Þjóðviljinn - 18.01.1985, Page 1
LANDIÐ
GLíTAN
Fisksjúkdómar
Laxeldi undir smásjána
Skœður nýrnasjúkdómur hefurfundist ífiskeldisstöð ríkisins í Kollafirði.
Hrogn og seiði hafa fariðfrá stöðinni um allt land
Ljóst er að það þarf að rann-
saka allar fiskeldisstöðvar á
landinu, þar sem nýrnasjúkdóm-
ur í laxi hefur fundist í fískeldis-
stöð ríkisins í Kollafírði. Þetta
kemur fram í viðtali Þjóðviljans
við Sigurð Helgason, físksjúk-
dómafræðing á Keldum, sem birt
er inní blaðinu.
Jón Páll
Borðar
fyrír
1300 kr
á dag
Þjóðviljinn
bauð kappanum
í mat í gcer
Aflraunamaðurinn Jón Páll
Sigmarsson þarf að borga
1300 krónur fyrir þann mat
sem hann eturá degi hverjum
fyrir stórkeppni einsog þá
sem hann áframundan. Þjóð-
viljinn bauð honum að gamni
að greiða fyrir hann mat í einn
dag, en með honum á mynd-
inni er sonurinn Sigmar fyrir
framan dagskammtinn eða
svo. Jón Páll og fleiri afreks-
menn í íslenskum íþróttum
koma við sögu í Sunnudags-
blaði Þjóðviljans sem kemur
út á morgun. Ljósm. E.ÓI.
Aö ákvörðun landbúnaðarráð-
herra er búið að setja fiskeldis-
stöðina í Kollafirði í einangrun,
en þar fundust talsverð einkenni
nýrnaveiki í yfir tíunda hluta
klakfisksins. Enn hafa þó ekki
fundist merki um pestina í
seiðum og því bendir allt til að
hún hafi borist með villtum fiski
inní stöðina.
Kollafjarðarstöðin er hin
langstærsta á landinu, og hrogn
og seiði hafa farið frá henni um
allt land. Uppkoma veikinnar í
Kollafjarðarstöðinni er því mjög
alvarleg, þar sem ekki er loku
skotið fyrir að sjúkdómurinn sé
kominn í aðrar fiskeldisstöðvar,
sem hafa verslað við Kollafjarð-
arstöðina, og jafnvel líka lax-
veiðiárnar þar sem seiðum frá
stöðinni hefur verið sleppt.
Meinvætturinn sem veldur
sjúkdómnum getur borist innan í
hrognum, þannig að sótthreinsun
á hrognum er ekki nægileg vörn
gegn nýrnaveikinni.
Fiskeldismenn víða um land
bíða nú milli vonar og ótta hvort
veikin stingi víðar upp kollinum.
S.dór/ÖS.
Sjá bls. 3
Ratsjármálið
Viik andstaða á Vestfjörðum
Pétur Pétursson lœknir í Bolungarvík: Utanríkisráðuneytið breiðiryfir
kjarna málsins. Skiparatsjáin er múturfrá Bandaríkjamönnum
Við lítum á ratsjárstöðvar sem
hernaðarmannvirki og ótt-
umst slík mannvirki við okkar
heimabyggð. Við tcljum slíka
framkvæmd lið í vígbúnaðar-
kapphlaupinu og því siðlausa
stefnu og ranga.
Þannig segir í fréttatilkynningu
1. desemberhópsins á norðan-
verðum Vestfjörðum, sem skipu-
lagt hefur andóf á svæðinu gegn
fyrirhugaðri ratsjárstöð í Stiga-
hlíðarfjalli.
Magnús Ingólfsson bóndi og
kennari á ísafirði sagði að hópur
þessi væri skipulagður á ísafirði,
Bolungarvík, Súðavík og Onund-
arfirði, og að nú væri í bígerð að
hópurinn gæfi út blað í samvinnu
við ratsjárstöðvaandstæðinga á
Norð- Austurlandi.
Varnarmáladeild og Ratsjár-
nefnd áttu opinn fund með bæjar-
stjórn og bæjarbúum í Bolungar-
vík 3. janúar síðastliðinn. Pétur
Pétursson læknir í Bolungarvík
sagði í samtali við Þjóðviijann að
þetta hefði verið ágætis áróðurs-
fundur þar sem fuiltrúar varn-
armáladeildar hefðu forðast að
ræða kjarna málsins, sem er
hernaðarlegt hlutverk þessara
mannvirkja, varnarstefna fslands
og hernaðarstefna Bandaríkj-
anna og Nato í norðurhöfum.
Sagði Pétur að Sverrir Haukur
Gunnlaugson frá Varnarmála-
deild hefði huggað fundarmenn
með að ekki myndi koma til
skyndilegrar kjarnorkustyrjaldar
og að ráðrúm myndi gefast til ým-
issa aðgerða. Það væri einmitt
hlutverk ratsjárinnar að auka að-
vörunartímann.
Sverrir Haukur sagði jafnframt
að Bandaríkjamenn hefðu tekið
vel í það að kosta sérstaka skipa-
ratsjá á Stigahlíðarfjalli, en hann
vék sér hins vegar undan því að
svara hvers vegna þeir vildu kosta
slíka ratsjá. „Hér er auðvitað um
hreinar mútur að ræða“, sagði
Pétur.
Pétur sagði að 1. desember-
hópurinn væri nú að undirbúa
upplýsingaherferð um málið auk
þess sem aðgerðir væru í undir-
búningi, þar sem fólki yrði gert
' kleift að tjá sig um málið.
-ólg.
Sjá bls. 11
GCPF4N
er heitið á nýjum blaðhluta sem
hefur göngu sína í Þjóðviljanum í
dag. Þar mun birtast efni sem
samið er fyrir og af yngri kynslóð-
inni og vonast Þjóðviljinn til að
þeim aldurshópum þyki einhver
glæta í framtakinu. Þátturinn
mun vera einu sinni í viku til að
byrja með. í dag kynnum við
starfsemi Felláhellis í Breiðholti
og birtum myndir af krökkum
þaðan, vinsældalistar Fellahellis
og Rásar 2 eru á sínurn stað og
ungur og upprennandi höfundur
sem gegnir nafninu Pétur frá
Holti leyfir okkur að sjá nýjustu
afurð sína.
Sjá bls. 7-8