Þjóðviljinn - 15.11.1984, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 15.11.1984, Qupperneq 4
LEIÐARI Hví þegja þeir íslendingar hafa þurft að heyja margar orust- ur fyrir tilveru sinni. Fram að þessu hefur unnist sigur í flestum þeirra en ýmsar blikur eru nú á lofti. Á undanförnum árum hefurtekist að sam- eina þjóðina að mestu leyti í landhelgisstríðun- um og í fleiri tilfellum hefur árvekni þjóðarinnar verið nægilega mikill til að hrinda af sér ásælni og íhlutan erlendra gróðaafla. í því þjóðfrelsisstríði sem háð er við Alusuisse-hringinn gegnir öðru máli. Þrátt fyrir áeggjan og staðfasta framgöngu Alþýðubanda- lagsins og Hjörleifs Guttormssonar fyrrverandi iðnaðarráðherra í þessum átökum, hafa ráða- menn hvað eftir annað kiknað í hnjáliðunum andspænis kröfugerð og frekju hins volduga auðhrings. Þó hefur steininn tekið úr í tíð núver- andi ríkisstjórnar. Undir lok síðustu ríkisstjórnar höfðu Fram- sóknarmennirnir Steingrímur Hermannsson og Guðmundur Þórarinsson gengið til liðs við ál- flokkana á alþingi - og rofið skarð í málafylgju þáverandi ríkisstjórnar í þessu máli. Engu að síður var skilið þannig við málið af hálf u Hjörleifs Guttormssonar að ekki var annað eftir en setja, álhringnum þá afarkosti sem hann sannanlega hafði unnið til. Hjörleifur Guttormsson stóð fyrir ómetanlegri gagnasöfnun og undirbjó kröfugerð og mála- fylgju á hendur Alusuisse-hringnum sem hefði nægt til sigurs í þessu stríði. Alþjóð var Ijóst að Hjörleifur hafði afhjúpað þennan álhring, marg- háttuð svik og undanbrögð hans í samskiptum við íslendinga. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkur- inn voru þá þegar bundnir auðhringnum undar- legum tryggðarböndum. Málgögnin þeirra geystust fram af miklu kappi í tíð Hjörleifs í iðnaðarráðuneytinu og gáfu í skyn að hægt væri að semja um þreföldun orkuverðsins á tveimur mánuðum. Hjörleifur Guttormsson hefði staðið í vegi fyrir samningum. Sá lágkúrulegi málatilbúnaður Morgunblaðs- ins og undirgagna þess hefur nú verið afhjúpað- ur. Það liðu mánuðir og það liðu ár, áður en „samningur“ leitdagsins Ijós. Og hvílíkursamn- ingur! I samningnum er staðfest að hæstvirtur nú- verandi iðnaðarráðherra hefur hvað eftir annað farið með ósannindi um þetta mál á alþingi. Um það þegir Morgunblaðið, um það þegir NT, um það þegja ríkisfjölmiðlarnir. Við gerð þessa samnings hefur ríkt meiri leynd en íslendingar hafa átt að venjast í þvílík- nú? um málum. Álsamningurinn hinn nýi hefur ekki verið til opinberrar umræðu á undanförnum vik- um. Efnishald hans var ekki gert opinbert nema að hluta, - og þegar löggjafarsamkoma þjóðar- innar fékk loks að sjá hann, reyndist margt hafa verið missagt í fræðunum. Pukrið og leynimakkið í kringum þessa samn- ingagerð og samninginn allan er í hróplegri mót- sögn við yfirlýsingar Sjálfstæðisflokksins á und- anförnum árum. Og úr iðnaðarráðuneytinu hef- ur ekki borist annað en skens oa köpuryrði um þetta mál. öðru og betra áttu Tslendingar að venjast í ráðherratíð Hjörleifs Guttormssonar. Stjórnarandstaðan í landinu hefur ekki fremur en almenningur fengið að fylgjast með samn- ingsgerðinni fyrr en hann var undirritaður. í þingræðisríki eru þessi vinnubrögð óþolandi. Og til að kóróna skömmina þegja ríkisfjölmiðl- arnir, Morgunblaðið og fylgimiðlar sem aldrei fyrr um þetta mál. Hvar eru fréttaskýringaþætt- irnir um álsamning Sverris Hermannssonar? Halda mætti að þeir sem voru með kjaftinn á lofti á þingi og í fjölmiðlum veturinn og vorið 1983, hafi allir etið yfir sig af svissnesku súkku- laði — nema þeir sem eru enn á skíðum í svissnesku ölpunum. KLIPPT OG SKORIÐ ET KRYDS FOR FÆDRELANDET - Der var ko uden for stemmestedeme ved sondagens valg i Ni- caragua, huor den forelabige optœlling giver sandinisterne et klart flertal (Foto: UPII SUUUHJMl Sandinistar fagna sigri En stjórnarandstaðan sat heima Managua, Nkarajfua, 5. nóvember. AP. MÉÉHHÍMtaMUMÉÍiÉMMÉÍMMÉiaaUÍteiÍðWI stefndu að. „Það var aðeins tvennt, se ItfllBHM Kosningar hér og þar í síðustu viku fóru fram kosn- ingar, sem voru merkilegar hvor með sínum hætti. Kosningar í Bandaríkjunum og Nicaragua. Og það er fróðlegt að skoða um- fjöllun um þessa tvo atburði í fjölmiðlum. Blöð og útvarp og sjónvarp voru bókstaflega að springa af efni um Reagan og Mondale og kjörmannakerfið, vangaveltum um vald fjölmiðla yfir pólitíkinni, félagssálfræðilegum pælingum um forsetann og þjóðina og þar fram eftir götum. Allt í lagi með það. En öðru máli gegnir um kosningar í Nicaragua. Að vísu var sagt með ýmsum hætti frá undirbúningi þeirra og átökum um aðild stjórnarandstöðunnar - m.a. í þrígang í þessu blaði hér. En svo var kosið. Og einkum og sér í lagi þau biöð sem aldrei áttu nógu margar síður fyrir löngu sjálfsagðar upplýsingar um kosn- ingarnar bandarísku, eins og gleymdu því að umdeildar kosn- ingar fóru fram í ríki sem Banda- ríkjastjórn hamast við að saka I um að vera á einræðisbraut. Það fór ekki mikið fyrir því, að sagt væri frá því að kosningaþátttaka í Nicaraqua hefði verið um 80% (og þá sýnu meiri en gengur og gerist í Bandaríkjunum til dæm- is), að erlendir eftirlitsmenn hefðu verið fremur ánægðir með framkvæmd kosninganna og að frambjóðendur Sandinista hefðu hlotið meira en 60% atkvæða. Þeim mun meira var hins vegar sungið um ásakanir bandarískra yfirvalda um að stjórn Nicaraqua væri að fá í hendur sendingu af sovéskum orustuþotum. Það til- kynningastríð stóð í nokkra daga en lyppaðist svo niður með undarlegum hætti. En það hafði kannski tekist sem takast átti í áróðursstríðinu: að láta fregnir af kosningunum hverfa í skuggann af síbylju um rússneskar orustu- þotur á leið til Ameríku. Sem minnir á sögu úr kosning- aslag sem Lyndon B. Johnson átti einu sinni á Ieið sinni í Hvíta hús- ið. Hann lét breiða út sögur um fjármálaspillingu hjá einum and- stæðinga sinna og þegar hann var minntur á að hann hefði ekki merkilegar sannanir í höndum þá svaraði hann: „Látum mannand- skotann hafa fyrir því að bera þetta af sér“! Hvers konar kosningar? Nú gætu menn sagt sem svo að Þjóðviljinn hefði ekki staðið sig sem skyldi í einmitt þessu kosn- ingamáli í Nicaraqua. Það er al- veg satt. En við vissum að ágætur íslendingur, sérfróður um Róm- önsku Ameríku, Sigurður Hjart- arson, var á leið frá Nicaraqua. Og hann mun reyndar segja sína sögu og byrjar á fundi hjá Al- þýðubandalaginu nú í kvöld. En á meðan skal það rifjað upp, að helstu borgaralegir flokkar í Nicaraqua vildu ekki taka þátt í kosningunum og báru það fyrir sig, að ritskoðun væri þar við lýði og Sandinistar gerðu ýmislegt til að torvelda kosninga- baráttu þeirra. Og verndarar hinna borgaralegu afla, sem og leiguhersins sem berst gegn Sandinistum frá Honduras, Bandaríkjamenn, hafa hamast mjög á því að kosningarnar hafi verið ólýðræðislegar og eiginlega farsi. Nánar verður fjallað um þau mál hér í blaðinu á næstunni, en á meðan skal vitnað í leiðara í danska blaðinu Information um kosningarnar í Nicaraqua: „Enda þótt menn geti gagnrýnt eitt og annað við kosningabarátt- una erþó varla hœgt að kalla hana farsa. I raun og veru er það aðdá- unarvert, að land, sem mætir mjög miklum þrýstingi utan frá, bæði hernaðarlegum og efna- hagslegum, af hálfu öflugasta ríkis heims, hefur getað fram- kvæmt kosningar sem standast mjög vel samanburð við hvaða aðrar kosningar sem haldnar hafa verið í Rómönsku Ameríku eftir seinni heimsstyrjöld". ' Síðan kemur þessi athyglis- verði samanburður við kosning- arnar í E1 Salvador - en þær töldu Bandaríkjamenn einkar lýðræð- islegar: „Samanburðurinn er ekki í óhag Nicaraquamönnum. í El Salvador tók stjórnarandstaðan heldur ekki þátt í kosningunum. Ástœðan var augljós: stjórnin vildi ekki tryggja öryggi fram- bjóðenda hennar, og það var Ijóst að það jafngilti sjálfsmorði fyrir frambjóðendur vinstriarmsins að taka þátt í kosningunum. ÍNicar- aqua hundsaði verulegur hluti borgaralegrar stjórnarandstöðu kosningarnar, og þótt sumir frambjóðendur hennar hafi ótví- rætt orðið fyrir hnjaski, þá var þeim ekki lífsháski búinn afþvíað taka þátt í kosningunum“. Réttur til gagnrýni Leiðarahöfundur minnir á það, að Bandaríkjamenn hafi hvatt borgaraleg öfl til að vera ekki með í kosningunum, um leið og gagnbyltingarsveitir sem þeir styðja hertu á hernaðaraðgerð- um gegn stjórn Nicaraqua - en það er, segir Information, svipað og menn gagnrýndu skæruliða í E1 Salvador fyrir að gera í kosn- ingunum þar: „Bandaríkjastjórn gerir sjálfa sig með þessu óhæfa til að gagnrýna kosningarnar í Nicar- aqua. Með því að áskilja sér rétt til að hlutast til um mál nálœgðra smáríkja eins og Nicaraqua með tilvísun til þess að bandarískir hagsmunir séu í hættu, gerir okk- ur hinum torvelt að taka t.d. bandaríska gagnrýni á sovéska innrás í Afganistan alvarlega. En hún er í stórum dráttum réttlœtt með sama hœtti og Bandaríkja- menn hafa réttlætt í tímans rás m.a. innrásir í Nicaraqua. Nú hafa Nicaraquamenn látið í Ijós vilja sinn til að fylgja eftir lýðræðislegri þróun. Við skulum taka þá á orðinu og styðja þá í þeirri viðleitni ... gefum þeim tækifæri"... _ÁB ÞJÓÐVILJINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Út0«fandi: Útgáfufólag Þjóðviljans. Rttstjórar: Ámi Bergmann, össur Skarphéðinsson. Ritstjómarfulltrúi: Oskar Guðmundsson. Fréttaatjóri: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Ásdís Þórhallsdóttir, Guðjón Friðriksson, Jóna Pólsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Möröur Ámason, ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Viöir Sigurðsson (íþróttir). Ljóamyndir: Atti Arason, Einar Karlsson. Útllt og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson. Handrfta- og prófadcaJastur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Framkvæmdastjórl: Guðrún Guömundsdóttir. Skrtfstofustjóii: Jóhannes Harðarson. Auglýslngastjórl: Ragnheiður Óladóttir. Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Margrót Guðmundsdóttir. Afgreiðslustjóri: BaJdur Jónasson. Afgraiðala: Bára Siguröardóttir, Kristín Pótursdóttir. Simavarsla: Ásdís Kristinsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmasður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð. Innhaimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Bjömsson. Utkeyrsla, afgrelðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prontsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaöaprent hf. Verð í lausasölu: 22 kr. Sunnudagsverö: 25 kr. Áskriftarverð ó mónuði: 275 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 15. nóvember 1984

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.