Þjóðviljinn - 09.11.1984, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 09.11.1984, Qupperneq 16
Aðalsími: 81333. Kvðldsími: 81348. Helgarsími: 81663. Föstudagur 9. nóvember 1984 220. tðlublað 49. órgangur DJÓÐVIUINN Ellert Þmgheim* urhló Vantrauststillaga stjómarand- stöðunnar var felld í gærkvöldi, 35-23, og var við þeim tíðindum búist. Nafnakall var haft um til- löguna og þegar lesið var nafn Ellerts Schram, „óháða“ þing- mannsins, kom í ljós að hann var ekki á staðnum. „Þingmaðurinn hefur fjarvistarleyfi og er er- lendis“ sagði forseti. Var þá skellihlegið í sameinuðu þingi. -m Samningar VR einsog hinir Verslunarmannafélag Reykja- víkur samdi í gær eftir sömu nót- um og ASÍ-samböndin. Þó voru matar- og kaffitímar samræmdir. VR skrifaði ekki undir heildar- samninga ASÍ um daginn vegna möguleika á kjarabótum til handa lyfjatæknum, en vísbend- ingar um slíkt reyndust villuljós þegar á hólminn var komið. Ekki náðist í Magnús L. Sveinsson for- mann VR í gærkvöldi. - m Tónleikar Nýr skomnur uppá sendiráði Bandaríkjanna við Laufásveg. Morgunblaðið hefur undanfarin ár haft stórar áhyggjur af skermamálum sendiráða f Reykja- vík, talið að skermarnir væru til aðstoðar við njósnir og fundið þeim það að minnsta kosti til foráttu að þeir væru til lýta í bæjarbrag. Við á Þjóðvilja teljum skýringuna á bandaríska skerminum hinsvegar vera þá að nú eigi að hefjast nýr þáttur í samskiptum stórveldanna og verði afvopnunartilboð Reagans og Tsémenkós látin berast á Ijósvakanum yfir endurnar á Reykjavíkurtjörn. Mynd: eik. Fœreyjar Uppselt á Megas „Það varð uppselt strax á þriðjudaginn. Um það bil 700 miðar“, sagði Ásmundur Jónsson starfsmaður Gramms s/f í samtali við Þjóðviljann. „Það hefur verið rætt að halda aðra tónleika, vegna mikillar aðsóknar. Hins- vegar hefur ekkert verið ákveðið enn.“ Tónleikarnir hefjast kl. 21.30 í Austurbæjarbíói. Sjó nánar viðtal við Magnús Þór Jónsson (Megas) á bls. 11. -Áþ. Vinstrimenn vinna á Nýhœgriflokkur og tveir vinstriflokkar sigurvegarar í lögþingskosningum sem ekki breyta pólitísku landakorti íÞórshöfn Fólkaflokkur og jafnaðarmenn eru helstu sigurvegarar lögþings- kosninganna í Færeyjum í gær, og Sambandsflokkur og Kristi- legir töpuðu mestu. Flokkarnir til vinstri, Jafnaðarmenn og Þjóð- veldisflokkur, unnu samtals á um 2,2%, en úrslitin verða þó varla túlkuð sem mikill vinstri sigur, - nýhægrimenn í Fólkaflokki bættu við sig öðru eins. Úrslit kosninganna í gær urðu þessi: Javnaðarflokkurin 23,3% (+1,7) - 8 þingmenn (7), Fólka- flokkurin 21,6% (+2,7) - 7 þing- menn (6), Sambandsflokkurin 21,2% (-2,7) - 7 þingmenn (8), Tjóðveldisflokkurin 19,5% (+0,5) - 6 þingmenn (6), Sjálv- stýriflokkur 8,5% (+0,1) - 2 þingmenn (3), Kristiligi Fólka- flokkurin 5,9% (—2,2) - 2 þing- menn (2). Meirihluta síðast mynduðu Fólkaflokkur, Sambandsflokkur og Sjálvstýriflokkur, og geta úr- slit ekki talist beint vantraust á þá stjórn. Þó er ekki líklegt að hún sitji áfram að völdum. Færeysk stjómmál snúast um tvo öxla, og er annars vegar hefð- bundin hægri-vinstri skipting, hins vegar spurt um afstöðu til sambandsins við Danmörku. Hægriflokkar eru Sambands- og Fólkaflokkur, vinstriflokkar Jafnaðar- og Þjóðveldisflokkur. Hlynntir sambandi við Dani eru Sambands- og Jafnaðarflokkur Alusuissesamningurinn Hvað kom yfir raðheirann? Sagðist ekki til viðrœðna um samninga um deilumálin ímaísl. Hefur nú skrifað undirsyndakvittun. Stjórnarandstaðan mótfallin samningnum Það kom aidrei til greina, þótt eftir væri leitað, að ég væri til viðræðna um samn- inga um þessi deiluatriði. Þetta voru orð Sverris Hermannssonar iðnaðarráðherra á alþingi 10. maí sl. Hálfu ári síðar hefur sami ráðherra skrifað uppá syndakvittun til eigenda álversins og látið allar kröfur fyrir dómstólum niður falla. „Hvað hefur komið yfir ráðherrann á þessu hálfa ári?“ spurði Ragnar Arnalds á alþingi í gær þegar hinn nýi álverssamningur kom til 1. umræðu í efri deild. Iðnaðarráðherra fylgdi samningum úr hlaði og lýsti því yfir að samningamenn stjómarinnar hefðu unnið frábært starf. Jó- hannes Nordal hefði gegnt lykilhlutverki við samningsgerðina og framlag hans yrði seint að verðleikum metið. Ragnar Arnalds sagði að Alusuisse hefði fengið að kaupa sig fyrir lítið verð undan opinberri hýðingu á alþjóða vettvangi. Svika- mylla álhringsins fengi nú að starfa óáreitt áfram. Orkuverðið sem samið hefði verið um væri I í dag rétt um 12.5 millidalir og meðalverðið næstu árin næði líklega ekki 14 millidölum. Þar til viðbótar myndi verðrýrnun mynt- eininga lækka verðið enn frekar á komandi árum. Til þess að orkuverðið næði því há- marki sem um væri rætt í samningnum 18.5 millidalir þyrfti álverð á heimsmarkaði að hækka um 100%. Eiður Guðnason lýsti yfir andstöðu Alþýðu- flokksins við samninginn. Endurskoðun- arákvæði væru mjög óljós og miðað við 5% alþjóðlega verðbólgu á ári myndi raungildi 12.5 millidala í dag vera komin niður í 4.7 millidala að 20 árum liðnum þegar samning- urinn á að falla úr gildi. Þá átaldi Eiður mjög vinnubrögð iðnaðarráðherra við samnings- gerðina. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir sagði að Alusuisse hefði þröngvað okkur til að gefa þeim skínandi hreint siðferðisvottorð um framferði þeirra hér á landi. „Aumir erum I vér nú orðnir íslendingar undir forystu núver- andi iðnaðarráðherra“, sagði Sigríður Dúna. Þá mótmælti hún harðlega allri framgöngu ráðherra í þessu máli. Stefán Benediktsson sagði að samningur- inn væri ekkert afrek og enginn sigur. Alu- suisse gæti vel við unað. Afstaða Sjálfstæðis- flokksins á örlagastund þar sem hagsmunir landsins hefðu verið látnir víkja fyrir flokks- hagsmunum hefði eyðilagt fyrir framgangi málsins. Vonandi bæru menn gæfu til að læra af þeim mistökum. Davíð Aðalsteinsson sagðist sáttur við samninginn en sagðist ekki fullyrða um hvort hugsanlegt hefði verið að fara aðra leið að takmarkinu. Samningnum hefur verið vísað til iðnað- arnefnda þingsins sem munu sameiginlega taka hann til umfjöllunar en iðnaðarráðherra hefur lagt áherslu á að samningurinn komi til afgreiðslu sem allra fyrst. -lg- sjálfstæðissinnar einkum í Fólka- og Þjóðveldisflokkum. Ekki verður sagt að Færeying- ar hafi í þessum kosningum hnik- að til vægi eftir þessum öxlum. Enda koma trúmál einnig við sögu í færeyskri pólitík auk ým- issa einstakra hitamála, - og sner- ist kosningabarátta nú meðal annars um sorpeyðingarstöð höfuðborgarinnar. Búist er við löngum stjórnar- myndunarviðræðum £ Þórshöfn. -m Haraldur Hannesson Meirihlutinn gekk ekki út „Fólkið á fundinum var talið áður en hluti fundarmanna gekk út og þá var á honum 110-120 manns en eftir útgönguna voru um 85 manns á fundinum þannig að í mesta lagi hafa 25-30 manns gengið út“, sagði Haraldur Hann- esson formaður Starfsmannafé- lags Reykjavfkur er hafði sam- band við blaðið vegna fréttar í því á dögunum. Haraldur sagði að engum þyrfti að koma á óvart þó að hiti væri í fólki eftir svona harða kjaradeilu og þeir sem væru óánægðastir væru helsta baráttufólkið í Starfs- mannafélaginu. Ekki væri heldur að undra þótt vítur væru fram bomar á sig því að auðvitað væri formanninum kennt um allt. Þá bað Haraldur blaðið að geta þess að atkvæðagreiðsla um ný- gerðan kjarasamning færi fram í dag að Grettisgötu 89 kl. 9 - 22 en atkvæði verða talin í kvöld. - GFr

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.