Þjóðviljinn - 08.06.1984, Síða 4

Þjóðviljinn - 08.06.1984, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐyiLJINN' Fðstudagur 8. júní 1984 DJÚÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufólag Pjóðviljans. Framkvœmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Auglýsingastjóri: Ólafur Þ. Jónsson. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaðamenn: Auður Stvrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir.Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla- son, Ólafur Gíslason, óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafróttaritari: Víðir Sigurðsson. ,Útlit og hönnun: Haukur Már Haraldsson, Þröstur Haraldsson. Ljósmyndir: Atli Arason, Einar Karlsson. 'Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Auglýalngar: Margrét Guðmundsdóttir, Ragnheiður Óladóttir, Anna Guðjónsdóttir .Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir. Símavarsla:|Sigríður Kristjánsdóttir og Aðalbjörg Óskarsdóttir. Húsmóðir: Ðergljót Guðjónsdóttir. Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir. Innheimtum.: Brynjólfur Vilhjálmsson Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaðaprent hf. Nánari skýringar Þegar kjarasamningar eru á dagskrá tilkynna for- ystumenn atvinnurekenda að fyrirtækin geti alls ekki greitt hærra kaup. Slíkar yfirlýsingar voru sérstaklega áberandi við gerð síðustu kjarasamninga. Pá sögðu atvinnurekendur að hin litla kauphækkun væri jafnvel meiri en fyrirtækin gætu borið. Þessi opinbera afstaða samtaka atvinnurekenda er hins vegar í engu samræmi við veruleikann. Á undan- förnum mánuðum hefur komið æ betur í ljós að mikill fjöldi fyrirtækja greiðir mun hærra kaup en samið er um milli ASÍ og VSÍ. Yfirborganir og launafríðindi fara sífellt vaxandi. Algengt er að 15-25% viðbót við launin sé greidd samkvæmt ákvörðunum sem teknar eru af fyrirtækjunum sjálfum og í mörgum tilfellum eru yfir- borganirnar enn meiri. Auk þessara hreinu yfirborgana veita fyrirtæki margvíslegar uppbætur á laun. Bætt er við greiðslum fyrir hinn svonefnda „þrettánda mánuð“, nokkrum sinnum á ári eru greiddar viðurkenriingar fyrir framlag til góðrar afkomu; bflastyrkir, fæðis- greiðslur og margt annað kemur hér einnig við sögu. f rauninni hefur þróunin frá valdatöku ríkisstjórnar- innar fest í sessi tvenns konar launakerfi í landinu. Annars vegar eru laun samkvæmt hinum formlegu kjarasamningum. Hins vegar er hið raunverulega markaðskerfi þar sem samkeppnin um vinnuaflið og góð afkoma fyrirtækjanna leiðir til mun hærri launa- tekna. Það er merkilegt að þeir forystumenn atvinnu- rekenda og ríkisstjórnar sem sí og æ eru að boða ágæti markaðskerfisins loka algerlega augunum fyrir þeirri staðreynd að lögmál markaðarins sýna æ skýrar að fyrirtæki á íslandi geta greitt mun hærri laun en skráð eru við hið formlega samningaborð. Yfirborganirnar verða svo risavaxnar þegar fyrirtækin eru að ráða stjórnendur í sína þjónustu. Algengt er að þá sé samið um 70.000-100.000 krónur í mánaðarlaun auk margvíslegra fríðinda. Slíkar greiðslur hafa á síð- ustu misserum aukið mjög launamuninn í landinu. Vit- að er um fjölda fyrirtækja sem greiða stjórnendum svona há laun og síðan eru almennum starfsmönnum borgaðar 35.000-45.000 krónur á mánuði. A meðan fyrirtækin í landinu eru að festa þetta raun- verulega launakerfi í sessi á sínum vettvangi eru þús- undir opinberra starfsmanna og félagsmanna í lág- launafélögum ASÍ bundnar við 15.000-17.000 krónur í mánaðarlaun. Þessi munur er að skapa hróplegt mis- rétti í landinu. Það er því brýn nauðsyn að hækka hin formbundnu laun til samræmis við hinar raunverulegu ákvarðanir stjórnenda fyrirtækjanna. Forystumenn at- vinnurekenda ættu að setja blekkingagrímuna niður í skúffu og þora að ræða launamálin á grundvelli þeirra launaákvarðana sem verið er að taka í fjölda fyrirtækja. Yfirborganir Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismaður bar það á bankakerfið að ekki væru tekin veð við veitingu afurða- lána og einu fyrirtæki, SÍS, væri algerlega sleppt við að láta í té veð þegar bankar veittu því lán. Þjóðviljinn krafðist þess að bankastjórar svöruðu þessum ásökunum og í gær birtist yfirlýsing frá banka- stjórum Landsbankans, Helga Bergs og Jónasi H. Har- aíz. Þeir fullyrða að bankar hafi veð í birgðum sem lánað er út á og Helgi Bergs segir í viðtali við Þjóðvilj- ann að Sambandið fái ekki lán nema gegn tryggingum. Eyjólfur Kooráð Jónsson lýsir því hins vegar yfir í viðtali við Þjóðviljann að þessar yfirlýsingar breyti engu um það sem hann hafi haldið fram. Það er því ljóst að allir málsaðilar þurfa að láta í té nánari skýringar. klippt „Spara elgi aga við svelninn..." Með árunum hefur hlnn strangl melstarl mlldast enda Gelr reynst vera námfús lærisvelnn. Kveðjustundin runnln upp og báðlr orðnlr hálfklökklr. Ljósm. Atli In memoriam Það var hátíðleg stund á Mím- isbamum á Hótel Sögu í fyrra- dag. Framundan var sorgleg kveðjuathöfn og hin ódauðlega húsmóðir í Vesturbænum, Magn- ús Þórðarson hjá Varðbergi, var mætt í bláum fötum sínum fyrir hönd íslenskra natómanga. f homum barsins húktu sendi- menn erlendra ríkja og létu lítið yfir sér. Heiðursgesturinn sem beðið var eftir var dr. Jósep Lúns, sem lætur af embætti aðal- ritara Nató síðar í þessum mán- uði og var kominn á fomar slóðir að kveðja vini. „Ég hef alltaf verið hrifinn af íslendingum“ sagði, dr. Jósep þegar hann loksins kom með fé- laga sínum Geir Hallgrímssyni og horfði með föðurlegri mildi á Mr. Hallgrímsson sem horfði á móti með þess konar augnaráði að upp í hugann kom ritningarstaðurinn þar sem segir: „Spara eigi aga við sveininn..." Hroki valdsmannsins Dr. Jósep er Hollendingur, og var eitt sinn utanríkisráðherrra lands síns og kom sem slíkur til íslands í fyrsta sinn árið 1963. Hann hefur löngum haft mikið vald í sínum höndum, hefur lært að hlusta ekki á raddir almenn- ings en fara fram vilja sínum og Nató. í stuttu máli: Dr.Jósep Lúns er spilltur af hroka valdsins. Þetta kom skýrt fram á blaða- mannafundinum á Mímisbar. Aðalritarinn var þar spurður um afstöðu hollensku ríkisstjórnar- innar til nýju kjarnorku- flauganna sem verið er að setja upp víðs vegar um Evrópu, en Hollendingar hafa þjóða mest andæft uppsetningu flauganna á landi sínu. Þrátt fyrir að þarlend ríkisstjóm sé enn ekki búin að samþykkja flaugarnar sagði aðal- ritarinn án þess að hika: „Ég get sagt með vissu að stjórnin mun samþykkja fiaug- arnar.“ Rökhyggjan brást í þessu birtist hroki valdsins. Nató og félagi Jósep ætla að gera það sem hægt er til að knýja stjórn Hollendinga til að setja upp drápsflaugar í blóra við al- menning. En þessi tegund lýðræðis- hyggju var einmitt í öndvegi í til- teknum hollenskum stjómmála- flokki sem átti uppgangstíma meðan nasistar hertóku Hol- land, og dr. Jósep mun hafa dág- óð kynni af, eins og frægt varð um alla Evrópu á sínum tíma. Dr. Jósep sagði líka: „Sovét- menn geta ekki unnið kjamork- ustríð“. Þegar honum var bent á að þá hlyti að vera í lagi fyrir Nató að samþykkja kröfur friðarsinna um að frysta kjamavopn Nató í núverandi horfi brást hon- um rökhyggjan. Nei, það væri ekki hægt, sagði aðalritarinn, því aldrei væri að vita uppá hverju Sovétmenn tækju og því þyrfti að hafa vopnin í takt við nýjustu tækni. Vinafár utanríkisráð- herra Svo kvöddu þeir félagamir hvor annan og var báðum tregt um mál. Geir kvaðst sjá á bak góðum vini og Jósep seig við þetta saman í herðunum og var ögn hrærður. Þetta var dapurleg stund fyrir okkur alla, og barinn lokaður. Á föstudag flýgur svo dr. Jósep heim og kemur aldrei aftur. Eftir situr einmana utanríkisráð- herra, án umboðs frá kjósendum og fár að vinum í flokki úlfa. Sá vinur sem hann á í dag floginn á morgun. Eða einsog Jón Grind- víkingur sagði um meistara sinn millum beiskra tára: „Minn herra á aungvan vin“. -ÖS Geðþóttavald í könnunum Ritstjórar Morgunblaðsins hafa gjörsamlega misst áttimar eftir að Þjóðviljinn fletti ofan af ákvörðun þeirra um að birta ekki niðurstöður skoðanakönnunar, sem blaðið hafð keypt eða stóð til boða hjá Hagvangi um afstöðu til stjómmálaflokka. Morgunblaðið reynir að snúa sig út úr prinsip- umræðu með því að staðhæfa að Þjóðviljinn hafi haldið því fram að þagað væri um niðurstöðurnar vegna þess að þær væru óþægi- legar fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Ef skrif Þjóðviljans em skoðuð sést hvergi er látið að slíku liggja af blaðsins hálfu. Hinsvegar sagði Hrafnkell A. Jónsson bæjar- stjórnarmaður Sjálf- stæðisflokksins á Eskifirði að gmnsemdir vöknuðu þegar stað- ið væri þannig að málum eins og Morgunblaðið gerði, og hann yndi því illa að leitað væri eftir persónulegum skoðunum hans án þess að hann vissi hver um þær bæði eða hvort geðþótti kaupánda réði einn um birtingu heildamiðurstöðu í könnun. Hrafnkell hafði sjálfur leitað til Morgunblaðsins og Hagvangs og af þeim samtölum kvaðst hann ekki hafa ráðið annað en að Hag- vangur hafi skilað skoðana- könnun um fylgi stjómmála- flokkanna til Morgunblaðsins að beiðni þess. Síðan hafi verið tekin ákvörðun um að birta hana ekki eins og Staksteinar viðurkenir sl. miðvikudag af því hún hafi verið of gömul. Það má vel vera að könnunin hafi aðeins verið „vara“ sem Hagvangur bauð Morgunblaðinu til kaups og Mogginn hafi ekki viljað kaupa vegna þess að það hafi verið farið á „slá í“ vömna. Þjóðviljinn sá hinsvegar ekki ástæðu til þess að rengja orð Hrafnkels A. Jóns- sonar sem er glöggur maður og hafði sjálfur kannað málið. Ekki venjuleg vara Skoðanakannanir em hinsveg- ar ekki venjuleg vara. Það er mergurinn málsins. Bæði ein- staklingamir sem svara og al- menningur eiga rétt í þessu efni sem ekki má vanvirða. í þessu dæmi sem rakið hefur verið er ljóst að nærri lá við að það væri gert, hvort sem sökin er Hag- vangs eða Morgunblaðsins. Þorbjöm Broddason lektor hefur notað þetta dæmi til þess að sýna fram á nauðsyn lagasetning- ar um birtingaskyldu skoðana- kannana. Hann hefur lagt til að leitt verði í lög að óheimilt sé að halda leyndum meginniðurstöð- um svara við nokkurri spumingu, sem lögð hefur verið fyrir í könnun meðal almennings." Þetta hefur orðið Morgunblað- inu tilefni í rætnar persónulegar árásir á Þorbjöm. Og Staksteinar sem er að þusa um óheilindi, rangfærslur og siðleysi andlegra skyldmenna sinna Dagfara og Skugga í DV og NT fellur flatur í sömu gryfju: „Ekki er hirt um það hér að fjalla um það sem Þor- bjöm, sem er einhver daufasta týra er birtist í fjölmiðlum og sést yfirleitt ekki nema við tungl- myrkva, lætur hafa eftir sér“. Þetta er „málefnalegt“ svar Morgunblaðsins við umræðu sem snertir grundvallaratriði. Það er reisn yfir hlutunum í Aðalstræt- inu þessa dagana. -ekh

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.