Þjóðviljinn - 18.01.1985, Side 2
FRETTIR
Jólahappdrœttin
Minni sala hjá flestum
Samt nokkuð ánœgðir með okkar hlut, segja forráðamenn
styrktarfélaganna. Alltfrá 1 /3 uppí2/3 vinninga gengur ekki út
Við kvðrtum ekki, útkoman er
mjög svipuð og í fyrra en
kannski ívið verri, voru nær sam-
dóma svör forráðamanna þeirra
líknarfélaga sem standa fyrir ár-
legum happdrættum sínum um
jólaleytið, er Þjóðviljinn spurðist
fyrir um innkomu og útdeilingu
vinninga.
Hjá flestum happdrættunum
lendir um þriðjungur til helming-
ur af vinningum á eigin miðum
félaganna, en dæmi eru um að 2/3
aðalvinninga sitji eftir hjá happ-
drætti.
Sigurður Magnússon hjá
Styrktarfélagi lamaðra og fatl-
aðra sem stendur fyrir símanúm-
erahappdrætti sagði að útkoman
núna hefði verið í betra lagi. 11%
aukning hefði orðið í miðasölu
frá því árið á undan. Af 5 bílum í
vinninga hefðu 3 gengið út.
Tómas Sturlaugsson hjá
Styrktarfélagi vangefinna sagði
að nokkurs samdráttar hefði gætt
í happdrættissölunni og þar hefði
afkoma fólks sjálfsagt ráðið ein-
hverju um. Líklega myndi um
þriðjungur vinninga ekki ganga
út.
Þorvarður Örnólfsson hjá
Krabbameinsfélaginu sagði að
útkoman hefði verið nokkuð
nærri því sem var árið á undan en
einhver samdráttur hefði orðið.
Ríflega helmingur útgefinna
miða hefði selst og vinningar
gengið út í sama hlutfalli.
Hreinn Garðarsson hjá SÁÁ
sem gekkst fyrir stórhappdrætti
um jólin sagði útkomuna hafa
verið sæmilega en menn væru
ánægðir með árangurinn. Alls
voru gefnir út 225 þús. miðar í
happdrættinu og af 15 bílum í að-
alvinning væru 5 þegar gengnir út
og þeir gætu orðið fleiri. - lg.
Það er ekki skrítið þótt forráða-
menn happdrættanna séu
ánægðir með sinn hlut. 2 af
hverjum 3 vinningum ganga
ekki út!
Eldsvoði
íkveikja?
Stórtjón er þakið á
fyrrum
verksmiðjuhúsi í
Ánanaustum brann
Talið er víst að kviknað hafi í af
mannavöldum er mikill eldur
kom upp í þaki í fyrrum verk-
smiðjuhúsi Péturs Snælands við
Ánanaust. Vart var við eldinn
skömmu eftir kl. 9 í gærmorgun
og magnaðist hann fljótt. Allt
slökkviliðið í Reykjavík var kall-
að á vettvang og tókst að ráða
niðurlögum eldsins um hádegið.
Þakið á húsinu er alveg ónýtt en
húsið var autt fyrir.
„Húsið hefur staðið hálfopið
að undanförnu. Við höfum reynt
að byrgja fyrir glugga og dyr en
krakkar og aðrir hafa ávallt brot-
ið sér leið þarna inn. Ég tel alveg
víst að eldur hafi verið borinn að
þakinu því það er ekkert rafmagn
á húsinu. Við vorum í kaffi hér
fyrir utan og urðum ekki varir við
neinar mannaferðir", sagði Þórð-
ur Ásgeirsson byggingarverktaki
í samtali við Þjóðviljann.
Það er Byggingarfélagið Hóla-
berg sem hafði fest kaup á húsinu
og er að byggja við það, en hús-
inu á að breyta í íbúðir. Að sögn
Rannsóknarlögreglunnar hefur
ekkert enn komið fram um hver
var valdur að eldsvoðanum en
málið er í rannsókn.
-Ig-
Mikinn reyk lagði frá eldsvoðanum í gær og logaði vel í einangrun í þakinu. Mynd: eik.
íslenskir kommúnistar
Handbendi Stalíns eða róttækni á íslensku?
Ályktun Komintern frá 1924 sýnir sterk tengsl íslenskra kommúnista við alheimssamtökin
Komintern 1924: „Sá andstöðu-
armur, sem þegar starfar
(innan Alþýðuflokksins), verður
að skipuleggja sig samkvæmt
kommúnískum skipulagsregl-
um... Andstaðan verður einnig
að stofna vinnustaðasellur á
öllum helstu Vinnustöðum. Innan
verkalýðshreyfingarinnar og
samvinnuhreyfingarinnar verður
skilyrðislaust að stofna kommún-
ísklið... Andstaðan verður þegar
í stað að taka upp nána samvinnu
við Samband kommúnistaflokka
á Norðurlöndum...“
Þetta eru nokkrar glefsur úr á-
Neyíendasamtökin
Mótmæla
Neytendasamtökin hafa harð-
lega mótmælt nýlegri hækkun
á kjarnfóðurgjaldi á svína- og
fuglafóðri. „Hér er á gerræðis-
fullan hátt verið að hækka fram-
leiðslukostnað á mikilvægum
neytendavörum“, segir í frétt frá
Neytendasamtökunum.
„Þessi verðhækkun staðfestir
réttmæti fyrri ályktana Neyt-
fóðurgjaldi
endasamtakanna um kjarnfóður-
gjaldið: Það er neytendum í
óhag, skapar óeðlilegan mismun
milli búgreina og torveldar þann-
ig eðlilega þróun í landbúnað-
armálum, bæði neytendum og
framleiðendum til baga.
Neytendasamtökin ítreka fyrri
kröfur sínar um að kjarnfóður-
gjaldið verði afnumið."
lyktun þings Komintern, al-
heimssambands kommúnista-
flokka, um ísland frá 1924. Það
þing sat Brynjólfur Bjarnason.
Ályktunin kemur hér á landi í
fyrsta sinn fram opinberlega í rit-
gerð Svans Kristjánssonar próf-
essors, „Kommúnistahreyfingin
á íslandi", í nýútkomnu hefti
tímaritsins Sögu. Þar er reifuð
staða kommúnista á íslandi fyrir
og eftir stofnun Kommúnista-
flokksins 1930, og athuguð tengsl
þeirra við alheimssamtök kom-
múnista og höfuðvígið í Moskvu.
Svanur kemst að þeirri niður-
stöðu að „hugmyndir íslenskra
kommúnista og starf voru ótví-
rætt mótuð af Komintern", að
minnsta kosti fram til ársins 1935.
„Er ástæðulaust að flækja málin
frekar?“, spyr höfundur, „Hníga
ekki öll rök að þeirri ályktun, að
kommúnistahreyfingin hafi ein-
faldlega verið handbendi Kom-
intems eða Stalíns?“, en spyr síð-
ar annarrar spurningar: „Er
sennilegt, að stjórnmálahreyfing,
sem hlaut jafnmikinn hljóm-
grunn og íslenskir kommúnistar,
hafi einungis verið nokkurs kon-
ar sýkill í þjóðarlíkamanum, ver-
iö algjörlega fjarstýrð erlendis frá
og ekki borið neinn svip af nán-
asta umhverfi, af íslensku þjóðfé-
lagi?“.
í lok ritgerðar sinnar segir
Svanur að þrátt fyrir „hreintrúar-
hugmyndafræði“ hafi stefna
kommúnista í daglegu starfi verið
heldur raunsæ: „Kommúnista-
flokkurinn var flokkur fátæks
fólks, er í hörðum heimi krepp-
unnar leit vonaraugum til fyrir-
heitna landsins, Sovét-íslands,
og hafði þegar séð stóra drauma
rætast í Sovétríkjunum. Fátækt
fólk, án sterkra samtaka, hefur
engu að síður lítil efni á ástundun
pólitísks hreinlífis; það þarf að
hyggja að dagsins önn - að hafa í
sig og á. Svo virðist sem hug-
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. janúar 1985
myndafræði Kommúnistaflokks-
ins hafi svalað þörfum fólks fyrir
fullvissu, réttrúnað og háleit
markmið; starfið hafi síðan að
miklu leyti beinst að aðkallandi
viðfangsefnum með skjótan ár-
angur í huga.“ - m
Kvennafylking AB
Opið hús
á morgun
Á morgun, laugardag, mun
Kvennafylking Alþýðubanda-
lagsins hafa Opið hús í flokks-
miðstöð Hverfisgötu 105. Geta
gestir og gangandi komið við þar í
fyrramálið eftir kl. 10 þar sem
morgunkaffi verður á boðstólum,
til að ræða um það sem efst verð-
ur á baugi.