Þjóðviljinn - 17.11.1984, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 17.11.1984, Qupperneq 5
Af hverju vegnar þeim flokkum sem eru í stjórnarandstöðu og kenna sig afdráttarlaust við vinstri mennsku ekki betur í bar- áttunni um hylli almennings en raun ber vitni? Er til dæmis stjórnarandstaða Alþýðubanda- lagsins innan þings og utan nægi- lega kraftmikil? Er innbyrðis sundurvirkni of mikil til að flokk- urinn geti hist í farvegi sem ber hann að því marki sem hinir ólíku straumar vinstri hreyfíngarinnar hljóta að stefna að: ríkisstjórn verkalýðsflokks eða -flokka? Eða er flokkakerfí vinstri hreyfingar- innar ef til vill ekki nægilega í takt við tímann til að duga í barátt- unni við liðsmenn andstæðra hugmynda? Þarf kannski að stokka upp allt flokkakerfið eins- og Svavar Gestsson hélt fram í viðtali við Þjóðviljann fyrr í þess- ari viku? Vond ríkisstjórn Aðstæður í þjóðfélaginu í dag eru þannig, að skilyrði fyrir ske- leggum vinstri flokki ættu að vera mjög góð. Samsteypustjórn flokka sem almenningur tengir gjarnan við spillingu og brask, Framsóknarflokksins og Sjálf- stæðisflokksins, hefur setið við völd í næstum eitt og hálft ár. Á þeim tíma hefur hún komið í kring einhverri mestu kjara- skerðingu í sögu lýðveldisins. Strax í upphafi ferils síns setti stjórnin fímm bráðabirgðalög (og framkvæmdi 15 prósenta gengis- fellingu), sem meðal annars af- námu samningsrétt verkalýðsfé- laga til 1. febrúar þessa árs, og bönnuðu auk þess hver kyns vísi- tölutryggingu launa fram til 1. júní á næsta ári. Á þessum tíma hefur kaupmáttur launafólks minnkað um hvorki meira né minna en fjórðung (!) vegna að- gerða rikisstjórnarinnar. Hagstæö skilyrði Ofan á þetta bætist, að hörð þjóðfélagsátök eru nýlega afstað- in, sem lömuðu þjóðfélagið að verulegu leyti um hartnær mán- aðar skeið. Það er óhætt að full- yrða að í verkfalli BSRB átti sér stað verulega vitundarvakning hjá þeim sem tóku þátt í aðgerð- unum. Auk þeirrar sjálfvirku vakningar sem yfirleitt verður í verkföllum gerðist það einnig, að Sjálfstæðisflokkurinn birtist fólki í sínum versta búning. Ráðherrar hans brutu þannig lög til að koma í veg fyrir launa- greiðslur, flokkurinn sjálfur leyfði afnot af húsakynnum sín- um í Reykjavík undir ólöglega út- varpsstöð sem var beinlínis sett á laggirnar til að afflytja BSRB. Ráðherra flokksins notaði síðan vald sitt til að stöðva rannsókn rannsóknarlögreglunnar á út- varpsstöðinni með þeim hætti, að hann er nú sjálfur í yfirheyrslum hjá lögreglunni útaf afskiptum sínum. í ofanálag var svo það, að fjármálaráðherra flokksins sví- virti heila starfsgrein, kennara, mjög grimmilega á Alþingi. Ástandið má því í rauninni draga saman á eftirfarandi hátt: Núverandi ríkisstjórn hefur á til- tölulega stuttum tíma beitt sér fyrir einni hörðustu kjaraskerð- ingunni sem þjóðin hefur nokkru sinni sætt. Hún hefur jafnframt átt mjög nýlega í hörðum átökum við eitt af stærstu samtökum verkalýðshreyfingarinnar. Við slíkar aðstæður má að öðru jöfnu gera ráð fyrir auknu fylgi við ske- leggan vinstri flokk í stjórnar- andstöðu. Nýir flokkar Staðreyndin er eigi að síður sú, að Alþýðubandalaginu hefur ekki tekist að notfæra sér ástand- ið. Tiltölulega nýjar skoðana- kannanir gefa um þetta ákveðna vísbendingu, en þó vegur þyngra að manna á meðal er ekki sú spenna og hreyfing í kringum AI- þýðubandalagið sem tengist flokki sem hefur lent í góðum byr. Þetta er einkum áberandi á meðal yngra fólks. Flokkur sem vill lifa til að verða hluti af sterkri hreyfingu þarf auðvitað að spyrja sjálfan sig: Hvað veldur? Skýringarnar eru margþættar. Alþýðubandalagið er í erfiðri stöðu að því leyti, að nú hafa nýir flokkar, kvennalistarnir og Bandalag jafnaðarmanna, haslað sér völl í vinstri kanti stjórnmálamiðjunnar. Stefna þeirra er vissulega nokkuð á reiki en fólk, óánægt með gömlu flokkana og ástandið í heild, sér í þeim nýjabrum og ferskleika. í samanburði við þær virkar Al- þýðubandalagið óneitanlega stundum dálítið miðaldra. Því hefur til dæmis ekki tekist að koma til skila til fólks því lýðræði sem er innan flokksins, og gefur til að mynda minnihlutum mjög góða möguleika á að láta rödd sína heyrast í valdastofnunum flokksins. Nýju flokkarnir hafa hins vegar hagnast verulega á iýðræðislegu fyrirkomulagi sem þeim hefur tekist að auglýsa bæri- lega gegnum fjölmiðla. í stuttu máli: Það er blint fólk sem ekki sér þá hættu sem Al- þýðubandalaginu er búin af hin- um nýju flokkum og til að halda áfram að vera hluti af lifandi vinstri hreyfingu þarf flokkurinn auðvitað að aka seglum eftir breyttum aðstæðum. Forystan En það þarf líka að huga að fleiru. Hafa til dæmis fulltrúar flokksins, forystufólkið, komið árum hans nægilega vel fyrir borð gagnvart almenningi? Tekst for- ystusveitinni nægilega að höfða til „hins breiða fjölda í byggðum landsins" svo gömul klisja sé not- uð? Svarið við seinni spurningunni er tvímælalaust neikvætt. Það vantar til dæmis konur í foryst- una. Konur í röð talsmanna flokksins. Það er ekki nóg að hafa reglur sem gefa konum fjögur af hverjum tíu sætum í stofnunum og á listum flokksins. Þær þurfa líka að veljast í forystukjarnann. Þegar 40 prósent reglunni er veifað í rökræðum við til dæmis kvennalistakonur kemur ævin- lega að spurningunni: „En hvers vegna er næstum engin kona í for- ystusveitinni?" Um þann hluta flokksins sem hefur valist til starfa í þinginu er það eitt að segja að hann er fylli- lega sambærilegur við aðra þing- flokka og meir en það. í honum eru einstaklingar sem standa hverjum sem er á sporði í þing- inu, og eru óþreytandi við að boða stefnu flokksins um borg og bý. En auðvitað er það ekki ein- ungis þingliðið sem skiptir máli. Hvergi á landinu er jafn mikið af fólki og í Reykjavík sem fylgir Alþýðubandalaginu að málum, - eða væri hægt að fá til fylgis við það væri rétt á málum haldið. Þessvegna skiptir afar miklu hvernig forystu flokksins í mál- efnum borgarinnar tekst að koma stefnu bandalagsins á framfæri. Hvernig sem mönnum finnst henni hafa tekist til, þá verður að segja það umbúðalaust, að það er útbreidd skoðun á meðal Al- þýðubandalagsmanna og ann- arra, að eitt hinna nýju samtaka, Kvennaframboðið, hafi veitt Al- þýðubandalaginu mjög harða keppni í stjórnarandstöðunni í borgarstjórn, og amk. á stundum haft betur. Þessu þarf að kippa í lag. Ella getur það orðið flokkn- um dýrkeypt enda tiltölulega stutt til borgarstjórnarkosninga. Verkalýðs- hreyfingin Eitt af þeim atriðum sem þarf jafnframt að skoða með tilliti til framtíðar flokksins eru tengsl hans við verkalýðshreyfinguna. Af ýmsum ástæðum er þetta mál viðkvæmt, en þarf hins vegar að ræða fyrr en seinna. í dag er ástandið ósköp ein- faldlega þannig að fyrir almenn- ingsálitinu er Alþýðubandalagið óspart gert ábyrgt fyrir gjörðum verkalýðsforystunnar, án þess þó að geta ráðið miklu um athafnir hennar. Þetta stafar af því, að í áberandi forystuhlutverkum innan verkalýðshreyfingarinnar eru menn sem eru jafnframt flokksbundnir Alþýðubandalags- menn, og gegna oftar en ekki trúnaðarstörfum fyrir það. Um það er auðvitað ekkert nema gott eitt að segja. Að sjálfsögðu ræðast þessir menn við, þegar þeir hittast á vettvangi flokksins. En það er einfaldlega ekki sá staður þar sem ákvarðanirnar eru teknar. Þær eru teknar úti í verkalýðsfél- ögunum, í samráði við fólk sem gjarnan kemur úr öðrum flokk- um. í þessu sambandi má minna á að varaforseti ASÍ til dæmis er Sjálfstæðismaður, varaformaður VMSÍ er Alþýðuflokksmaður og Framsóknarmenn er að finna í áhrifastöðum í verkalýðshreyf- ingunni. Þessu þarf að koma bet- ur til skila. Pólitískar kröfur Staðreyndin er sú, - hvort sem mönnum líkar betur eða ver - að Alþýðubandalagið býr ekki til línu sem meðlimir þess í verka- lýðsforystunni fylgja, einsog at- burðir þessa árs sýna best. Þess vegna er erfitt að sætta sitt við, að meðan flokkurinn getur litlu ráðið um ákvarðanir verkalýðs- forystunnar, þá skuli hann fyrir almenningsálitinu eigi að síður vera Úr þessum undarlega vanda er sú leið fær, að Alþýðubandalagið lýsi yfir ótvíræðri hollustu sinni við verkalýðshreyfinguna en setji jafnframt tilteknar pólitískar kröfur á hendur henni, sem öllum verði ljósar. Með því að setja fram slíkar kröfur er flokkurinn ennfremur að áskilja sér rétt til að gagnrýna forystu verkalýðs- hreyfingarinnar þegar ekki tekst nægilega vel til. Með slíku móti yrði Alþýðu- bandalagið aldrei fangi verka- lýðsforystunnar - né hún band- ingi flokksins. Ossur Skarphéðinsson Laugardagur 17. nóvember 1984 ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.