Þjóðviljinn - 21.11.1984, Blaðsíða 7
Árið 1983
Stórviðburðir í
myndum og móli
Út er kominn 19. árgangur
þessa annáls heimsmálanna í
myndum og máli með íslenskum
sérkafla. Þetta er stór bók, 344
blaðsíður í símaskrárbroti.
Myndirnar í bókinni eru 480 tals-
ins, þar af 230, eða tæpur helm-
ingur í lit. Efnisskipan er svipuð
og undanfarin ár, en þó er alltaf
einhver breyting nánast á hverju
ári. Sjálfur annáll ársins er í tólf
köflum, einn fyrir hvern mánuð
og byrjar hver þeirra á einskonar
fréttaskýringu þar sem fjallað er
um helsta viðburð mánaðarins.
Síðan eru atburðir raktir frá degi
til dags og loks er svo myndaann-
áll mánaðarins.
Á fremstu 16 síðum bókarinn-
ar er kafli sem nefnist „í brenni-
depli á árinu“, þar sem stiklað er
á stærstu atburðum ársins, birtar
hagtölur um alþjóðaviðskipti,
vígbúnað, fólksfjölgun, þróunar-
hjálp o.fl.
Á eftir annál ársins koma
greinar um ýmis mál: alþjóða-
stjórnmál, tækni og vísindi, lækn-
isfræði, kvikmyndir, tísku og
íþróttir. Greinin um alþjóða-
stjórnmál í þessari árbók nefnist
„Tímasprengjurnar í þriðja
heiminum“ og fjallar á mjög at-
hyglisverðan og raunsæjan hátt
um samskipti „Norðurs og
Suðurs". Greinin um vísindi
heitir „Eru skógarnir að deyja?“
og er eftir tvo þýska prófessora.
Greinin um læknisfræði nefnist
„AIDS og önnur læknisfræðileg
fyrirbrigði". Greini um kvik-
myndir nefnist „Árásarhvötinni
svarað" og fjallar hún um mark-
verðustu myndirnar sem fram
komu á árinu og er í henni fjöldi
litmynda. Greinin um tískuna
heitir „Afturhvarf til kvenlegs
þokka“ og gefur nafnið til kynna í
hvaða átt tískan hefur þróast á
árinu. Fjöldi litmynda er í
greininni. Flest öllum greinum
íþrótta eru gerð ýtarleg skil í kafl-
anum um íþróttir, sem er nku-
lega skreyttur litmyndum.
ROBERT
LUDLUM
SVIKA
MYLLAN
«sS?s5'
Svikamyllan
eftir Robert Ludlum
Setberg hefur gefið út bókina
„Svikamyllan" eftir Robert-
Ludlum.
Tannerhjónin höfðu helgar-
boð fyrir þrenn hjón, nánasta
vinafólk sitt. Þá fóru óhugnan-
legir og óskiljanlegir atburðir að
gerast. Húsmóðurinni og börn-
unum er rænt og þau finnast með-
vitundarlaus úti í skógi. Hvað er á
seyði? Er alþjóðlegur glæpa-
hringur hér að verki? Eða kann-
ski gestirnir, einn eða allir? Lög-
reglan er undarlega athafnalítil í
málinu og þegar húsið er um-
kringt og hafin á það skothríð
kastar fyrst tólfunum.
Robert Ludlum er víðlesinn
spennusagnahöfundur enda eru
bækur hans jafnharðan þýddar á
fjölda tungumála og hafa selst í
tugmilljónum eintaka. „Svika-
myllan“ er önnur bókin sem út
kemur á íslensku eftir hann.
Eitt hundrað
og tíu
pottréttir
Setberg hefur gefið út mat-
reiðslubókina „Eitt hundrað og
tíu pottréttir". Á undanförnum
árum hafa pottréttir og alls konar
samansoðnir ofnréttir orðið æ
vinsælli matur, bæði sem dagleg
fæða og sem veislumatur. Kost-
irnir við slíka rétti eru margir.
Það mikilvægasta og um leið
árangursríkasta við pottrétti er,
að þeir eru matbúnir á löngum
tíma, við lágt hitastig (180°C,
350°F) með litlum vökva, í vel
lokuðu íláti.
í þessari nýju matreiðslubók
eru pottréttir úr nautakjöti,
lambakjöti, svínakjöti, fuglum,
grænmeti og fiski svo eitthvað sé
nefnt.
Glæsilegar litmyndir prýða
bókina. Guðrún Hrönn Hilmars-
dóttir húsmæðrakennari hefur
valið, þýtt og staðfært þetta úrval
einstaklega ljúffengra pottrétta.
Tímarit MM
komið út
Út er komið 4. hefti Tímarits
Máls og menningar. Forsíðu þess
prýðir að þessu sinni Tarsan ap-
abróðir af því tilefni að fjallað er
um myndir og teiknimyndasögur
í þrem greinum í heftinu. Ragn-
heiður Gestsdóttir skrifar um
Myndskreytingu barnabóka,
Torben Weinreich rekur sögu
teiknimyndasagna og segir frá
nokkrum einkennum þeirra, og
þekkti ítalski rithöfundurinn
Umberto Eco rýnir í myndmál
myndasögunnar Steve Canyon.
Og í smásögu heftisins, Árásin í
neðanjarðarlestinni eftir Þorra
Hringsson, er skrifað um örlög
mikillar unglingabókahetju.
Upphafsljóðið í heftinu er eftir
franska skáldið Paul Eluard: Ein-
mana heimur í þýðingu Sigfúsar
Daðasonar. Nína Björk Árna-
dóttir, Linda Vilhjálmsdóttir,
Magnea Matthíasdóttir, Anton
Helgi Jónsson og Ameríkumað-
urinn Marc Hudson eiga einnig
ljóð í heftinu, hið síðasttalda er í
þýðingu Sigurðar A. Magnús-
sonar.
Gunnar Karlsson fjallar um
langvinnu deilurnar um sögu-
kennslu í greininni Sögukennslu-
skammdegið 1983-84, og Ástráð-
ur Eysteinsson rifjar upp bók-
menntadeilur frá 4. áratug aldar-
innar í greininni Baráttan um
raunsæið. Ýtarlegir ritdómar eru
um doktorsritgerð Árna Sigur-
jónssonar, skáldsögur Þórarins
Eldjárns og Einars Kárasonar og
verk Matthíasar Viðars Sæ-
mundssonar um Gunnar Gunn-
arsson. í ádrepum segja Halldór
Guðmundsson og Vésteinn Óla-
son tíðindi frá Máli og menningu.
NÝJAR B/ÍKUR
Lífið er
lotterí
Sagan af
Alla ríka
Setberg hefur gefið út bókina
„Lífið er lotterí" sem eru ævi-
minningar Aðalsteins Jónssonar,
útgerðarmanns á Eskifirði.
Aðalsteinn Jónsson, sem oft er
kallaður Alli ríki, er löngu þjóð-
kunnur maður og um hann hafa
gengið ýmsar sögur. Ein útgáfan
er sú, að hann hafi komist
„áfram“ á glópaláni og straumiða
þjóðlífsins borið hann á strönd-
ina þar sem beið hans gull og
grænir skógar. Þá á Aðalsteinn
að hafa verið glaumgosi sem sat á
hóteli meðan honum var malað
gull fyrir austan.
Saga þessi sýnir allt annan
mann en kviksögurnar um hann.
Hún sýnir mann, sem vakir yfir
sínu fyrirtæki, hugsar jafnan sitt
ráð vandlega og framkvæmir
rösklega það sem hann ráðgerir.
Þá er og þessi saga um góðan
dreng, sem man, að hann hefur
verið fátækur og átt bága ævi og
hefur ekki ofmetnast af velgengni
sinni.
í heiti bókarinnar er látið að
því liggja, að bókin sé um tvo
menn, Aðalstein og Alla. Þetta
er auðvitað skilningur bókarhöf-
undar á manninum, að söguhetj-
an sé tvískipt að gerð, útgerðar-
maðurinn Aðalsteinn sé um
margt ólíkur gárunganum Alla,
eins og kunnugir þekkja hann.
„Lífið er lotterí" er 200 blað-
síðna bók og auk þess prýdd
nærri eitt hundrað ljósmyndum.
Bróðir minn
Ljónshjarta
Komin út í kiljuformi
Ævintýrið fræga Bróðir minn
Ljónshjarta eftir Astrid Lindgren
er komin út í annað sinn hjá Máli
og menningu. Þýðingin er eftir
Þorleif Hauksson og myndir eftir
Ilon Wikland. Bókin kom út árið
1976 en hefur lengi verið ófáan-
leg. Eins og kunnugt er hafa Svíar
gert sjónvarpsþætti eftir bókinni
sem nú er verið að sýna hér og
kvikmynd sem einnig hefur verið
sýnd hér á landi.
Þessi útgáfa er jafnframt fyrsta
bókin í flokki pappírskilja frá
Máli og menningu sem ætlunin er
að bjóða á mun lægra verði en
innbundnar bækur. Flokkurinn
ber samheitið UGLUR, og
Bróðir minn Ljónshjarta er fyrsta
BARNAUGLAN.
<1 _ snmvitiHM DLUBOÐ
Juv q\ f HVEITI2 kg
g? HRÍSGRJÓN 1 Ibs HRÍSGRJÓN 2lbs
g? BRÚN HRÍSGRJÓN12 oz
ájjSí SYKUR 2 kg UDDS S
AXI I JJJJ 6 TEGUNDIR í pk
jWkLÐHÍJSR ÚLL UR 1\4 RÚLLURÍpk
^ SA LERNISPA PPÍR 6 RÚLLURÍpk
...vöruverð í lágmarkí
Miðvikudagur 21. nóvember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7