Þjóðviljinn - 24.11.1984, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 24.11.1984, Blaðsíða 1
SUNNUDAGS- BLAÐIÐ MENNING Lánasjóður íslenskra námsmanna Tómur í desember Sjóðinn vantar 41,5 miljónir tilþess að geta staðið í skilum við námsmenn fyrir jólin Sýnishom af Ijósrituðum uppsagnarbréfum. Þjóðviljinn skorar á lesendur að skipta ekki við þær hárgreiðslustofur sem hafa sagt upp nemum. Mynd Atli. Lágmarkslaun Uppsagnirnar: tvöfalt brot Á fjórða tug þegar sagt upp. INSÍ stefnir hárgreiðslumeisturum og VSÍ. Samkvæmt lögum á Lánasjóð- ur íslenskra námsmanna að greiða út 58 miljónir króna í des- embermánuði næstkomandi. Sjóðurinn hefur hins vegar ekki nema 16,5 miljónir tU ráðstöfun- ar og vantar þvi 41,5 mifjónir tU þess að geta staðið í skUum við námsmenn. GengisfeUingin og gengissigið í nóvember hefur kostað sjóðinn um 7 miljónir króna nú þegar. Þetta kom fram í samtali sem Þjóðviljinn átti við Hrólf Ölvis- son fulltrúa Stúdentaráðs í Lána- sjóðnum. Sagði Hrólfur að fjár- þurrðin ætti sé ýmsar orsakir svo sem vanreiknuð launagjöld og reksturskostnað upp á 6 miljónir, sérstakt lántökugjald til ríkis- sjóðs sem ekki var tekið tillit til í fjárlögum upp á 8 miljónir, vextir og verðbætur af lánum upp á 3,5 miljónir o.fl. Eins og kunnugt er af fréttum hafa framlög til Lánasjóðsins ver- ið skorin mjög niður á fjárlaga- frumvarpi fyrir næsta ár, þar sem meðal annars er gert ráð fyrir því að fyrsta árs nemar njóti ekki þeirrar fyrirgreiðslu sjóðsins sem þeim hafði verið lofað með yfir- töku víxillána auk þess sem reiknað er með að fyrstaárs nem- ar næsta árs verði að leita til hins almenna bankakerfis. Hrólfur sagði að það myndi í rauninni enga kostnaðar- breytingu hafa í för með sér fyrir sjóðinn að veita þeim fyrsta árs nemum sem hefja nám eftir ára- mótin fyrirgreiðslu, þar sem þeir myndu framvísa skilríkjum sín- um um námsárangur á því fjár- lagaári. Því væri ekki hægt að túlka það öðru vísi en svo, að ver- ið væri markvisst að fæla fólk frá því að hefja nám með því að leggja á það óþarfa kostnað og fyrirhöfn. Sagðist Hrólfur þegar þekkja allmörg dæmi um fólk sem hætt hefur við að fara í nám vegna fjárhagslegrar óvissu. Hrólfur sagði að lokum að það væri augljóslega engin lausn að fresta þeim greiðsluvanda sem sjóðurinn stæði frammi fyrir í desembermánuði fram á næsta ár. Menntamálaráðherra og fjár- veitingarvaldið yrði að leysa vandann hið snarasta. ólg. Yfir þrjátíu hárgreiðslunemum hefur nú verið sagt upp í skipulagðri herferð stjórnar meistarafélagsins. Iðnnemar bentu á blaðamannafundi í gær á að um tvöfalt brot er að ræða: í fyrsta lagi eru skýr samningsá- kvæði um mánaðar uppsagnar- frest, en nemunum er sagt upp með viku fyrirvara, í öðru lagi er bannað í lögum að segja hópi fólks upp vegna kjaradeilna. As- mundur Stefánsson forseti ASÍ hefur haft afskipti af málinu og rætt við formann meistarafélags- ins en allt komið fyrir ekki. Uppsagnarherferðinni er hrundið af stað vegna þess að meistararnir vilja ekki borga um- samið lágmarkskaup, 14075 krónur á mánuði. Meistarar fell- du samningana 1981 og hafa hingað til borgar um 40% lægra kaup en aðrir iðnnemar fá. Mál iðnnema gegn VSÍ var þingfest í félagsdómi í fyrradag, en þeir telja að einstök félög vinnukaup- enda geti ekki fellt samninga VSÍ. Vinni nemarnir málið verða meistarar að greiða töluverðar fúlgur sem vangreitt kaup í þrjú ár. Tapi þeir málinu virðast samningar VSÍ að hluta ógildir. „ASIer hundrað prósent me>_ okkur“ segja iðnnemar. Sveinafélagið fylgist vel með framvindu málsins, en næsta skref nemanna er að kæra hvem einstakan meistara og félagið allt vegna uppsagnanna. -m Bensín og olía ASÍ Þing sett 35. þing Alþýðusambandsins verður sett á Hótel Sögu á mánu- dagsmorgun. Um 500 þingfulltrú- ar sitja þingið, þar af um þriðj- ungur konur. Að sögn Ásmundar Stefáns- sonar forseta sambandsins munu skipulags- og kjaramál verða meginmál þingsins sem stendur út alla næstu viku. Fjölmargir er- lendir gestir frá Evrópu og Bandaríkjunum munu sitja þing- ið. Fyrir þinginu liggja ýmsar til- ‘lögur frá miðstjóm ASÍ, þ.á.m. tillaga um fjölgun í miðstjórn og um að bæta við einum varafor- seta. -Ig. Stórfelld verðhækkun Kristján Ragnarsson: Eykur kostnað útgerðar um 400 miljónir á ári Meirihluti verðlagsráðs sam- þykktí í gær stórhækkun á bensíni og olíu gegn atkvæðum fulltrúa ASÍ og BSRB sem áður höfðu óskað eftir frestun á hækk- unum en verið syqjað. Bensínlíterinn hækkar um 13.6% eða úr 22.70 kr. í 25.80. Olíufélögin höfðu farið fram á 19% hækkun. Gasolía hækkar um 20% eða í 10.70 kr. hver ltr. en olíufélögin fóm fram á 39% hækkun og svartolíulíterinn hækkar um 28.6% eða 10.400 kr. tonnið en olíufélögin fóm fram á 48% hækkun. Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ sagði í gær að þessi hækkun á olíu myndi þýða um 400 miljón króna kostnaðarauka fyrir út- gerðina á ári. Aðalfundur LÍÚ sem lauk í gær mótmælti harðlega þessari hækkun og beindi því til fulltrúa sinna í Verðlagsráði sjáv- arútvegsins að samþykkja ekki fiskverð nema tryggt sé að það standi undir þessum gífurlega kostnaðarauka. Georg Ólafsson verðlagsstjóri sagði í samtali við Þjóðviljann að hækkunarbeiðnir olíufélaganna hefðu verið skomar niður með því að lækka álagningarprósentu og með því að stefna að jöfnun um. * ^ja sem félögin höfðu innkaupareiknings á 9-10 mánuð- far*ð ^ram Ölympíumótið Helgi vann Hort Helgi Ólafsson tefldi af miklu öryggi á Olympíuskákmótinu f gærkvöld er hann sigraði tékkneska stórmeistarann Hort f glæsilegri skák. Helgi fómaði peði snemma f skákinni og fékk rýmrí stöðu sem hann nýtti sér til fullnustu. Þeir Margeir og Jón L. gerðu báðir jafntefli við sína andstæðinga en Karl Þorsteins tapaði og lyktaði því viðureigninni við Tékka með jafntefli 2-2. Eftir þessi úrslit er íslenska karlasveitin í 4.-10. sæti með 13V4 vinning en Sovétmenn eru efstir með 15Ví> og 2 biðskákir gegn Bretum sem eru í 3. sæti með 13Vi vinning en Rúmenar eru í 2. sæti með 14Ví> vinning. Kvennasveitin tefldi gegn Spánverjum og tapaði 2Vi-Xh. Sigurlaug náði jafn- tefli en Guðlaug og Ólöf töpuðu sfnum skákum. -Ig. '

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.