilegur hámarkstími sem borgarfulltrúi. „Og við höfum nú mjög mikið af ungu og duglegu fólki sem mér finnst geta tekið við af mér“, sagði Adda Bára að lok- um. -ÖS. Adda Bára Sigfúsdóttir: Tuttugu ár edliiegur hámarkstími í borgar- stjórn. (Mynd: Loftur). Stríðsgas á Suðurnesjum? Dæmigert Dagblaðsrugl 44 segir Pórir Maronsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn • Hollustuverndin segir „stríðsgasið“ Freon „Þetta er dæmigert Dagblaðs- rugl“, sagði Þórir Maronsson, að- stoðaryfirlögrcgluþjónn í Keflavik í samtali við blaðið I gær er við spurðumst fyrir um stríðsgas í hans vörslu, en að sögn baksíðufréttar í DV í gær hafði fundist kútur með banvænu stríðsgasi í sorpeyðingar- stöð Suðurnesja í fyrradag. Frétt DV fylgdi, að lögreglan í Keflavík hygðist ræða við Bandaríkjaher og minna hann á að fara varlega með stríðstæki sin. Ef fréttin hefði verið rétt í DV hefði hér verið á ferðinni stórmál, og meira mál en svo að nægt hefði að „minna Bandaríkjaher á að fara varlega með stríðstæki sín“. Stríðs- gas er nefnilega bannað skv. al- þjóðasamþykktum og úr hefði orð- ið stórmál. Ólafur Pétursson hjá Hollustu- vemd ríkisins tjáði okkur, að í kútnum væri mónóklórótríflúor- metan, öðru nafni Freon, en það er notað sem kælivökvi í frystihúsum og algengt í spraybrúsum. Ef mað- ur kemst í snertingu við þetta efni í miklum mæli er heilsa hans í hættu, en stríðsgas er þetta ekki. „Það stafar tvímælalaust hætta af kútum með efni í á sorpeyðingarstöðum, því þetta er mjög rokgjamt efni og syður við +80 gráður“, sagði Ólafur. Kúturinn á sorpeyðingar- stöð Suðurnesja tómur. Þórir Maronsson, aðstoðaryfir- lögregluþjónn í Keflavík, sagði ekki vitað ennþá hvaðan kúturinn kæmi, og þeir hjá lögreglunni bíða nú eftir því, að fulltrúi heilbrigðis- eftirlitsins suður frá komi og taki kútinn í sína vörslu. ast. Sóknarkonur á Borgarspítalanum: 14 sagt upp Upplýst var á borgarstjórnar- fundi í gærkvöldi að búið væri að samþykkja í stjórn sjúkrastofnana og borgarráði breytt fyrirkomulag vegna ræstinga á Borgarspítalan- um sem hefur í för með sér að sagt verður upp 14 Sóknarkonum og hefur þetta nýja fyrirkomulag jafn- framt í för með sér aukið vinnuálag fyrir þær sem eftir verða, lækkuð laun, lélegri vinnuaðstæður og minni þrif, eftir reynslu erlendis frá. Úttektin sem þetta nýja fyrir- komulag byggist á hefur verið trún- aðarmál og var það Guðrún Jóns- dóttir, fulltrúi Kvennaframboðs sem rauf trúnaðinn með því að upplýsa málið á borgarstjómar- fundinum í gær. Lýsti hún furðu sinni á því hvers vegna úttektin væri trúnaðarmál. Það kom fram að spamaður af þessum hagræð- ingarráðstöfunum er aðeins 283 þúsund krónur en heildark- ostnaður við ræstinguna er um 57 miljónir króna. Samþykkt var að fresta afgreiðslu málsins til næsta borgarstjórnarfundar. - GFr. Langlsandur á Skaga er nú orðinn næstum eins langur og hann var éður en Sementsverksmlðjan var relst og hafnarframkvæmdlr hófust á Akranesl. Á góðvlðrlsdögum getur ekki meirl paradfs en Langasand og þar má jafnan sjá fólk á heilsubótargöngum og krakka að leik. (Loftur). Fréttir úr borgarstjórn Guðrún Jónsdóttir í borgarráð Kosið var í ýmsar nefndir og ráð borgarinnar í gærkvöldi. I borgarráði urðu breytingar þær að Guðrún Jónsdóttir var kjörin í stað Kristjáns Benediktssonar sem þar sat síðasta kjörtímabil. Þá var m.a. kosið í útgerðarráð BÚR en eftirleiðis verða í ráðinu 5 stjórnarmenn í stað 7 áður. Ragnar Júlíusson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Gúst'af B. Einars- son, Sigurjón Pétursson og Krist- ján Benediktsson hlutu kosn- ingu. Fundi lokað Til umræðu kom brottrekstur Magnúsar Skarphéðinssonar frá SVR en þar sem um einkamál er að ræða var ákveðið að loka fundi og veit því enginn hvað þar fór fram - nema borgarfulltrúar. Listamenn gerðir áhrifalausir í stjórn Kjarvalsstaða Samþykkt var ný reglugerð fyrir Kjarvalsstaði þar sem full- trúar myndlistarmanna eru gerð- ir nær áhrifalausir um stjórn þeirra. Sá sem mælti fyrir þessu var Ein.ir Hákonarson formaður stjórnar hússins. Flutti hann gagnmerka ræðu um félaga sína úr listamannastétt, og verður hún birt síðar hér í blaðinu. Tillaga Alþýðubandalags felld Felld var tillaga Alþýðubanda- lags um að gróða af uppboðssölu lóða við Stigahlíð yrði varið til þriggja nýrra starfa á hverfaskrif- stofum Félagsmálastofnunar, unglingastarfs í Seljahverfi, bókakaupa og vinnu við útibú í Gerðubergi og bað- og búnings- klefa í Laugardal. Stofnuð Kvennafylking samþykkt einróma á fundinum og ennfremur að það skyldi bera heitið Kvennafylkingin. Mikill hugur var í fundarkonum varðandi hið nýja félag og lýstu margar því yfir að þær væntu sér góðs af starfi þess. Kosið var í miðstöð Kvennafylk- ingarinnar og hana skipa nú: Ama Jónsdóttir, fóstra, Reykjavík, Hjálmdís Hafsteinsdóttir, verka- kona, Kópavogi, Ingibjörg Jóns- dóttir, háskólanemi, Hafnarfirði, Snjólaug Ármannsdóttir, hjúkmn- arfræðingur, Reykjavík, og Vil- borg Harðardóttir, útgáfustjóri, Reykjavík. Stofnfundur Kvennafylkingar- innar var haldinn að Hverfisgötu 105 þríðjudaginn 5. júní og var hann prýðilega sóttur. Félag þetta er opið öllum konum, 16 ára og eldri, og ekki er skilyrði að þær séu f Alþýðubandalaginu eða öðrum stjórnmálaflokkum - mega það þó. Lög fyrir hið nýja félag voru Heimilað niðurrif Breiðfirðingabúðar Heimilað var niðurrif sem eigandi Breiðfirðingaibúðar við Skólavörðustíg hefur farið fram á. Álfheiður Ingadóttir gagn- rýndi þau vinnubrögð að heimila niðurrif gamals húss án þess að búið væri að ákveða hvað ætti að koma í staðinn. Allir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiddu niðurrifinu atkvæði nema Hulda Valtýsdóttir, formaður Um- hverfismálaráðs, sem hefur lagst gegn heimildinni. Stúdentaráð: Vantraust á formann Á fundi Stúdentaráðs í gærkvöldi fengu vinstri menn samþykkt vantraust á formannog stjórn Stúdentaráðs fyrir vítavert aðgerðarleysi í lánamálum. Sérstakar átölur hlaut núverandi tor- maður Stúdentaráðs fyrir að hafa opin- berlega dregið mjög úr því að náms- menn efni til aðgerða gegn niðurskurð- arstefnu Kagnhildar Helgadóttur. -ÖS.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.