Þjóðviljinn - 19.08.1984, Side 14
Úrval af skrifborðum,
bókahillum og skrifborðs-
stólum fyrir skólafólk.
if
* f.
Joker skrifborðið kostar aðeins kr.
3.850.- með yfirhillu.
Vandaðir skrifborðsstólar á hjólum.
Verð frá kr. 1.590.-
f Húsgögn og
^ . Suðurlandsbraut 18
^mnrettmgar simi 86 900
BORGARSPÍTALINN
LAUSAR STÖDUR
Hjúkrunarfræðinga á öldrunardeild B-5, B-6 í fullt
starf eöa hlutastarf.
Sjúkraliða á öldrunardeild B-5, B-6, Hafnarbúöa,
Hvítabandsins í fullt starf eöa hlutastarf 8-13,
15.30 - 23.45 og 23.15 - 08.00.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu hjúkrunar-
forstjóra í síma 81200.
Starfsstúlkur
Starfsstúlkur óskast í eldhús spítalans hálfan eöa all-
an daginn, vaktavinna.
Upplýsingar um störfin veitir yfirmatreiðslumaður í
síma 685245 milli kl. 9 og 11.
Dagvistun barna
á einkaheimilum
Mikill skortur er á heimilum hér í borginni sem taka
börn tii dagvistunar, þó sérstaklega í eldri hverfum.
Eru þeir sem hafa hug á aö sinna því, beðnir að koma
til starfa sem fyrst til að mæta þeirri þörf sem alltaf
skapast á haustin. Vinsamlega hafið samband í síma
22360, umsjónarfóstrur Njálsgötu 9.
Nemi
í Stýrimannaskólanum
óskar eftir að taka á leigu litla íbúð eða rúmgott her-
bergi sem næst skólanum.
Upplýsingar gefa Jóna eða Jóhann í síma 96-81165.
Reykajvíkurborg
BÆJARRÖLT
™. r ~ \rwir ™v
- n"Þ
x’
Þegar þú röltir...
Þegar þú röltir þá færiröu einn
fót fram yfir annan með afar ó-
reglulegu millibili. Stundum
stansarðu og horfir út í loftið,
stundum grefurðu hendurnar
niður í buxnavasana þar sem þú
hringlar glaðlega með smápen-
inga, stundum hefurðu þær fyrir
aftan bak og fléttar fingurna ein-
hvern veginn saman - það eru
ýmsir möguleikar. Röltið hefur
sín tilbrigði.
Rölt er með vissum hætti
ganga. Engu að síður er það ekki
athöfn eða verknaður af neinu
tagi heldur fyrst og fremst hug-
arástand, og þegar öllu er á botn-
inn hvolft er í rauninni ævinlega
til einskis rölt því hvers virði er
hugarástand? Til hvers notum við
það?
Þegar þú röltir ertu allur ein
þolmynd. Þú sérð tré og þar eru
lauf og kannski fugl sem tístir.
Þarna er hús - þar hengdi maður
sig út af faktúrum. Þú sérð blóm
eða bfl eða fullan mann og þegar
þú ert að rölta þá líður þetta allt
saman inn í þig og skipar sér þar
niður sjálft og gerir þig einhvern
veginn í skapinu. Bfll brunar
framhjá þér og hann er ekki bfll
heldur Bfll - Bfllinn. Ekki síst ef
hann slettir á þig úr polli og hefur
ökumann sem heldur að bíll sé
hið sama og kona. Rás tvö öskrar
úr garði og hún er ekki bara
eitthvað garg heldur menning-
arástand þjóðarinnar. Þegar þú
ert að rölta.
Sjálfur rölti ég aldrei. Ég þekki
þetta aðeins af afspurn og úr
bókum - en ég held að það hljóti
að vera dálítið skemmtilegt. Þeg-
ar ég geng úr og í vinnu þá geri ég
það festulega: ég fer greitt, ég
stika, ég spígspora, ég hleyp við
fót, ég þramma fast. Hugsunin
gengur eftir reglulegum og stíf-
beinum brautum orsaka og af-
leiðinga, einkum þegar maður
horfir fast ofan í gangstéttina því
þar eru strikin svo hvöss. Þar sem
ég bý eru allar gangstéttir sér-
staklega hannaðar fyrir einarð-
legar hugsanir; þar eru garðar í
ströngum ferningum og húsin eru
mörg svo beinskeytt að þau hafa
ekki einu sinni þak. Þau eru líka
kennd við fúnksjón og þau eru
mjög gáfuleg.
Þar sem ég bý - þar röltir mað-
ur ekki. Þú líður ekki ljóðrænn
um þann hluta Reykjavíkur sem
ætlaður er fólki til að búa í. Þú
gætir gert það við höfnina en þar
er alltaf svo kalt. Þú gætir gert
það á Klambratúni, en það er því
miður í eyði af einhverjum ástæð-
um. Þú gætir gert það við tjörnina
ef ekki væru endurnar sem þú
ferð alltaf að vorkenna svo mikið
að þurfa að hírast þarna, þú gætir
gert það inni í Laugardal ef ekki
væri íþróttahreyfingin...
Rölt. Þetta er hugarástand, líð-
an, skap, stemmning, laustengt
kerfi aðvífandi hugmynda - og
hálf þjóðin þekkir það ekki af því
borgin var skipulögð af mönnum
með ferkantað heilabú. Andri
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Suðurnesjamenn
Sumarferð
Sumarferðinni er frestað um óákveðinn tíma. Félag-
arnir eru hvattir til að fara í Þingvallaferðina nú um
helgina.
Vestfirðir - Kjördæmisráðstefna
Kjördæmisráðstefna Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum verður haldin á
ísafirði dagana 25. og 26. ágúst. Nánar auglýst síðar. - Stjórnin.
Geithellnahreppur
- Almennur fundur
Alþingismennirnir Helgi Selj-
an og Hjörleifur Guttormsson
verða á almennum fundi í
skólanum í Geithellnahreppi
sunnudaginn 19. ágúst kl.
20.30.
Fundurinn er öllum opinn.
A-Skaftafellssýsla - Mýrarhreppur
- Almennur fundur
Alþingismennirnir Helgi Seljan og Hjörleifur Guttormsson verða á al-
mennum fundi í félagsheimilinu Holti á Mýrum mánudaginn 20. ágúst kl.
20.30.
Fundurinn er öllum opinn.
Birtir-útgáfunefnd!
Fundur á hvíldardaginn kemur kl. 14.00 (tvö).
Ritstjórn
Félagar í Alþýðubandalaginu
Vinsamlegast sendið strax samningseyðublaðið um flokksgjaldið
til skrifstofunnar Hverfisgötu 105 Reykjavík. -Flokksskrifstofan.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Skundum á Þingvöll
Sumarferð Alþýðubandalagsins í ár
verður laugardaginn 18. ágúst. Far-
ið verður frá Reykjavík til Þingvalla.
Valinkunnir leiðsögumenn, vönduð
dagskrá, - Halldór Laxness mun lesa
kafla úr íslandsklukkunni á Þing-
völlum. Leikir og þrautir fyrir börn á
öllum aldri munu gera ferðina bráð-
skemmtilega.
14 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 19. ágúst 1984