Þjóðviljinn - 19.08.1984, Side 5
- En þið eruð þá ekki enn bún-
ir að fá svar við aðalspurningunni
- hvernig varð til lífá jörðinni og
hvernig það hafði áhrif á mótun
plánetunnar?
- Ekki enn. En viö vitum þeg-
ar hvemig hægt er aö fá það. Og
þar kemur Mars okkur til hjálp-
ar.
Hvemig á að
„lífga“ plánetu?
Hvers vegna biðu lífræn efni,
er urðu til á jörðinni næstum um
leið og hún varð til, í miljarða ára
með að breytast í lífverur? Hvaða
„tengsl" áttu sér stað milli lifandi
og líflausrar náttúm? Samkvæmt
hvaða lögmálum þróaðist lífríki
jarðarinnar? Til þess að fá fram
svör við þessum spumingum
leggja vísindamenn til að farið
verði með t.d. bakteríur eða aðra
einfrumunga frá jörðinni til
Mars. Og fylgjast síðan með því
hvaða áhrif þær hafa á þróun
plánetunnar.
- Þetta er hugmynd stofnanda
rannsóknastofu okkar, Kírill
Pavlovits Florenskí: Að koma á
fót á Mars lífriki til að fá fram
gagnkvæm tengsl lifandi og líf-
lausrar náttúru, - segir Rúslan
Olegovits. - Þetta er þaulhugsað
þó að þetta virðist í fljótu bragði
vera hugarflug. Og þetta er hug-
mynd, sem hægt er að fram-
kvæma með aðstoð þeirrar tækni,
sem nú er fyrir hendi.
- En tekur Mars á móti lífi
annars staðarfrá? Hafnar plánet-
an því ekki, eins og líkami hafnar
ókunnum vef?
- Ég vona, að það komi ekki
til. Þess heldur þar sem fyrir
hendi eru á Mars sæmilegar að-
stæður fyrir líf.
- Sœmilegar aðstæður - sextíu
gráðufrost á yfirborði plánetunn-
ar. Það er ekki beint hœgt að
segja, að slíkt hitastig sé hátt...
- En það eru til bakeríur á
jörðinni við slíkar aðstæður.
Dæmi er Antarktíka. Þær gætu
þess vegna lifað af á Mars og farið
að þróast samkvæmt lögmálum
þróunarinnar - lagað sig að stað-
háttum. Og jafnframt breytt
þessu svæði í þá átt, sem
nauðsynlegt er. Þess heldur sem
þar er að finna vatn: Svolítið í
andrúmsloftinu, meira á yfir-
borðinu og mjög mikið í steinteg-
undum. Að vísu eru vatnsbirgð-
irnar tíu sinnum minni á Mars
heldur en á jörðinni. En massinn
er líka tíu sinnum minni.
- Auðvitað er þetta lokkandi
hugmynd. En hún á sér einnig sið-
ferðislega hlið, sem erfitt er að líta
fram hjá. Höfum við rétt til að
blanda okkur íþróun Mars, fœra
lífsform jarðar þangað? Kannske
er fyrir hendi á þessari plánetu
eigið líf?
- Auðvitað verður fyrst að
leita að lífi á Mars á víðtækan
hátt, sem gæfi einhlítt svar við því
hvort það er fyrir hendi. Og að-
eins ef kemur í ljós, að Mars er
líflaus pláneta, verður hægt að
senda þangað líf frá jörðinni -
t.d. bakteríur, sem eru sérstak-
lega „þjálfaðar" til að vera í slíku
umhverfi. Og e.t.v. einnig þró-
aðri dýr. Til þess að skilja regl-
urnar um þróun lífríkisins í slík-
um tilraunum, þurfum við ekki
miljarða ára - nútímastig þekk-
ingar og árangur á sviði tölvu-
tækni gefur möguleika á að flýta
niðurstöðum.
Mars getur einnig verið annað
og meira en vettvangur
rannsókna af þessu tagi. Þróun-
arlögmál, sem þar uppgötvast má
nota til að beina þróun lífríkisins
á Mars í þá átt sem nauðsynlegt
er. Og plánetan verður hentug
fyrir líf. Jörðin er vagga
mannkynsins, sagði K.E. Tsiolk-
ovskí, en það er ekki hægt að lifa
endalaust í vöggu. Hvers vegna
ekki að gera Mars að fyrstu „til-
raun aflsins“ á leiðinni til nýrra
heima?
A. Valentínov,
vísindalegur fréttaskýrandi
„Sotsialisticheskaja
Indústría"
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
^ZEROWATT
ÞVOTTAVÉL á 13.945 kr.og
ÞURRKARI ál1.945 kr.(>t«r.)
Merkínu eróhætt að treysta, enda
komin 13ára reynsla á það á íslandi
Birgðir takmarkaðar.
n m c OÆn
fíHFuVíi
^SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 SÍMAR 38900 - 38903
<***%>■
Fyrir mörgiim hafa
hyggmgamfll
verið sem erfið krossgáta
Við höftnn hins vegar leyst hana með einn orði
Með því að sameina í eina vátryggingu ýmsa áhættu-
þætti í iðnaði, sem áður hafa verið sértryggðir, er hægt
að auka vátryggingarvernd verulega.
Tryggingaráðgjafar okkar aðstoða þig við áhættumat,
svo verðmæti þín séu örugglega tryggð á raunvirði.
Samningur þinn og félagsins um Iðnaðartryggingu
byggist á vátryggingaþörf þinni, raunréttu áhættumati
og hagstæðum iðgjöldum.
Samsett trygging er hagstæð trygging
Iðnaðar
ftBRunnBúT
-AFÖRYGGISÁSTÆÐUM
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS
Laugavegur 103 105 Reykjavlk Slmi 26055