Þjóðviljinn - 19.08.1984, Síða 7

Þjóðviljinn - 19.08.1984, Síða 7
hálftíma þátt en að gefa út blað. Við erum með þætti á ýmsum tungumálum, ensku, frönsku, ítölsku, þýsku, marokkönsku, ví- etnömsku o.fl. Við höfum gert mikið til þess að fá félög innflytj- enda til að annast þætti sem og aðra minnihlutahópa, t.d. fatl- aða. Pað eru um 70 minni og stærri hópar sem gera þætti hjá okkur og ætli þeir séu ekki á þriðja hundrað einstaklingarnir sem koma nærri þáttagerð á hverri viku. Enginn þeirra þiggur laun fyrir stöf sín. Hins vegar erum við með 23 fasta starfsmenn. Þeir sjá ekki um dagskrárgerð heldur annast tækin, viðhald, stjórnun o.þ.h. Starfsmenn koma flestir úr röðum fólks sem á einhvern hátt er á framfæri yfirvalda, svo sem fatlaðir, atvinnuleysingjar sem yfirvöld eru skyldug til að útvega vinnu tímabundið o.þh. Laun þeirra eru greidd af ríkinu og borgarsjóði“. - Hvernig er dagskráin ákveð- in? „Þriðja hvern mánuð kemur dagskrárnefndin saman til að á- kveða uppbyggingu dagskrárinn- ar. Þá geta menn sótt um nýjan tíma og þar eru fastar útsending- ar ákveðnar. Á milli funda starfar svo samræmingarnefnd sem fyllir upp í götin og finnur tíma fyrir staka þætti sem berast. Við reynum alltaf að hafa pláss í dagskránni fyrir þá sem koma utan úr bæ með efni“. Músiklaus dagur - Hvernig er reksturinn fjár- magnaður? „ Við fengum í upphafi 500 þús- und danskar krónur (1.5 milj. ísl. kr.) sem við notuðum til að innrétta stöðina og koma okkur upp tækjabúnaði. Síðan sömdum við við borgarstjórnina og fáum 130 þúsund kr. (tæplega 400 þús. ísl. kr.) á ári í beinan styrk. Hann fer í húsaleigu, rafmagn og hita. Auk þess greiða ríkið og borgar- sjóður laun starfsmanna eins og ég sagði áðan en það eru ekki ný útgjöld. En þetta nægir engan veginn. Við þurfum svona 500 þúsund til viðbótar á ári. Þess höfum við aflað með tvennum hætti. Við stofnuðum hlustendafélag, eins konar styrktarmannafélag, þar sem hver félagsmaður greiðir 40 kr. á ári. í því eru nú 10 þúsund félagar. Svo erum við með út- varpsbingó á laugardögum. Þá kaupa menn spjöld sem seld eru á 150 stöðum í bænum og svo er bara að vera nógu fljótur að hringja þegar bingóið er komið. Það eru spilaðar 5 umferðir hverju sinni og þrír þeir fyrstu í hverri umferð fá 100-200 kr. Þetta gefur arð, en við vitum ekki enn hversu mikinn. En við höld- um að þetta tvennt eigi að nægja“. - Þurfið þið ekki að greiða fyrir flutningsrétt, t.d. á tónlist? „Jú, eftir að við hófum rekstur birtust fulltrúar frá CODA (hlið- stætt STEF á íslandi) og sýndu okkur reikning upp á 250 þúsund (750 þús. ísl. kr,) á ári. Við feng- um náttúrulega sjokk og sögðumst ekki hafa efni á þessu. En þeim varð ekki haggað svo við ákváðum að hafa einn músik- lausan sólarhring og efndum samtímis til fjársöfnunar til að greiða þennan reikning. Þetta var afar einkennilegur dagur en af- raksturinn var 96 þúsund krónur. Svo fengum við borgarstjórnina til að greiða sömu upphæð. Við höfum ákveðið að hafa þennan hátt á við greiðslu fyrir höf- undarrétt“. Mikið hlustað - Nú standa fjölmörg samtök að þessari stöð, hefur aldrei kom- ið til pólitískra átaka um dag- skrárstefnuna? „Nei, það hefur ekki orðið. Hins vegar finnst okkur stjórn- leysið stundum verða helst til mikið. Við erum mjög opin og sveigjanleg en til þess að gera reksturinn markvissari þurfum við sterkari stjórn. Það vill t.d. brenna við að fólk sem býður fram efni er einungis að koma sjálfu sér á framfæri eða reka áróður fyrir sjálfu sér. Þetta hef- ur valdið erfiðleikum og við reynum að koma í veg fyrir að það gerist“. - Hvað með hlustunina, hefur hún verið könnuð? „Já, við náum til u.þ.b. 300 þúsund manns hér á Árósasvæð- inu og í könnun sem Gallup gerði á hlustuninni hér í bænum kom í ljós að 50% hlustuðu að minnsta kosti einu sinni á dag á okkur og 85% einu sinni í viku. Þetta er meiri hlustun en hjá Danmarks Radio. Við erum með dægurlaga- þátt síðdegis og hann er vinsælli en samskonar þáttur sem er send- ur út á sama tíma hjá P3 (hliðstæð Rás 2)“. - Hvað tekur svo við þegar reynslutímabilinu lýkur? „Þá verður gert upp, lagt mat á þá reynslu sem fengist hefur og síðan sett ný lög til frambúðar. Margir stjórnmálamenn eru tor- tryggnir út í núgildandi lög, þeir vilja leyfa auglýsingaútvarp. Við viljum hins vegar ekki vera aug- lýsingastöð. Nú erum við óháð öllum og það finnst okkur mikil- vægt því þá er ekki hægt að beita okkur neinum þvingunum. Við höldum áfram í þeirri trú að því lengur sem okkur tekst að halda stöðinni gangandi því erfiðara verður að loka henni,“ segir Kurt Kaare að lokum. -ÞH Hvernig lítur dæmigerður dagur út hjá Radio Aar- hus? Við grípum niður í prentaða dagskrá sem stöð- in gefur út fyrir hverja viku. Þar sjáum við að föstu- daginn 8. júní sl. var dagskráin í stórum dráttum á þessa leið: Frá miðnætti til kl. 7 um morguninn var næturút- varp með umræðum, gestum í útvarpssal, viðtöl- um og tónlist. Kl. 7 var skipt yfir á Byens Radio sem sendi út hálftíma þátt með tónlist, tilkynningum og upplestri úr málgagni krata, Demokraten Week- end. Kl. 7.30 tók Aarhus Nærradio við og svaraði bréfum hlustenda í hálftíma. Kl. 8 kom þátturinn „Musik og politik" í umsjá Framfaraflokksins en kl. 9 var klukkutíma þáttur um landbúnað og umhver- fismál. Milli 10 og 11 var þátturinn „Spyrjið um EBE" þar sem stjórnmálamaður svaraði spurning- um hlustenda. Milli 11 og 12 hélt Aarhus Nærradio áfram að svara bréfum hlustenda. Kl. 12 hófst tónlistarþáttur með eldri dægurlögum en kl. 13 hófst tveggja tíma blönduð dagskrá þar sem greint var frá því hvað var að gerast í bænum um daginn, plata vikunnar kynnt, veðurfréttir lesnar og kveðjur frá hlustendum. Milli 15 og 16 tók Háskólastöðin yfir, en kl. 16 mætti Radio Aarhus aftur til leiks með upplýsingar um hvað boðið var upp á í menningar- lífinu um helgina. Kl. 17 var hálftíma þáttur um málefni Suður-Afríku. Kl. 17.30 var Byens Radio með blandaðan þátt með efni úr leikhúslífinu, bæjarstjórninni og um komandi viðburði helgar- innar. Kl. 18.30 bauð Radio Aarhus upp á þátt úr sögu Árósa en kl. 19.30 voru æskulýðssamtök Venstre-flokksins með hálftíma þátt. Kl. 20 var þáttur háskólastöðvarinnar endurtekinn en kl. 21 hófst næturútvarp sem stóð til kl. 7 næsta morgun og virðist einkum hafa innihaldið tónlist. Á þeim dagskrám sem ég hef undir höndum má sjá að pólitísk breidd stöðvarinnar er mikil. Auk þess sem þegar hefur verið nefnt var boðið upp á þætti frá trotskíistum, hófsömum stúdentum, SF, mið- demókrötum, íhaldsmönnum o.s.frv. Einnig má sjá að kristnir hópar eru virkir í starfi stöðvarinnar og sama má segja um íbúasamtök og allra handa hópa með ólíkustu stefnumál. Með öðrum orðum: Radio Aarhus er opin og lýð- ræðisleg stöð þar sem allir geta komið málum sín- um á framfæri. Og Árósabúar virðast kunna að meta þetta tækifæri. -ÞH A Kópavogsbúar- Kópavogsbúar Félagsmálastofnun Kópavogs leitar eftir upplýsingum um atvinnumál fatlaðra í bænum. Allir þeir Kópavogsbúar sem eru á örorkumati og hafa ekki atvinnu eða vilja ræða um atvinnumál sín eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við atvinnu- málafulltrúa að Digranesvegi 12 eða í síma 46863. Félagsmálastjóri Tæknimenntaður verksmiðjustjóri Sjóefnavinnslan h.f. auglýsir hér með starf verk- smiðjustjóra laust til umsóknar. Starf þetta miðast við að umsækjendur hafi tækni- menntun og starfsreynslu í stjórnun. Skriflegum umsóknum sé skilað til skrifstofu félags- ins, Vatnsnesvegi 14, 230 Keflavík fyrir 28. ágúst n.k. Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 92- 3885. Unglingaráðgjöf Hafnarfjarðarbær vill ráðatvo starfsmenn karl og konu til tímabundinna starfa við unglingaráðgjöf í Hafnar- firði. Störfin eru 1/2 dags störf. Lámarksaldur umsækjanda skal vera 23. ár. Vinnutími er aðallega um helgar og seinni hluta dags. Upplýsingar um störfin gefur félagsmálastjóri í síma 53444 og æskulýðs- og tómstundafulltrúi í síma 51951 þar sem umsóknareyðublöð liggja frammi. Umsóknarfrestur er til 1. september n.k. Félagsmálastjóri, æskulýðs- og tómstundafulltrúi NÁMSGAGNASTOFNUN Pósthólf 5192 ■ 125 Reykjavík Kennarar óskast til starfa í skólavörubúð fram í miðjan sept. Einnig vantar starfsmann (kennara, bókasafnsfræð- ing) í hálft starf í kennslumiðstöð. Upplýsingar í síma 28088 eða að Laugavegi 166. •, Blikkiðjan Iðnbúð 3, Garðabæ Onnumst þakrennusmiöi og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboö SIMI 46711 Þökkum af alhug öllum þeim nær og fjær, sem sýnt hafa okkur samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og bróður. Jóns S. Ólafssonar skrifstofustjóra Hávallagötu 3, og virðingu þá sem minningu hans var sýnd. Guð blessi ykkur. Erna Óskarsdóttir Ólöf S. Jónsdóttir Kjartan Gíslason Óskar G. Jónsson Þórunn H. Matthíasdóttir Herdís G. Jónsdóttir Ingi Sverrisson Halla G. Jónsdóttir barnabörn og systkiní hins látna Sunnudagur 19. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.