Þjóðviljinn - 21.11.1984, Blaðsíða 6
NYJAR B/íKUR
Austfirðingafélagið í Reykjavík
1904-1984
Austfirðingamót 1984, afmæiisfagnaður, á Hótel
Sögu föstudaginn 23. nóvember.
Dagskrá:
Grímur M. Helgason, formaður félagsins, flytur ávarp.
Jónas Pétursson, fyrrum alþingismaður, heiðursgest-
ur fagnaðarins, heldur ræðu.
Lárus Sveinsson og Ingibjörg Lárusdóttir leika saman
á trompet og píanó.
Kátir karlar???
Jóhann Már Jóhannsson syngureinsöng við undirleik
Guðjóns Pálssonar.
Gísli P. Blöndal fulltrúi stjórnar fagnaðinum.
Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur fyrir dansi
til kl. 3 eftir miðnætti.
Húsið opnað kl. 19.00.
Dagskrá hefst stundvíslega kl. 20.00.
Aðgöngumiðar verða seldir í anddyri Hótels Sögu
miðvikudaginn 21. og fimmtudaginn 22. nóvember
milli kl. 17.00 og 19.00. Borð tekin frá um leið.
1X2 1X2 1X2
13. leikvika - leikír 17. nóv. 1984
Vinningsröð: 1 X 1 - 2 2 1 - 1 1 1 - 2 X X
1. Vinningur: 12 réttir, kr. 32.765.-
42597(4/11) 87574(6/11)+ 91917(6/11) 92733(6/11)
54597(4/11)+ 88331(6/11) 91919(6/11) 92883(6/11)
85729(6/11)+ 89679(6/11) 91920(6/11) 93204(6/11)+
86085(6/11)+ 90132(6/11) 91924(6/11) 94070(6/11)+
2. vinningur: 11 réttir, kr. 874.-
948 37483 46124 58469 87635 + 92731 36015(2/11)
977 37485 46527 + 59885+ 87968+ 92732 38400(2/11) +
1043 + 37487 46985+ 60352 87970 92880 42417(2/11)
2308 37488 47339+ 60401 88300 92882 43291(2/11)
3074 37734+ 48973 + 60420 88561 92884 46880(2/11) +
3076 38053 + 49014 85191 + 88599 92886 47019(2/11)
3948 38329 51788 85278 89580+ 92892 49314(2/11) +
4522 39618 52234 85730+ 89614+ 92901 51479(2/11)
5704 40312 52604 85731+ 90159 92910 58287(2/11)
7045 40322 52723 85732+ 90231 92937 85585(2/11) +
7050 40338 54278 86070+ 90393 93120 181502(2/11)
10681 + 40609 54720 86071+ 90532 93203+ Úr 12. viku:
12609 40962 55171 + 86076+ 90963 93206+
12644 + 41550 55182 + 86091+ 91162 93209+ 56261 +
13766 41679 55184+ 86093+ 91564 93212 + 56721(2/11)
16099 41926 55408 86094+ 91747 93248 56758(2/11)
16520 43035 55652 86152+ 91916 93509+ 57033(2/11)
17822+ 43130 55676 86433 + 91918 93581 + 57379(2/11)
35189 43131 55765 86640 91921 94237 89569+
35441 43523 57501 86932 91922 94254+ 89576+
35442 43529 57719 87315 91923 182222 92182
37481 44700 57822 87316 92315
Kærufrestur er til 10. desember 1984 kl. 12:00 á hádegi. Kærur skulu vera
skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í
Reykjavík. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til
greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa stofni eða senda
stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok
kærufrests.
GETRAUNIR - íþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK
A
Forstöðumaður
óskast
að félagsmiðstöð unglinga, Agnarögn í Kópavogi. Um
er að ræða fullt starf. Umsóknareyðublöð liggja
frammi á Félagsmálastofnun Kópavogs, Digranes-
vegi 12. Umsóknarfrestur er til 5. desember. Nánari
upplýsingar veitir tómstundafulltrúi í síma 41570.
Félagsmálastofnun Kópavogs.
Útboð
Áburðarverksmiðja ríkisins óskar eftir tilboðum í
skurðgröft og lögn ca. 1.775 m af 6“ plastpípu fyrir
neysluvatn. Utboðsgögn verða afhent á skrifstofunni
gegn 500.- kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skilað til Áburðarverksmiðjunnar fyrir
kl. 11.00 þann 28. nóvember 1984.
Áburðarverksmiðja ríkisins.
-|J! Styrkir til háskólanáms
íftf í Danmörku
Dönsk stjórnvöld bjóða fram fjóra styrki handa íslendingum
til háskólanáms í Danmörku námsárið 1985-86. Styrkirnir
eru miðaðir við 8 mánaða námsdvöl en til greina kemur að
skipta þeim ef henta þykir. Styrktarfjárhæðin er áætluð um
3.180 danskar krónur á mánuði. Umsóknum um styrki
þessa skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu
6,101 Reykjavík, fyrir 30. desember n.k.. Sérstök umsókn-
areyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið 19- nóvember 1984.
Orð
endurleppuð
Komin er á markað önnur út-
gáfa bókarinnar „Orðaleppar og
aðrar ljótar syrpur“ eftir Oddn-
ýju Guðmundsdóttur. í bókinni
eru blaðagreinar, útvarpserindi
og ýmiss konar spjall um málfar
og bókmenntir. Höfundur kemur
víða við og er ómyrkur í máli um
skrflmennt, stofnanaíslensku og
aðra óáran.
Bókin kom fyrst út í fyrravor.
Hún er 140 síður og er höfundur
útgefandi.
GUÐMUNDUR DANÍEISSON
KRAPPUR
DANS
JARÐVISIARSAGA
JOAVAFF
Krappur
dans
Jarðvistarsaga
Jóa
Vaff
effir
Guðmund
Daníelsson
Setberg hefur gefið út bókina
„Krappur dans“. Jarðvistarsaga
Jóa Vaff eftir Guðmund Daníels-
son.
Bókin er unnin upp úr drögum
að sjálfsævisögu Jóhanns, sem
hann byrjaði á áttræður að aldri,
en entist ekki líf til að ljúka við.
Höfundinum, bróðursyni Jó-
hanns bárust í hendur þessi drög,
sem hann notaði síðan sem upp-
istöðu þessarar bókar. „Krappur
dans“ er í rauninni samfelld
háska- og hetjusaga manns, sem
yfirgaf foreldrahús sín, Kaldár-
holt í Holtum, nýfermdur á mesta
harðindavori sem yfir landið hef-
ur gengið, 1882. Fram yfir þrítugt
var hann flestum mönnum fátæk-
ari af veraldarauði, en hann
ávann sér slíkt traust mikilsmeg-
andi manna þjóðfélagsins, að
þeir gerðu hann að fulltrúa sínum
og boðbera og fengu honum loks
það verk að finna, sem hann
hafði frá barnæsku óskað sér: að
stýra verslun.
Verslunarsaga Jóa Vaff fléttast
verslunarsögu landsins á feiki-
legum umbrotatíma í viðskipta-
háttum þjóðarinnar. Hann rak
eigin verslun á Eyrarbakka í rúm-
an áratug. Áður hafði hann verið
vikapiltur, sjómaður, lausamað-
ur, vefari, bóndi, pakkhúsmaður
og verslunarstjóri kaupfélags.
Um þrítugt veiktist hann lífs-
hættulega, en hafnaði uppskurði
og sjúkrahúsvist og réðist til sjó-
róðra. Sem bóndi sá hann bæ sinn
hrynja í rúst í jarðskjálftum. Sem
verðandi kaupmaður sá hann
verslunarbúð sína og vörur
brenna til ösku. Áhlaup var gert á
æru hans og afkomu, en hann
stóðst það og bar hreinan skjöld
heim frá sérhverri orrahríð.
Bókin er 200 blaðsíður og auk
þess prýdd sérprentuðum mynd-
um.
SvembjOrti Beinteinssoit
oUskerjorsoái
HEIÐIN
KV4.DABÓK
Heiðin
Kvœðabók eftir
Sveinbjöm Beinteins-
son allsherjargoða
Hörpuútgáfan á Akranesi hef-
ur sent frá sér kvæðabókina
„Heiðina" eftir Sveinbjörn Bein-
teinsson allsherjargoða á Drag-
hálsi í Svínadal.
Á bókarkápu segir m.a.
„Höfundur þessarar ljóðabók-
ar er Sveinbjörn Beinteinsson á
Draghálsi í Svínadal. Hann er
yngstur af átta systkinum frá
Grafardal. Foreldrar hans voru
hjónin Helga Pétursdóttir og
Beinteinn Einarsson. Á heimili
þeirra var ljóðagerð og kveð-
skapur dagleg iðja, sem
Sveinbjörn meðtók með móð-
urmjólkinni. Hann er fæddur 4.
júlí 1924, og er bókin gefin út í
tilefni af 60 ára afmæli hans 4. júlí
1984.
Sveinbjörn hefur átt heima á
Draghálsi síðan 1934 og hefur
stundað búskap frá 1944. Eftir
hann hafa komið út fjögur ljóð-
akver, og að auki „Bragfræði og
háttatal" 1953, kennslubók í
rímna- og vísnakveðskap. Margt
af kvæðum hans hefur birst í
blöðum og tímaritum. Hann hef-
ur í rúman áratug verið allsherj-
argoði Ásatrúarfélagsins og er
hann mörgum kunnur utan lands
og innan vegna þeirra starfa.“
ERUNG POULSEN
\ST OG HATUF
Ást
og hatur
Hörpuútgáfan á Akranesi hef-
ur sent frá sér nýja bók eftir
danska rithöfundinn Erling Po-
ulsen. Bókin heitir „Ást og hatur"
og er 9. bókin í bókaflokknum
„Rauðu ástarsögurnar". Skúli
Jensson þýddi.
Við dauða föður síns uppgötv-
ar Maríanna Biorck að hún er
eignalaus og vinalaus. Hún ræðst
sem stofustúlka á ættarsetur
Wellingtonanna á Englandi. Á
gamla óðalssetrinu gerast undar-
legir atburðir.
Á þeirri stundu er Maríanna
hittir vinnuveitanda sinn, hinn
unga óðalseiganda Ronald Well-
ington, tekur líf hennar nýja
stefnu. Ást og hatur, hinir miklu
örlagavaldar, berjast um yfir-
ráðin í þessari spennandi ástar-
sögu.
Hvunn-
dagsspaug
Kímnisögur
eftir Ephraim Kishon
Hörpuútgáfan á Akranesi hef-
ur sent frá sér bókina „Hvunn-
dagsspaug" eftir Ephraim Kis-
hon, og er þetta fyrsta bók hans
sem út kemur á íslensku. Höf-
undurinn Ephraim Kishon er
fæddur í Búdapest árið 1924, en
flutti til ísrael 1949. Yfir 50
bækur hans hafa verið þýddar á
28 tungumál og seldar í 30
milljónum eintaka.
í bókinni „Hvunndagsspaug"
er að finna 24 kímnisögur um
hversdagsleg atvik sem allir
þekkja.
Róbert Arnfinnsson leikari las
kímnisögur eftir Ephraim Kishon
í útvarpi 1980 og vöktu þær mikla
athygli. Kishon er höfundur sem
kitlar hláturtaugarnar og gerir
óspart grín að sjálfum sér.
„Hvunndagsspaug" er 160 bls..
Ingibjörg Bergþórsdóttir þýddi.
Guðmundur
skipherra
Kjœrnested
Bókaútgáfan Örn og Örlygur
hefur sent frá sér bókina Guð-
mundur Skipherra Kjærnested
skráða af Sveini Sæmunds-
syni blaðafulltrúa. Á bóka-
rkápu segir:
„Hver er eiginlega þessi com-
mander Kjærnested? Hver er
þessi maður sem berst við ofur-
eflið eins og það sé ekki til og
gefst aldrei upp? Þannig spurðu
erlendir blaðamenn sem voru hér
staddir um það leyti sem baráttan
um 50 og síðar 200 mílna fisk-
veiðilögsögu íslendinga stóð sem
hæst. Það voru fleiri en blaða-
menn sem spurðu um Guðmund
Kjærnested. Sjóliðarnir á freigát-
unum, sem ekki gátu orða bund-
ist fyrir áræðni Guðmundar,
þreki hans og staðfestu. Hann
gafst aldrei upp við að verja fisk-
veiðilögsöguna. Þetta var þeim
undrunarefni.
Það er ekki fj arri sanni að segj a
að Guðmundur hafi á þessum
árum verið átrúanaðargoð æði
margra, sem áttu í baráttu við
kúgunaröfl, því fregnir um at-
hafnir hans fóru víða. En hver er
þá þessi maður, sem vakti virð-
ingu og aðdáun þeirra sem
studdu málstað íslendinga og ým-
issa þeirra sem háðu baráttu við
ofurefli og magnstola reiði
þeirra, sem níddust á lítilmagn-
anum?
Saga Guðmundar er baráttu-
saga allt frá barnæsku. Saga sem
hann segir skrásetjara sínum,
Sveini Sæmundssyni, og lesend-
um án allrar tilgerðar og tæpi-
tungu, hvort heldur það snertir
hann sjálfan eða helstu ráða-
menn þjóðarinnar.“
í bókinni eru 32 myndasíður og
eru margar myndanna hinar
sögulegustu.
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 21. nóvember 1984