Þjóðviljinn - 19.08.1984, Side 9

Þjóðviljinn - 19.08.1984, Side 9
Hið klofna hiarta Evrópu E c <D tO œ 3 1“ <o = 'ío'R 1” i- <0 Is E c <0 <0 to o E ■O H- SJ2 ES is . 2>8Í? :0 0) ÍO "5-Q-E e |S ® S c = |1 c'O-S E c CO >'_7IÍ - r W i b '>* N— n l 3 d>r © .E4S D — Q «<T) 2 W I 0*2 Að móla sig Á undanförnum árum hafa hlutföllin í listaheiminum verið að breytast. Lönd sem til skamms tíma stóðu í forsæl- unni á myndlistasviðinu hafa nú stigið fram í dagsljósið með breiðarfylkingar lista- manna í framvarðarstöðu. Frá því um miðjan síðasta áratug hafa Þjóðverjarog ítalirverið að sækja í sig veðrið og nú er svo komið að ekki verður opn- að listatímarit svo ekki séu þar greinar um þarlenda lista- menn og liststefnur. Auk þess prýðaverk þeirra veglegustu sýningar beggja vegna hafs- ins. Það er ofsögum sagt að Þjóð- verjar og ítalir hafi farið varhluta af listbyltingum eftirstríðsár- anna. Hitt er öllu réttara að þeir hafa ekki verið þar leiðandi afl, heldur fylgt eftir í alþjóðlegum hringdansi liststrauma sem kviknað höfðu í öðrum löndum og borist þeim eftir venjulegum upplýsingaleiðum s.s. með sýn- ingum og tímaritum. Þessum tveimur þjóðum tókst þó að ná langt á sviði tónlistar og kvik- mynda. Með tónskáldum á borð við Karlheinz Stockhausen og Luciano Berio tryggðu þessar þjóðir sér stóran sess í tónlist eftirstríðsáranna, en gæta ber þess að þar skorti þá ekki hefð. Á kvikmyndasviðinu voru ítalir þegar komnir í fremstu röð ný- sköpunarþjóða áður en stríðinu lauk og héldu þar hlut sínum allt til loka 7. áratugarins. Þegar sól þeirra lækkaði tók Þjóðverjanna að rísa. Þannig höfðu bæði löndin staðfest þjóðleg einkenni sín með hjálp kvikmyndalistarinnar, áður en þau ruddu sér til rúms með „nýja málverkinu". Samviskubit og sektarkennd Þrátt fyrir það aðÞjóðverjar og ítalir hafi hingað til ekki staðið beint í fararbroddi hræringa í myndlist, settu þeir mark sitt á hinn alþjóðlega listheim með álit- legum hópi merkra myndlista- manna. Má þar benda á ítalina Lucio Fontana, Alberto Burri, Emilio Vedova og Pietro Manzoni. Auk þeirra lagði hópur listamanna grunninn að ftalskri nýlist undir heitinu „Arte Povera“, sem þýða mætti sem naumlist. Talsmaður hópsins var listgagnrýnandinn Germano Celant og meðal þeirra sem þátt tóku í listvakningum Arte Povera árið 1967, voru margir víðkunnir nýlistamenn s.s. Jannis Kounellis, Mario Merz og Giulio Paolini. Utan við hópinn en tengdan honum má einnig nefna Michelangelo Pisto- letto. Flestir forsprakkar nýja málverksins á Ítalíu eru sprottnir upp af meiði naumlistarinnar, en sú saga verður ekki rakin hér. Flokkur þýskra listamanna var ekki jafn fríður, enda lágu Þjóð- verjar miklu lengur en ítalir í sár- um eftir sitt fasíska menningar- kjaftshögg. Þeir máttu einnig þola stærra samviskubit að stríð- inu loknu, en gæta ber þess að sektarkennd hefur sjaldan verið háleitur menningaraflvaki. Að auki voru Þjóðverjar útskúfaðir úr menningarsamfélagi Evrópu og listatilburðir þeirra tortryggð- ir, ekki síst meðal listfrömuða af Gyðinglegum uppruna. Einungis tónlist þeirra þótti hafin yfir allar grunsemdir, sennilega vegna þess hve erfitt var að sniðganga hana. En strax á 7. áratugnum tengd- Sunnudagur 19. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.