Þjóðviljinn - 20.11.1984, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 20.11.1984, Blaðsíða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. Þriðjudagur 20. nóvember 1984 229. tölublað 49. árgangur DJÚÐVIUINN Óöld Nauðganir og árasir Þrjár nauðganir til rannsóknar hjá lögreglu. Grímuklœddirmennráð- ast að tveimur konum Rannsóknarlögreglan hefur óskað gæsluvarðhaldsvistar yfir tveimur mönnum sem eru sakaðir um að hafa nauðgað tveimur konum um helgina en málin eru óskyld. Báðar nauðganirnar áttu sér stað f Reykjavík. Að sögn Helga Daníelssonar yfirrannsóknarlögreglumanns eru málin bæði til rannsóknar og beðið eftir úrskurði Sakadóms um gæsluvarðhald. Þá er enn í rannsókn hjá embættinu nauðgun á ungri stúlku sem ráðist var á við Klúbbinn á dögunum. Um helgina gerðist einnig sá Skák Enn jafntefli Það þarf nú kannski ekki að taka fram að jafntefli varð í 25. einvígisskák þeirra Karpovs og Kasparovs í Moskvu í gær. Heimsmeistarinn bauð nú Kasp- arov upp á þann munað að beita Tartakover afbrigðinu marg- fræga gegn Drottningarbragði sfnu. Áskorandanum tókst svo vel upp að um jafntefli var samið eftir 22 leiki og hafði þá skipst upp á drottningum en staðan að öðru leyti ótefld. Það er mál manna sem trúa því að styrkur Karpovs leynist ekki síst í yfirburðum á sviði aðstoðar- manna að brátt fari að draga til tíðinda því nú eru þeir sterkustu staddir í Saloniki á Ólympíumót- inu. Vonandi hafa þessir menn eitthvað fyrir sér því ég get enga lausn betri séð en þá að Kasparov láti til skarar skríða með hvítu á miðvikudag. Hvítt: Karpov Svart: Kasparov 1. Rf3 d5 2. d4 Rfé 3. c4e6 4. Rc3 Be7 5. Bg5 h6 6. Bh4 0-0 7. e3 b6 8. Be2 Bb7 9. Hcl Rbd7 10. cxd5 exdS 11. 0-0 c5 12. dxc5 bxc5 13. Hc2 Hc8 14. Hd2 Db6 15. Db3 Hfd8 16. Hfdl Dxb3 17. axb3 Rb6 18. Re5 Kf8 19. h3 a6 20. BD Ba8 21. Rg4 Rg8 jafntefli. Gott hjá konunum í gær var tefld 1. umferð á ÓL- skákmótinu í Saloniki og náði kvennasveitin góðum árangri gegn Rúmenum semhlutu silfur- verðlaun á síðasta ÓL-móti en sveit þeirra skipa eingöngu stór- meistarar. Guðlaug og Ólöf gerðu jafntefli á 1. og 2. borði en Sigurlaug tapaði. Rúmenar unnu því 2:1. Karlasveitin tefldi gegn Túnisbúum og lauk tveimur skákum. Jón L. vann á 2. borði en Jóhann tapaði á 4. borði. Helgi hefur peði yfir á 1. borði og skák Margeirs á 3. borði fór einn- ig í bið. _GFr. óheyrilegi atburður að grímu- klæddur maður réðst á unglings- stúlku fyrir utan heimili hennar í Seljahverfi í Breiðholti um miðja nótt. Stúlkan náði að kalla á hjálp og flúði árásarmaðurinn þegar móðir stúlkunnar' kom henni til hjálpar. Að sögn lögreglunnar hefur ekki hafst upp á manninum þrátt fyrir ítarlega leit. Fyrir skömmu var ráðist að ungri konu seint um kvöld fyrir utan heimili hennar við Sund- laugaveg en henni tókst við illan leik að hrista árásarmanninn af sér og kalla á hjálp. Lögreglan náði manninum stuttu síðar en honum var síðar sleppt þar sem um fyrsta brot var að ræða. Að sögn lögreglunnar er með öllu óvíst að nokkurt samband sé á milii þessara tveggja árása á kon- umar. -*g Kjartan felldur Jón Baldvin Hannibalsson var kjörinn formaður Alþýðuflokksins á þingi hans um helgina. Hann felldi Kjartan Jóhanns- son úr sessi með 142 atkvæðum gegn 92. Jóhanna Sigurðardóttir var kjörin varaformaður án samkeppni, Ámi Gunnarsson ritari, Geir A. Gunnlaugsson gjaldkeri og Guðmundur Oddsson formaður framkvæmdastjórnar. Myndina tók Atli eftir að úrslit urðu kunn úr formannskjörinu. Sjá aðrar fréttir af þinginu á síðu 2. Smábátar Fyrirvaralaus stöðvun veiða Skúli Alexandersson: Sjómenn urðu fyrirvaralaust atvinnulausir Fjölmörg skeyti og mótmæli hafa borist alþingismönnum og stjórnvöldum vegna þeirrar fyrírvaralausu ákvörðunar sjáv- arútvegsráðuneytisins að stöðva veiðar báta undir 10 tonnum. Skúli Alexandersson kvaddi sér hlj.MVs utan dagskrár f efrí deild alþingis í gær og sagði frá mót- mælum Vestlendinga vegna þessa og fór fram á að ráðherra endur- skoðaði afstöðu sína í málinu. Skúli . Alexandersson spurði Halldór Ásgrímsson m.a. hvort smábátarnir sem fengu úthlutað- an heildarkvóta gætu ekki fengið af kvóta stærri báta. Halldór Ásgrímsson sagði ákveðið að halda sömu reglum út allt árið og taka það síðar til endurskoðunar. Fyrirvarinn hefði verið svo stuttur vegna þess að upplýsingar um októberaflann. hefðu borist svo seint. Tilflutn- ingur á kvóta stærri báta til þeirra smærri sem væru með heildar- kvóta væri hóheimill. Eiður Guðnason tók undir með Skúla um of stuttan fyrirvara og nauðsyn endurskoðunar. Vald- imar Indríðason og Árni Johnsen kváðu ástæðu til að gera greinarmun á sportveiðimönnum á smábátum og þeim sem raun- verulega hefðu atvinnu af þessum veiðum. Þeir tóku undir með ráð- herra um að ekki væri rétt að breyta þessari ákvörðun. -óg Tríllumar stöðvaðar Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að stöðva allar veiðar flskibáta undir 10 brúttólestum frá og með morgundeginum 21. nóvember, fram til 31. desember. Er þetta gert vegna þess að veiðar þessara báta hafa farið fram úr þeim viðmiðunarmörkum sem ákveðin voru með kvótakerfinu 8. febrúar sl. -S.dór Alusuisse-samningurinn Alþýðuflokkurinn líka á móti Íðnaðarráðherra fór fram á að álsamningurinn nýi fengi vand- aða og ítarlega umfjöllun á al- þingi - og við þeirri beiðni höfum við orðið, sagði Skúli Alexand- ersson fulltrúi Alþýðubandalags- ins í iðnaðarnefnd efri deildar f viðtali við ÞjóðvUjann í gær, en nefndarálit eru nú að berast. Reiknað er með að önnur um- ræða í efri deild verði á morgun, miðvikudag. Þegar hefur borist stutt nefndarálit frá stjórnar- flokksþingmönnum þarsem mælt er með samþykki samningsins og frá fyrsta minnihluta, Magnúsi Magnússyni Alþýðuflokki þar sem tilkynnt er að Alþýðuflokk- urinn muni greiða atkvæði gegn samningnum. í dag er væntanlegt nefndarálit frá Alþýðubandalagi, Kvennalista og Bandalagi jafnað- armanna. Þingmenn ríkisstjómarinnar í iðnaðarnefnd efri deildar þeir Þorvaldur Garðar, Davíð Aðal- steinsson, Egill Jónsson og Björn Dagbjartsson fylgja línunni og leggja til að samningurinn verði staðfestur. í nefndaráliti Magnúsar Magnússonar kveður við annan tón, þar sem segir að óviðunandi sé að alþingi skuli fyrst fá að fjalla um samninginn þegar hann er fullfrágenginn og undirritaður, Alþingi sé stillt upp við vegg. Annað hvort eigi það að sam- þykkja eða fella hann sem þýddi óbreytt orkuverð í svo og svo langan tíma. Þá er bent á syndaaflausnina, sem felst í þriggja miljóna dollara greiðslu gegn því að öll eldri deilumál við Alusuisse verði felld niður. Undirstrikað er að í hinum nýja samningi séu ákvæði til að forðast ágreining í framtíðinni, „En í öllum þeim tilvikum túlkar samningurinn þau sjónarmið sem Alusuisse hefur haldið fram í málflutningi sínum“. Þá er og bent á að ISAL sé tryggður for- gangsréttur að orku frá nýjum virkjunum en engar skuldbind- ingar koma þar á móti aðeins ein- hliða réttur. „Versti galli samningsins eru þó endurskoðunarákvæði hans“, segir í áliti Alþýðuflokksins. í á- litinu segir að samningurinn geti „engan veginn talist nægilega hagkvæmur okkur, þegar litið er lengra fram á veginn. Því mun Alþýðuflokkurinn greiða at- kvæði gegn honum“. -óg Seyðisfjörður Gullbergið selt innanbæjar Skuttogarinn Gullberg á Seyðisfírði, sem Fiskvinnslan hf. þar í bæ átti, hefur verið seld- ur. Kaupandinn er nýtt hlutafé- lag, sem stofnað var gagngert til kaupanna af heimamönnum og bæjarfélaginu. Aðilar að þessu hlutafclagi eru tveir skipstjórar sem nýlega seldu Hafrannsóknar- stofnun bátinn Otto Wathne, Hafnarsjóður og Bæjarsjóður á Seyðisfirði. Með þessu móti er tryggt að togarinn verður áfram á Seyðis- firði og mun ætlunin vera sú að hann landi þar í framtíðinni og skipti aflanum á milli hinna tveggja frystihúsa, sem á Seyðis- firði eru. Ætti því hið bága at- vinnuástand sem þarna hefur ver- ið um nokkurra mánaða skeið að lagast eitthvað. - S.dór.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.