Þjóðviljinn - 19.08.1984, Síða 10

Þjóðviljinn - 19.08.1984, Síða 10
Stór fuglamynd, eftir Bernd Koberling, Ein af myndum þeim sem málarinn hefur málaö hér á landi. pett'r>9’ , vW'dýta V3, eftir Elvii nyndlist. Te'iKn'f'9 “PPrennandistjamaf ust margir þýskir listamenn al- þjóðlegum hreyfingum í mynd- list. M.a. tóku tveir mikilhæfir Þjóðverjar virkan þátt í svo- nefndri „Fluxus-hreyfingu“, en hún var stofnuð að undirlagi bandaríska listamannsins George Maciunas í þeim tilgangi að tengja saman tilraunalist beggja vegna Atlantsála. Þessir listamenn voru þeir Jos- eph Beuys og Wolf Vostell. Asamt þriðja manninum, Hans Haacke, skópu þeir sérstæðan þýskan meið nýlista sem einkenndist af sterkri pólitískri höfðun. List þremenninganna var m.ö.o. nátengd þjóðfélags- legum hræringum 7. og 8. áratug- arins og staðfestu þeir enn einu sinni félagslegt inntak þýskrar myndlistar. Undir handleiðslu Beuys uxu nokkrir frumherjar nýja þýska málverksins úr grasi sem listamenn og hafa ekki farið varhluta af ýmsum kenningum hans. Barátta Beuys fyrir auknu Iýðræði á öllum sviðum í V- Þýskalandi kostaði hann að lok- um prófessorsstöðu sem hann hafði við Listaakademíuna í Dússeldorf, árið 1972. Þrátt fyrir kröftug mótmæli nemenda við skólann svo og lista- manna úr öllum heimshornum (auk þýskra listamanna á borð við nóbelskáldið og náinn vin Buys, Heinrich Böll), kom allt fýrir ekki. Þessi heimsfrægi lista- maður endurheimti ekki stöðu sína fyrr en sex árum síðar, en þá var hann búinn að hóta að skipta um ríkisfang og yfirgefa Þýska- land fyrir fullt og allt. Dæmið um Beuys sýnir að þýskir listamenn áttu einnig undir högg að sækja í heimalandi sínu. Nýjar stjörnur rísa Alþjóðahylli Josephs Beuys veitti nýlistunum heldur ekki eins greiðan aðgang að hjörtum Þjóð- verja og t.a.m. frænda þeirra og granna, Hollendinga. Kom þar eflaust til að þessi framúrstefna var ekki sprottin úr þýskum jarð- vegi og þjóðarsál. Bent hefur ver- ið á að Þjóðverjar sem og ítalir hafi átt erfitt með að hlaupa yfir margra áratuga þróun, beint inn í nýstárlega strauma eftirstríðsár- anna. Slíkt bauð ekki upp á neitt varanlegt uppgjör við fortíðina. Meðan Beuys fór hamförum um listheiminn, var að fæðast ný kynslóð þýskra myndlistamanna sem settu sér það takmark að tengja tilraunir nýlistamanna við fyrri hefðir. Án þess að hafna hræringum framúrstefnunnar kusu þeir sér hefðbundnari tján- ingarmiðla. Þeir vildu sýna fram á það að möguleikar málverksins væru langt frá því að vera fullnýttir. Ennfremur vildu þeir beina sjónum manna að sérkenn- um þýsks veruleika innan heimslistarinnar. Nýja málverkið var því eins konar fráhvarf frá al- þjóðahyggju hinnar samvestrænu framúrstefnu sem sett hafði mark sitt á nýlistirnar. Meðal frumherja hins nýja þýska málverks má nefna menn eins og Georg Baseiitz, Karl- Horst Hödicke, Jörg Immend- orff, Anselm Kiefer, Bernd Ko- berling, Markus Lúpertz, A.R. Penck og Sigmar Polke. Þrír þeirra eru af austurþýsku bergi brotnir og einn kemur frá landa- mæraþorpi á mörkum beggja þýsku ríkjanna. Þýskur raun- veruleiki er þeim nálægur í sinni nöturlegu mynd. Þá er þýsk stjórnmálabarátta ekki fjarlæg þeim, en þeir Kiefer og Immend- orff voru nemendur Beuys í Dússeidorf um líkt leyti og hann lenti upp á kant við yfirvöld menntamála í Bonn. Allir eru þessir listamenn inn- byrðis ólíkir. Sumir þeirra leita fanga í pólitískt ástand Þýska- iands (Immendorff), aðrir í ör- lagaríka sögu landsins (Kiefer), enn aðrir í tilvistarkenndan veru- leik (Baselitz), eða óspillta nátt- úru (Koberling og Hödicke), táknfræði (Penk) og goðsagnir, raunverulegar og skáldlegar (Polke og Lúpertz). Fjölbreytnin hefur enn aukist með nýrri kynslóð málara, svo og margbreytileik landshluta og borga. í velflestum stærri borgum landsins hafa myndast hópar með sínum séreinkennum. Eitthvert gróskumesta svæðið er þó senni- lega Vestur-Berlín, þar sem ex- pressiónísk og „villt“ einkenni hafa verið hvað mest áberandi. Þekktastir eru án efa fyrrverandi nemendur K.H. Hödickes, sem stjórnar málaradeildinni við Listaháskólann í V-Berlín. Það voru þeir Reiner Fetting, Sa- lomé, Bernd Zimmer og Helmut Middendorf, sem ganga undir heitinu „Die neue Wilde“ (nýju villidýrin) og stunda það sem kallað hefur verið „Das heftige Malerei" (Hið heiftuga mál- verk). Þótt lítill aldursmunur sé á kynslóðum eru þeir yngri allir fæddir eftir stríð meðan þeir eldri eru flestir stríðsbörn. Frelsun eða fasískar kltlur Nýja málverkinu var tekið fremur fálega í byrjun af gagnrýnendum og fylgjendum nýlista, einkum þeim sem að- hylltust kenningar hugmyndlista- manna (conceptual list). Þar fóru bandarískir gagnrýnendur fremstir í flokki ásamt helsta tals- manni og postula hugmyndlistar- innar, ameríska listamanninum Joseph Kosuth. Taldi Kosuth hina nýju málara vera að fram- lengja dauðastríð málverksins og kallaði nýja málverkið necrophil- iu (náelsku) af verstu tegund. í stað þess að kryfja listina út frá hugmyndrænum forsendum (conceptuelt), væru þessir lista- menn fallnir í gamla og úrelta til- finningasemi skynrænnar (perc- eptískrar) tjáningar. í stað hlut- lægrar og alþjóðlegrar tilrauna- hyggju væri nýja málverkið aftur- hvarf til þjóðernislegrar hug- hyggju sem í versta falli endaði í staðnaðri landshornaiist og kitl- un við fasisma. Einn helsti andmælandi Kos- uths hefur verið gagnrýnandinn Donal B. Kuspit, en hann telur þýska málverkið hreinsun og endurlausn þýskrar menningar undan þjakandi fortíð. í því felist djörf krufning á fortíð og nútíð sem frelsað hafi yngri kynslóðir Þjóðverja frá hnappheldu ein- angrunar innan vestrænnar menningar. Hann telur nýja mál- verkið vera þjóðfélagslegt og al- þýðlegt, sjálfsprottið svar yngri kynslóðarinnar við fræðilegri stöðnun framúrstefnulistanna og frjókorn lifandi listar. Amerískri gagnrýni vísar hann til föðurhús- anna sem and-evrópskum þanka- gangi og fýlu yfir glötuðu forystu- hlutverki í heimslistinni. Þessar öndverðu skoðanir á gildi nýja málverksins, einkum hins þýska, hefur mátt lesa af spjöldum allra alþjóðlegra lista- tímarita undanfarin ár og sýnist sitt hverjum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.