Þjóðviljinn - 05.09.1984, Síða 5
7 ungir
íslendingar
kynntu verk
sín d
„Ung
Nordisk
Musik
Festival"
„ Það er áreiðanlega mjög
lærdómsríkt að taka þátt í
þessu tónleikahaldi, - lifa og
hrærast í svona umhverfi í
eina viku, þar sem menn ein-
beita sér að því að hlusta á
tónlist jafnaldra sinna og ekk-
ert annað kemst að. Maður
fær nýjar hugmyndir og viðrar
sínar ejgin auk þess sem
maður fær viðbrögð við því
sem maður hefur verið að
semja.“ sagði Atli Ingólfsson,
einn níu íslendinga sem eru
nýkomnir heim frátónlistar-
hátíðinni „Ung Nordisk Musik
Festival" í Malmö.
Þar eru flutt verk eftir norræn
tónskáld undir 30 ára aldri og
jafnframt eru haldnir fyrirlestrar
og námskeið. 7 ung íslensk tón-
skáld kynntu verk sín á þessari
tónlistarhátíð og er það svipaður
fjöldi og frá hinum Norðurlönd-
unum, sem telja má býsna gott,
þegar litið er á fólksfjöldann í
hverju landi. Þess má þó geta að
ennþá eiga hvorki Grænlending-
ar né Færeyingar fulltrúa á þess-
um árlegu tónlistarhátíðum
ungra tónskálda.
Islensku tónskáldin sem fóru
Lærdómsríkt
að hlusta
á tónlist
jafnaldranna
Tveir hinna ungu tónsmiða, Árni og Haukur, sem kynntu verk sín í Malmö. Ljósm.eik.
til Malmö að þessu sinni voru þau
Ámi Harðarson, Lárus Gríms-
son, Haukur Tómasson,
Hróðmar Sigurbjömsson, Atli
Ingólfsson og Mist Þorkelsdóttir.
Var hún önnur af aðeins tveimur
konum sem áttu verk á hátíðinni.
Þeir sem fluttu tónlistina vom
Eggert Pálsson, slagverksleikari,
Guðni Fransson, klarinettu-
leikari og Ásthildur Haraldsdótt-
ir flautuleikari, auk eins Hollend-
ings. Við áttum stutt spjall við
Atla og Hauk um tónlistarhátíð-
ina og sögðu þeir að íslensku
verkin hefðu vakið mikla athygli
og ekki síður íslensku flytjend-
umir. Yfirleitt hefðu Finnarnir.
þótt eftirtektarverðastir á þess-
um tónlistarhátíðum, en nú virt-
ust ýmsir vera að ná þeim. Við
spurðum þá félaga hvort verk
þessara ungu tónskálda ættu
eitthvað sameiginlegt:
„Það er erfitt að finna sérþjóð-
leg einkenni í tónsmíðunum,
menn semja ólíkt þótt þeir séu frá
sama landinu. Það má hins vegar
segja að tilhneiging til að endur-
vekja vissa þætti úr eldri tónlist,
aukin rómantík sé meira áber-
andi í tónlist ungra tónskálda en
verið hefur undanfarin ár og
jafnvel áratugi. Tengsl við al-
menning, sambandið við áhorf-
endur og fólkið í landinu var
einnig nokkuð til umræðu á há-
tíðinni. Ef til vill þýðir það að
nútímatónlist er að ná eyrum al-
mennings í auknum mæli,“ sögðu
Atli og Haukur. Þeir sögðust
báðir hlusta á alls konar tónlist,
menntun þeirra væri að verulegu
leyti klassisk og þeir hlusta líka á
popp. „Aðallega þegar við
dönsum“ sagði Atli, og bætti við:
„Þeir sem semja nútímatónlist
eru ekki einangraðir, og því fer
fjarri að þeir hafi varpað fyrir
róða fagurfræðilegum gildum í
tónlistinni. Klassikin er grunnur-
inn sem við byggjum á og þótt
íslendingar hafi líklega verið van-
þróaðasta land í heimi í tónlistar-
legum skilningi um aldamótin
1800, erum við engir eftirbátar
annara í dag.“
Því má svo bæta við að næsta ár
er bæði ár æskunnar og ár tónlist-
arinnar og ætti tónlistarhátíð
ungu tónskáldanna að verða
mjög í brennidepli. Hún verður
haldin í Helsinki í Finnlandi að
ári.
-þs
„Sovéskir dagar MIRM
25 manns frá Azerbajdsjan
25 manna hópur listamanna
frá sovétlýðveldinu Azerbajdsjan
er staddur hér á landi þessa dag-
anaítilefniaf9. „sovésku dögun-
um“ á íslandi. Sovéskir dagar
MÍR voru settir á mánudagskvöld
í Hlégarði í Mosfellssveit, en (
gærkvöldi var dagskráin flutt á
Hellissandi. Azerbajdsjan, sem
hér er kynnt að þessu sinni, er eitt
hinna 15 lýðvelda Sovétríkjanna,
liggur á mörkum Evrópu og Asíu
með Kákasus á aðra hliða, (ran
og Tyrkland að sunnan og Kaspí-
ahaf í austri.
Flestir gestanna sem koma
hingað til íslands eru félagar í
Þjóðdansa- og söngflokknum
„Könúl“ (sem þýðir ,,sál“) frá
Bakú, höfuðborg lýðveldisins.
Flokkur þessi hefur komið víða
fram, m.a. Finnlandi, Frakk-
landi, Ítalíu og Spáni. Einleikar-
ar á þjóðleg hljóðfæri eru með í
förinni og söngvaramir Nísa Kar-
ímóva og Jaltsin Rzazade. For-
maður Vináttufélagsins í Azer-
bajdsjan, Nabí Khazrí, skáld,
sem kom hingað með hópnum,
sagði á blaðamannafundi í gær,
að það væri von „Könúl“ lista-
mannanna að þau næðu til sálar
íslensku þjóðarinnar með list
sinni. Listrænn stjórnandi hóps-
ins er Alí Úsubov og dansstjóri er
Aríf Asadúllaév.
Þá kom fram hjá ívari
Jónssyni, sem hefur haft veg og
vanda af heimsókn þessari fyrir
hönd MÍR, að um næstu helgi
verður opnuð sýning á listmunum
frá Azerbajdsjan í húsakynnum
MÍR að Vatnsstíg 10. Verða þar
sýnd m.a. teppi, listmunir,
skartgripir og grafík, en þess má
geta að teppagerð í þessu fjar-
læga Kákasusríki er mjög víðfræg
og sérstök. Einnig verða sýndir
leirmunir, en því miður kom í ljós
að nokkuð af sýningargripunum
hafði ekki þolað hið langa ferða-
lag til íslands og brotnað. Sýning-
in verður opnuð á laugardag kl.
16.00 og síðan opin daglega frá
17-19 og um helgar frá 14-19.
UMSJÖN: ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR Miðvikudagur 5. september 1984 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 5