Þjóðviljinn - 18.01.1985, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 18.01.1985, Qupperneq 13
Hiti sjávar ræður afla á íslandsmiðum FISKIMAL ystumanna borgaraflokkanna í þessu landi. Þá dreymdi um er- lenda stóriðju í öllum landshlut- um sem keypti orku frá íslensk- um vatnaflsstöðvum. Til að gera þennan draum að veruleika var orkusamningurinn við svissneska iðnaðar í landinu og verið hemill á nauðsynlega þróun í marg- skonar úrvinnslu á íslenskum sjávarafla svo og fiskeldi í landinu. Til þess að finna stóriðju- draumnum grundvöll til að öflugum sjávarútvegi. Annars- vegar auknum veiðum og hins- vegar fullkomnari úrvinnslu fyrir heimsmarkað. Þessu til viðbótar verður að hraða svo sem nokkur kostur er uppbyggingu laxeldis- stöðva því það er hugsanlegasta ~, ■ f£ Hiti sjávar á íslandsmiðum er einn þýðingamesti áhrifavaldurinn þegar spáð er í fiskgengd og afla, segir Jóhann J.E. Kúld í Fiskimálum. Frá upphafi okkar sögu hefur fiskafli verið misjafn á miðunum við landið. Lengst af gegnum aldirnar áttum við ekki haffær skip til að stunda veiðar og sagan því aðallega um fiskigöngur á grunnmiðum, þar til seint á öld- inni sem leið, þegar þilfarsútgerð hófst og síðan í byrjun þessarar aldar, togveiðar og vélbátaút- gerð. En öll þessi fiskisaga okkar segir okkur að fiskafli var lengst af misjafn á milli ára. Það komu góð aflaár, en líka treg fiskiár. Þegar treg fiskiár komu fyrr á öldum á meðan miðin voru ekki þéttsetin af erlendum skipum og við áttum engin haffær skip, þá gátu menn ekki sagt að tregfiskið stafaði af ofveiði, enda hefði það verið fjarstæða. Hinsvegar gerðu menn sér ekki ljóst hvaða utanaðkomandi ástæða gæti valdið þessu. Það er ekki fyrr en Bjarni Sæmundsson fyrsti íslenski fiskifræðingurinn hefur hér störf í byrjun þessarar aldar við mjög frumstæð skilyrði, að hann gerir sér grein fyrir því að hitinn í sjónum er hér aðal örlag- avaldurinn. Rannsóknir Bjarna fóru nær eingöngu fram í togaranum Skall- agrími, skipi Kveldúlfsfélagsins, þar sem hinn greindi Guðmundur Jónsson var skipstjóri. Þá mun fyrst á íslandsmiðum farið að mæla hita sjávar áður en tog- vörpu var kastað. Þessi uppgötv- un mun hafa átt sinn mikla þátt í hinum mikla afla Skallagríms og Guðmundar Jónsonar gegnum árin. Síðan þetta var hefur mikið vatn runnið til sjávar og vísdómur okkar um lífskilyrði í hafinu í kringum fsland á að vera marg- faldur nú á við það sem hann var á dögum Bjarna Sæmundssonar, þessa afburðamanns á sviði fiski- rannsókna. Kaldir straumar síðustu ára aftur hlýnar Nú hafa hafstraumar sem voru of kaldir á síðustu árum, aftur hlýnað á okkar fiskimiðum við landið. Þetta boðar okkur meiri fiskafla en að undanförnu og mun það fljótlega segja til sín í meiri afla á miðunum. Annars er það lærdómsríkt fyrir okkur sem svo mikið eigum undir sjávarafla í okkar þjóðarbúskap, að í 32 ár eftir síðari heimsstyrjöldina, á meðan stórir erlendir veiðiflotar hagnýttu sér okkar mið, þá jafn- aði þorskaflinn sig upp á Islands- miðum með 4000.000 tonnum á ári. Nú, eftir að við sitjum einir að miðunum er gengið framhjá þessari sögulegu staðreynd eins og þetta hafi aldrei skeð. Fiski- rannsóknir á okkar miðum eru lífsnauðsynlegar, en þegar á- kveðinn er ársafli fiskitegunda held ég að'líka þurfi að taka mið af þeim afla sem fiskveiðisagan greinir frá. Ef við gerum þetta ekki, þá verða of miklar sveiflur í okkar fiskveiðum á milli ára, en það hefur óæskileg áhrif á stöðu okkar á fiskmörkuðum og fjár- hagslega afkomu fiskveiðiflot- ans. Afskipti ríkisvaldsins af fisk- veiðum annarra hefur allstaðar gefist illa og er hreint neyðarúr- ræði. Með öllum þeim miklu ríkisafskiptum af fiskveiðum á sl.ári er talið að þorskafli sl.árs verði í kringum 272 þús.tonn. Hvað hann hefði orðið mikill með minni afskiptum og hærri heildaraflatölu um ársafla í byrj- un sl.árs, er hinsvegar ekki gott að geta sér til um. Nú hefur það sannast í gegnum spurningalista sjávarútvegsráðuneytisins að fiski var á sl.vetrarvertíð kastað aftur í hafið væri hann tveggja eða þriggja nátta úr netum. Þetta var að sjálfsögðu neyðarvörn fiskimanna sem voru með alltof naumt skammtaða kvóta. Ef þetta á að endurtaka á komandi vetrarvertíð þá sjá allir í hvert óefni er komið. Enginn hefur heldur hugmynd um í hvað stór- um mæli þetta var gert. Rækjua- flinn er til septemberloka í ár 10.182 tonn og er það góð aukning frá síðustu árum, þarna munar mestu um hinar auknu út- hafsrækjuveiðar íslenskra skipa. Og enn er þörf að rannsaka ný rækjumið hér norður og austur af landinu. í þessu sambandi get ég frætt menn á því, að öll rækju- veiðiskip frá Sunnmæri í Noregi stunduðu veiðarnar á Jan Mayen hafsvæðinu á sl.sumri og fengu þau mikinn afla. Ekki mjólkurkú fyrir millilið og braskara Á síðustu árum hafa íslenskar fiskveiðar lengst af búið við of þröngan kost, og verið hafður sem mjólkurkýr allskonar milli- liða og braskara, sem oft hafa blóðmjólkað þennan aðalundir- stöðuatvinnuveg þjóðarinnar. Okrið á brennsluolíu til fisk- veiðiflotans er þar eitt ljótasta og átakanlegasta dæmið þó margt annað sé hægt að tína til, svo sem bankahallirnar sem reistar hafa verið fyrir tapið á fiskveiðunum. Bankar eiga að vera þjónustu- stofnanir almennings og atvinnu- veganna sé þjóðfélagið heilbrigt, en ekki stórgróðastofnanir á kostnað atvinnuvega sem berjast í bökkum eða eru reknir með tapi. Þá er það alvitlausasta rek- strarhagfræði sem um getur þeg- ar löggjafinn lætur leggja í sjóð af taprekstri. Hitt er jafn sjálfsagt að fyrirtæki fái að byggja sig upp í sjávarútvegi með því að leggja í varasjóð þegar vel gengur. En þá verður líka að tryggja það, að slíkt fjármagn sé ekki hægt að leggja í óskylda starfsemi. En til- hneiging til þess hefur verið mik- ill veikleiki íslenskrar útgerðar gegnum tíðina. En nú í dag er stærsta mál íslenskrar fiskútgerð- ar, að lækkun fáist á olíuverði til fiskiskipa. Lækkun er í samræmi við olíuverð til skipa í næstu löndum við okkur, þegar tekið er tillit til meiri flutningskostnaðar hingað til lands. Olíuverð sem ekki uppfyllir þessar sjálfsögðu kröfur það verður að hverfa. Geti hin þríhöfða olíusala ekki upp- fyllt þessa sjálfsögðu kröfu, þá verður að leita að öðrum úr- ræðum og finna þau. Áróðurinn gegn íslenskri sjósókn síðustu ára Það, hvernig búið hefur verið að íslenskri fiskútgerð síðustu ár á upptök sín í stóriðjudraumi for- álhringinn gerður og álverk- smiðjan í Straumsvík reist af grunni. En sá var galli á þessum samningi að söluverð orkunnar var undir framleiðsluverði. Þessi stóriðjudraumur knúði svo á um of örar orkuframkvæmdir byggð- ar á draumnum, þar sem óhag- kvæm erlend lán voru tekin til framkvæmda. Þetta er ástæðan fyrir hinu háa raforkuverði til al- mennings og margskonar iðnað- aruppbyggingar í landinu. f þessum stóriðjudraumi fólst nauðsyn þess, að telja fólki trú um að íslenskur sjávarútvegur væri á fallanda fæti og gæti ekki tekið við nýju fólki sem bættist við á vinnumarkaðinn. Þar átti stóriðja ásamt auknum þjónust- ustörfum á öllum sviðum að leysa vandann, ásamt smáiðnaði sem mundi vaxa upp í skjóli stóriðj- unnar. Þessi atvinnustefna er búin að valda miklu böli í ís- lensku þjóðlífi. Hún hefur tafið uppbyggingu margskonar létt- standa á þurfti að sannfæra fólk um að íslenski fiskveiðiflotinn væri alltof stór miðað við afkast- agetu okkar miða. Þessum áróðri hefur verið haldið að fólki í ræðu og riti síðustu árin og er nú svo komið að hinir ótrúlegustu menn eru farnir að trúa þessu. Það er haft eftir áróðursmeistara nasista í Þýskalandi stríðsáranna dr. Göbbels, að ef lygin væri endur- tekin nógu oft þá væri hægt að fá fólk til að trúa henni eins og sann- leika. Þessi kenning áróð- ursmeistara nasista virðist hafa fallið í góðan jarðveg hér í áróðr- inum gegn fiskveiðunum. Fólk þarf að sameinast um þjóð- holla atvinnustefnu Það mun sannast á komandi tíma að sjálfstæðu þróttmiklu menningarþjóðfélagi verður ekki haldið uppi í landinu nema með leiðin til að grynna á þeim upp- söfnuðu erlendu óreiðuskuldum sem safnast hafa fyrir á síðustu árum þjóðinni til skaða og van- sæmdar. Til þess að geta fullnýtt alla fiskistofna á landgrunninu þarf stóran veiðiflota, ekki færri skip en við eigum núna. Hinsvegar þarf þessi floti að vera í stöðugri endurnýjun og skipastærðir á hverjum tíma að miðast við það sem gefur besta afkomu. Sjávar- útvegurinn er kjölfestan í íslensk- um þjóðarbúskap gagnvart öllum innflutningi til landsins og verður um langan tíma. Þessvegna verð- ur að tryggja grundvöll hans. Til hans þarf fjármagnið að leita og gefa arð, en ekki til yfirhlaðinnar innflutningsverslunar. Þetta er spurningin um þjóðholla raun- hæfa atvinnustefnu í landinu, í stað draumóra og blekkingar um stóriðju sem leysi vandann. 14. janúar 1985. GERIÐ SKIL SEM FYRST HAPPDRÆTTl PJÓÐVILJANS 1984 Miðaverð 100 krónur. Dregið verður 21. janúar 1985. Upplýsingar i síma 81333. '."vL"r: . "V;v Nr. 1 7200 VIMISGAR. 1 Corona lölva 2. Farsedill fra Sanu innuferðum-Lands\n 3. Húsgögn frá íslenskum husbúnadi hf 4. Húsgögn frá Furuhúsmu hf. 5. Husgögn frá Árfelli hf 6. Heimtlistarki frá Fomx sf 7. Hljomiatki frá Japis-hf 8 -13. Bókaúnektir hjá Bókauigátu Mals og menmngar kr 5 000.00 hver SamtaLs kr • erðgUdi k. 92.000 C 30 000 C 30 000 t 30 000 ( 30.000. L 30.000. C 30 000 I. Hægt er að gera skil á afgeiðslu Þjóðviljans Síðumúla 6, hja Alþýðubandalaginu Hverl hjá umboðsmönnum um land allt, greiða með gíróseðli í oanka eða pósthúsi (sjá sý utfyllingu). A Reykjavikursvæöinu er hægt að sækja greiðslu til þeirra sem þess óskc við þeim beiðnum í síma 81333. 105 ?r tekiö Föstuaagur 18. janúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.