Þjóðviljinn - 05.09.1984, Síða 3

Þjóðviljinn - 05.09.1984, Síða 3
FRETTIR Verkefnalisti Steingríms og Þorsteins varð að víkja á þingflokksfundum í gær fyrir fjárlagagatinu Afundum þingliðs stjórnar- flokkanna í gær var mest rætt um ráð gegn fjárlagagati næsta árs sem talið er að verði á annan milljarð. Minna var rætt um þann verkefnalista sem til varð á fundum flokksformannanna Steingríms Hermannssonar og Þorsteins Pálssonar nú undanfar- ið. Þær tillögur eru m.a. upp- stokkun í sjóðakerfinu, sérstakt fyrirbæri sem á að stuðla að ný- sköpun í atvinnulífl og breytingar á Framkvæmdastofnun. Forystumenn stjórnarflokk- anna eru strax teknir hver við sína túlkun á tillögunum sem enn er farið með sem trúnaðarmál. Þannig sagði forsætisráðherra í sjónvarpi í fyrradag að Fram- kvæmdastofnun yrði breytt í þró- unarfyrirtæki, en í seinni fréttum sjónvarps á mánudag var lesin leiðrétting frá varaformanni Sjálfstæðisflokksins, sem sagði að Framkvæmdastofnun yrði víst lögð niður. Halldór Ásgrímsson sjávarút- “ vegsráðherra og varaformaður Framsóknaflokksins þvertók í gær fyrir að ágreiningur væri uppi um þetta mál. Halldór sagði við Þjóðviljann á leið til þingflokks- fundar að breyta ætti Fram- Tómas vlð þlngdyr. Það gengur lítlð að leggja hann nður. (Mynd: Atli) Matthías Á. Mathiesen að fara á fundlnn: Spyrjlð Albert. (Mynd: Atll). kvæmdastofnun verulega, hún ætti miklar eignir sem sjá yrði fyrir. Enginn ágreiningur ríkti milli flokkanna um þetta. Þingmenn á leið til þingflokks- funda voru varkárir í orðfæri og snöggir í hreyfingum. Pálmi Jóns- son fyrrverandi landbúnaðarráð- herra hafði ekki sé tillögur for- mannanna um landbúnaðarmál. Páll Pétursson sagði að ekki væri allt rétt hjá Vísi, þegar frétt DV um 900-1300 milljóna halla á fjár- lögum 1985 var borin undir hann. Tómas Árnason kommissar í Framkvæmdastofnun var glað- beittur þegar hann kom til þing- flokksfundar framsóknarmanna. Á að leggja Framkvœmdastofn- un niður, Tómas? - Það er nú lengi búið að vera að tala um það. Og núna á að gera það? - Ja, það gengur lítið. -m Það er mlkll og hröð umferð um Ártúnsbrekkuna og þrátt fyrlr brelðar akrelnar telja margir ökumenn að full nauðsyn sé að greina á mllli mlðak- reina með umferðareyju. Mynd-eik. Formannatillögurnar „Það gengur lrtið“ TORGIÐ Það endar með því að enginn hefur efni á að vinna hjá ríkinu nema ráðherrarnir! Skóli fatlaðra „Þetta er fráleitt" Mér fínnst það með ólflrindum og gjörsamlega fráleitt að neita fólki um akstur í skóla með þessum bflum. Það hefur alltaf verið tilgangurinn með Ferða- þjónustu fatiaðra og er enn á pappírunum a.m.k. að það hafl forgang að koma fólki til vinnu náms og lækninga, sagði Adda Bára Sigfúsdóttir borgarfulltrúi í gær, en eins og fram kom í Þjóð- viljanum hefur nemendum i Skóla fatlaðra verið neitað um þessa þjónustu borgarinnar. „Þetta er fráleitt“, sagði Adda, „og ég skil ekki þessi viðbrögð og veit ekki frá hverjum þau eru komin. Við byggðum þessa þjón- ustu upp á síðasta kjörtímabili og ætlum henni svo sannarlega að gegna sínu hlutverki áfram. Þá var umsjónin í höndum sérstakr- ar samstarfsnefndar sem í voru borgarstjóri og fulltrúar frá öllum flokkum. Síðan hefur orðið sú breyting að sett hefur verið á stofn önnur nefnd sem í eru fjórir embættismenn frá borginni og einn fulltrúi frá Sjálfsbjörg í Reykjavík. Kjörnir fulltrúar koma þar hvergi nærri og það virðist nú vera hægt að ráðskast með þessa þjónustu og rífa hana niður í skjóli þess“, sagði Adda. „Ég mun svo sannarlega afla nán- ari upplýsinga um þetta mál allt. Fulltrúar Alþýðubandalagsins munu aldrei leggja blessun sína yfir þessa synjun heldur gera þá kröfu að Ferðaþjónusta fatlaðra vinni eins og til var ætlast.“ -ÁI Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra 13 sjúkraþjálfar hætta Óánœgja með störf stjórnar Styrktarfélagsins. Uppsagnir fyrst og fremst vegna launamála, segir framkvœmdastjórinn. „Mér er alveg ókunnugt um það að þetta starfsfólk hafl verið óánægt með störf stjórnar Styrkt- arfélags lamaðra og fatlaðra,“ sagði Sigurður Magnússon fram- kvæmdarstjóri Styrktarféiagsins er viðbrögð hans voru könnuð við bréfi sem 14 fyrrverandi starfs- menn stofnunarinnar sendu stjórn hennar, þar sem þeir lýsa yfír undrun sinni á þeirri linkind og ábyrgðarleysi sem stjórnin hefur sýnt á gangi mála hjá stofn- uninni undanfarna mánuði. Þessir 14 starfsmenn, þar af 13 sjúkraþjálfar, eru nú hættir störf- um hjá Styrktarfélaginu í kjölfar uppsagna sem bárust í lok maí s.l. „Að mér vitandi snerust þessar uppsagnir um launamál," sagði Sigurður. I bréfinu stendur að ástæða þess að fyrrgreindir starfsmenn hafi ákveðið að hætta störfum byggist ekki eingöngu á launam- álum, heldur fléttist inn í þessa ákvörðun önnur og flóknari mál sem rekja má t.d. til afskipta- leysis stjómar á rekstri stofnun- arinnar. Ennfremur segir í bréf- inu að ekkert hafi verið gert til þess að halda þessum starfs- kröftum. „Það er alrangt að við höfum ekki reynt að halda í þetta fólk. Við buðum þeim öllum endur- ráðningu, eftir að búið var að tryggja endurbætur til betri fjár- hagsafkomu stofnunarinnar. Stjómin gerði sjúkraþjálfum mjög hagstætt tilboð um launa- hækkun sem er það hagstæðasta sem nokkur stofnun hefur boðið sjúkraþjálfum hér á landi að mér vitandi. Megnið af þeim fjármun- um sem fer í starfsemi Styrktarfé- lagsins kemur frá tryggingakerf- inu og erum við því ekki sjálfráðir með fé. Stofnunin verður bara að komast af með minni mannskap og sinna færra fólki um sinn, en verið er að vinna að því að útvega fleiri sjúkraþjálfa bæði innan lands og utan,“ sagði Sigurður ennfremur. „Ég er tilbúinn til þess að leggja störf mín í þágu fatlaðra undir mæliker hvar og hvenær sem er“ sagði Sigurður við þeim ummælum sem einnig komu fram í bréfinu að óánægja hafi ríkt meðal þessara 14 með vinnu- brögð Sigurðar Magnússonar framkvæmdastjóra. -kb Umferðarslysin llla búið að umferðinni Verðum að búa þannig að ökumönnum að þeir komist leiðar sinnar segir óskar Ólason yfirlögregluþjónn. Ekkert samrœmi ígatna- framkvœmdum og fjölgun ökutœkja. Eftir hið hörmulega bifreiða- slys á Vesturlandsvegi ofan Ártúnsbrekku um sl. helgi hefur sú spurning vaknað hjá mörgum hvort ekki sé full ástæða til að byggja þar umferðareyju á milli miðakreina i beinu framhaldi af Miklubraut. Minnast menn þá tfðra slysa á þessum vegarkafla, einkum í Ártúnsbrekku þar sem bifreiðar sem komið hafa úr gagnstæðri átt hafa rekist saman oft með hörmulegum afleiðing- um. Óskar Ólason yfirlögreglu- þjónn sem á sæti í umferðarnefnd borgarinnar sagði í samtali við Þjóðviljann í gær að það hefði aldrei komið til tals að reisa um- ferðareyju þarna, en það væri vel athugandi. Hann benti þó jafn- framt á að slík umferðareyja gæti kallað á aðrar hættur í umferð- inni. „Það er líka rétt að benda á það, að gatnaframkvæmdir eru og hafa ekki verið í nokkru sam- ræmi við fjölgun ökutækja. Það er alltaf verið að kenna öku- mönnum um allt sem afvega fer í umferðinni, en sannleikurinn er sá að við búum mjög illa að um- ferðinni og margar nýlegar veg- aframkvæmdir eru vafasamar eins og t.d. tenging Bústaðavegar við Kringlumýrarbraut. Ég held að við verðum að horfa raunsætt á málin og búa þannig að öku- mönnum að þeir komist leiðar sinnar“, sagði Óskar Ólason.-lg.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.