Þjóðviljinn - 05.09.1984, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 05.09.1984, Qupperneq 15
IÞROTTIR______________ Stuttgart-Bayern Keisarinn hreinsar! Franz „Keisari“ Beckenbauer, hinn nýi landsiiðseinvaldur Vestur- Þjóðverja í knattspyrnu, er strax far- inn að láta til sín taka. V.Þjóðverjar fá Argentínumenn í heimsókn á mið- vikudaginn kemur og í nýtilkynntum landsliðshópi eru sex nýir leikmenn, í stað sex sem voru í liðinu í úrslitum EM í Frakklandi í sumar. Þrír þekktir eru settir út, Klaus Al- lofs, Hans-Peter Briegel og Bernd Förster. Brottvikning Allofs vekur mesta furðu því hann hefur skorað í hverjum leik fyrir Köln síðan 7. apríl í vor, nú síðast þrjú mörk á laugardag- inn gegn Stuttgarter Kickers í bikar- keppninni. Felix Magath, hinn þrí- tugi miðvallarspilari frá Hamburger, er í hópnum nú en hann gaf ekki kost á sér síðustu misseri sem Jupp Derw- all var við völd. -JHG/VS Þrír" tvívegis Frá Jóni H. Garöarssyni frétta- manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi: Þrír leikmenn hafa verið tvívegis í ,Jiði vikunnar“ hjá Kicker eftir tvær fyrstu umferðir Bundesligunnar í knattspyrnu. Þeir eru Sören Lerby hjá Bayern Múnchen, Klaus Fischer, Bochum, og Andreas Brehme, Kais- erslautern. 4. deild í kvöld hefst síðari umferð úrslita- keppninnar í 4. deild. Reykjavíkurfé- lögin Ármann og Léttir eigast við og á Fáskrúðsfirði taka Leiknismenn á móti Reyni frá Árskógsströnd. Ár- mann og Leiknir hafa forystu í riðlun- um tveimur. Getraunir í annarri leikviku Getrauna komu fram 6 seðlar með 12 réttum leikjum og var vinningur fyrir hverja röð kr. 38.485. Með 11 rétta voru 106 raðir og vinningur fyrir hverja er 933 krón- ur. Magni hættirvið Magni frá Grenivík hefur dregið til baka kæru sína á hendur Hugins, Seyðisfirði, í NA-riðli 3. deildarinnar í knattspyrnu. Málið breytist þó ekk- ert við þetta, Valur Reyðarfirði kærði Hugin líka og verði dæmt Scyðfirð- ingum í óhag, falla þeir í 4. deild í stað Vals. Frestað hefur verið um nokkra daga að taka málið fyrir hjá héraðs- dómstóli UÍA til að gera Hugins- mönnum kleift að ljúka gagnasöfnun sinni. - VS. Riðlar í útimótinu Dregið hcfur verið í riðla fyrir ís- landsmótið í handknattleik utanhúss, sem nú heitir reyndar Sumarmót HSI 1984. Keppni í meistaraflokki karla verður um næstu helgi í íþróttahúsinu í Hafnarfirði en úrslitaleikirnir fara fram sunnudaginn 16. september. Mfl. karla leikur í tveimur riðlum og eru þeir þannig skipaðir: A-riðill: Valur B, Haukar, ÍR, FH og Fram. B-riðill: Fylkir, Valur A, Grótta, Stjarnan og HK. í meistaraflokki kvenna verður keppt um helgina 14.-16. september og þar eru einnig tveir riðlar. A-riðill: Huginn, Víkingur, ÍR og FH. B- riðill: Armann, Fram, Haukar og Valur. FH sigraði í 2. flokki kvenna um síðustu helgi eins og sagt var frá í blaðinu í gær. - VS. Lerby hyggst hefna harma sinna gegn Ásgeiri! „I vetur mun stjarna mín skína jafnskœrt og stjarna Asgeirs í fyrra“, segir Daninn Ásgeir Sigurvinsson (t.v.) og Sören Lerby (t.h.)verða í sviðsljósinu þegar Stuttgart og Bayern Munchen mætast í Stuttgart í kvöld. Frá Jóni H.Garðarssyni fréttamanni Þjóöviljans í V-Þýskalandi: „F.g á harma minna að hefna síðan í fyrra!“ segir Sören Lerby, Daninn snjalli hjá Bayern Miinchen. Þar á hann við leik Bayern og Stuttgart sem mark- aði þáttaskil hjá tveimur norrænum leikmönnum, Lerby og Ásgeiri Sigur- vinssyni. í þeim leik skyggði Ásgeir algerlega á Lerby og upp frá því lá leið Ásgeirs stöðugt uppávið og endaði með meistaratitli og nafnbótinni Knatt- spyrnumaður ársins, en það sem eftir var keppnistímabilsins fór lítið fyrir Dananum. Stuttgart og Bayern mætast í Bundesligunni í kvöld og Lerby sagði nú um helgina: „Ég ætla að skyggja á Ás- geir í þessum leik og í vetur mun stjarna mín skína jafnskært og stjarna Ásgeirs gerði í fyrra!“ Ásgeir lætur örugglega ekki kveða sig í kútinn þegar á hólminn er komið. Eins og menn muna var hann einn vetur hjá Bayern án þess að fá veruleg tækifæri til að sýna getu sína og í leikjum gegn Múnchen-liðinu síðan hefur hann jafn- an leikið mjög vel. Enska knattspyrnan Tveir útaf hjá Tottenham! Newcastle lá 2-0 gegn Arsenal á Highbury en er samt áfram efst Nýliðar Newcastle biðu í gær- kvöldi sinn fyrsta ósigur á þessu keppnistímabili í ensku knatt- spyrnunni, töpuðu 2-0 fyrir Arse- nal á Highbury í London. Þrátt fyrir tapið er Newcastle áfram í efsta sæti 1. deildar en í kvöld eiga Aston Villa, Nottingham Forest og WBA möguleika á að ná nýlið- unum að stigum. Arsenal lék mjög vel og Charl- ie Nicholas átti hreint stórkost- legan leik. Bæði mörkin komu í síðari hálfleik, Brian Talbot skoraði eftir aukaspyrnu og Viv Anderson með skalla eftir horn- spyrnu. Úrslit í Englandi í gærkvöldi: 1. deild: Arssnal-Newcastle...............2-0 Everton-lpswich................1-1 Luton-Liverpool.................1-2 Q.P.R.-StokeCity............frestað Sheff.Wed.-Southampton.........2-1 Sunderland-Tottenham............1-0 West Ham-Coventry...............3-1 2. deild: Carlisle-Shrewsbury.............2-0 Fulham-Birmingham..............0-1 Grimsby-Charlton...............2-1 Jafntefli Köln og Armenia Bielefeld skildu jöfn, 1-1 í vestur-þýsku Bundesl- igunni í knattspyrnu í gærkvöldi. Þessum leik var frcstað á laugar- daginn en hann var númer tvö í röðinni hjá báðum liðum. Leiðrétting í blaðinu í gær var ekki rétt greint frá öðrum markaskorara Tindastóls gegn ÍBV í 2. deildinni í knattspymu. Það var Elvar Grétarsson sem skoraði síðara mark Tindastóls og biðjumst við velvirðingar á mistökunum. mark Everton fyrir Adrian He- ath. Liverpool er komið í annað sætið eftir sigurinn í Luton. Kenny Dalglish skoraði sigur- markið, 1-2, rétt fyrir leikslok eftir sendingu Pauls Walsh, fyrrum miðherja Luton. Imre Varadi kom Sheff.Wed. yfir, Joe Jordan jafnaði fyrir Southampton en Gary Shelton skoraði sigurmark Sheff.Wed. fjórum mínútum fyrir leikslok. Ray Stewart skoraði tvívegis úr vítaspyrnum er West Ham vann Coventry 3-1. Aðeins níu leik- menn Stoke voru frískir, allir hin- ir með flensu, og leiknum við QPR var því frestað. 2. deild er þá þessi: 1. deild Newcastle.............4 3 0 1 8-5 9 Uverpool..............4 2 2 0 9-5 8 Tottenham.............4 2 119-57 Arsenal...............4 2 117-67 WestHam...............4 2 116-67 Watford...............3 0 2 1 5-6 2 Norwich...............3 0 2 1 4-6 2 Leicester.............3 0 1 2 4-7 1 Southampton...........4 0 1 3 4-8 1 2. deild Leeds.................3 3 0 0 7-3 9 Birmlngham............3 3 0 0 6-2 9 Grimsby...............4 3 0 1 8-5 9 Charlton..............4 2 119-47 Cardiff...............2 0 0 2 1-5 0 Mlddlesboro...........2 0 0 2 1-6 0 NottsCounty...........4 0 0 4 2-9 0 -vs Landsleikurinn Sterkt lið Walesbúa Neville Southall, hinn snjalli mark- vörður Everton, ver mark Wales. Walesbúar hafa valið 21 leik- mann fyrir landsleikinn við Is- land á Laugardalsvellinum eftir viku. Að vanda leika allir með liðum úr ensku deildakeppninni, tólf þeirra með 1. deildarfé- lögum. Hópurinn er þannig skip- aður: Markverðir: Neville Southall, Everton og Alan Judge, Luton. Aðrir leikmenn: Jeff Hopkins, Fulham, Kevin Ratcliffe, Evert- on, Joey Jones, Chelsea, Robbie James, Stoke, Kenny Jackett, Watford, Peter Nicholas, Cr. Palace, Neil Vaughan, Cardiff, Neil Slatter, Bristol Rovers, Bri- an Flynn, Burnley, Alan Davies, Man. Utd, Mickey Thomas, Chelsea, Mark Hughes, Man. Utd, Clayton Blackmore, Man. Utd, Jeremy Charles, QPR, Alan Curtis, Southampton, Byr- on Stevenson, Birmingham, Gordon Davies, Fulham, David Phillips, Man. City og Steve Lo- vell, Millwall. Úr þessum hópi er hægt að stilla upp geysisterku liði þannig að það verða engir viðvaningar sem mæta íslenska landsliðinu í fyrsta leik 7. Evrópuriðils í und- ankeppni HM. -VS Huddersfield-Blackburn..........1-1 NottsCounty-Barnsley............0-2 Wolves-Manch.City...............2-0 Tottenham átti möguleika á að komast í efsta sætið en tapaði 1-0 í Sunderland. Tveir Tottenham- leikmenn voru þar reknir af leikvelli, Graham Roberts og Cli- ve Allen. Colin West skoraði sigurmark Sunderland úr víta- spyrnu. Enn jafntefli hjá Ipswich - Eric Gates skoraði gegn Everton en Terry Curran kom inná sem vara- maður og lagði upp jöfnunar- Miðvikudagur 5. september 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.