Þjóðviljinn - 18.01.1985, Qupperneq 9
UM HELGINA
Listmunahúsið
Heimur Eggerts
Á laugardaginn kl. 14 verður
opnuð merkileg málverkasýning í
Listmunahúsinu og eru á henni
40 ný og nýleg olíumálverk eftir
Eggert Magnússon. Líklega
munu myndir hans flokkast undir
naívisma og eru ákaflega
skemmtilegar.
Eggert Magnússon er fæddur
1915 á Njálsgötu 17 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Magnús
Jónsson frá Breiðholti í Reykja-
vík og Hrefna Eggertsdóttir
Norðdal frá Hólmi í Seltjarnarn-
eshreppi. Móðuramma Eggerts
var Vaigerður Guðmundsdóttir
frá Miðdal.
Hann hefur alla tíð átt heima í
Reykjavík nema hvað að síð-
astliðin 7 ár hefur hann verið bú-
settur að Bjargi 1 á Seltjarnar-
nesi.
Eggert hefur lengst af verið
sjómaður á ýmsum skipum og
vélstjóri frá 1938. Hann er nú
hættur sjómennsku.
Sem málari er hann sjálf-
menntaður og hefur málað af og
til frá 1960.
Þetta er fjórða einkasýning
Eggerts en hann hefur einnig
tekið þátt í nokkrum samsýning-
um.
Sýningin, sem er sölusýning, er
opin virka daga frá kl. 10.00-
18.00, laugardaga og sunnudaga
frá kl. 14.00-18.00. Lokað mánu-
daga.
Sýningunni lýkur 3. febrúar.
Eggert Magnússon ásamt einni mynda sinna. Nefnist hún Kyrrahafs-
laxinn. Ljósm.: eik.
Carmen
Þrír nýir söngvarar
Laugardaginn 19. janúar verða
hlutverkaskipti í Carmen hjá ís-
lensku óperunni. Má segja að um
aðra frumsýningu sé að ræða, því
í þremur stórum hlutverkum eru
nú aðrir söngvarar en til þessa.
Anna Júlíana Sveinsdóttir tekur
við hlutverki Carmen af Sigríði
Ellu Magnúsdóttur. Sigrún V.
Gestsdóttir syngur Micaelu í stað
Ólafar K. Harðardóttur. Við
hlutverki nautabanans tekur nú
Anders Josephsson en það hlut-
verk söng áður Simon Vaughan.
Næstu sýningar á Carmen
verða laugard. 19. og sunnud. 20.
jan kl. 20.00.
Garðar Cortes sem Don José ásamt Onnu Júlíönu Sveinsdóttur sem hinni
nýju Carmen.
B/TT
Lí-ÍkhÚsiÖ
3. sýning i dag 17. jan. kl. 21.00 Uppselt
4. syning manudag 21. jan. kl. 21.00 Uppselt
5. syning þriðjudag 22. jan. kl. 21.00 Uppselt
6. syning miðvikudag 23. jan. kl. 21.00 Uppselt
-----1 i i —i m M m n i'iurni.........irm
U
VtSA
/ý/iHWQ,
AHLJOHftoW
18-OAN
L SfE/nUH"A
:TMUIK PAH 111. klNINU McHiI A A
VKUKIHArA
J.
Föstudagur 18. janúar 1985 ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 9
Kvennahúsið
Getnaðarvamir
foimæðranna
í vetur hafa konur hist klukkan
eitt á laugardögum í Kvennahús-
inu, Hótel Vík til að ræða málin
að lokinni framsögu einhverrar
mætrar konu.
Nú á laugardag kl. 13 mun
KristínÁstgeirsdóttir segja frá
rannsóknum sínumá getnaðar-
vörnum formæðra okkar.
Kvennahúsið er rekið af ýms-
um kvennasamtökum og opið
öllum konum. Þar fer fram fjöl-
breytt félagsstarf kvenna auk
laugardagskaffisins. í húsinu er
rekin ókeypis kvennaráðgjöf á
þriðjudagskvöldum milli 8 og 10.
Kvennahúsið er annars opið
virka daga frá 14 til 18. Þar er
alltaf heitt á könnunni og góður
félagsskapur kvenna.
Símar í hússins eru 21500 og
13725.
Kristskirkja
Musica Antiqua
2. tónleikar félagsskaparins á
þessum vetri verða haldnir í
Kristskirkju laugardaginn
19.þ.m. kl. 17.00.
Þau Camilla Söderberg blokkf-
lautuleikar og Hörður Áskelsson
orgelleikari flytja ítalska og
franska snemm og hábarokktón-
list eftir Frescobaldi, Castello,
Mancini, Boismortier, Bleramb-
ault o.fl.
Camilla Söderberg leikur á
fjórar gerðir af blokkflautum, 2
endurreisnar og 2 barokkflautur,
en þetta eru allt eftirlíkingar af
hljóðfærum sem smíðuð voru á
þessum tímum tímum. Tvö þess-
ara hljóðfæra eru smíðuð af ung-
um enskum blokkflautusmið
Adrian Brown sem búsettur var
hér á landi um skeið, en hljóðfæri
hans eru nú orðin mjög eftirsótt á
meginlandinu.
Orgelið í Kristskirkju sem hefir
um 30 hljómandi raddir á þrem
hljómborðum og pedal, var smíð-
að árið 1950 í Grobenius orgel-
verksmiðjunni í Kaupmanna-
höfn.
Þjóðmála-
umræða á
Gauknum
Veitingahúsið Gaukur á Stöng
hefur bryddað uppá þeirri ný-
breytni að standa fyrir almennri
þjóðmálaumræðu á sunnudögum
kl. 14.30.
ÆTlunin er að umræða þessi
geti orðið á tveggja til þriggja
vikna fresti. Umræðuefni verða
þau málefni sem í brennidepli eru
hverju sinni.
Þetta er háttur umræður sem
margir þekkja erlendis frá og er
nærtækast að nefna kaffihúsið
Café Victor í Kaupmannahöfn,
þar sem merkir menn hafa viðrað
skoðanir sínar, í hita líðandi
stundar.
Umræðuefnið næstkomandi
sunnudag verður „Hvað ber árið
1985 í skauti sér“. Er ætlunin sú
að fá stjórnmálaleiðtoga allra
flokka til að ræða opinskátt um
horfur í íslenskum stjórnmálum á
því ári sem nú er að hefjast.
Fyrirkomulagið verður þannig
að í upphafi verður haldin fram-
saga en verður síðan orðið gefið
frjálst og geta menn þá annað
tveggja stigið í pontu eða lagt
fram fyrirspurnir til frummæl-
endanna.
MÍR
Kvikmynd
um llizaruv
Kvikmyndasýning verður að
venju í MfR, Vatnsstíg 10, nk.
sunnudag20. janúarkl. 16. Sýnd-
ar verða nokkrar stuttar fræðslu-
og fréttamyndir: mynd um þjóð-
dansaflokk barna í Grúsíu, um
Dnépr-fljótið mikla, um þjóð-
lega íþrótt, glímu eða fangbrögð,
og loks mynd sem segir nokkuð
frá hinum fræga lækni dr. Ilizar-
ov, sem starfar í Kúrgan í Síberíu,
en meðal fjölmargra af ýmsu
þjóðerni, sem Ilizarov prófessor
hefur stundað eru tvö íslensk
ungmenni.
HAPPDRÆTTI ÞJÓÐVILJANS
Síðustu forvöð að gera skil
Dregið verður 21. janúar.
Nnr viótakanda tilvisunarnr Vd TXT Stotnun Hb Reikn nr viðtakanda
C\l 7124,8844, , 801 26 1677
2 < z UJ Viðtakandi Happdrætti Þjóðviljans
< cc LLl Síðumúla 6
GÍRÓ-SEÐILL
NR
c
Jón Jonsson
Laugavegi 200
105 Reykjavík
Skynng greióslu
Happdrættismiðar
Nfir viiM.iK.inda tiiviSnn.um
Vióskipiastotnun viótakanda
Alþýðubankinn h.f.
Atgreióslustaóur viósKiptastotnunar
Aðalbanki
Tegund reiknir.gs ' „
____ Giroreiknmgur
. Avisanareiknmgur X Hlaupareiknmgu
... , . , - t 1 ' ' • i 1 *'*■
• rt.UT vIJiH Mf UAN MA H\OrK' SKMlFA Nl STi\*Pl
Hægt er að gera skil á afgeiðslu Þjóðviljans Síðumúla 6, hjá Alþýðubandalaginu Hverfisgötu 105,
hjá umboðsmönnum um land allt, greiða með gíróseðli í banka eða pósthúsi (sjá sýnishorn um
útfyllingu). Á Reykjavíkurs'væðinu er hægt að sækja greiðslu til þeirra sem þess óska og er tekið
við þeim beiðnum í síma 81333-