Þjóðviljinn - 05.09.1984, Page 10
HEIMURISPESPEGLI
Þetta er allt í lagi. Pað eina sem mig vantar er helmingi meiri
hraði.
Ég held að hann sé haldinn líkamlegum komplex.
ORKUSTOFNUN
GRENSASVEGI 9 - 108 REYKJAViK
Skrifstofustarf
Hjá Orkustofnun er laust til umsóknar starf skrifstofu-
manns. Starfið er í afgreiðslu stofnunarinnar við mót-
töku reikninga, vélritun og önnur skrifstofustörf.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf send-
ist starfsmannastjóra fyrir 11. sept. n.k.
Orkustofnun.
Frá Tónlistarskóla
Kópavogs
Innritun fer fram 6.-8. sept. að báðum dögum meðtöld-
um, kl. 9-12 og 16-18.
Innritað verður á sama tíma í forskóladeildir. Nemend-
ur eru beðnir að láta stundaskrár fylgja umsóknum.
Athygli skal vakin á því, að m.a. verður kennt á óbó,
horn og básúnu.
Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans Hamraborg
11,2. hæð, símar 41066 og 45585.
ALÞÝBUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Kópavogi
Félagsfundur.
ABK heldur félagsfund í Þinghóli, miðvikud. 5 sept.
kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Kosning upstillingarnefndar f. aðalfund.
2. Efnahags- og atvinnumál. Ólafur Ragnar Gríms-
son hefur framsögu. Félagar eru hvattir til að fjöl-
menna og taka þátt í brennandi umræðu.
Nýir félagar eru velkomnir.
Stjórn ABK
Alþýðubandalagsfélögin á Suðurnesjum
Alþýðubandalagsfólk á Suðurnesjum: fjölmennum í Þórsmerkurferð sem
farin verður þann 14. september. Allar frekari upplýsingar gefa Bjargey
Einarsdóttir í síma 3096 og Elsa Kristjánsdóttir í síma 7680.
Sendið inn samningseyðublöðin vegna
flokksfélagsgjalda til Alþýðubandalagsins
fyrir árið 1984
Um leið og við þökkum hinum fjölmörgu sem brugðust fljótt við og
sendu samningseyðublöðin strax inn viljum við hvetja þá sem enn
hafa ekki komið þessu í verk að gera það nú þegar. Leggið gjöldin á
sjálf og sparið stjórnum félaganna vinnu.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Munið gíróseðlana fyrir fyrsta hluta flokks- og
félagsgjalda ársins 1984
Stjóm Alþýðubandalagsins í Reykjavík hvetur þá sem enn hafa
ekki gert skil á fyrsta hluta flokks- og félagsgjalda ársins að gera
það nú um þessi mánaðamót.
Verum öll minnug þess að starf ABR byggist á því að félagsmenn
(allir) standi í skilum með félagsgjöldin. Allir samtaka nú.
- Stjórn ABR.
Sveitarstjórnarmenn og áhugamenn
um sveitarstjórnarmál!
Stofnfundur samtaka um sveitarstjórnarmál verður haldinn 15. september
að Hverfisgötu 105 og hefst kl. 14, kl. 2 e.h. á laugardag.
Dagskrá: Lög samtakanna - frumvarp til sveitarstjórnarlaga - önnur mál. -
Undirbúningsnefndin
Opinn fundur
um verkalýðsmál
verður haldinn fimmtudaginn 6. september kl. 20.30 að Hverfisgötu 105.
Hvert stefnir? Hvað ber að gera?
Frummælandi er Árni Sverrisson verkamaður. Umræður á eftir.
Fólki gefst kostur á að skrá sig í vinnuhóp um verkalýðsmál á fundinum til
undirbúnings landsþingi ÆFAB.
- Verkalýðsmálanefnd ÆFAB.
ÆF félagar!
Ferð í Sauðadali
Nú förum við í Sauðadali sunnudaginn 9. september til að skoða landið
okkar og ræða um skálann. Boðið upp á kaffi og jafnvel kleinur. Tilkynnið
þátttöku á skrifstofu AB á skrifstofutíma 9-4 fram að föstudeginum 7.
september. Lagt af stað frá Hverfisgötu 105 sunnudag kl. 12.30. - ÆFAB
Bændur
Orðsending frá Fram-
leiðsluráði
Landbúnaðarins til bænda
Þeir bændur sem keypt hafa áburð í vor og sumar og
staðgreitt hann, eiga rétt á endurgreiðslu, hluta áburð-
arverðsins, hafi þeir greitt áburðinn samkvæmt verð-
lagningu hans í aprílmánuði síðastliðnum.
Allir, sem telja sig eiga þennan rétt, skulu senda gögn
^em staðfesta áburðarkaupin og, hvar hann er
Tœyptur.fyrir 20. þ.mán. til Framleiðsluráðs Landbún-
aðarins, Bændahöllinni, Hagatorgi, Reykjavík.
Félagsfundur
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur almennan
félagsfund fimmtudaginn 6. september n.k. kl. 20.30
að Hótel Borg.
Fundarefni: Opnunartími verzlana.
Verzlunarfólk fjölmennið og sýnið ykkar vilja.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
Ritara
vantar í 1/2 starf (fyrir hádegi) að sálfræðideild skóla í
Breiðholti (Hólabrekkuskóla).
Umsóknir berist fyrir 12. sept. n.k. tíl Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkurumdæmis, Tjarnargötu 20.
Upplýsingar í síma 621550 og 77255.
Fræðslustjórinn í Reykjavík.
SKÁK
Þessi staöa kom upp í skák
heimsmeistarans Karpovs og Mi-
les á stórmótinu í Osló 1984.
Skákin var mjög þýðingarmikil
fyrir báða vegna þess að þeir
börðust um efsta sætið út allt
mótið. Karpov sem hafði hvítt
fann nú snjalla leið til þess að
halda sókninni gangandi. 23 d5!
það er Ijóst að Miles verður að
þiggja þessa fórn 23. - exd5 ef
23. - cxd5 þá 24. Hxe6! 24. Df5
Dxc3 25. Hee7 Dd3 26. Dxf6 Dg6
27. Dxg6+ hxg6 ef 27. - fxg6 þá
28. Re5 með hótuninni Rg4. 28.
Re5 Bg5 29. Hxf7 Hxf7 30. Rxf7
og Karpov hefur náð unnu tafli
enda gafst Miles upp nokkrum
leikjum síðar.
BRIDGE
Hrólfur Hjaltason og Jónas P.
Erlingsson léku mjög góðan
bridge í 3. lotu Landsliðskepp-
ninnar, og hífðu sig úr botnsætinu
upp í 2. I dag sjáum við þá með
sjóræningjafánann við hún, etja
kappi við efsta parið, Björn
Eysteinss. og Guðmund Her-
mannsson.
Gjafari A, allir utan:
Norður
S 543
H AKD103
T 754
LG6
Vestur Austur
SKG87 SD109
H 6 H 854
TD862 TAKG10
LAK97 LD103
Suður
S A62
H G972
T 93
L 8542
Á þessi spil runnu tvö pör í 4
spaða í vestur, sem vinnst, þrátt
fyrir stytting í hjarta, því trompin
skiptust vel. Eitt par „fann“ tígul
samleguna, en stoppaði í bút,
sennilega sagn misskilningur.
Jónas og Hrólfur enduðu í 3
gröndum, í austur eftir 1-tt'gul (A)
1-spaða, 1-grand, 3-lauf, 3-
spaðar, 3-grönd (?)...
Hrólfur átti erfitt um vik, 4-tíglar
er „rétta“ sögnin, en gat kostað
EF félagi átti sæmilegan þrílit í
hjarta.
Björn fann hjartaútspilið, sjöan
birtist í borðinu (3. besta) Guð-
mundur drap á kóng (?) og spilaði
þristinum til baka, til að varast
stíflu í litnum. Nían vann slag og
Björn sökk í hugleiðslu. Skipti síð-
an í lauf, lítið gosi og Jónas vann á
drottningu.
Nú var bara eftir að beita spaða
tíunni, suður lét smá spaða og
kóngur átti slaginn. Unnið spil og
ein smá sveifla til Hrólfs og Jón-
asar í stað ÞRIGGJA til Björns og
Guðmundar, hefðu þeir hnekkt
spilinu.
Ég held að Guðmundur eigi að
setja drottningu í fyrsta slag. Þá
ás. Ef félagi sýnir hátt-lágt er
óhætt að spila þristinum næst og
staðan ætti aðvera Ijós, auðvelt
að sjá hvort suður á þrí- eða fjórlit
í hjarta.
Þarna sluppu Hrólfur og Jónas
fyrir horn, í eina spilinu sem þeir
gáfu veruleg færi á sér í þessari
umferð.