Þjóðviljinn - 19.08.1984, Page 3

Þjóðviljinn - 19.08.1984, Page 3
Hvað kemst hitinn hátt hjá þér? Það hefur vakið athygli, að veitt hefur verið 745 þús. kr. aukafjárveiting til þess að koma upp sundlaug við sendiherrabú- staðinn í Washington. Þar að auki ætlar Albert að snara út 10,5 mi\j. kr. fyrir húsaskjól handa ,rstaðgengli“ sendiherrans, sem á að fá sundlaugina. Mönnum er sannast að segja vorkunnarmál þó að þeim komi þessi rausn fjármálaráðherrans nokkuð á óvart. Hingað til hefur svar hans verið það, þegar fólk hefur komið á fund hans og farið fram á laun, sem gerðu því fært að skrimta af harmkvælalítið: Það eru engir peningar til. Sem betur fer reyndist það þó ofmælt því að í einhverju horni ríkiskass- ans hafa fundist fáeinir aurar til að byggja fyrir sundlaug vestur í Washington. MAGNÚS H. GÍSLASON Enginn skyldi halda að Ander- sen ambassador sé ekki vel að þessu mannvirki kominn, enda segir Albert að erfitt hafi verið að synja um þetta lítilræði. Þetta væri í rauninni ekki annað en verðug viðurkenning til sendi- herrans fyrir ágæt störf í þágu þessarar heimtufreku og van- þakklátu þjóðar. Auk þess væri drepandi hiti þarna í nánd við Re- agan og líklega oft og tíðum illvinnandi nema niðri í vatni. Nú vill svo til, að við eigum víðar sendiherra en í Washing- ton. Hvað skal gera ef þeir finna nú líka upp á því að fara að biðja um sundlaug? Og því skyldi þeim ekki detta það í hug, brautin hef- ur verið rudd fyrir þessar fram- kvæmdir? Líklegt má telja, að Albert léti hitamælinn svara þess- ari beiðni, a.m.k. að hluta. - Hvað kemst hitinn hátt hjá þér, vinur, mundi hann spyrja sendiherrann? Er hann nokkuð í líkingu við það, sem hann er hjá Andersen. Ef hann nær því ekki þarft þú ekki sundlaug vegna hitafarsins. Þá getur þú unnið á þurru landi. - En hef ég þá ekki unnið mikið og gott starf fyrir íslensku þjóð- ina eins og Andersen, spyr sendi- herrann? Þetta er mikil sam- viskuspurning og ekki nema von að Albert víki sér undan að svara henni beinlínis. Hann er háttvís maður og vill hvorki játa né neita. - En ef að mælirinn hjá þér sýnir jafn hátt hitastig og hjá Andersen þá er hann örugglega vitlaus og læt þá senda þér annan, segir Albert. - Og það er hitinn, sem ræður því hvort sendiherrar fá sundlaug eða ekki. Þeir, sem ■ eru undir Andersensstiginu verða bara að láta sér nægja bað- kerið. -mhg Síðbúinn stríðsmaður snýr aftur heim Spænskurstjórnleysingi, sem talinn var hafa fallið í bardag- anum í Teruel í borgarastyrj- öldinni árið 1937, er á leiðinni aftur til Spánar. Spænskur læknir, sem var á ferð í Masc- ara í Alsír, fann þennan mann, José Navarro Ruiz, af hreinni tilviljun. Læknirinn tók eftir því að meðal sjúklinga á sjúkra- húsi, sem allir voru með vefj- Þrír franskir blaðamenn lentu nýlega heldur illa í kasti við lögregluna og ekki að ósekju. Þannig var að ritstjórar mán- aðarritsins L’Echo des savan- es, sem er nokkuð sérstætt í franskri blaðamennsku, á- kváðu að næsta tölublað skyldi vera helgað lögregl- unni. Til þess að kanna við- brögð almennings, þegar lög- reglan er annars vegar, datt þeim ekkert snjallara í hug en dubba þrjá blaðamenn upp sem lögregluþjóna og láta þá leika listir sínar í Parísarborg. Þessir þrír fölsku lögreglu- þjónar þrömmuðu síðan um með byssur á lofti, stöðvuðu menn með miklum þjósti og kröfðu þá um skilríki, leituðu í bílum og ruddust jafnvel inn í íbúð undir því yfirskyni að þeir væru að fylgjast með óbóta- mönnum á götunni fyrir neð- an. Ljósmyndari fylgdist með þeim úr fjarlægð og tók mynd- ir af öllu saman. Að lokum ætl- uðu þeir að handtaka unga konu og fara með hana upp í bifreið sína, en hana grunaði að ekki væri allt með felldu og tókst henni að sleppa og segja alvöru lögregluþjónum sögu sína. Ævintýri blaða- mannanna lauk því með því að á þá var miðað byssum og þeir voru handteknir eins og þeir höfðu handtekið aðra þennan dag. Þeir voru síðan ákærðir fyrir ólöglega notkun á einkennisbúningi, fyrir að villa á sér heimildir, og fyrir ólöglegan vopnaburð og ár- ásir á menn. Eiga þeir yfir höfði sér nokkurra mánaða fangelsisdóm.B arhött, var einn maður með alpahúfu, og gaf sig á tal við hann. Komst hann þannig að því hver sjúklingurinn var, en hann hafði misst minnið og hélt að nú væri árið 1955.B Vafasamt grímuball NY LANDSBANKASKIRTEINI meó 71/2% vaxtaálagi Sparifjáreigendum gefst nú kostur á nýjum Landsbankaskírteinum. Öllný skírteini, sem stofnað er til 20. ágúst eða síðar, bera 7V2% vaxtaálag á ári umfram almennasparisjóðsvexti semnúeru 17%. Þannig gefa nýju Landsbankaskírteinin 26% ársávöxtun. Hagkvæmari ávöxtun sparifjár er ekki að finna í öðrum bönkum eða sparisjóðum. STARFSFÓLK LANDSBANKANS AÐSTOÐAR. Allt starfsfólk í sparisjóðsdeildum Landsbankans er þaulkunnugt kjörum á skírteinunum semogöðrum innláns- formum. Þú getur því snúið þér til einhvers þeirra og rætt mál þín í trúnaði. HUGIÐ AÐ FJÁRMÁLUM YKKAR. TRYGGIÐ YKKUR LANDSBANKA- SKÍRTEINI. ENN BESIAAVOXTUN SPARIFJAR! sögðu þeim aö nýráðinn Hag- stofustjóri væri búinn að koma og heilsa upp á starfs- fólkið. Hann gleymdi nefni- lega að heilsa upp á undir- mennina. Það hendir jafnvel gætna smekkmenn að gleyma sér á jafnréttistím- um.l ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 LANDSBANKINN Græddur er geymdur eyrir

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.