Þjóðviljinn - 08.06.1984, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 08.06.1984, Blaðsíða 5
Föstudagur 8. júnl 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 íbúafundur í Laugarnesi: Mótmæla verslunarlóð Reynt að fela málið fyrir borgarfulltrúum minnihlutans „Við þessir þrír borgarfulltrúar sem þarna vorum fórum af fundin- um með þau skilaboð íbúa til borg- arstjórnar, að þeir telja verslunar- lóð á þessum stað háskasamlega vegna umferðarinnar“, sagði Adda Bára Sigfúsdóttir um íbúafundinn í Laugarnesi í gær. „Það er hins vegar algert hneyksli hvernig Borgarskipulag brást við þessu fundarboði“, sagði Adda, „því minnihlutanum í skipu- lagsnefnd var ekki gert aðvart um fundinn. Við Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vorum þarna staddar, nánast fyrir tilviljun, hún vegna þess að hún sá auglýsingu um fund- inn í sundlaugunum og ég af því ég bý í hverfinu. Vilhjálmur formaður skipulagsnefndar var hins vegar boðaður á fundinn, enda Sjálfstæð- isflokksmaður“. Á fundinum voru auk íbúa og fyrrgreindra mættir starfsmenn frá Borgarskipulagi og Umferðar- deild. Þar kom fram að umferðar- deildin og umferðamefnd hafa ekki skoðað hugsanlega staðsetn- ingu verslunarmiðstöðvar við Sundlaugaveg, en borgarráð felldi á sínum tíma tillögu þar um frá Öddu Báru. Fundurinn var fjöl- sóttur og kom fram eindregin ands- taða íbúa við úthlutun verslunarl- óðar á svæðinu. -ÁI Skógardagur á morgun Eins og siður hefur verið und- anfarin ár hafa aðildarfélög Skógræktarfélags íslands vlð- svegar um land valið sérstakan ,„skógardag“ á hverju vori til þess að vekja athygli á starfsemi sinni og hvetja fólk til þátttöku I trjá- og skógræktarstörfum. Þetta árið varð fyrir valinu laugardagurinn 9. júní. Mörg félaganna gangast fyrir kynningu og eflingu félagsstarfs- ins í þessu tilefni og má í því sam- bandi nefna að Skógræktarfélag Eyfirðinga annast sérstaka dag- skrá í Ríkisútvarpinu n.k. sunnu- dag um skóg- og trjárækt í Eyja- firði. Er fólk hvatt til að taka virkan þátt í gróðursetningarstarfinu á þessu vori og gerast félagar í við- komandi héraðsskógræktarfé- lögum. |Afsláttur á þjónustu borgarinnar Rey kj avíkurkort fyrir ferðamenn Ákveðið hefur verið I stjórn Strætisvagna Reykjavíkur, að seija afsláttarkort handa ferða- mönnum, sem tryggi handhafa kortsins aðgang að sundstöðum borgarinnar, Arbæjarsafni, Ás- mundarsafni og ferðir I stræti- svögnum borgarinnar yfir gildis- tíma kortsins. Hugmyndum Guðrúnar Ágústsdóttur um mán- aðarkort I vagnana og sams konar afslátt fyrir Reykvíkinga hefur ekki fengið hljómgrunn I stjórn SVR. Afsláttarkortin fyrir ferða- mennina eiga að gilda í einn, tvo eða þrjá daga og kallast þau „Reykjavíkurkort“. Tillagan er komin frá „Samstarfsneftid um ferðamál“. Verð kortsins fer eftir gildistíma þess, en andvirðið skiptist milli hlutaðeigandi aðila, þar af er hlutur SVR 25% til 40% eftir gildistíma. í bókun frá Guðrúnu Ágústsdóttur við af- greiðslu málsins segir, að þessi þjónusta sé líkleg til að hvetja ferðamenn til að notfæra sér við- komandi þjónustu, en heima- menn kynnu að sama skapi að vilja notfæra sér afsláttarkortin. -óg Sjálfstæðisflokkurinn í stjórn SVR Gegn foreldrafélaginu Meirihluti Sjálfstæðisflokksins I stjórn SVR undir forystu Sigur- jóns Fjelsteds hafnaði á síðasta fundi sinum erindi Foreldra- og kennarafélags Æfingadeildar Kennaraskólans um uppsetningu biðskýlis andspænis skólanum. Guðrún Ágústsdóttir bar fram tillögu um að biðskýlið yrði sett upp við Háteigsveg, en sú tillaga hlaut einungis atkvæði hennar og Helgu Thorberg. Helga Thor- berg flutti þá tillögu um að bætt yrði við stoppistöð fyrir strætis- vagnana sunnanvert við Háteigs- veginn yfir vetrartímann meðan Æfingaskólinn starfar. Sú tillaga fékk einnig aðeins stuðning hennar og Guðrúnar Ágústsdótt- ur. í tillögu Sigurjóns Fjelsteds er gert ráð fyrir að kannað verði, hvort megi koma upp biðskýli við Háteigsveg að norðanverðu. -óg Gáfu hjartasóntæki Landssamtök hjartasjúklinga afhcntu Landsspítalanum svo- nefnt hjartasóntæki að gjöf nú um helgina. Fjársöfnun hinna nýstofnuðu landssamtaka hjartasjúklinga hófst í nóvember sl. fyrir þetta verkefni og segir í fréttatilkynn- ingu frá þeim að söfnuninni hafi verið afar vel tekið meðal ein- staklinga og félagasamtaka. Hjartasóntækið er mjög fullkomið að gerð og hefur lengi verið vant í landinu. í fréttatilkynningu samtak- anna segir að næsta verkefni hafi þegar verið ákveðið og muni sér- staklega koma þeim til góða sem á landsbyggðinni búa. Þá munu Landssamtök hjart- asjúklinga fá til afnota eigið húsnæði í Hafnarhúsinu við Grófina í Reykjavík innan skamms. -óg Kampakátir forráðamenn Arnarf lugs fyrlr framan nýja farkostlnn, níu sæta Cessna 402C árgerð 1981. Ljósm Atll Ný flugvél bætist í flota Arnarflugs Mikil aukning hjá Arnarflugi Ný flugvél hefur nú bæst I flug- flota Arnarflugs og er þar um að ræða vél af gerðinni Cessna 402C, níu sæta af árgerð 1981. Vélin var keypt I skiptum fyrir Piper Chey- enne II skrúfuþotu sem félagið átti. Á fréttamannafundi I gær kom fram að farþegum I innanlands- flugi, en hin nýja vél mun fljúga á innanlandsleiðum, hefur fjölgað um 7% fyrstu fimm mánuði ársins. Einnig hefur orðið aukning á vöru- flutningum. Að sögn forráðamanna Arnar- flugs er meginástæðan fyrir flugvél- askiptunum sú að með þeim næst aukin hagkvæmni í rekstri og við- haldi. Nú eru aðeins tvær tegundir flugvéla í flugflota innanlands- deildarinnar sem þýðir meiri hag- kvæmni í rekstri, viðhaldi og notk- un varahluta. Auk nýju vélarinnar á Arnarflug aðra Cessna 402C flugvél svo og nítján manna Twin Otter vél. Vélin sem seld var við flugvélaskiptin reyndist dýr í rekstri og af óhagkvæmri stærð. Mikil aukning hefur orðið á flutningum í áætlunarflugi milli landa það sem af er þessu ári. Farþ- egar voru orðnir 6207 að loknum fyrstu fimm mánuðum ársins, 39% fleiri en í fyrra og vöruflutningar höfðu aukist um 164% frá síðasta ári. Nú flýgur Amarflug með um 60% af farþegum ferðaskrifsto- fanna í leiguflugi auk þess sem flestar ferðir sem Amarflug skipu- leggur í sumar til Evrópu, em nú uppbókaðar. --v. JÚNÍ ÚTBOÐ RÍKISVÍXLA Skilafresturtilboöa ertil kl. 14:00 miövikudaginn 13. júní 1984. Tilboðum sé skilað til lánadeildar Seölabanka íslands, Hafnarstræti 10, Reykjavík, fyrir þann tíma. Útboösskilmálar, sem eru hliðstæðir þeim sem giltu í maíútboðinu, liggja frammi ásamttilboðseyðublaði í afgreiðslu Seðlabankans, en þeir eru helstir: IGert sé tilboð í lágmark 5 víxla hvern að ■ fjárhæð kr. 50.000.- þ.e. nafnverð kr. 250.000.-, eða heilt margfeldi af því. 2. 3. Tilboðstrygging er kr. 10.000.- Útgáfudagur víxlanna er 15. þ.m. og gjalddagi 14. september n.k. A Ríkisvíxlarnir eru stimpilfrjálsir og án þóknunar. 5 Um skattalega meðferð þeirra gilda sömu reglurog hverju sinni um innstæður í bönkum og sparisjóðum. Reykjavik, 7. júni 1984 RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.