Þjóðviljinn - 20.11.1984, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 20.11.1984, Blaðsíða 1
HEIMURINN ÞJÓÐMÁL ÍÞRÓTTIR Ríkisstjórnin 16 prósent gengisfelling! Svavar Gestsson: Fólskuleg árás og hefndarráðstöfun gegn verkafólki. Ekkert samkomulag um efnahagsráðstafanir nema gengisfellingu! Geir Hallgrímsson orðinn formaður ráðherraflokks Sjálfstœðismanna en Þorsteinn ískugganum essar ráðstafanir rfldsstjórn- arinnar eru ekkert nema hefndarráðstafanir gegn verka- lýðshreyfingunni. Gengislækk- unin nemur 12 prósentum, en þegar eru komin fram 4 prósent í gengissigi upp á síðkastið. Kauphækkanir samkvæmt samn- ingum eru hins vegar einungis 10 prósent til að byrja með. Þessi árás ríkisstjórnarinnar er því þeim mun fólskulegri þar sem gengislækkunin nemur miklu meir en þeim kostnaðarhækkun- um sem fyrir liggja í þjóðfélaginu vegna nýgerðra kjarasamninga. Þetta sagði Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins, í gær um gengislækkunina. Gengislækkunin er niðurstaða stöðugra helgarfunda þeirra Geirs og Alberts annars vegar og Steingríms og Halldórs Ásgríms- sonar hins vegar. Ekkert sam- komulag náðist hins vegar um hliðarráðstafanir í efna- hagsmálum, þrátt fyrir stöðug fundahöld ríkisstjórnar og þing- flokka stjórnarflokkanna í gær- dag. Mikil átök munu vera innan stjórnarinnar og þó einkum Sjálf- stæðisflokksins vegna efna- hagsmálanna. Athygli vekur að Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðis- flokksins tók ekki þátt í viðræð- unum um helgina, þegar gengis- fellingin var ákveðin, en Geir í hans stað. Að sögn ráðherra í flokknum er Geir nú formaður svokallaðrar ráðherranefndar flokksins og hefur þarmeð tekið að ser forystu innan flokksins í veigamiklum málaflokkum, en Þorsteini verið ýtt til hliðar í bili. Ástæða þess er meðal annars sú, að Albert og Þorsteinn hafa ekki getað komið sér saman um efna- hagsstefnu, og Albert vill ekki að Þorsteinn komi nálægt fjármál- unum meðan hann fer með þau mál. Þær tillögur í efnahagsmálum sem hafa verið ræddar ganga út á lækkun tekjuskatts og „neyslu- skatt“, en afskaplega lítið hafði í gær þokast í samkomulagsátt, samkvæmt heimilduin Þjóðvilj- ans. ÖS/óg/ór. Stjórnin Sveitarfélögin lömuð Forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar vísar til þess að engar forsendur fjárhagsáœtlana séu Ijósar Igær var haldin fjármálaráð- stefna Sambands sveitarfélaga þarsem átti að kynna forsendur Qárhagsáætlana sveitarfélaganna fyrir næsta ár. í Ijós kom að ekki var hægt að kynna forsendurnar, þarsem engar tölulegar upplýs- ingar eða aðrar um efnahags- stefnu næsta árs lágu fyrir, þar- sem ríkisstjórnin hefur ekki enn- þá gengið frá fjárlögum né heldur stefnuræðu forsætisráðherra. Jón Sigurðsson forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar sem fenginn hafði verið til þessa verkefnis á ráðstefnunni lýsti því yfir að vegna þessa gætu menn ekki fengið þær upplýsingar sem vant væri að veita á þessari ráðstefnu. Formaður Sambandsins, Björn Friðfinnsson, lýsti því yfir að í áraraðir hefðu sveitarfélögin ekki búið við annað eins óöryggi í efnahagsmálum og fundarmenn myndu fá upplýsingarnar sendar í pósti þegar þær lægju fyrir. - óg. Miðstjórnarkjör Lúðvík langefstur Konur komnar í meirihluta Lúðvfk Jósepsson varð langefst- ur með 142 atkvæði þegar kos- ið var til miðstjórnar Alþýðu- bandalagsins á flokksráðsfundi um síðustu helgi. Sigríður Stefánsdóttir frá Ak- ureyri hlaut næstflest atkvæði, 124, og Svanfríður Jónasdóttir frá Dalvík hlaut 123 atkvæði. Eftir kjörið eru konur komnar í meirihluta í miðstjóm og til marks um frammistöðu þeirra í kjörinu er að þær hlutu 36 af 70 kjörnum fulltrúum. Mikill fjöldi félaga úr verka- lýðshreyfingunni hlaut kosningu til miðstjómar. Þeirra á meðal vom Ásmundur Stefánsson, Guðjón Jónsson, Sigrún Clausen og Hansína Stefánsdóttir. Guð- mundur Þ. Jónsson, formaður Landssambands iðnverkafólks, náði hins vegar ekki kjöri að þessu sinni. Þá má geta þess, að Pétur Tyrf- ingsson náði aðeins kjöri sem varamaður. -ÖS Sjá bls. 2, 4, 7, 8, 13 og 19. Kominn afturl Geir Hallgrímsson er nú orðinn formaður í ráðherrahópi Sjálfstæðisflokksins. í krafti þeirrar formannsstöðu er hann nú fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í ákvörðunum innan ríkisstjórnarinnar um efnahagsmál. Þessi endurkoma Geirs Hallgríms- sonar skapar nýja stöðu í Sjálfstæðisflokknum. Geir gegnir formannsstöðu innan ríkisstjórnarinnar en Þorsteinn Pálsson utan hennar. Myndin var tekin þegar ráðherraformaðurinn kom á ríkisstjórnarfund fyrir helgina.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.