Þjóðviljinn - 17.11.1984, Síða 4
LEIÐARI
Samstarf til vinstri
Um þessa helgi heldur Alþýöuflokkurinn
flokksþing sitt og Alþýðubandalagið heldur
flokksráðsfund. Á flokksþingi Alþýðuflokksins
ber hæst baráttu tveggja heiðursmanna um
formannsembætti í flokknum. Um stjórnmál er
minna fjallað en kreppa Alþýðuflokksins er
engu að síður pólitísk kreppa, flokkurinn hefur
ekki vitað í hvorn fótinn ætti að stíga í pólitíkinni.
Skýringin er að hluta til sú, að hefðbundin vinstri
stefna hefur verið rekin af sterkari fjölmennari
og fjölbreyttari flokki í landinu, nefnilega Al-
þýðubandalaginu. í þeim skilningi má segja að
sögulegu hlutverki Alþýðuflokksins sé lokið,
enda hefur Alþýðuflokkurinn verið á flótta frá
sögu sinni þar til nú.
Hrakfarir Alþýðuflokksins og forystu hans
breyta engu um þá staðreynd að meðal al-
mennrar flokksfélaga er vilji fyrir því að koma
flokknum úr herkví miðjunnar og leita breiðari
samstarfsvettvangs með Alþýðubandalaginu
og öðrum stjórnmálaöflum sem líta á félags-
hyggju sem grundvöll stefnu sinnar.
Alþýðubandalagið og talsmenn þess á opin-
berum vettvangi hafa undanfarið hamrað á
nauðsyn þess að félagshyggjuöflin sameinist
með þeim hætti að þau geti haft í fullu tré við
Sjálfstæðisflokkinn og þá arma Framsóknar-
flokksins sem aðhyllast kenningar nýfrjáls-
hyggjunnar.
A síðustu misserum hafa markaðsöflin í
stjórnarflokkunum báðum verið í mikilli sókn -
og hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar hefur
verið allsráðandi í ofstæki sínu við landsstjórn-
unina. Afleiðingarnar hafa verið geigvænlegar;
kaup hjá almennu launafólki hefur verið rýrt um
fjórðung á tiltölulega stuttum tíma, félagsleg
þjónusta hefur verið skorin niður, aldraðir búa
við þrengri kost en áður og fátapkt þekkist í
landinu í mun ríkari mæli en fyrr. Jafnframt hefur
gróði og völd stórfyrirtækja eflst að mun og
velferð fyrirtækjanna í landinu er miklu meiri en
áður.
Þessi ófullkomna upptalning er í sjálfu sér
nóg til að sanna nauðsyn þess að félagshyggju-
öflin nái saman. Það er einungis með samstilltu
átaki þeirra sem hægt verður að slá skjaldborg
um félagslega ávinninga síðustu ára og ára-
tuga, einungis þannig verður hægt að drepa
fæti gegn leiftursóknaröflunum sem enn hyggja
á nýja landvinninga.
En hvernig er vinstri hreyfingin í stakk búin til
að sameinast gegn samstjórn Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknarflokksins? I dag er á-
standið ósköp einfaldlega þannig, að vinstri öfl-
in eru sundruð. Þau hafa ekki getað komið sér
saman um stefnu sem gæti leitt til sameigin-
legrar baráttu gegn núverandi valdhöfum í
þjóðfélaginu. Þau hafa ekki einu sinni ræðst
saman um hvort slíkt sé mögulegt.
Eitt af höfuðmálunum á flokksráðsfundi Al-
þýðubandalagsins verður hins vegar umræða
um hvernig beri að haga samvinnu vinstri
manna. Innan flokksins eru uppi raddir sem vilja
vinstra samstarf sem miðist að því að koma á
sem víðtækastri samstöðu gegn núverandi rík-
isstjórn. Innan Alþýðuflokksins eru einnig
straumar sem vilja samstarf til vinstri og á þingi
flokksins mun væntanlega tekist á um það.
Hvernig sem tekst til er Ijóst, að á vinstri kanti
hins íslenska stjórnmálalífs er loksins að renna
upp það Ijós fyrir mönnum að samstarf vinstri
manna er eina ráðið til að koma á ríkisstjórn
sem tekur hagsmuni launafólks framyfir
hagsmuni fjármagnsins.
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Utgefandl: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Ami Bergmann, össur Skarphéðinsson.
Ritstjómarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fréttastjórl; Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Ásdís Þórhallsdóttir, Guðjón Friöriksson,
Jóna Pálsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður Ámason,
Ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir).
Ljósinyndir: Atli Arason, Einar Kartsson.
Útllt og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson.
Handrlta- og prófartcalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvæmdastjórl: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrif8tofu8tjóri: Jóhannes Harðarson.
Auglýsingastjórl: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Anna Guöjónsdóttir, Margrót Guðmundsdóttir.
Afgrslðslustjórl: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Slmavarsla: Ásdís Kristinsdóttir, Sigrfður Kristjánsdóttir.
Húsmœður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Bjömsson.
Útkeyrsla, afgreiösla, auglýsingar, rltstjóm:
Sfðumúla 6, Reykjavfk, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð f lausasölu: 22 kr.
Sunnudagsverð: 25 kr.
Áskriftarverð á mónuði: 275 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓDVIUINN Laugardagur 17. nóvember 1984