Þjóðviljinn - 19.08.1984, Blaðsíða 19
SKAK
aran Petrosan látinn
Fyrir tæplega viku síðan
bárust þau tíðindi frá Sovét-
ríkjunum að fyrrverandi
heimsmeistari í skák, Tigran
Vartanovich Petrosjan, væri
látinn. Hann hefur það sem af
er þessu ári átt við mikla van-
heilsu að stríða sem nú hefur
dregið hann til dauða aðeins
55 ára að aldri.
Petrosjan er ekki einn af þeim
snillingum sem hrósað hefur ver-
ið af öllum, þvert á móti er hann
sennilega sá sem hefur þurft að
þola mesta gagnrýni. Hann var
ekki ævintýramaður við skák-
borðið heldur tefldi eins og stað-
an bauð upp á. Þetta leiddi til
margra jafntefla en það voru líka
fáir sem sigruðu hann. Fyrir þetta
fékk hann viðurnefnið „Iron
Petrosjan" eða járn Petrosjan.
En það skal ekki nokkur maður
halda að hægt sé að verða
heimsmeistari með slíku athæfi,
Petrosjan gat teflt glæsilegar
sóknarskákir og hafði til þess
mikla hæfileika. Það eru margir
sem vilja loka augunum fyrir
þessari staðreynd en sennilega á
hann margar af fallegustu sókn-
arskákum vorra tíma. í þessu
sambandi er mér minnisstæð sú
það var þar sem Spassky var sigr-
aður. Heimurinn hafði fengið að
sjá þann Petrosjan sem bjó undir
niðri en var tilbúinn að skjótast
upp á yfirborðið gerðist þess
þörf. Það er samdóma álit manna
að í þessu einvígi hafi einhverjar
fallegustu skákir sem teflst hafa í
heimsmeistaraeinvígi komið
fram, flestar af hálfu Petrosjan.
Að lokum skulum við líta á
eina stutta sóknarskák þar sem
fórnarlambið er Kortsnoj.
LÁRUS
JÓHANNESSON
umræða sem átti sér stað fyrir
einvígi hans við Spassky árið
1966. Flestir töldu taktík vera
veikustu hlið Petrosjan en hins-
vegar sterkustu hlið Spasskys.
Þessar raddir urðu svo háværar
að Spassky trúði þessu iíka. Hann
ákvað því að þvinga Petrosjan
inn í taktískar stöður en viti menn
Hvítt: Tigran Petrosjan
Svart: Viktor Kortsnoj
Áskorendamótið 1962.
1. c4 - cS
2. Rf3 - Rf6
3. d4 - cxd4
4. Rxd4 - g6
5. Rc3 - dS
6. BgS! - dxc4
(6.-Re4 kom til greina etir 7.
Rxe4 dxe4 8. Da4+ Bd7 9. Dc2
Rc6 10. Dxe4 Bg7 11. Rxc6 Bxc6
hefur svartur nógar bætur fyrir
peðið.)
7. e3 - DaS
(Byrjunar taflmennska Korts-
nojs er áhættusöm en hann hefur
ekki mikla trú á skjótri refsingu
af hendi svo friðsæls manns sem
Petrosjans. Betra var að leika 7.
-Bg7 8. Bxc4 0-0 9.0-0 aó og hvíta
staðan er aðeins þægilegri.)
8. Bxf6! - gxf6
9. Bxc4
(Einfaldasta lausnin. Hvítur
lætur af hendi biskupaparið en
treystir í stað þess á yfirburði í
liðskipan. Einkennilegt fyrir
Petrosjan sem hugsaði yfirleitt
ekki mikið um skjóta liðskipan.)
9. - Bb4
10. Hcl - a6
11. 0-0 - Rd7
(Ekki þýddi að hróka vegna 12.
Rd5! svartur hefði hinsvegar átt
að sleppa a6 og hróka í staðinn.)
12. a3 - Be7?!
(12. - Bxc3 13. Hxc3 Re5 var eina
leiðin.)
13. b4 - De5
(Ekki gekk 13. - Dxa3 14. Rd5!
ogekki heldur 13. - Dd814. Bxf7!
Kxf7 15. Db3+ Ke8 16 Re6!.)
14. f4!
IiM * W
i i
m m mk
, w
A&£> A
8 ^ A
1 1AIÖ
(Ef nú 14. - Dxe3+x 15. Khl og
hótanirnar 16. Hel og 16 Rd5 eru
óverjandi.)
14. - Db8
15. Bxf7!! - Kxf7
16. Db3+ .. Ke8
17. Rd5 - Bd6
18. Re6 - b5
19. Rdc7+ Ke7
20. Rd4!!
(Býður svörtum upp á riddarann
á c7 : 20. - Bxc7 21. Rc6+ Kf8 22.
Rxb8 Bxb8 23. De6! eða 20. -
Dxc7 21. Hxc7 Bxc7 22. De6+
Kf8 23. Dc6! Ha7 24. Re6!
o.s.frv.)
20. - Kf8
21. Rxa8 og Kortsnoj gafst upp.
Samtök öhugamanna um
áfengisneyslu annarra
Virkari
bannstefnu
Samtök Áhugamanna um
Áfengisneyslu Annarra
(SÁAA) hafa ályktaö um nýjar
tillögur áfengisvarnarnefndar.
Samtökin fagna þessu frum-
kvæði nefndarinnar svo og
þeirri athygli sem áfengis-
varnarmál njóta um þessar
mundir vegna tillagnanna.
Jafnframt lýsa Samtökin
stuðningi við anda tillagn-
anna, að gera drykkju-
mönnum sem allra erfiðast
fyrir að stunda lesti sína.
Samtökin telja þó að tillögurn-
ar mættu ganga lengra — þeim
svipar um margt til reglna sem nú
gilda í Sovétríkjunum og hafa
ekki skilað nógu miklum árangri.
Eftirfarandi eru nokkrar við-
bótartillögur Samtakanna, til
umræðu og umhugsunar fyrir lög-
gjafann.
1. Áfengi verði eingöngu afgreitt
gegnum lúgur á útvegg í útsölum
ríkisins.
2. Skyndilokunum verði beitt í
mun ríkari mæli en hingað til,
bæði heila daga en einnig hluta úr
degi, t.d. þyki útsölustjóra of
löng röð hafa myndast við
lúguna.
3. Áfengi verði gert skráningar-
skylt eins og önnur hættuleg lyf.
4. Afgreiðsla áfengis verði ein-
skorðuð við eigendur fasteigna
og skal jafnan framvísa gögnum
þar að lútandi.
Greinargerö: Þessi ráðstöfun
mundi stórminnka áfengis-
neyslu unglinga og giftra
kvenna, og að auki hvetja til
viturlegra og skynsamlegra
fjárfestinga.
5. Mönnum verði ekki selt áfengi
nema þeir geti fært á það sönnur
að þá langi ekki í áfengi, heldur
ætli þeir að drekka það af öðrum
óskyldum ástæðum.
Greinargerð: Nýlegar finnskar
rannsóknir hafa sýnt að þeim er
mest hœtt við áfengissýki sem
langar í vín og drekka það af
lyst.
6. Eftirlit með sykursölu í versl-
unum verði stórlega hert og
kaupendum gert að gera grein
fyrir notkun á sykrinum ef keypt
er meira en tvö kíló.
7. Pilsner og aðrir svipaðir drykk-
ir verði ekki afgreiddir nema við-
skiptavinur geti sannað að hann
eigi ekki og hafi ekki aðgang að
kláravíni.
8. Ger fáist ekki afgreitt út úr búð
nema viðskiptavinur hafi með sér
deig og verði þá gerið sett beint í
deigið að kaupmanninum ásjá-
andi.
9. Framfylgt verði með fullri ein-
urð núgildandi lögum um bann
við áfengisauglýsingum, hverju
nafni sem þær nefnast.
Greinargerð: Öskubakkar,
dagatöl, o.fl. auglýsingar frá
áfengisframleiðendum og um-
boðsmönnum eru hvarvetna á
almannafœri.
10. Tafarlaust skal stemma stigu
við áfengis- og drykkjuáróðri í er-
lendum og innlendum sjónvarps-
þáttum og kvikmyndum. Flöskur
og glös verði gerð torkennileg
með yfirstrikunum og útþurrkun-
um og hljóðmerki komi í stað
orða er lúta að drykkju. í texta-
þýðingum komi t.d. „svaladrykk-
ur“ eða „íste“ í stað áfengisheita.
11. Áfengisáróður verði upprætt-
ur úr skólabókum og smám sam-
an öllum bókum, þannig að til-
vitnanir til öls, mjaðar, „táranna
þrúgna“ o.þ.h. verði strikaðar út
eða umskrifaðar.
Virðingarfyllst,
Magnús Sveinsson.
m wmmmmm m mm m ■
ATTU BIL
EDA UEIfl 11 O
■ ncwLu ■
í ÁGÚSTMÁNUÐI GEFUM VIÐ
10% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTT
Á EFTIRTÖLDUM VÖRUM í
ALLA BÍLA SEM VIÐ
HÖFUM UMBOÐ FYRIR
Dæmi um verð:
öp-sA
. '.WÍ&ÍÍSÍ: :
% <
Vi « '
»1 f,..
Kerti Frákr. 40 -í 10%
Platínur — 50-i -10%
Kveikjulok ... — 95-i - 10%
Viftureimar ... — 45-: -10%
Tímareimar .. — 145-i -10%
Loftsíur — 195-i - 10%
Smursíur .... — 155 -i -10%
Bensínsíur ... — 35- - 10%
Þurkublöð ... — 75 -. - 10%o
Bremsuklossar — 285-. - 10%
Bremsuborðar — 110-. - 10%
Bremsudælur .— 440, -10%
Vatnsdælur .. — 410- ■-10%
VIÐURKENND VARA
í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
MITSUBISHI
MOTDRS
Auói
IhIhekiahf
^ Laugavegi 170 -172 Sími 2124-0
Sunnudagur 19. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
10% AFSLÁTTUR