Þjóðviljinn - 18.01.1985, Side 4

Þjóðviljinn - 18.01.1985, Side 4
LEIÐARI Hvað gerír ríkisstjóm íslands? Yfirhershöföingi Kanada, Gerard Theriauld, hefur lýst yfir aö þaö sé rétt hjá vígbúnaðarsér- fræöingnum William Arkin, aö til sé heimild, undirrituð af Bandaríkjaforseta, um að herir hans flytji á stríðstímum kjarnorkusprengjur til ýmissa landa. Á meðal þessara landa er ísland. Þarmeð hefur æðsti hershöfðingi Kanada ómerkt algerlega yfirlýsingar Geirs Hallgríms- sonar, sem hann gaf fyrir jólin á Alþingi, um að orð Arkins væru marklaus og heimildir hans fánýtar. Kanadíski hershöfðinginn hefur lýst yfir í þar- lendum fjölmiðlum, að hann hafi ekki haft neina hugmynd um heimildina til kjarnorkuvopna- flutninganna, fyrr en honum bárust upplýsingar Arkins. Þá hafi hann hins vegar sjálfur farið að rannsaka málið og krafið Bandaríkjamenn skýr- inga. Á fundi um þessi mál sem haldinn var í Pentagon, varnarmálaráðuneyti Bandaríkj- anna, hafi hann svo sjálfur séð þau skjöl sem Arkin vísar til. Það þarf því ekki frekari vitnanna við: skjölin eru til! Eitt af þeim löndum, sem heimildin nær til, er Bermúda. En Bermúda er heimastjórnarsvæði innan Bretaveldis, og Bretarfara með utanríkis- og varnarmál fyrir þeirra hönd. Einnig þar hafa upplýsingar Arkins vakið feiknalega athygli. Málið hefur verið á forsíðum dagblaða og aðal- jefni í sjónvarpi, og að sjálfsögðu vakið mikla reiði heimamanna. Forsætisráðherra Bermúda hefur sjálfur krafist skýringa Bandaríkjamanna og heimtað að fá að vita hvernig stendur á því, að Bandaríkjaforseti hafi gefið herjum sínum heimild til að flytja kjarnorkuvopn til Bermúda. Forsætisráðherrann hefur jafnframt borið fram formleg mótmæli, bæði við ríkisstjórn Banda- ríkjanna og ríkisstjórn Bretlands. Þetta er fróðlegt að bera saman við viðbrögð íslensku ráðherranna, þegar Arkin kom til Is- lands fyrir jólin. Þrátt fyrir að Arkin sýndi þeim heimildir sínar, þá virtust þeir síður en svo taka málið alvarlega. Geir sagði ekki einu sinni, að hann liti málið alvarlegum augum, einsog hann hefur þó gert af minna tilefni. Hann lýsti því hins vegar yfir að hann tryði ekki orðum Arkins. Hvorki hann né forsætisráðherra sáu tilefni til að mótmæla því formlega við Bandaríkjastjórn, að hún hygðist flytja hingað kjarnorkuvopn á stríðstímum. „Ég verð að spyrja Bandaríkja- menn hvort það sé nokkuð til í þessu“, sagði Geir. í svari sínu báru Bandaríkjamenn ekki einu sinni við að hafna staðhæfingum Arkins. KLIPPT OG SKORIÐ Það eina, sem þeir létu uppskátt, var sama gamla tuggan um að þeir gæfu aldrei neinar yfirlýsingar sem vörðuðu tilvist kjarnorkuvopna á erlendri grund. Þessi loðmullulega yfirlýsing gaf eigi að síður Geir Hallgrímssyni tilefni til að lýsa því yfir á Alþingi, að hann hefði sannfærst um að staðhæfingar Arkins væru úr lausu lofti gripnar. Nú hefur hins vegar verið sýnt afdráttarlaust að Arkin hafði rétt fyrir sér. Það er til heimild frá Bandaríkjaforseta, sem leyfir herjum Bandaríkjanna að flytja kjarnorkuvopn til ís- lands á stríðstímum. Þetta er auðvitað gersamlega óþolandi fyrir sjálfstæða þjóð. í Ijósi þessara nýju upplýsinga frá yfirhershöfðingja Kanada verður að taka málið upp að nýju hér á landi. Þingmenn verða að láta til sín taka í málinu hið skjótasta, er Alþingi kemur saman. En fyrst og fremst verður ríkisstjórn íslands að taka málið upp þegar í stað. Það er skylda hennar gagnvart íslensku þjóðinni að bera fram harðorð mótmæli við Bandaríkjastjórn. Ef Bermúdastjórn sá ástæðu til þess - þá hlýtur íslenska stjórnin að gera það líka. -ÖS. Kraftaverka- maður í einangrun Jón Baldvin Hannibalsson, okkar forni samherji í Alþýöu- bandalaginu, er að gera það gott þessa dagana - í þeim skilningi að hann hrífur greinilega hæstvirta kjósendur með mælsku sinni og skeleggum málflutningi. Til að byrja með vonuðust menn til að Jóni Baldvin lærðist að verða sæmilegur sósíaldemókrati - og fyrstu vikurnar héldu öll systkinin í kratismanum, að hægra talið í formanninum væri bara vegna þess hversu óvanur hann væri í talmennskunni og glaðbeittur í skýjunum. Hann hafði meiraðsegja sjálfur orð á því í sjónvarpi, að eiginlega gleymdi hann því stundum að hann væri orðinn formaður Al- þýðuflokksins, en þetta lærist vonandi, - sagði hann. Því miður má ekki sjá nein merki þess að Jóni Baldvin hafi skilist að hann er formaður sósí- aldemókrataflokks, heldur er hann áfram á hægri slagsíðunni - og því fer fjarri að hann nái því að vera vinstra megin við miðju. Það er meðal annars þess vegna sem formanninum hefur ekki getað tekist að brjótast útúr þeirri pers- ónupólitísku einangrun sem hann er í á vinstri vængnum, - ekki síður í Alþýðuflokknum en ann- ars staðar. Dugar þar skammt sviðstjórn Ámunda Ámunda- sonar og ljóðrænar pólitískar leikfléttur Guðlaugs Tryggva Karlssonar. Hins vegar hafa þeir kunnað að meta formanninn, mennirnir á Mogganum. Á fundunum sínum, þarsem Jón Baldvin mettar þúsundirnar (einsog hann segir sjálfur á bib- líumáli), tilaðmynda á austurreið sinni, sem hann efndi til „til að boða Austfirðingum nýja von og trú ípólitíkinni", - þá kemur í ljós að hann hefur hvergi hopað frá þeirri sannfæringu sinni að nú- verandi ríkisstjórn hafi byrjað vel. Og að hann er samkvæmur í þeirri afstöðu sinni að afnám verðtryggingar á laun hafi verið sjálfsagt mál. í þessu sambandi rifjast upp sú afstaða Alþýðu- flokksins að vera til í að ganga í núverandi ríkisstjórn, undir sömu stjórnarstefnu, bara ef for- maður Álþýðuflokksins fengi að vera forsætisráðherra. Það var vörið 1983. í þann tíð voru menn lítillátir. Og á fundum fyrir kosn- ingarnar hamaðist Jón Baldvin á nauðsyn samstjórnar Sjálfstæðis- flokksins og Alþýðuflokksins. Hefur það eitthvað breyst? Á dögunum var ekki annað að skilja á formanninum en slík stjórn væri eina lausnin. Varðbergs- línan Jón Baldvin hefur ekki látið þar við sitja á síðustu vikum, að taka undir andstyggilegar athafn- ir núverandi ríkisstjórnar, heldur hefur hann og lýst yfir sérstökum stuðningi við þá ofstækisfullu og fámennu klíku sem ræður utan- ríkisstefnu ríkisins. f anda kom- múnistahræðslunnar hélt hann svo erindi hjá Varðberg, Nató- vinafélaginu, - sem var svo sett fram í endursögn við hliðina á leiðara. Og næstu daga hóf Morg- unblaðið Jón Baldvin til skýjanna fyrir þetta framlag hans til utan- ríkismála. Þá spurði Morgunblaðið ekki aðra forystumenn Alþýðuflokks- ins um afstöðu þeirra til friðar- og, utanríkismála, því það er nefni- lega mála sannast að í þessum málaflokki er formaðurinn nán- ast einangraður í Alþýðuflokkn- um, svosem í fleirum. Mogginn framsýnn? Það dettur auðvitað engum heilvita manni í hug, að horfa framhjá því, að Jón Baldvin hef- ur bjargað Alþýðuflokknum frá bráðum bana í svartasta skamm- deginu, - þótt skiptar skoðanir séu um lengd framhaldslífsins. Hitt er og deginum ljósara, að með því nótnaspili formannsins nýja, sem nú heyrist hljóma um borg og bæ, er fám keppinautum dillað. Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur fengið samkeppni um ó- ánægjuatkvæðin, og þingmenn- irnir skjálfa á beinunum ( - ekki endilega í takt) af því það fréttist að flestir fundarmanna Jóns Baldvins eru fyrrverandi stuðn- ingsmenn Sjálfstæðisflokksins. Eitt er þó það valdaappirat í Sjálfstæðisflokknum sem kann að meta formanninn nýja og hans pólitísku nótur, - og það er Morgunblaðið. Þar á bæ hafa menn löngum hampað formann- inum, - og þá býr meira undir. Marbakka- veldið Áður og fyrr var Finnbogi Rút- ur Valdimarsson einn valdamesti maður í íslenskri pólitík og samdi heilu simfóníurnar fyrir marga flokka til að dansa eftir. Hann er föðurbróðir Jóns Baldvins - og tengdafaðir Styrmis Gunnars- sonar ritstjóra Morgunblaðsins. Styrmir er smám saman að yfir- taka hlutverk ættarhöfðingjans í stórfjölskyldunni og segja ábyrgðarlausir rýnendur, að hann sé nú valdamestur í tveim flokkum: Sjálfstæðisflokki og Al- þýðuflokki. Skálkarnir halda því fram, að daður Morgunblaðsins við Jón Baldvin haldist í hendur við gagnrýni (og bráðum hreina andstöðu) á ríkisstjórnina. Með- ur því að Sjálfstæðisflokkurinn láti af nokkrum þingsætum til Al- þýðuflokks Jóns Baldvins megi vænta nýrrar samstjórnar, - sem verði enn frekar en þessari stjórnað frá Morgunblaðinu. Þegar sá dagur rennur upp heitir valdamesti maðurinn í landinu Styrmir. -óg. T DJðÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis og verkalýöshreyfingar Utgefandl: Útgáfufólag Þjóöviljans. Ritstjórar: Árni Berqmann, Össur Skarphóðinsson. Ritstjórnarfulltrúi: öskar Guðmundsson. Fréttastjóri: Valþór Hlöðverssóh. Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Jóna Pálsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason. Mörður Árnason, Ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson (iþróttír). Ljósmyndir: Einar Ólason, Einar Karlsson. Útiit og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Framkva&fndastjóri: Guðrún Guómundsdóttir. Skrtfstofuatjóri: Jóhannes Haröarson. Auglýsingastjófi: Ragnheiður Óladóttir. AuglýsJngar: Anna Guðjónsdóttir, Margrót Guðmundsdóttir. Afgrslóslustjórl: BakJur Jónasson. Afgreiðsis: Bára Siguröardóttir, Kristín Pótursdóttir. Símsvsrsis: Asdls Kristinsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir. Húsmasóur: Bergljót Guöjónsdóttir, Óiöf HúnQörð kmhsimtumsnn: Brynjóffur Vilhjálmsson, Óiafur Bjömsson. 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 18. janúar 1985 Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, rltstjórn: Sfðumúla 6, Reykjavík, síml 81333. Umbrot og setnlng: Prentsmlðja Þjóðvlljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð (lausasóki: 30 kr. funnudagBvrö: 35 kr AakríflaiMiA á mánuðl: 300 kr.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.