Þjóðviljinn - 08.06.1984, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 08.06.1984, Blaðsíða 7
Föstudagur 8. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 Kramhúsið vígt með Listahátíðarnúmeri: Danskur nútímadans með íslensku ívafi I gamalli trésmiðju að Bergstað- astræti 9b (bakhúsið) hefur verið innréttaður mjög skemmtilegur danssalur í eigu Hafdísar Árnadótt- ur danskennara. Þarna munu fara fram námskeið í ýmsu sem við kem- ur dansi, leiklist og hreyfingum. I fyrradag áttu blaðamenn þess kost á að hitta dansarann og koreo- grafen Jytte Kjöbek frá Danmörku og meðdansara hennar Henrik Boye Christensen en þau munu dans nútímadans í Kramhúsinu kl. 20.30 í kvöld og einnig á laugar- dagskvöld og sunnudagskvöld. Er það þáttur í Listahátíð, en einnig munu þau halda námskeið í dansi í Kramhúsinu. Jytte Kjöbek á sér merkan dansferil og hefur tekið þátt í sýn- ingum víða á Norðurlöndum. í fyrra tók hún t.d. þátt í Bergen- festivalinu og einnig samdi hún ballett sem sýndur var af Hövik- ballettinum í Noregi og var hann sýndur á Munchsafninu og Sonje Hejne safninu í Osló. Þess skal get- ið að hún er einnig magister í dönsku og hefur kennt þá grein við menntaskóla og árið 1970 lærði hún íslensku í 8 vikur við Háskóla íslands. Sýningin í kvöld og næstu kvöld nefnist Mellem-rum og flokkast undir dans-skulptur. Dansaðir verða þrír dansar og eru tveir þeirra samdir í náinni samvinnu milli Jytte Kjöbek og myndhöggvarans Willy Örskov. Tónlistin er hins vegar samin af ís- lenska tónskáldinu Karólínu Eiríksdóttur og Dananum Hans Abrahamsen. Einn þessara dansa er saminn sérstaklega fyrir íslands- ferðina og nefnist hann Geirfugl- asker. Bæði Jytte og Henrik Boye Christensen hafa undanfarið unnið með Danaballettinum og dans- leikhúsinu Corona. -GFr Leikfélag Hornafjarðar í Iðnó í kvöld: EUiærisplanið eftir Gottskálk Leikfélag Hornafjarðar frumsýnir í Iðnó í kvöld Ell- iærisplanið eftir Gottskálk og er Biynja Benedikts- dóttir leikstjóri. Verkið verður síðan aftur flutt á miðnætursýningu kl. 23.30. Elliærisplanið er flutt í náinni samvinnu höf- undar og leikstjóra en leikarar hafa sjálfir samið söngtexta. Leiktjöld eru aðhlutaunninúrhug- myndum grunnskóla- nema á Höfn og í Nesjum. Lesendur Þjóðviljans rekur sjálfsagt minni til bráðfyndinna greina dr. Gottskálks um árið en hér er sá hinn sami að verki. Sjálfur segir hann m.a. í leikskrá Elliæris- plansins: „Maður getur fengið hug- mynd að harmleik á hverjum morgni við morgunverðarborðið. Það nægir að líta í dagblaðið. En gamanleikrit eru fyrst og fremst vinna. Því það verður að vera mjög flókið til að virðast ofureinfalt. Persónur í tragedíu eru á réttum stað á réttum tíma eða þær vantar á sviðið einmitt þegar hetjan þarf mest á þeim að halda. Persónur í gamanleikritum koma á sviðið þeg- ar enginn þarf á þeim að halda. Höfundurinn ýtir þeim inn, áhorf- andinn fagnar því að sjá þær og þær Höfundurinn Qottskálk. sjálfar bjarga sér eftir bestu getu; - því verr, því betra. Gamanleikur er heimur á hvolfi. Persónumar eru ekki eins og við, alvarleg og skynsöm, heldur eins og við vildum vera, svona eins og einu sinni. í harmleikjunum stöndum við með þeim „góðu“, í gamanleikjunum með þeim „vondu“. Svo framar- lega sem þær lenda í sem mestum vandræðum." Með helstu hlutverk fara Gísli Arason, Ingunn Jensdóttir, Haukur Þorvaldsson og Guðni Brynjólfsson en alls taka um 20 manns þátt í sýningunni. -GFr Úr Elllærlsplanlnu. Háskólabíó í kvöld: Oratórían • • Orlagagátan Söngdrápan „Örlagagátan“ eftir Björgvin Guðmundsson við texta eftir Stephan G. Stephans- son hefur verið flutt við mikla hrifningu norður á Akureyri að undanförnu en í kvöld gefst lista- hátíðargestum kostur á að hlýða á þennan flutning í Háskólabíói kl. 20.30. Það er Passíukórinn á Akur- eyri sem flytur ásamt félögum úr karlakómum Geysi, Söngfé- laginu Gígju og fleirum. Ein- söngvarar em ekki af lakara tag- inu, en þeir eru Ólöf Kolbrún Harðardóttir sópran, Þuríður Baldursdóttir alt, Jóhann Már Jóhannsson tenór, Michael J. Clarke bariton og Kristinn Sig- mundsson bassi. Stjórnandi er Roar Kvam en Sinfóníuhljóm- sveit íslands leikur undir. Efni óratóríunnar sótti Björg- vin Guðmundsson í Þiðranda þátt og Þórhalls, sem er einn hinna 40 íslendingaþátta, og er víg Þiðranda Síðu-Hallssonar þungamiðja verksins ásamt að- draganda og eftirköstum þess sorglega atburðar. Jytte KJöbek. UTBOÐ Fjölbrautaskóli Suðurlands, Selfossi, auglýsir hér með eftir tilboðum í nýbyggingu við Tryggvagötu 25, Selfossi. Um er að ræða uppsteypu fyrri áfanga hússins frá gólfplötu fyrstu hæðar. Utboðsgagna má vitja á skrifstofu Fjölbrautaskólans, Austurvegi 10, Selfossi og á teiknistofu Magga Jóns- sonar, arkitekts, Ásvallagötu 6, Reykjavík, frá og með 8. júní gegn skilatryggingu. Tilboð verða opnuð að Austurvegi 10, þriðjudaginn 26. júní kl. 11.00 Bygginganefnd F.Su. Lausar stöður idl Við Menntaskólann á ísafirði eru eftirtaldar stöður lausar til umsóknar: Staða þýskukennara, frönskukennara (1/2 staða), dönskukennara (1/2 staða) og efnafræðikennara (1/2 staða). Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 4. júlí n.k. Menntamálaráðuneytið 6. júní 1984 Sambýli á Egilsstöðum Starfsfólk óskast Sambýli fyrir fatlaða á Egilsstöðum tekur til starfa 1. september n.k. Óskum því eftir að ráða forstöðumann frá 15. ágúst og starfsmenn frá 1. sept. n.k. Sambýlið er ætlað andlega hömluðu fólki og er fyrir 6 íbúa. Umsóknir sendist til: Svæðisstjórn Austurlands um málefni fatiaðra, Vonarlandi, Egilsstöðum. Lausar stöður Við Tækniskóia íslands eru eftirtaldar stöður lausar til um- sóknar: 1. Staðadeildarstjóra/kennara í rekstrargreinum, þ.á.m. út- gerðardeild. 2. Kennarastaða í rekstrar- og stjórnunargreinum. 3. Kennarastaða í stærðfræði. 4. Kennarastaða í dönsku (1/2 staða). Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir meö ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 4. júlí n.k. Menntamálaráðuneytið, 6. júní 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.