Þjóðviljinn - 21.11.1984, Blaðsíða 3
FRETTIR
Gengisfellingin - viðbrögð og áhrif
Þjóðviljinn leitaði ígœr álits nokkurra launþega á gengisfellingunni
íkjölfarnýgerðra kjarasamninga
Ástandið
verður
ekki gott
„Ég held að ástandið verði ekki
gott. Launahækkunin verður öll
tekin af okkur og við stöndum í
alveg sama fari og fyrir samn-
inga“, sagði Harald Halldórsson
símaverkstjóri í gær.
„Gengisfellingin kom mér ekk-
ert á óvart. Það hlaut að fara
svona. En ég er hræddur um að
við verðum lengi að vinna verk-
fallið upp. Samningarnir voru
ekki betri en svo að ég skilaði
auðu“, sagði Harald félagi í
BSRB. -jp-
Harald Halldórsson, símaverkstjóri
Kolbrún Guðmundsdóttir, saumakona
Alveg
út í hött!
„Gengisfelling er náttúrlega al-
veg út í hött svona rétt eftir samn-
ingana“, sagði Edda Ásgeirsdótt-
ir meinatæknir og ríkisstarfs-
maður við Þjóðviljann í gær.
„Þeir lofuðu þessu vissulega
strcix í upphafi samninganna og
því er það sem kemur mér mest á
óvart, í þessu öllu saman, að
ríkisstarfsmenn skyldu sam-
þykkja kjarasamningana!"
-jP
Tekur
alla kaup-
hækkunina
„Það er augljóst að gengisfell-
ingin tekur alla kauphækkun
strax til baka vegna þess að vísi-
tölutryggingin fékkst ekki inn“,
sagði Viktor Ingólfsson tækni-
fræðingur í gær.
„Gengisfellingin ætti ekki að
koma neinum á óvart. Henni var
spáð strax í upphafi samninga og
engin neitaði því að sú leið yrði
farin. Skattalækkunarleiðin var
sú leið sem átti að fara í þessum
samningum en nú vill enginn taka
á sig ábyrgðina á því að það var
ekki reynt.“
-ÍP
Meira en
hækkunin
„Þetta verður til þess að meira
verður -tekið af okkur en launa-
hækkunum nemur“, sagði Kol-
brún Guðmundsdóttir sauma-
kona sem er í Iðju.
„Ég er á lágmarkslaunum og
þau hrökkva ekki einu sinni fyrir
matnum núna, hvað þá þegar
gengisfellingarinnar verður farið
að gæta. Samt er ekki hægt að
segja annað en að maður mátti nú
búast við þessu miðað við yfirlýs-
ingar ráðamanna þjóðarinnar
undanfarið.“
-jp.
Viktor Ingólfsson, tæknifræðingur
Edda Ásgeirsdóttir, meinatæknir
Gengisfellingin
Sárstaklega ámælisverð
Miðstjórn ASÍ: Á ábyrgð stjórnarinnar að tryggja kaupmátt samninganna.
Gengisfellingin leysir ekki vanda undirstöðugreinanna
I' samþykkt á fundi í gær for- á milli gengisfellingar og leiðrétt-
dæmdi miðstjórn ASÍ mál- ingar á launakjörum verkafólks.
flutning sem hafður erí frammi I ályktuninni segir einnig:
af forsvarsmönnum gengisfell- „Ríkisstjómin hefur nú með
ingar, sem setja samasemmerki gengislækkun ákveðið með einu
Gengisfellingin
Alvarleg árás
Kristján Thorlacius, BSRB: Fjórðungur
kauphœkkunarinnar þegarfarinn
að er auðséð að með þessari
gengisfellingu er verið að
reyna að keyra samtök launafólks
niður og að minu mati er hér um
að ræða alvarlegustu árásina á
launafólk sem gerð hefur verið
um langt skeið, sagði Kristján
Thorlacius formaður BSRB er
Þjóðviljinn innti hann álits á
gengisfellingu ríkisstjórnarinnar.
Kristján sagði að hagfræðingar
reiknuðu með að þessi eina að-
gerð þýddi að fjórðungur allrar
kauphækkunarinnar sem um var
samið í síðustu kjarasamningum
væri frá fólki tekinn. „Ríkis-
stjórnin treystir greinilega á það
að launamenn nái ekki saman í
órofa andspyrnu gegn þessu ger-
ræði“, sagði Kristján ennfremur.
„Ef launamönnum tekst ekki að
brjóta þessa árás ríkisvaldsins á
bak aftur eru þeir dæmdir til að
búa við smánarkjör um ófyrir-
sjáanlega framtíð. Það er því
meiri þörf á almennri samstöðu
nú en nokkru sinni“, sagði Krist-
ján Thorlacius að lokum.
- v.
pennastriki að skerða verulega
þá kjarasamninga sem undirrit-
aðir voru fyrir 2 vikum síðan.
Gengislækkunin er varin með því
að nauðsynlegt sé að „endurreisa
þau rekstrarskilyrði sem atvinnu-
vegunum voru búin fyrir launa-
hækkanir". Það eru launafólki
nokkur tíðindi að launahækkun
sem ekki er komin til útborgunar
kalli á gengisfellingu. Það sætir
líka nokkurri furðu, að 12-13%
launahækkun hefur á skömmum
tíma verið svarað með 16-17
prósent hækkun á verði gjald-
eyris“.
Síðan er í ályktuninni fjallað
um skattalækkunarleiðina svon-
efndu sem hefði getað leitt til
kjarabóta án þess að illa stæð fyr-
irtæki í sjávarútvegi tækju á sig
verulegar launahækkanir. Þess-
ari leið hafi hins vegar ríkisstjórn-
in sjálf hafnað og gengið til samn-
inga á öðrum grundvelli sem
lögðu línur fyrir heildina. „Það
hlýtur því að vera á hennar
ábyrgð að tryggja kaupmátt
þeirra. í ljósi þessa hlýtur sú ráð-
stöfun ríkisstjómarinnar að fella
gengi með þeim hætti sem nú hef-
ur verið gert að teljast sérstak-
lega ámælisverð“.
Síðan bendir miðstjórn ASÍ á
að vandi undirstöðuatvinnuveg-
anna leysist ekki með gengisfell-
ingu, og misvægi milli atvinnu-
greina muni áfram aukast. Sumar
þeirra blómstri, meðan undir-
stöðugrein á borð við sjávarútveg
á í vök að verjast.
-ÖS
Alþingi
Komið aftan að fólki
Svavar Gestsson: Tilraun til að brjóta
verkalýðshreyfinguna niður. Kaupmáttur
nœsta árs minni en 3. ársfjórðungs 1983
etta er tilraun stjórnarinnar
til að brjóta verkalýðs-
hreyfinguna á bak aftur. Stjórn-
in, sem ber fulla ábyrgð á nýgerð-
um kjarasamningum er að koma
aftan að fólki, hirðir alla
kauphækkunina, hleypir upp
verðbólgunni á ný, sagði Svavar
Gestsson er hann hóf utandag-
skrárumræður um gengisfelling-
una við upphaf fundar Sameinaðs
þings í gær.
Hjá Svavari kom fram, að
gengisfellingin hefði f för með sér
að kaupmáttur launa á næsta ári
yrði minni en á 3. ársfjórðungi
1983! Hann spurði jafnframt for-
sætisráðherra um hvenær hliðar-
ráðstafanir yrðu kynntar, og
hvort forsætisráðherra hygðist
biðjast lausnar í kjölfar yfirlýs-
ingar sinnar um skipbrot stjóm-
arinnar.
Svör fengust engin frá
Steingrími.
Fulltrúar hinna stjómarand-
stöðuflokkanna tóku einnig til
máls og lýstu gengisfellingunni
sem dæmi um ráðþrot og uppgjöf
stjórnarinnar í efnahagsmálum
og hatrammri aðför að launþeg-
um. _ Ig.
Mlðvlkudagur 21. nóvember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3