Þjóðviljinn - 24.11.1984, Blaðsíða 6
1
BERGÞÓRA ÁRNADÓTTIR
HALLGRÍMUR BERGSSON
FOSS
JÓN G. RAGNARSSON
SVERRIR STORMSKER
HALLDÓR FANNAR
INGVI ÞÓR KORMÁKSSOr
&CO
ÞRYMUR
ÞÓR GÍSLASON
RON
HALLGRÍMUR BERGSSON
MAGNÚSÞÓR
RADÍUS
OCOPOCO
SIMON BELLO & DUPAIN
1
i
GRAFÍK
OTZJÍ QTZJÍ OTZJÍ
TAKTLAZK
TAPPI TÍKARRASS
ÞARMAGUSTARNIR
MEÐ NÖKTUM
BYLUR
BAND NÚTÍMANS
JOÐ EX
ÁST
D/EGURTÓNLIST
PAX VOBIS
Þeir fólagar úr Pax Vobis
(Friði yðar) hafa vakið talsveröa
athygli á síðustu misserum fyrir
vandaða spilamennsku, og fyrir
að auka smávegis á fjölbreytnina
f íslenskum poppveruleika.
Hljómsveitina skipa fjórir ungir
tónlistarnemar: Þorvaldur Þor-
valdsson sem leikur á aítara,
Skúli Sverrisson á bassa, Asgeir
Sæmundsson rokkara á radd-
bönd, synþesæsir og flygil og
Steingrfmur Óli Sigurðsson á
trommur og slagverk, en hann ku
vera nýjasti meðlimurinn í grúpp-
unni.
Drengimir leika einhverskon-
ar dramatískt fönk-rokk og
bregða einnig fyrir sig bræðings-
sveiflum, án þess þó að það verði
áberandi. Það, sem ræður ríkjum
fyrst og fremst hjá Pax Vobis,
virðist vera sú stefna og áhugi að
gera eitthvað skapandi í tónlist-
inni, feta kannski ekki alls ó-
troðnar slóðir en stefna frekar í
framsækna átt á sinn hátt.
Þorvaldur þykir mér skemmti-
legur og lifandi gítarleikari,
leikur hans er fínlegur og tækni-
legur, en skapandi. Finnst mér þó
að hann hefði mátt njóta sín
meira en hann gerir á þessari
fyrstu plötu Pax Vobis. Sverrir er
góður bassaleikari og efnilegur,
kannski heldur skólaður en á
framtíðina fyrir sér. Ásgeir er
nokkuð mergjaður í leik sínum á
hljóðgerfilinn en slíkt er því mið-
ur ekki hægt að segja um söng-
inn, sem einhvernveginn virðist
vera yfirborðskenndur, eða alls
ekki einlægur. Til lengdar
þreytist maður á söngnum hægt
og bítandi og óskar að Ásgeiri
hlotnist sú gæfa að snúa af þessari
línu í túlkun sinni. Steingrímur
Óli er vel þroskaður trommu-
leikari, ræður bæði yfir tækni og
krafti sem umlykur öll lög á
plötunni.
öll lögin eru sungin á ensku, og
finnst þeim í Friði yðar eflaust
eins og svo mörgum íslenskum
popptónlistarmönnum þægilegra
að semja á enska tungu. í því
sambandi er það þó ætíð svo að
um einhverskonar fyrirslátt er að
ræða, engin veruleg einlægni í
fyrimími; jafnvel feimni. Ef hinn
stóri heimur freistaði ekki jafn
mikið og hann gerir yrði kannski
um meiri drif og dirfsku í íslenskri
textasmíð.
s
SATT
Um gott framlag SATT til ís-
lenskrar alþýðutónlistar efast
fáir, held ég. Framtak þeirra sem
að baki standa SATT er gustuka-
verk þarft og gott. Þrjár SATT
„safnplötur" litu dagsins Ijós fyrir
all nokkru. Inntak hverrar skífu
fyrir sig ólíkt: plata eltt alíslensk
að upplagi, þ.e. textar og lög
hvort tveggja hérlenskt, plata
tvö með enskum textum og
þrlðja platan eröll á nýju línunni,
æsilegri og róttækari en hinar
tvær. Satt að segja hefur þessi
niðurröðun tekist bærilega vel,
samræmi einkennir plöturnar að
mestu, þó svo segja mætti að
þau lög sem skara framúr að
gæðum eigi á hættu að týnast (
allri þessari misgóðu afurð.
Ekki verður lagt út í sérstaka
greiningu laga eða texta SATT-
platna. Margt finnst hér athyglis-
vert og vandað og ætti sérhver
áhugamaður um alþýðupopp hér
á landi ekki að láta þessar þrjár
plötur framhjá sér fara.
Þeir, sem telja sig eiga vænan
minningargrip í plötunni Rokk í
Reykjavík, geta óhikað bætt
SATT1,2 og 3 í safnið. Hver veit
nema hér sé komin hin eina sanna
alþýðutónlist okkar íslendinga
sem átt hefur bflskúrum að mestu
leyti tilveru sína að þakka? Þar að
auki eru SATT-plöturnar 3, sam-
an í einum pakka, á sama verði og
ein venjuleg hljómplata.
9A
KAN
Ert'í ræktinni, kannsk’í lík-
amsræktinni? Nú, ef svo er, þá er
sá möguleiki fyrir hendi að þú
hafir gaman af nýrri plötu frá nýrri
hljómsveit, Kan, í rcektinni. Þar
fara gumar bolvlskir, flestir utan
söngvarinn - sem suma rekur
kannski minni til - gamall í brans-
anum og ræktað margt um dag-
ana: Herbert Guðmundsson.
Tónlistin sem Kan spilar er stfl-
uð inná dansvilja fólks, átaka-
laust, vel, vandað popp-rokk sem
flestir íslendingar segjast hafa í
hávegum, ef marka má skoðana-
kannanir og „spurningar dags-
ins“. Hér ræður því tillitssemin
við almenning ríkjum sem
fullkomnast í textablaðsleysi.
Skáldgyðjan hefur verið víðs
fjarri þeim sem sátu og settu sam-
an orð á Kan-bænum, en það ger-
ir heídur ekkert til ... dansiði
bara...
Átta eru lögin og flest í sama
popp-dúr, utan eitt sem sker sig
verulega úr: Megi sá draumur;
þar sem engu er líkar en Brian
Ferry úr Roxy Music sé lifandi
kominn til að syngja fyrir Her-
bert. En Hebbi var það heillin.
Herberg má vel við bolvíska fé-
laga sína una sér og öðrum til
dansræktar.
9 A
ORÐSENDING
til
viðskiptamanna
Brunabótafélags Islands
Brunabótafélagið telur ekki við hœfi að
lofa í auglýsingu prósentuafslœtti af bif-
reiðaiðgjöldum fyrir árið 1985, þar sem
iðgjöld þess árs verða ekki ákvörðuðfyrr
en í febrúar 1985.
Brunabótafélagið mun að sjálfsögðu hér
eftir sem hingað til veita viðskipta-
mönnum sínum hin bestu kjör.
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS