Þjóðviljinn - 18.01.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 18.01.1985, Blaðsíða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. Föstudagur 18. janúar 1985 14. tölublað 50. örgangur DJÚÐVIUINN Sundahöfn Vaktavinna veldur deilum Eimskip villsetja á vaktavinnu við Sundahöfn. Andstaða starfsmanna gegnþví er alger. Myndi lœkka starfsmenn ílaunum Félagarnir Valdemar, Hannes, Jón Gauti og Róbert voru ómyrkir í máli er þeir sögðu álit sitt á tyrirhuguðu vaktakerfi við Sundahöfn. Ljósm. E.ÓI. Húsavík Þingmönnum kjördæmisins hótað málaferlum Greiði þeir atkvœði með eða sitji hjá við atkvœða greiðslu um radarstöð á Langanesi I á Húsavík er grein eftir Birgi Steingrímsson á Húsavík, þar sem hann skrifar um uppsetningu nýrra radarstöðva hér á landi og leggst hann alfarið gegn þeirri hugmynd. Það er í sjálfu sér ekki frétt að fólk geri það, en hitt' er fréttnæmt að Birgir segir í grein sinni að ef þingmenn Norður- lands kjördæmis eystra greiði at- kvæði með uppsetningu stöðv- anna eða sitji hjá við atkvæða- greiðslu á Alþingi um málið munu hann lögsækja þá fyrir. Segist hann muni gera allt sem hægt er til að fá þá svifta þing- helgi svo lögsækja megi þá meðan þeir eru þingmenn og eins er þeir láti af þingmennsku. Þjóðviljinn innti Birgi nánar eftir þessu í gær og sagðist hann ekki vita um aðra leið en að fá þingmennina svifta þinghelgi. Hann sagðist aftur á móti hafa nóga lögfræðinga til að aðstoða sig við að leita leiða til að fram- fylgja málinu. Hugsanlegt væri Eimskipafélagið hefur í huga að koma á vaktavinnu hjá hafn- arverkamönnum við Sundahöfn. Að sögn nokkurra starfsmanna þar sem Þjóðviljinn ræddi við er mikil andstaða hjá öllum hafnar- verkamönnunum gegn þessari fyrirætlun, mest vegna þess að þetta mun valda umtalsverðri launalækkun hjá öllum starfs- mönnum. Þjóðviljinn ræddi við fjóra hafnarverkamenn um málið í gær, þá Róbert Rypkem, Jón Gauta, Hannes Hannesson og Valdimar Jónsson um þetta mál. Sögðu þeir að ef vaktir yrðu tekn- ar upp myndi öll eftir- og nætur- vinna detta niður. Sú yfirvinna sem hafnarverkamenn hafa haft um langt árabil hefur gert þeim kleift að lifa af launum sínum. Verði hún tekin af yrði ekki hægt að lifa af laununum. Þeir sögðu að það vakta-álag sem kæmi á launin væri smáræði sem litlu sem engu máli skipti. Fundir hafa verið haldnir um málið er andstaða starfsmanna gegn vaktafyrirkomulagi alger. Forráðamenn Dagsbrúnar hafa komið á fund starfsmanna og lýst því yfir að þeir styðji verkamenn í andstöðu þeirra gegn vöktunum. Þeir fjórmenningar sögðu aftur á móti að Eimskip gæti, samkvæmt kjarasamningum, sett á vaktir hvað sem verkamenn segja. „Við gætum auðvitað neitað, en þá yrðum við bara reknir og nýir menn ráðnir í staðinn“, sögðu þeir fjórmenningar. Þá sögðu þeir einnig að gerð hefði verið tilraun með vaktir á stóru tækjunum og hefði því ver- ið lofað að um tilraun í mánaðar- tíma yrði að ræða. Þetta stendur enn mörgum mánuðum seinna. -S.dór að stefna þeim fyrir Landsdóm. Þetta þyrfti að athuga allt saman. Þá sagði Birgir að fólk á Húsa- vík hefði tekið mjög við sér eftir að hann skrifaði greinina og allir sem hann hefði rætt við verið sér sammála nema einn, en sá vildi líka að ísland yrði vígbúið með kj arnorkuvopnum. -S.dór Bankarán ófundinn Enn hefur ekki verið upplýst hver maðurinn er sem sveik á annað hundrað þúsund krónur út úr tveimur bönkum á Reykjavík- ursvæðinu nú nýverið eftir að hafa stofnað ávísanareikning undir fölsku nafni, lagt stórar upphæðir inn á 10 sparisjóðsbæk- ur í jafnmörgum bönkum og tekið aftur út af tveimur þeirra. _______________________ vaxtareikningur VÖRNGEGN VERÐBÓLGU Mánaðarlega eru borin saman kjör hávaxtareiknings og verðtryggðra reikninga hjá bankanum, og vaxtabreytingar gerðar svo að Hávaxtareikningur verði alltaf betri kostur. /j^-v Betrí kjör bjóðast varla. ^/SlilflWÍ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.