Þjóðviljinn - 09.11.1984, Qupperneq 4
LEIÐARI
Syndakvittun Sverris
í tyrradag var lagður fram á Alþingi samning-
ur milli íslenska ríkisins og Alusuisse, sem var
undirritaðurfyrr í þessari viku úti í Sviss af Sverri
Hermannssyni, iðnaðarráðherra.
Það hefur vakið óskipta athygli, að ríkisstjórn-
in fékkst ekki til að leyfa stjórnarandstöðunni að
tylgjast með samningagerðinni. Hún fékk aldrei
tækifæri til að ræða, gagnrýna eða bæta þau
drög sem Sverrir Hermannsson síðar undirrit-
aði.
Nú, þegar búið er að dreifa samningnum á
Alþingi sem jafnframt fær einungis fárra daga
frest til að staðfesta hann, má hins vegar skilja
hvers vegna iðnaðarráðherra og félaga hans í
íslensku ríkisstjórninni brast kjark til að leyfa
stjórnarandstöðunni og fjölmiðlum að tylgjast
með samningunum.
Staðreyndin er nefnilega sú, að samningarnir
eru stórgallaðir. Það er raunar makalaust
hvernig iðnaðarráðherra hefur tekist að klúðra i
niður stöðu, sem þó bjó yfir rakinni vinningsleið.
í sjálfu sér væri hægt að nefna til mörg atriði
sem vegna hvers fyrir sig væri rík ástæða til að
krefjast endurbóta á samningnum áður en hann
verður staðfestur af þingheimi. Hér verða þó
einungis tvö nefnd:
Verðið sem Álverinu er gert að greiða sam-
kvæmt samningnum fyrir raforku er allt of lágt.
Það er langt undir þeim kostnaði sem þarf til að
standa straum af framleiðslu orkunnar, og þar
með eru íslendingar enn að borga með því raf-
magni sem álhringnum er selt. Það er auðvitað
gersamlega óþolandi og fráleitt að þjóð sem á í
umtalsverðum efnahagsörðugleikum skuli
leyfa sér slíkan munað. í þessu sambandi er líka
rétt að benda á, að raforkuverðið er hið lægsta
sem hinn alþjóðlegi auðhringur þarf að greiða
nokkurs staðar í heiminum. Það er jafnframt
langt undir því verði sem nýlega var ákveðið
fyrir raforku til álvera í Grikklandi og Ghana.
Það er ekki síður ámælisvert að með þessum
samningum hefur Sverrir Hermannsson tekið
sig til að hætti páfadóms til forna og beinlínis
selt auðhringnum aflausn syndal!
Hann hefur skrifað undir yfirlýsingu um að
gegn greiðslu þriggja miljón dollara muni ís-
lendingar gefa Alusuisse eftir allar kröfur vegna
meintra svika, sem fólust í hinni makalausu
„hækkun í hafi“ og skattamisferlis. Þetta
aflátsbréf Sverris Hermannssonar er að sjálf-
sögðu ekki í nokkru samræmi við veruleikann.
Rannsóknin, sem Hjörleifur Guttormsson, fyrr-
verandi iðnaðarráðherra hratt af stað, sýndi svo
ekki varð um villst sviksamlegt atferli Alusuisse.
Sú niðurstaða var síðan staðfest af einu virtasta
endurskoðunarfyrirtæki í hinum alþjóðlega
fjármálaheimi.
Þegar Sverrir Hermannsson kiknaði í hnján-
um andspænis hinum svissnesku fallsfykkjum
og féllst á að taka málið úr gerðardómi, svipti
hann ísland rakinni vinningsleið!
Til að kóróna skömmina er svo ákvæði í
þessari syndakvittun Sverris, þar sem því er
blátt áfram lýst yfir að greiðslan sé ekki á neinn
hátt viðurkenning á sekt auðhringsins!
Þessvegna er rétt að spyrja: Fyrir hvað er þá
Alusuisse að greiða? Til hvers er fyrirtækið að
borga þrjár miljónir dollara, hafi það ekkert til
saka unnið?
Er í rauninni hægt að líta á þessar greiðslur
sem nokkuð annað en mútur, - notaðar til að
kaupa þögn íslendinga?
KLIPPT OG SKORIB
e n .a n. ÍICa. 20 sa&air
jEirrgmiiJtJ 41 irjAJtfur ‘r’ ZJ tbl — Kualudajur It juuu 11 íliapUP Prralutdja HagsaUaldra
Mylt tjtírlayufrunivarp layt fyrir Alþingi: Tekjuskattur feildur niöur af almenn-
um tekjum : ^t.. .aw..«, . Uað. V.,ul vf -l | , ..d Vr.IU tla.su vl/l.ÚUOí. | IJtflutningsbætur “ afnumdar c.:::::.: rnd .ð hnruia 1 ftiuurauA. og HHVHPf VI 'hu ýfirut uaa |.uu .— - - rjjl Q| ] ra 1 t«*i»r yJ. B m 1 *■<*» . 411« Innnutn.ns.cjatd utd Hr»t fra ».i-u,..tu„ó, ui i.SiaajuA. 1IAJB
| % Irgfi Ultui ulciélda brvyt , jltejar* 09 sveitdrleluy f<t 5G . í milljunir at soluskattinum j « 1 ) ... 1 fjArluguas IM Nuvarmnd. , IJU&. aani fljrvtaaa uj /u. • IMIM llrak.un a sðflutji.»c»ciuid in.|ui»rimr.|»i aX 1 H llarSAun á r laui.m (»u»4-
..... ... . auiuaKatlu/ . uuilrné/. fran. lr.&.lu ag pK—.nUl UIU»r Qvó B*tur almannatrygyinga 1 .Jf rliulu|u“iuluur 114 Nri auluU.lturuu . tX S Aéru bn,ti»4»i . . . 111
h*kkdódr veruiegd j ‘ZZ | aartlsd ar að gaf. t/Mr Uð asillj , - ■■■ ■— " -. C,“ “ “* 1 MU Fia d/agal L^oAAua .. ■ J ...» .... . Il^ 1 H/o»ilall »ura/»adi aalu-
Stefnan
Pað var merkilegur Moggi sem
við fengum uppí hendurnar í gær.
I tveggja hæða fimmdálka fyrir-
sögn er sagt: „Úrslitin eru af-
dráttarlaus stuðningur við stefnu
vora“. Nú er það svo að kosning-
arnar í Bandaríkjunum, sem
margir óttast að séu meira skrípa-
leikur en alvöru kosningar, sner-
ust að mestu leyti um persónur.
Flestir fréttaskýrendur eru á einu
máli um að kosningarnar hafi
ekki falið í sér stuðning við stefnu
Reagans-hópsins í Hvíta húsinu
og benda á sterka stöðu demó-
krata í þingkosningunum. En
fréttamatsmenn Morgunblaðsins
fá hins vegar hvergi hamið gleði
sína og lýsa því yfir með Reagan á
forsíðu að úrslitin feli sér stuðn-
ing við „stefnu vora“!
Endurtekningin
Eitt af því sem margir lesendur
Morgunblaðsins hrífast af, eru
einmitt fréttir sem koma ekki á
óvart. Og margir fá á tilfinning-
una að hægt sé að ganga að
sumum fréttum vísum dag eftir
dag, viku eftir viku, mánuð eftir
mánuð og ár eftir ár. „Rússnesk
herskip í N-Atlantshafi“, „Auk-
inn fjöldi rússneskra herflugvéla
á sveimi yfir íslandi“ eru meðal
slíkra frétta.
Og eins er um forsetakosning-
ar í Bandaríkjunum. Hefur ekki
áður verið sagt að úrslit kosning-
anna þegar einhver erkihægri-
sinninn (t.d. Nixon) hefur unnið
að úrslitin væru „stuðningur við
stefnu vora“?
Af öðrum toga er endurtekn-
ingin sem meðfýlgjandi ljósrit af
forsíðu Morgunblaðsins 29. janú-
ar 1960 gefur til kynna. Undan-
farin misseri hefur getið að líta
fréttir um að „fella beri niður
tekjuskatt af almennum launa-
tekjum.“. Og nú heldur máske
einhver að þetta sé eitthvað alveg
splunkunýtt hjá stjóminni.Nei,
þetta er stefna sem mörkuð var í
fjárlagafrumvarpinu og ákveðin
af alþingi í ársbyrjun 1960!
Gengis-
fellingin
Morgunblaðið kann þá kúnst
að koma lesendum sínum ekki á
óvart, halda þeim í sálarró kyrr-
stöðunnar, þetta streymir allt
saman fram í fljótsins dreymnu ró
og hefðinni samkvæmt. Þannig
hefur það verið lenska þegar
Sjálfstæðisflokkurinn situr í ríkis-
stjórn, og ákveður að fella
gengið, að það sé tilkynnt með
fyrirvara í Morgunblaðinu eftir
nákvæmum reglum.
Þetta er þannig gert, að ein-
hver forstjóri í fiskvinnslufyrir-
tæki úti á landi er látinn segja í
viðtali við Morgunblaðið að nú sé
þörf á gengisfellingu. Forstjórinn
er látinn nefna tvö- til þrefalda þá
tölu sem ætlunin er að fella
gengið um, þannig að enginn
verði heldur fyrir sérstöku áfalli
þegar hin stjómsýslulega tilkynn-
ing sér dagsins ljós, nú á að fella
gengið. I samræmi við þessa
hefð, segir Soffam'as Cecilsson
formaður félags fiskvinnslu-
stöðva á baksíðu Morgunblaðsins
í gær: „Þörf á 30% gengisfell-
ingu“. Þarmeð hefur Morgun-
blaðið gefið út yfirlýsingu um að
á næstu 12 mánuðum verði
gengið fellt um 15%, máske í 5%
skömmtum.
Hrós
í leiðara Morgunblaðsins í gær
er fjallað nokkuð um breytingar á
ríkisstjórninni og hugmyndina
um að Alþýðuflokkurinn gengi
inní hana. Morgunblaðið segir
ekki nema eðlilegt að breytt sé
um ráðherraskipan og hugað sé
að þátttöku þriðja flokksins að
ríkisstjórninni. Forystu Sjálf-
stæðisflokksins er hrósað fyrir að
hafna Alþýðuflokknum: „rétt af-
staða hjá forystusveit Sjálfstæðis-
flokksins að hafna hugmyndum
um að efla ríkisstjórnina með
þátttöku Alþýðuflokksins“.
Þetta er dálítið umhugsunar-
vert með tilliti til þess að enginn
(ekki heldur Morgunblaðið) hef-
ur fundið neitt tilefni fram að
þessu til að hrósa forystusveit
Sjálfstæðisflokksins. En nú er
komið eitt hróssins vert: að hafna
krötum.
Harmurinn
Harmur er að oss kveðinn.
Einsog kunnugt er verða alls kon-
ar orðaleppar í tísku í pólitíkinni,
í nokkra daga, vikur og jafnvel
mánuði. Einn slíkur leppur var
„harmur“ Steingríms Hermanns-
sonar sem „harmaði" allt í tíma
og ótíma. Annar stjórnmálamað-
ur opnaði varla svo munninn á
alþingi fyrstu daga þingsins,
öðruvísi en tala um það að hann
væri með „rýtinginn í bakinu“.
Eftir nokkrar slíkar „rýtings-
ræður“ fóru gárungarnir í þinginu
að tala um að bakið á þingmann-
inum væri orðið einsog nálapúði.
En það hnífakast heyrir nú allt
sögunni til.
„Harmurinn“ kom óvænt við
sögu í leiðara Morgunblaðsins í
gær: „Ráðherradómur þykir enn
mjög eftirsóknarverður meðal
stjórnmálamanna og er ekki gef-
inn eftir auðveldlega ef hann er
einu sinni kominn í höfn. Þetta
ber ao harma“.
Þorsteinn
Harmsefnið er náttúrlega það,
að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins
vilja ekki rýma sæti fyrir Þor-
steini Pálssyni og félögum. I
leiðaranum er nefnilega verið að
segja þjóðinni frá því að Þor-
steinn verði ekki ráðherra því
„bestfer á því að það gerist í sátt
og samlyndi. Annað skapar fleiri
vandamál en það leysir". Hvað
verður þá um Þorstein þennan?
DJðÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgcfandl: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvamdastjórl: Guðrún Guðmundsdóttir.
Rltatjórar: Ami Bergmann, Ossur Skarphéðinsson. Skrtfatofuatjórt: Jóhannes Harðarson.
Rttatjómarfulttrúl: Oskar Guðmundsson. Augtýalngaatjórl: Ragnheiður Óladóttir.
Fréttaagórt: Valþór Hlððversson. Auglýalngar: Anna Guðjónsdóttir, Margrót Guðmundsdóttir.
Blaðamann: Alfheiður Ingadóttir, Asdls Þórhallsdóttir, Guðjón Friöriksson, Afgrelðaluatjóri: Baldur Jónasson.
Jóna Pélsdóttir, Lúðvik Geirsson, Magnús H. Gislason, Mðrður Amason, Afgraiðala: Béra Siguröardóttir, Kristin Pétursdóttir.
Ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Vlðir Sigurösson (íþróttir). Stmavarsla: Asdis Kristinsdóttir, Sigriður KristjánsdótUr.
Ljóamyndlr: Atli Arason, Einar Karlsson. Húarruaður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð.
Útllt og hðnnun: Filip Franksson, Þröstur Haraklsson. Innhalmtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Bjömsson.
Handrtta- og prófarkalaatur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Útkeyrsla, afgrelðsla, auglýslngar, rltstjórn:
Sfðumúla 6, Reykjavík, alml 81333.
Umbrot og aetnlng: Prentsmlðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasðlu: 22 kr.
Sunnudagsverð: 25 kr.
Askrlftarverð á mánuðl: 275 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Föstudagur 9. nóvember 1984