Þjóðviljinn - 18.01.1985, Side 10

Þjóðviljinn - 18.01.1985, Side 10
MINNING ALÞÝBUBANDALAGIÐ Árshátíð og Þorrablót ABR Árshátíð og þorrablót Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður hald- ið laugardaginn 2. febrúar í flokksmiðstöð Alþýðubandalagsins að Hverfisgötu 105. Athugið að í fyrra var fullt út úr dyrum og komust færri að en vildu. Pantið því miða strax í síma 17500. Dagskrá nánar auglýst síðar. - Skemmtinefnd ABR. AB Reykjanesi Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins í Reykjaneskjör- dæmi verður haldinn laugardaginn 19. janúar í Þinghóli Kópavogi og hefst fundurinn kl. 13.00. Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf 2) Lagabreytingar 3) Önnur mál. Geir Gunnarsson alþingismaður kemur á fundinn. Alþýðubandalagið Hafnarfirði Bæjarmálaráðsfundur Fundur í bæjarmálaráði mánudaginn 21. janúar kl. 20.30 í Skálan- um Strandgötu 41. Dagskrá: Undirbúningur fyrir bæjarstjórnarfund. BÚH-málið. Önnur mál. Munið að fundir ráðsins eru opnir öllum félögum. - Stjórnin. Alþýðubandalagið í Kóþavogi Árshátíð verður haldin laugardaginn 2. febrúar nk. Staðurinn er auðvitað Þinghóll Hamraborg 11 og verður húsiö opnaö kl. 20.30. Fjölbreytt skemmtiatriði, m.a. mun Böðvar Guðlaugsson hagyrðingur flytja gamanmál og fleiri kraftar munu koma fram. Heitur réttur verður borinn fram síðla kvölds og aðrar veitingar verða að sjálfsögðu á boðstólum. Athugið: Nauðsynlegt er að panta miða tímanlega því í fyrra var húsið fullt út úr dyrum! - ABK. AB Borgarnesi Alþýðubandalagsfólk í Borgarnesi og nærsveitum Kvöldvaka verður haldin í Röðli föstudaginn 18. janúar og hefst kl. 21.00. Ýmsir góðir gestir verða kynntir nánar síðar. Léttar veiting- ar. Félagar, fjölmennið og takið með ykkur gesti. Alþýðubandalagið Akranesi Fundur um húsnæðismál Almennur fundur verður í Rein mánudaginn 21. janúar kl. 20.30 um húsnæðismál og lífskjörin. Dagskrá: ★ Búseti: starfsemi félagsins og markmið. ★ Verkamannabústaðakerfið? ★ Eru húsbyggjendur á hausnum? Frummælendur: Guðni Jóhannesson frá Búseta, Ársæll Valdi- marsson og Guðbjartur Hannesson. Allir velkomnir. AB Ólafsvík Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Ólafsvík verður haldinn n.k. sunnudag 20. janúarog hefstkl. 14.30. Fundarstaður: Mettubúð. Áfundinn kem- ur Skúli Alexandersson alþingismaður. Félagar eru beðnir að mæta vel og stundvíslega auk þess sem allt Alþýðubandalagsfólk er velkomið. - Stjórnin. Kennarar óskast Af sérstökum ástæöum vantar 1 -2 kennara að Grunn- skóla Fáskrúðsfjaröar frá 1. mars n.k. Aðalkennslugreinar: Danska - 6 ára bekkur - Eðlis- fræði - 5. bekkur. Gott húsnæði í boði. Uppl. gefur skólastjóri í síma 97-5224 og 97-5159. Óska eftir að kaupa notaða ameríska þvottavél. Uppl. í símum 81699 (vinnusími) og 77393 e. kl. 18. Steinunn. Sendill óskast Iðnaðarráðuneytið óskar að ráða sendil hálf- an eða allan daginn. Nánari upplýsingar í ráðuneytinu. Iðnaðarráðuneytið, Arnarhvoli Geir Gunnarsson. Þórarinn Vigfússon fæddur 25. júlí 1902 - 2. jan. s.l. lést að heimili sínu, Frostaskjóli 9, Þórarinn Vigfús- son, einn hinna gömlu, traustu starfsmanna Þjóðviljans og Prentsmiðju Þjóðviljans. Þórarinn fæddist að Heiðarseli á Síðu 25. júlí 1902, og var því á 83. aldursári er hann lést. 9 ára gamall missti hann föður sinn og fluttist þá með móður sinni að Holti á Síðu, og þar ólst hann upp. 1932 fluttist hann til Reykja- víkur og átti þar heimili upp frá því. Á árinu 1942 kvæntist hann eft- irlifandi konu sinni, Klöru Hall- grímsdóttur. Börn þeirra eru 2: Ragnhildur Rósa, sem gift er ívari H. Jónssyni, fyrrv. ritstj. Þjóðviljans (nú skrifst. stj. Þjóð- leikhússins), og Jóhann Hafþór, sém kvæntur er Ásdísi Jónsdótt- ur. Auk þess tóku þau dreng í fóstur, Þórarin Viðar, og ólu upp sem sinn eiginn son. Kona hans er Ásdís Guðmundsdóttir. Barnabörn þeirra Þórarins og Klöru eru nú 6 talsins. 1. apríl 1947 hóf Þórarinn störf í Prentsmiðju Þjóðviljans sem „stokkari". Það starf er fólgið í því að vera aðstoðarmaður prentarans, taka blöðin frá prent- vélinni, stokka þau og búnta fyrir afgreiðsluna. Prentvélin var gömul og illa við haldið. Prentun gekk því oft skrykkjótt og bilanir voru tíðar. Prentarar entust illa í starfi og stóðu sig misjafnlega, enda vinnuaðstaða slæm, þrengsli, léleg loftræsting og hita- svækja. En það var viðburður ef Þórarinn mætti ekki á næturvakt- ina eins og ráð var fyrir gert hverju sinni. Og varla minnist ég þess að hann skipti skapi á hverju sem gekk. Hafði stundum lúmskt gaman af vinnufélögunum, þegar þeir misstu þolinmæðina og hló þá stundum góðlátlega. dáinn 2. janúar 1985 Þetta starf vann hann samfleytt í 25 ár. Þórarinn var einn af þeim mörgu úrvalsmönnum, sem vekja góðar minningar hjá undir- rituðum um þetta erfiða tímabil í sögu blaðsins. Einn af þeim, sem gott var að hafa í vinnu, og þó að starf hans væri kannski ekki eitt af þeim þýðingarmestu, þá átti hann einnig sinn þátt í að blaðið komst yfir örðugasta hjallann. Á árinu 1972 var Prentsmiðja Þjóðviljans lögð niður og prent- unin fluttist í Blaðaprent. Það var stærsta tæknilega byltingin í sögu blaðsins og breytti stöðu þess stórlega. Þá urðu ýmsir að skipta um vinnu, þar á meðal Þórarinn, sem nú varð innheimtumaður blaðs- ins. Því gegndi hann af sömu trú- mennsku meðan kraftar entust, allt fram á árið 1981. Hafði þá unnið í þjónustu Þjóðviljans í samfellt 34 ár. Ég veit að starfsfélagar Þórar- ins frá þessum árum minnast hans með hlýjum huga. Sem einn af þeirn sendi ég aðstandendum samúðarkveðjur. Eiður Bergmann Styrkir úr Minningarsjóði Theódórs B. Johnsons í samræmi við skipulagsskrá Minningarsjóðs Theó- dórs B. Johnsons hefur Háskóli íslands ákveðið að úthluta tveimur styrkjum, að upphæð kr. 50 þús. hvor. í 4. gr. skipulagsskrár sjóðsins segir m.a.: „Þeim tekjum, sem ekki skal leggja við höfuðstól sbr. 3. gr., skal varið til að styrkja efnillega en efnalitla stúdenta, einn eða fleiri, til náms við Háskóla íslands eða framhaldsnáms erlendis að loknu námi við Há- skóla íslands." Umsóknareyðublöð fást í skrifstofu háskólans. Um- sóknarfrestur er til 15. febrúar 1985. Lausar stöður Eftirtaldar stöður við Hegningarhúsið í Reykjavík eru lausar til umsóknar: 1) Staða forstöðumanns. Samkvæmt 11.gr. laga um fangelsi og vinnuhæli nr. 38/1973 skal öðrum fremur skipa í stöðuna lögfræðing eða fé- lagsráðgjafa og skulu þeir sérstaklega hafa kynnt sér fangelsismál. 2) Staða varðstjóra. 3) Staða fangavarðar. Aldursmörk eru 20-40 ár. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf send- ist ráðuneytinu fyrir 1. febrúar n.k. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 14. janúar 1985 BRIDGE Stórt vandamál í íslenskum bridge er hve lítið er um bækur á ylhýra tungumálinu okkar. Ansi margir ráða ekki enskan texta (mestur fjöldi gæðabókmennta um bridge eru á ensku) og þaraf- leiðandi fara á mis við margt það sem aðrir hafa kunnáttu til að nýta sér. Sigurjón Tryggvason hefurgef- ið út einar 3 bækur (minnir mig) sem hann hefur þýtt yfir á ís- lensku og gert með því meira gagn en flestir aðrir í þeim málum. Ein af þessum bókum heitir: Stytt leið til vinningsbridge. Það, sem gerir hana ef til vill merkilegri en aðrar bækur um svipað efni, er að fyrstu 8 bls. eru lagðar undir útskýringar á því fræga sagnkerfi Standard Amer- ican. Auk þess eru tekin fyrir 100 dæmi um ýmis vandamál sem koma fyrir í leiknum (bridge). Hér eru dæmi: (Norður gefur, N/S á hættu). K10852 7 KD6 ÁG73 63 ÁDG9 ÁDG9832 105 ÁG 8732 84 962 74 K64 10954 KD105 Norður vakti á 1 spaða, pass, grand hjá Suðri, dobl hjá Vestri, pass frá Norðri, pass frá Austri og pass frá Suðri. Spaði út, nían átti slaginn, hjartatía og meira hjarta, hjörtunum spilað í botn, síðan spaði, gosi átti slaginn, tigull til baka, tekið á ás, tígulgosa spilað og Austur átti tvo síðustu slagina á spaða. 1700 til A/V. Mottó þessa spils er að forðast grandsamning með einspil. I þessu tilviki átti Norður að segja 2 lauf eftir dobl Vesturs, og engin saga sögð um það spil. SKÁK 1 I « ái. ttááá á á A '• % é & & -í. .nsb Þessi staða kom upp í skák milli Petrosjan og Vilela ÍTallin 1979. Petrosjan hafði hvítt og lék nú 1.e5!, snotur peðsfórn sem undir- strikar klunnalega staðsetningu svörtu mannanna. 1. -Bxe5 2. Hfe1 D7 Hvað annað? 3. Rg5 hótar bæði á f7 og h7.3. -g6 4. Bxf7+ Kg7 5. Bxe8 Hxe8 6. Rf3 c5 7. Rxe5 Hxe5 8. Dc3 Kf6 9. Hd7 og svartur gafst upp. Fyrir 9 leikjum lét staðan ekki mikið yfir sér en hvítum tókst að virkja alla sína menn og rústa svörtu stöð- una með einum snjöllum peðs- leik. MIN.M.Nt;\KSJÓt>UK ISLEN/K llMt H.IÁHI SIGFÚS SIGURHJAR'I'ARSON Minningarkortin eru lil sölu á eftirtöldurn stödum: Bókabúð Máls og menningar Skrifstofu A Iþýðubandalagsins Skrifstofu Pjóðviljans Munið söfnunarátak í Sigfúsarsjóð vegna flokksmiðstöðvar A Iþýðubandalagsins 10 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.