Þjóðviljinn - 15.11.1984, Page 11

Þjóðviljinn - 15.11.1984, Page 11
MINNING Vigdís Heimannsdóttir kennari Fædd 12. júlí 1920 - Dáin 8. nóvember 1984 „Ef væri ég söngvari syngi ég ljóð um sólina, vorið og land mitt og þjóð.“ Páll J. Ardal Sjö ára dóttir mín kom heim úr skólanum og söng fyrir mig þetta ljóð og ég mundi svo vel, þegar við systurnar stóðum við orgelið hjá Dísu frænku og lærðum hjá henni þetta sama ljóð og lag. Daginn eftir barst mér sú frétt, að Dísa hefði látist þá um nóttina. Þessi fregn kom ekki mjög á óvart, því að hún hafði háð langa og stranga baráttu við erfiðan sjúkdóm í hálfan annan áratug. Líkamlegt og andlegt þrek henn- ar lamaðist smám saman og þegar svo er komið er dauðinn líkn, þótt ekki sé hann sársaukalaus þeim, sem eftir lifa. Vigdís Hermannsdóttir var fædd að Glitstöðum í Norður- árdal 12. júlí 1920. Hún var fímmta í röðinni af átta börnum hjónanna Hermanns Þórðar- sonar, kennara og bónda Þor- steinssoar og Guðrúnar Her- mannsdóttur, bændahjóna að Glitstöðum og Ragnheiðar Gísla- dóttur Einarssonar og Vigdísar Pálsdóttur, prófastshjóna £ Staf- holti. Af átta börnum Hermanns og Ragnheiðar eru nú þrjú látin, en börn þeirra voru í aldursröð: Unnur, kennari og fyrrum hús- freyja að Eyjum og Hjalla í Kjós, gift Hans Guðnasyni bónda, sem nú er látinn, Svavar, efnaverk- fræðingur, látinn, kvæntur Ur- sulu, f. Funk, Gísli, vélaverk- fræðingur, látinn, kvæntur Betty f. Epelmann, Guðrún, kennari, gift Alfreð Kristjánssyni, Vigdís, kennari, sem hér er minnst, Ragnar, efnaverkfræðingur, Val- borg, lyfjafræðingur, var gift Kurt Stenager, lyfjafræðingi og Ragnheiður, deildarstjóri í Landsbanka íslands. Þegar Dísa var fjögurra ára gömul var hún tekin í fóstur að Stafholti til afa síns og ömmu, Vigdísar og Gísla. Þau sæmdar- hjón tóku einnig til fósturs Gísla bróður hennar, sem þá var sjö ára gamall og ólust þau systkinin þar upp til fullorðinsára. Það urðu Dísu og Gísla mikil viðbrigði að hverfa úr glöðum systkinahópi og frá ástríkum foreldrum. Ekki er vafi á því, að söknuður foreldr- anna var líka mikill, en þau sáu, að í Stafholti fengju börnin gott uppeldi og gætu gengið menntaveginn eins og hugur þeirra reyndist seinna standa til. Dísa lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla íslands vorið 1942 og söngkennaraprófi árið 1951. Sumarið 1947 sótti hún kenn- aranámskeið á Askov í Dan- mörku. Veturinn 1942-3 var hún heimiliskennari á Egilsstöðum. Síðan kenndi hún við St. Jóseps- skólann í Hafnarfirði, Landa- kotsskóla í Reykjavík, þá við Breiðagerðisskóla og síðustu starfsárin við Hlíðaskóla. Nokk- ur sumur starfaði hún á barna- heimilinu Silungapolli og nokkur sumur var hún í kaupavinnu. í Reykjavík hélt Dísa lengst af heimili með foreldrum sínum og Ragnheiði systur sinni. Samband Dísu og móður hennar, Ragn- heiðar Gísladóttur, var ákaflega náið og ef til vill hefur aðskilnað- ur þeirra fyrr á ævinni átt ein- hvern þátt í því. Á heimili Her- manns og Ragnheiðar og barna þeirra ríkti gestrisni og góðvild og þangað var gott að koma. Gestir fóru þaðan ánægðari en þeir komu, því heimilisfólkið gaf sér tíma til að spjalla við þá, veitti þeim beina og spurði frétta, miðl- aði þeim fróðleik, fræddist af þeim og tók þátt í gleði þeirra og sorgum. Vigdís Hermannsdóttir var lágvaxin, fí'nleg og fríð sýnum með fallegt dökkt hár. Hún hafði ríka kímnigáfu og glaðlegt bros. Hún var mjög músíkölsk og spil- aði vel á píanó og hafði tæra og fallega sópranrödd. Hún var kennari af Guðs náð og hafði mikinn metnað fyrir hönd nem- enda sinna. Hún hafði ákaflega mikla ánægju af starfi sínu, með- an hún hafði heilsu til að stunda það. Hún starfaði mikið með nemendumsínum ítómstundum. Hún hjálpaði þeim að setja upp heilar skemmtidagskrár, söng, dans og leikrit og varði frístund- um sínum í að æfa þau og aðstoða þau við að útvega og gera bún- inga og leikmuni. Dísa söng í ýmsum kórum, sótti tónlistarn- ámskeið og hafði mikið yndi af hvers konar tónlist. Hún varákaf- lega velgerðmanneskjaogmátti ekkert aumt sjá. Dísa safnaði aldrei veraldlegum auði og hafði sjaldan afgang til þess að gera eitthvað fyrir sjálfa sig, en hafði alltaf tök á að hlú að öðrum, til dæmis systkinabörnum sínum. Hún var ákaflega barngóð og það voru hátíðisdagar í Kjósinni, þeg- ar Dísa kom í heimsókn. Hún kom fyrir jólin og hjálpaði okkur að skreyta húsið. Gamall pappa- kassi breyttist á svipstundu í fjár- húsið í Betlehem í höndunum á Dísu. Jesúbarnið lá þarna í jötu sinni og stór stjarna vísaði vitr- ingunum veginn. Gleðileg jól stóð skrifað með bómull og glimmer á bláan kreppappír. Svo settist hún við orgelið og spilaði og söng og kenndi okkur, systur- börnunum sínum, ógrynni af lögum og ljóðum. Og amma Guðrún, sem var alltaf svo störf- um hlaðin gaf sér meira segja tíma til þess að koma og syngja með okkur. Á sumrin fór Dísa með okkur í berjamó og þegar við komum heim var hitað kakó og stundum gripið í spil. Það voru alltaf jól þegar Dísa kom og mörg tárin voru felld, þegar hún fór. Þegar við komum til Reykjavíkur sýndi Dísa okkur lystisemdir borgarinnar. Hún fór með okkur í Sundlaugarnar, Tívolí og Hljómskálagarðinn, í leikhús, á tónleika, bíó og söfn. Og heimur- inn stækkaði og sjóndeildar- hringurinn víkkaði fyrir tilstilli Dísu. Minningarnar þyrlast um hug- ann og það stafar birtu fá minn- ingu Vigdísar Hermannsdóttur. En utan um þetta góða og gegna hugarþel var skel, sem ekki var nógu sterk til að standast harðan heim. Strax um tvítugt bar á því, að Dísa var ekki sterk á taugum. Fólk, sem veikist af sál- rænum sjúkdómum nýtur ekki samúðar samferðafólksins á sama hátt og þeir, sem þjást af líkamlegum kvillum. Þannig erum við mennirnir fullir af for- dómum. Heilsuleysi háði Dísu töluvert framan af ævi. í desemb- er 1969 fékk hún heilablæðingu og var flutt til Kaupmannahafn- ar, þar sem hún gekkst undir höfuðaðgerð. Eftir það hrakaði heilsu hennar hægt og sígandi. Síðustu ár æfinnar dvaldi Dísa í Hátúni 12. Þar hlaut hún frábæra umönnun, sem aldrei verður að fullu þökkuð. Vistmenn og allt starfsfólk gerðu það, sem í mann- legu valdi stóð til að létta henni veikindastríðið, þar til yfir lauk hinn 8. nóvember síðastliðinn. Ég trúi því, að nú sé hún Dísa að spila og syngja um sólina og vorið eins og við gerðum svo oft í gamla daga. Blessuð sé minning Vigdísar Hermannsdóttur. Ragnheiður Hansdóttir. Böðvar Eyjólfsson F. 4.10. 1921 - D. 10.9. 1984. Okkar biðu ei œfintýri: önn og strit á túni og mýri. Kanski voru viðfangsefnin venjuleg og hversdagsgrá. Þó er í hverju lífi lifuð leynd, sem aldrei verður skrifuð, til er heimur hulinn bak við hinn sem allir mega sjá. Fagurt galaði fuglinn sá. Guðmundur Böðvarsson Böðvar Eyjólfsson var fæddur á Melum í Melasveit í Borgar- fjarðarsýslu, sonur hjónanna Sig- ríðar Böðvarsdóttur frá Voga- tungu, f. 1891 og Eyjólfs Sigurðs- sonar frá Fiskilæk f. 4.4. 1891. Viðstaða þeirra var stutt á Mel- um, því leið þeirra lá fljótlega að Fiskilæk á föðurleifð Eyjólfs, þar sem þau bjuggu allan sinn bú- skap. Eyjólfur varð strax sem ungur maður heillaður af ungmenna- og samvinnuhreyfingunni og til- einkaði sér þá h'fsspeki sem hann nam af sér fróðari mönnum. Hann kynnti sér ungur að árum sauðfjárrækt norður í Þingeyjar- sýslu, sem kom sér vel eftir að hann fór að búa sjálfur, því fjár- búið á Fiskilæk var eitt hið stærsta utan Skarðsheiðar í hans tíð. Eyjólfur gegndi marvíslegum ábyrgðarstörfum fyrir sveit sína, svo sem í hreppsnefnd, sýslu- nefnd, oddvitastörfum og var fulltrúi Borgfirðinga í Stéttar- sambandi bænda ásamt fl. og fl. Á þessu myndar- og menning- arheimili ólst Böðvar upp með systkinum sínum Sigurði og Jóni sem búa á Fiskilæk með Höllu systur þeirra og Guðrúnu Unni sem er búsett á Akranesi, litla telpu misstu Fiskilækjarhjónin er Diljá hét. Alla tíð var mjög kært með þeim systkinum og í æsku þeirra var alltaf nóg að starfa og nóg til að gleðjast yfir þá tóm- stund gafst. Var þá ekki ónýtt að fara á bak góðum reiðskjóta. „Því engi er vinfár sem á góðan hest“. Samband móður og sonar var mjög náið og hún unni heitt þess- um blíðlynda hlédræga dreng sem í látleysi sínu gat innt af hendi öll sín skyldustörf af ósér- hlífni. Böðvar lauk tveggja vetra námi frá Héraðsskólanum á Laugarvatni með góðum vitnis- burði og þeir gripir sem hann smíðaði og vann í skólanum bera vott um hagleik. Þegar tími gafst frá bústörfum heima á Fisldlæk vann hann að ýmsu svo sem hjá vegagerðinni og stjómaði þá veg- hefli. Ekki fannst honum nóg að gert að hafa einfalt ökupróf, heldur réðst í það að taka meira- próf sem hann stóðst með ágæ- tum, og öðlaðist eftir það réttindi til að taka nemendur í bifreiða- akstri. Á sumardaginn fyrsta 22.4. 1954, kvæntist Böðvar Önnu Margréti f. 8.7. 1934, Sigurðar- dóttir, Magnússonar frá Stardal og konu hans Sæunnar Bjama- dóttur frá Gerðum í Garði. Brúð- kaupið fór fram í Saurbæjar- kirkju á Kjalamesi, en þar var Anna Margrét alin upp hjá Guð- laugu Jónsdóttir, f. 19.11. 1899 í Bakkakoti í sömu sveit og manni hennar Ólafi f. 22.10. 1879, Eyjólfssyni, Runólfssonar kir- kjubónda í Saurbæ og ljósa fjölda bama allt að 600, að talið er. Eyj- ólfur faðir Böðvars bar nafn frænda síns Eyjólfs Runólfssonar í Saurbæ og Sigríður móðir Böðv- ars bar nafn Sigríðar Runólfs- dóttir frá Saurbæ, er var kona Þórðar Sigurðarsonar er fyrr bjó á Fiskilæk og vom þau foreldrar Matthíasar Þórðarsonar fom- menjavarðar. Ein systir Eyjólfs og Sigríðar í Saurbæ var Guðrún síðasta kona séra Matthíasar Joc- humssonar. Talið er að í Saurbæ hafi sama ættin búið allt frá árinu sextánhundruð. Böðvar og Anna Margrét vom bæði alin upp á traustum og góð- um menningarheimilum og höfðu því gott veganesti og var jafnræði með þeim. Fyrsta árið dvöldu ungu hjónin í Saurbæ en árið eftir fengu þau til ábúðar smábýlið Ártún í sömu sveit og vom þau síðustu ábúendur þar. íveruhúsið var sumarbústaður sem reyndist lítið eða ekkert ein- angraður, svo vetrarvistin varð heldur kuldaleg. Vorið 1956 fá þau ábúð á hluta af Saurbænum og síðar allan Saurbæinn og þar hafa þau búið allan sinn búskap í sambýli við Guðlaugu Jónsdóttur fósturmóður Önnu, sem dvelur nú háöldmð á Reykjalundi. Fljótlega eftir að Böðvar settist að í Saurbæ var honum falið það ábyrgarmikla starf að vera fjall- kóngur og stjóma leitum og má segja að þar hafi hann verið í ess- inu sínu, því vart var hægt að hugsa sér fjárgleggri mann. Ær sínar þekkti hann þó í mikilli fjarðlægð væru og nöfn þeirra og ættir gat hann rakið eins og faðir- vorið. Bú þeirra hjóna Böðvars og Önnu í Saurbæ var alla tíð smátt í sniðum en samheldni og nægju- semi bættu það upp. Bæði höfðu þau ánægju af því að umgangast búsmalann og vora mjög sam- hent við hvað eina sem að því laut, áhugamál þeirra beggja vora hestar og þá ánægju veittu þau sér að stíga á bak góðum hesti þegar tími vannst til. Þau eignuðust sex börn og era þau þessi í aldursröð: Ólafur f. 27.9.1954, Eyjólfur f. 10.5.1956, Sigríður f. 25.6. 1957, Guðlaug f. 22.2.1959, Halldóra f. 23.3.1960 og Ragnheiður f. 23.6. 1961. Nú að leiðarlokum vil ég minn- ast með þakklæti þeirrar vináttu sem hefur ríkt milli heimila okkar og þá gagnkvæmu tryggð sem hefur haldist í gegnum áranna rás án þess að skugga hafi borið á milli. Ég vil einnig minnast þess ofur þunga sem hvert heimili ber er þarf að annast fatlaða einstak- linga. Um nokkurra ára skeið hefur Böðvar barist við þungbær veikindi, en það er ekki hægt að segja annað en að hann stóð á meðan stætt var og þó öllu lengur. Böðvar andaðist á Reykja- lundi mánudaginn 10.9. 1984. Við hjónin vottum Önnu konu hans innilega samúð og biðjum henni, börnum þeirra og Guð- laugu fóstra Önnu guðs bless- unar. Hulda Pétursdóttir. Flmmtudagur 15. nóvember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.