Þjóðviljinn - 21.11.1984, Side 16
Aðalsfmi: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
IMÓÐVIUINN
Miðvikudaour 21. nóvember 1984 230. tölublað 49. örgangur
Kratar
Kosningar
ekki skilyrði
Ríkisstjórnarþátttaka hugsanleg án þess að
kosið verði
CCII ið því er ekkert endanlegt
V svar“ sagði formaður Al-
þýðuflokks á blaðamannafundi í
gær við spurningu um hvort Al-
þýðuflokkur gæti hugsað sér
ríkisstjórnarþátttöku án kosn-
inga áður.
„Þessi ríkisstjórn er hrunin",
sagði Jón Baldvin, og sagði al-
menning ekki vænta neins af
henni lengur. Frumkvæði að
nýrri ríkisstjórn hlyti að skapast
með því að ríkisstjórnin segði af
sér með einhverjum hætti. Al-
þýðuflokkurinn væri tilbúinn í
aðra stjóm hvenær sem væri. Það
væri hinsvegar „of snemmt að
dæma“ um hvort kosningar væru
nauðsynlegar til að mynda nýja
ríkisstjórn. -m
Loðnuveiðarnar
Athvarf fyrir aldraða.
Kvenfélag Neskirkju hefur nú komið af stað athvarfi fyrir aldraða sem opið verður á þriðjudögum og fimmtudögum kl.
12-17. Boðið er upp á hádegisverð fyrir 100 krónur og auk þess er kaffi og meðlaeti á boðstólum. Handavinnukennari er á
staðnum á þriðjudögum en öllum er frjálst að gera það sem hver vill. Kvenfélagið hefur keypt dýnur og teppi svo gestimir
geti lagt sig ef þeir gerast þreyttir. Einnig voru keyptir góðir stólar auk borðbúnaðar og fleira til starfseminnar.
A myndinni er Gyða Þórðardóttir, gestur í athvarfinu, að prjóna peysu á iangömmutelpuna sína sem er 8 ára gömul.
mynd -eik- _jp
Álsamningurinn
Sverrir lofar auöhringnum tilboði
Stjórn Landsvirkjunar mótmœlir fyrirhuguðum bréfaskriftum ráðherra. Lögmenn ósammála um
„syndakvittunina“. Bandalag Jafnaðarmanna greiðir atkvœði með samningnum
Sverrir Hermannsson iðnaðar-
ráðherra skrifaði Alusuisse
bréf þann 4. nóvember sl. þar sem
hann lýsir þvt yfir að „ríkisstjórn-
in muni afhenda Alusuisse bréf,
þar sem tilgreind verði fyrirhug-
uð kjör og skilmálar varðandi
raforku frá Landsvirkjun“ vegna
fyrirhugaðrar stækkunar Álvers-
ins. Stjórn Landsvirkjunar hefur
fyrir sitt leyti hafnað því að ráð-
herra sendi Alusuisse slíkt bréf.
Þessar upplýsingar komu fram
í framsöguræðu Skúla Alexand-
erssonar við 2. umræðu um nýja
Álsamninginn í efri deild. Sagðist
Skúli krefjast þess að ráðherra
sendi ekkert slíkt bréf frá sér að
óræddu máli. Ljóst er að Alu-
suisse sækist mjög eftir slíku
boðsbréfi frá ríkisstjórninni til að
geta sýnt hugsanlegum með-
eiganda við stækkun verksmiðj-
unnar. Að sama skapi myndi slíkt
boð eyðileggja alla samnings-
stöðu stjórnvalda varðandi
stækkun Álversins.
Skúli Alexandersson réðst
harkalega að hinum nýja samn-
ingi við Alusuisse og skýrði frá
því að á fundi iðnaðarnefndar
deildarinnar með lögmönnum ís-
lendinga í áldeildinni hefði kom-
ið fram að þeir væru ekki sam-
mála um að 3ja miljón dollara
syndakvittunin væri viðunandi.
Þá hefði það einnig komið fram í
nefndinni að þvert ofan í orð ráð-
herra hefði skattákvæðum verið
breytt á þann veg, að niður væri
felld samningsbundin skylda Al-
usuisse til að útvega ísal hráefni
með bestu skilmálum og skilyrð-
um. Hér væri raunverulega verið
að lögheimila „hækkun í hafi“.
Magnús H. Magnússon lýsti
yfir andstöðu Alþýðuflokksins
við Álsamninginn við umræðurn-
ar í gær, en Stefán Benediktsson
sagði Bandalag jafnaðarmanna
myndi greiða honum atkvæði.
Kristín Ástgeirsdóttir lýsti yfir
andstöðu kvennalistans við
samninginn og sagði engu líkara
en íslenska samninganefndin
hefði verið sem leir í höndum Ál-
versmanna.
-lg
Fiskeldistöð í Eiðsvíkinni
Egill Skúli Ingibergsson verkfrœðingur: Höfum áhuga á að ala þar bœði lax og flatfisk í sjóeldistöð
Inni í Elliðaárvogi, beint fyrir
framan þar sem eitt sinn stóð
fræg glerverksmiðja er vík, sem
heitir Eiðsvík. Þeir Egill Skúli
Ingibergsson fyrrverandi borgar-
stjóri í Reykjavík og Jósafat
Hinriksson vélvirki hafa sótt
um það til Hafnarstjórnar
Reykjavikur að koma þar upp
sjóeldistöð fyrir lax og flatfisk.
Hafnarstjórn hefur samþykkt að
vfsa málinu til Borgarráðs.
Við erum með í huga all stóra
eldistöð, þar sem aðallega yrði
alinn lax, en ástæða þess að við
ætlum að vera með flatfisk líka er
sú að flatfiskurinn yrði einskonar
ryksuga. Þannig er að við yrðum
að loka víkina af með stálþili. Þar
með er enginn straumur í vatn-
inu. Þegar eldisfiski er gefið vill
alltaf eitthvað af fæðunni falla til
botns og úldna. Með því að vera
með flatfisk gerum við ráð fyrir
að hann eti það sem botnfellur,
auk þess sem hann grefur sig í
botninn og kemur þar með dálitlu
róti á hann sem er æskilegt. Þetta
sagði Egill Skúli er Þjóðviljinn
ræddi við hann í gær.
Ástæðan fyrir því að loka yrði
víkina af með þili í stað þess að
nota flotkvíar er að um svæðið
gengur lax á leið í Elliðaámar.
-S.dór
Þrjú skip fylltu sig úr
einni nót
Skipin tekin að sigla með loðnuafla sinn til
Fœreyja.
M
okveiði af loðnu hefur verið
allt síðan á laugardag og hef-
ur veiðst svo vel að þess eru dæmi
að þrjú skip hafi fyllt sig úr einni
nót og algengt að tvö skip nái full-
fermi úr nót. Segja má að loðna
finnist nú á miðunum allt frá
Vestfjörðum og að Glettingi.
Sem kunnugt er hefur verið
leyft að veiða 390 þúsund lestir á
þessarri haustvertíð og næstu
vetrarvertíð og hafa þegar borist
á land 240 þúsund lestir af því
magni. Aftur á móti gæti svo farið
að loðnukvótinn yrði enn aukinn
þar sem svo mikið magn af loðnu
er á miðunum.
Það færist nú í vöxt að loðnu-
skipin sigii til Færeyja með afla
sinn, þar sem greitt er helmingi
hærra verð fyrir loðnuna en hér á
landi auk þess sem olía á skipin er
til muna ódýrari í Færeyjum en á
íslandi. -S.dór