Þjóðviljinn - 18.01.1985, Side 7
Þessa hressu krakka hittum við í Fellahelli síðastliðið fimmtudagskvöld þegar Glætan leit þar inn til að forvitnast um starfsemi Fellahellis. Ljósm.: eik.
Krakkar í Reykjavík
Fellahellir í Breiðholti
Vissirðu að þar er opiðfrá 9 - 23? Vissirðu að Fellahellir hefur verið opinn í
10 ár? Vissirðu að þar vinna 12 starfsmenn? Vissirðu að 3-400 krakkar koma í
Fellahelli á hverjum degi? Ef ekki, þá skaltu lesaþessa grein!
Alltaf er nóg að gera í Fellahelli. Þessir krakkar ákváðu að taka slag en hvað hinir voru að gera vitum viðekki. Ljósm.: eik.
Umsjón: Aðalbjörg R. Óskarsdóttir Föstudagur 18. janúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Fellahellir er elsta fé-
lagsmiðstöð á landinu og
hélt upp á 10 ára afmæli sitt
í nóvember. Þrátt fyrir háan
aldur sjást engin ellimörk
hvorki á starfsliði né gest-
um og hefur starfsemin
sennilega aldrei verið
blómlegri en einmitt nú.
Opinn til 11
á kvöldin
Fellahellir er opinn frá 9 til 23.
Fram til klukkan þrjú er hægt að
kaupa sér kakó og brauðsneið í
frímínútum Fellaskóla og frá og
með 4 er opið fyrir alla 13 ára og
eldri. Svo til alit starfið er á veg-
um Æskulýðsráðs en önnur félög
hafa einnig nýtt sér aðstöðuna
gegnum árin. Starfsmenn Fella-
hellis eru 12 talsins. Fastir liðir í
viku hverri eru t.d. vinsældalisti
og kynning hans á þriðjudögum,
tónlistarkynning á miðvikudög-
um og ball eða diskótek á föstu-
dögum. Á mánudögum og
fimmtudögum er opið hús. í hús-
inu er líka framköllunarherbergi,
föndurherbergi, sjónvarpsher-
bergi og ekki má gleyma púða-
herberginu.
Fyrir utan þessa föstu liði og
Framhald á bls. 8
Hvert eiga
krakkar að fara?
I næstu viku hleypir U-síðan af stokkunum föstum dálki
með upplýsingum um hvað er að gerast um helgina fyrir
ungt fólk, t.d. tónleikar, böll, fundir, leiksýningar osfrv. Er
því hérmeð komið á framfæri til forráðamanna eða að-
: standenda slíkra uppákoma að notfæra sér þennan dálk.
Það má gera með því að skrifa U-síðunni, Þjóðviljanum,
Síðumúla 6 eða einfaldlega hringja í Aðalbjörgu í síma
.. 81333 á daginn milli kl. 1 og 3 - aró.