Þjóðviljinn - 24.11.1984, Síða 2
FRETTIR
Bankarnir
Ótrúleg gjaldeyrissala
Síðustu vikuna fyrir gengisfellingu seldu viðskiptabankarnir gjaldeyrir
fyrir á annan miljarð króna
Síðustu 5 dagana fyrír gengis-
fellinguna á dögunum var slík
gjaldeyrissala hjá viðskipta-
bönkunum, að elstu starfsmenn
þeirra muna ekki annað eins. Enn
liggur ekki ljóst fyrir hve mikill
gjaldeyrir var seldur þessa daga,
en Ijóst er að það var vel á annan
mijjarð króna. Síðustu dagana
fyrir gengisfellinguna keypti
Landsbankinn gjaldeyri af Seðla-
banka fyrir 371 miljón króna, Út-
vegsbanki 222,5 miljónir og þar
af 70 miljónir síðasta daginn og
Búnaðarbankinn fyrir 100,6 milj-
ónir, þar af 60 mi|jónir síðasta
daginn.
Það sem vekur mesta athygli er
að Landsbankinn skuli hafa
keypt svo mikinn gjaldeyri,
vegna þess að hann gerir það nán-
ast aldrei, hann skiiar inn gjald-
eyri til Seðlabankans.
Ástæðan fyrir þessari miklu
gjaldeyrissölu er sú, að kaup-
menn leystu út vörur í stórum stíl
fyrir gengisfellinguna og eins var
mikið um það að þeir, sem skuld-
uðu mikið í erlendum gjaldeyri,
greiddu skuldir sínar, eins og
hægt var. Til að mynda munu
olíufélögin hafa keypt mikið af
gjaldeyri fyrir gengisfellingu, til
að greiða sínar skuldir.
Til samanburðar má geta þess
að gjaldeyrissala Seðlabankans
til viðskiptabankanna var 50%
hærri þessa viku fyrir gengisfell-
ingu en á sama tíma í fyrra ef
framreiknað er og 65% hærri en
frá 1. til 16. nóvember sl.
S.dór
Leiklist
Þrír ein-
þáttungar
Neytendasamtökin
Þingað
um helgina
Félagsmönnum í Neytenda-
samtökunum hefur fjölgað um
25% frá því sl. vor og telur stjórn
samtakanna að þar sé einungis
um að ræða upphafið að enn
meiri sókn þeirra til aukinna áh-
rifa.
Samtökin halda árlegt þing sitt
á morgun, sunnudag, en þar mun
m.a. rætt um samkeppnishömlur,
hringamyndanir og neytenda-
vemd. Frummælendur verða Vil-
hjálmur Á fundinum verður kos-
ið um nýjan formann samtak-
anna, en Jón Magnússon núver-
andi formaður gefur ekki kost á
sér.
Leikfélög
Hafnarfjarðar,
Kópavogsog
Mosfellssveitar
frumsýna í
Bœjarbíói
Hafnarfirði í kvöld
Ikvöld kl. 20.00 frum-
sýna þrjú áhugamanna-
leikhús á höfuðborgarsvæðinu
þrjá stuttu einþáttunga í Bæjarbí-
ói í Hafnarfirði. Það eru Leikfé-
lag Hafnarfjarðar, Leikfélag
Kópavogs og Leikfélag Mosfells-
sveitar sem hafa tekið saman
höndum um þessa sýningu.
Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir
einþáttunginn „Veislan“ eftir
ungverska skáldið Ferenc Moln-
ár en Vigdís Finnbogadóttir
þýddi á íslensku. Leikstjóri er
Pétur Einarsson en alls koma 13
Finnur Magnússon og Helga Harðardóttir sem Hann og Hún f Brúð-
kaupsferðinni, einþáttungnum sem Leikfélag Kópavogs sýnir.
Mynd- Atii.
leikarar fram í sýningunni.
Leikfélag Kópavogs sýnir
„Brúðkaupsferðina“ eftir Dorot-
hy Parker. Leikendur eru aðeins
tveir, Hann sem Finnur Magnús-
son leikur og Hún sem Helga
Harðardóttir leikur. Leikstjóri er
Bergljót Stefánsdóttir sem þýddi
verkið ásamt Helgu.
Leikfélag Mosfellssveitar
flytur einþáttunginn „Ferðin til
skugganna grænu“ eftir Danann
Finn Methling. Aðeins eitt hlut-
verk er í leiknum sem Guðfinna
Sigurðardóttir fer með, en hún
flytur lífshlaup konu frá fæðingu
til dauða. Leikstjórar og aðstoð-
armenn eru þau Bjarni Stein-
grímsson, Guðmundur Davíðs-
son, Jón Sævar Baldvinsson og
Guðrún Árnadóttir.
Eins og fyrr sagði er frumsýnig
einþáitunganna í Bæjarbíói
kvöld, 2. sýning á þriðjudags-
kvöld kl. 20.30 og 3. sýning á
fimmtudagskvöld á sama tíma.
-*g
FRÉTTASKÝRING
Bankarnlr græddu alla vega á
gengisfellingunni þó enginn
annar hafi gert þaðl
Þroskahjálp
Selja
hljómplötu
og almanak
Landssamtökin Þroskahjálp
standa í stórræðum um þessa
helgi því þá mun verða gengið í
hús á Stór-Reykjavíkursvæðinu
og fólki boðið að kaupa forláta
almanak og gullfallega hljóm-
plötu sem samtökin voru að gefa
út.
Almanakið gjldir um leið sem
happdrættismiði og er m.a. Fiat
Uno bifreið í vinning, sem dreg-
inn verður út 31. janúar nk.. Að
þessu sinni prýða almanakið
grafíkmyndir eftir 13 íslenska
listamenn en þar er um að ræða
samvinnu Þroskahjáipar og fé-
lagsins íslensk grafík. Almanakið
kostar aðeins 200 kr.
Hljómplatan, sem út kom í
þessari viku, heitir Laufvindar.
Þar koma fram tæplega 40 lista-
menn og gefa þeir allir vinnu sína
til styrktar þeim málefnum sem
Þroskahjálp vinnur að. Platan
verður eins og áður seld hús úr
húsi en auk þess er hún til sölu í
hljómplötuverslunum.
Sala almanaksins og hljóm-
plötunnar fer fram í dag, laugar-
dag, og á morgun. Verður von-
andi tekið vel á móti sölufólki
enda til styrktar góðum málstað.
Einokunarverslunin
Meðlag til ALUSUISSE
9.6 miljónir dollara greiddir með raforku til stóriðju 1983. Forstjóri Landsvirkjunar viðurkennir að
almenningur beri hallann af viðskiptunum við Alusuisse.
Halldór Jónatansson fram-
kvæmdastjóri Landsvirkjunar
gerði merkilega játningu hér í
blaðinu í gær. í athugasemdum
við fréttaskýringu viðurkennir
hann í fyrsta skipti að almenn-
ingsveiturnar hafi greitt niður
orkuna til stóriðju á árinu 1983,
og er niðurstaða hans að þessi
niðurgreiðsla hafi numið 5 milli-
dölum á kflówattstund eða 15%
af orkuverðinu. Landsvirkjun
seldi á þessu ári 1939, 2 gígawatt-
stundir til almenningsveitnanna
og lætur þá nærri að niður-
greiðslan nemi 9,6 miljónum doll-
ara, sem mun fara hátt í að greiða
öll starfslaun starfsmanna við ál-
verið í Straumsvík svo dæmi sé
tekið. Auk þess viðurkennir hann
að sá kostnaður sem felst í af-
gangsorku kerfisins sé eingöngu
bókfærður á almenningsveiturn-
ar f útreikningum Landsvirkjun-
ar, og nemi þessi kostnaðarauki
sem almenningsveiturnar eigi að
bera einar um 10 millidölum eða
þriðjungi raforkuverðsins.
Með því að draga fjöður yfir
þessar veigamiklu forsendur í út-
reikningum sínum gat Halldór
þannig leitt rök að því í viðtalinu
við Morgunblaðið að verðið til
ísal hefði ávallt verið réttlátt og
hagstætt fyrir íslenska raforku-
neytendur og færi sífellt batn-
andi.
En Halldóri bregst enn boga-
listin þegar hann í síðari hluta at-
hugasemdar sinnar fer að vitna í
skýrslu sem Orkustofnun og
Landsvirkjun gerðu á sínum
tíma, þar sem komist var að þeirri
niðurstöðu að sögn Halldórs, að
„rafmagnssalan til ísal hafi ekki
leitt til hækkunar á verðinu til al-
menningsveitna nema síðursé“. í
fyrsta lagi stangast þessi fullyrð-
ing á við þá yfirlýsingu Halldórs
sjálfs, að verðið til almennings-
veitna hefði lækkað um 5 milli-
dali á árinu 1983 ef stóriðjan
hefði greitt samkvæmt gjaldskrá
Landsvirkjunar. í öðru lagi mis-
túlkar hann niðurstöður um-
ræddrar skýrslu, en samkvæmt
forsendum höfunda skýrslanna
olli hið lága orkuverð til ísal
hækkun á orkuverði til almenn-
ingsveitnanna allt frá árinu 1977.
Sú skýring Halldórs, að orku-
verð sé óeðhlega hátt nú vegna
þess að almenningsveiturnar en
ekki ísal hafi greitt of lágt verð
fyrir orkuna á árunum 1971-1982
er býsna fróðleg. Ekki síst í ljósi
þess að sumarið 1982 var orku-
verð til almenningsveitnanna um
50% hærra en áætlaður kostnað-
ur við öflun viðbótarorku á með-
an orkuverðið sem ísal greiddi
var Vs af verðinu til almennings-
veitna og 65% undir áætluðum
kostnaði við öflun viðbótarorku
til stóriðju. Auðvitað hefði mátt
hækka verðið til almennings-
veitnanna enn meira á þessum
tíma og bæta þannig eigin fjár-
hagsstöðu Landsvirkjunar. En
það breytir ekki því dæmi að fyr-
irtækið er rekið með bullandi tapi
vegna orkusölunnar til ísal, og
þetta tap er fært yfir á orkureikn-
inga almennings sem greiða verð
fyrir orkuna sem er langt yfir
kostnaðarverði, eins og fram-
kvæmdastjórinn hefur sjálfur
rakið í umræddri athugasemd.
Annað atriði sem vert er að
benda á í skýringum forstjórans á
hinu háa orkuverði til almenn-
ingsveitnanna er að hann rekur
helming orkuverðsins til vaxta-
greiðslna. Það er ekki nema eðli-
legt að það komi forstjóranum á
óvart að fjármagn kosti peninga,
því í verðútreikningum Lands-
virkjunar á orkunni til Alusuisse
hefur stofnunin jafnan gert ráð
fyrir að þeir fjármunir sem þjóðin
hefur fjárfest í mannvirkjum
Landsvirkjunar eigi ekki að bera
ávöxt. Viðskiptareglum Halldórs
Jónatanssonar má líkja við kaup-
mann sem verðleggur vöru sína
út frá þeirri forsendu að stanslaus
sala sé í versluninni allan sólar-
hringinn og án þess að taka eðli-
legan fjármagnskostnað inn í
vöruverðið. Slíkur kaupmaður
myndi ekki halda velli lengi í
frjálsri samkeppni á Laugavegin-
um eða í Austurstrætinu. En
Halldór Jónatansson stundar
ekki viðskipti sín samkvæmt regl-
um hins frjálsa markaðs. Hann er
í hlutverki faktorsins í þeim ein-
okunarviðskiptum sem hér er um
að ræða, og hann getur verið þess
fullviss að fá upp í hallarekstur-
inn úr vösum hinna íslensku
þegna. Og það eru frjálshyggju-
postularnir sem þessa dagana eru
að löghelga þessa viðskiptahætti
nýlendustefnu og einokunar á
löggjafarsamkundu þjóðarinnar.
Ólafur Gíslason
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. nóvember 1984