Þjóðviljinn - 11.08.1984, Blaðsíða 14
BÆJARROLT
GULLNI HANINN
BISTRO Á BESTA
STAÐÍBÆNUM
V'eitingasalurinn er ekki stór í sniðum,
hann er mátulega stór til að skapa
rétta stemmningu, góð persónuleg tengsl
á milli gesta og þeirra sem þjóna þeim til borðs.
Svo eru fáir, sem slá Gullna hananum við
í matargerð.
Mjög fáir.
LAUGAVEGI 178, SÍMI 34780
Kennsla
fjölfatlaðra barna
Tvo kennara vantar nú þegar til að sinna kennslu
fjölfatlaðra barna í sérdeild Egilsstaðaskóla. Góð
kennsluaðstaða. Húsnæði í boði og ýmis fríðindi.
Skólastjóri, Ólafur Guðmundsson, verður til viðtals á
skrifstofu Kennarasambands íslands, Grettisgötu 89
(3. hæð), Reykjavík, mánudag, þriðjudag og miðviku-
dag næstkomandi kl. 13 - 15 og veitir upplýsingar í
síma 91-40172 sunnudag 12. ágúst.
Skólanefnd Egilsstaðaskólahverfis.
Frá Grunnskólunum
á Akranesi
Kennara vantar í eftirtaldar stöður að Grundaskóla:
einn tónmenntakennara og einn kennara í almenna
kennslu. Að Brekkubæjarskóla: einn tón-
menntakennara.
Upplýsingar veita Guðbjartur Hannesson s. 93-2811
(Grundaskóli), Viktor Guðlaugsson s. 93-1938
(Ðrekkubæjarskóli), Ragnheiður Þorgrímsdóttir for-
maður skólanefndar, s. 93-2547.
Skólanefnd.
Eðlisfræðirannsóknir
Ráðgert er að ráða aðstoðarmann við rannsóknir í
eðlisfræði þéttefnis í vetur. Verkefni fela m.a. í sér
mælingar á eðliseiginleikum málma í segulsviði og við
lágan hita. Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun í
eðlisfræði eða skyldum greinum, auk nokkurrar
reynslu af tölvuvinnslu. Hlutastarf kemur til greina.
Laun skv. menntun og launakerfi opinberra starfs-
manna. Upplýsingar veita Dr. Hans Kr. Guðmunds-
son og Dr. Þorsteinn I. Sigfússon, Raunvísindastofn-
un Háskólans, sími 21340.
AÐ
TAPA
HAUSNUM
Þegar ég var 12 ára helltist yfir
mig geypilegur íþróttaáhugi. Ég
fór á völlinn hvenær sem ég gat og
skrifaði úrslit á öllum knatt-
spymuleikjum niður í stflabók.
Svo fór ég að æfa frjálsar íþróttir
hjá Benedikt Jakobssyni í KR og
sumarið sem ég var í Vinnuskóla
Reykjavíkur gafst mér kostur á
að vera heilan mánuð á Úlfljóts-
vatni. Þar var allsherjar íþrótta-
mót með víðavangshlaupi,
spretthlaupum, stökkum og
köstum. Ég sigraði í spretthlaupi
og langstökki og var annar að
stigum samanlagt. Sigurvegarinn
var tveimur árum eldri en ég.
Næsta sumar tók ég þátt í
Sveinameistaramótum og náði
góðum árangri. Alþýðublaðið
birti mynd af mér og sagði mig
vera efnilegan. Það sem batt
enda á íþróttaferil minn var
sumarið þegar ég var 15 ára. Þá
réði ég mig sem handlangara hjá
múrurum og var svo þreyttur á
kvöldin að ég gat hvorki æft né
keppt. Þannig fór um sjóferð þá.
En ég var geysilegur áhuga-
maður um frjálsar íþróttir og
fylgdist t.d. mjög gjörla með Ól-
ympíuleikunum í Róm 1960. Svo
eltist þetta af mér smám saman
og ég fór að telja mér trú um að ég
hefði andstyggð á þessu sprikli.
Nú þessa síðustu daga þegar ég
er komin á gamals aldur stend ég
sjálfan mig að því að sitja eins og
klessa fyrir framan sjónvarpið
kvöld eftir kvöld og fylgjast með
Ólympíuleikunum í Los Angeles.
Ég vakna eldsnemma á morgn-
ana til að hlusta á nýjustu fréttir
frá Stefáni Jóni Hafstein og bíð
eftir kvöldpistli hans rétt fyrir kl.
12.
Ég hef m.a.s. velt fyrir mér
þeim möguleika hvort ég get ekki
farið að æfa á nýjan leik og orðið
heimsfræg stjarna. Á nóttunni
dreymir mig um að ég standi á
efsta palli með tárin í augunum
meðan íslenski þjóðsöngurinn er
leikinn og taki síðan við hyllingu
100 þúsund manns á Colloseum.
Svona er stutt í bamssálina og
hégómagimina. Samt sé ég í
gegnum þetta öðmm þræði.
Eg sé hræsnina í kringum ailt
standið, hvernig íþróttamenn
selja sig svo að þeir jafnvel neita
að láta hafa blaðaviðtal við sig
nema gegn greiðslu og hvernig
stórfyrirtækin nota þá sem tál-
beitu fyrir coca-cola, bíla, þvotta-
efni og sígarettur. Svokölluð Ól-
ympíuhugsjón hefur m.a.s. verið
seld hæstbjóðenda og stórveldin
nota leikana miskunnarlaust í
áróðursstríði um heimsyfirráð.
Svei, svei.
En samt. Þar sem ég sit í minni
peningasúpu, nýbúinn að kaupa
pínulitla íbúð í ævagömlu húsi þá
er handhægt að grípa til
draumana og sjá sjálfan sig í anda
í sporum hinnar miklu íþrótta-
hetju sem miljónir um allan heim
stara gapandi á. Brauð og leiki
fyrir fólkið sögðu valdhafarnir í
Róm í gamla daga og þetta er
valdhöfunum í heiminum nú til
dags líka þóknanlegt. Og ég læt
fallerast. En ekki lengi. Bara
svona rétt á meðan Ölympíu-
leikarnir standa. Á eftir fæ ég
hausinn minn til baka.
-Guðjón
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Skundum á Þingvöll
Sumarferð Alþýðubandalagsins I ár verður laugardaginn 18. ágúst. Farið
verður frá Reykjavík til Þingvalla. Valinkunnir leiðsögumenn, vönduð dag-
skrá, - Halldór Laxness mun lesa kafla úr íslandsklukkunni á Þingvöllum.
Leikir og þrautir fyrir börn á öllum aldri munu gera ferðina bráðskemmti-
lega.
Allar nánari upplýsingar verða birtar í Þjóðviljanum. Skráning farþega og
sala farmiða er á skrifstofu Alþýðuþandalagsins Hverfisgötu 105. Eru allir
hvattir til að panta sér far og eigi síðar en 15. ágúst. Síminn er 17500.
Ferðanefndln.
Félagar í
Alþýðubandalaginu
Vinsamlegast sendið strax samn-
ingseyðublaðið um flokksgjaldið til
skrifstofunnar Hverfisgötu 105
Reykjavík. - Flokksskrifstofan.
Vestfirðir -
Kjördæmisráðstefna
Kjördæmisráðstefna Alþýðubanda-
lagsins á Vestfjörðum verður haldin á
fsafirði dagana 25. og 26. ágúst.
Nánar auglýst síðar. - Stjórnin.
ABR 1. deild
- Fundur
Stjórnarfundur verður í 1. deild ABR
mánudaginn 13. ágúst kl. 17.00 að
Hverfisgötu 105. - Form.
Suðurnesjamenn - Sumarferð
Alþýðubandalagsfélögin Suðurnesjum fara sína árlegu skemmtiferð helg-
ina 18. til 19. ágúst n.k. Farið verður um Sigöldu, Landmannalaugar og
Fjallabaksleið nyrðri í Eldgjá. Gist verður við Ófæru. Sunnudaginn 19.
verður ekið niður í Skaftártungur og Vestursveitir. Komið verður við í
Hjörleifshöfða og Vík í Mýrdal. Byggðasafnið í Skógum verður skoðað.
Einnig verður gerður stuttur stans við merka sögustaði á þessari leið.
Komið verður til Keflavíkur kl. 22.00 til 23.00 þann 19. ágúst. Þátttakendur
láti skrá sig hjá Sólveigu Þórðardóttur í síma 92-1948 og hjá Torfa
Steinssyni í síma 7214 og Elsu Kristjánsdóttur sími 7680.
14 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. ágúst 1984