Þjóðviljinn - 19.01.1985, Page 1
,12? DJ0ÐV1UINN
SUNNUDAGS-
BLAÐIÐ
MENNING
Náttúruvernd
Elliðaárdalnum fómað
Hraðbraut um sunnanverðan Elliðaárdalinn aftur komin á dagskrá
Davíð Oddsson borgarstjóri villfrestafriðlýsingu dalsins
Sem kunnugt er hafði verið
ákveðið að friðlýsa Eiliða-
árdalinn og gera þar útivistar-
svæði eða fólkvang. Á síðasta
fundi umhverfisverndarráðs
Reykjavíkurborgar lagði hins
vegar Hulda Valtýsdóttir formað-
ur ráðsins og borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins fram tillögu um
að frestað verði að friðlýsa Ellið-
aárdal.
Unnið hefur verið að málinu í
mörg ár og fékkst það m.a. í gegn
á sínum tíma að hætta við fyrirhu-
gaða hraðbraut eftir sunnanverð-
um dalnum. Mun það hafa verið
á fyrsta fundi borgarstjórnar eftir
að núverandi meirihluti tók við
að samþykkt var að vinna áfram
að því að gera dalinn að fólkvangi
og friðlýsa hann.
Ástæðan fyrir því að tillaga
kom fram í umhverfisverndarráði
um að fresta friðlýsingu er sú að
Davíð Oddsson borgarstjóri vill
að við þetta verði hætt og er hann
aftur kominn með hugmydnir um
að leggja hraðbraut eftir dalnum.
Ástæðan er sú að hraðbraut um
Elliðaárdalinn tengist hraðbraut
um Fossvogsdal sem Davíð þrýst-
ir mjög á Kópavogsbúa að ljá
máls á.
Þar að auki eiga bæði Reykja-
vík og Kópavogur land að efsta
hluta Elliðaárdals og var búið að
ná samkomulagi um að bæirnir
báðir stæðu að fólkvanginum.
Með því að taka aftur upp hug-
myndina um hraðbraut um dal-
inn er Davíð Oddsson að þrýsta á
Kópavog að gefa eftir í Fossvogs-
dalsmálinu, vekja aftur upp
deilur um Vatnsendasvæðið og
fleiri.
t>á var í frestunartillögunni á
fundi umhverfisverndarráðs lagt
til að kjörin verði nefnd sem át-
hugi málið allt og það vekur at-
hygli að ekki er lagt til að íbúar
Seláshverfis, Árbæjarhverfis,
fulltrúi Árbæjarsafns né Kópa-
vogs eigi sæti í nefndinni. Álf-
heiður Ingadóttir fulltrúi Al-
þýðubandalagsins í ráðinu fékk
því framgengt að frestað var í
ráðinu að taka tillöguna fyrir.
-S.dór
Knattspyrna
Luton í
Laugar-
dal
Enska
fyrstudeildarliðið
gegn
Reykjavíkurúrvali
Gervigrasið
vígt á sunnudaginn
Á sunnudaginn verður óvænt
uppákoma í Laugardal stórleikur
í fótbolta um hávetur. Enska fyrs-
tudeildarliðið Luton Town mætir
til leiks við Reykjavíkurúrval.
Þrennt gerir þessa heimsókn
Englendinganna mögulega: nýi
gervigrasvöllurinn, veðurfar hag-
stæðara knattspyrnuiðkan á Is-
landi en í heimalandi fótboltans,
og framtak Knattspyrnuráðs
Reykjavíkur, Flugleiða og Hen-
sons sem standa að Luton-
leiknum.
Reykjavíkurúrvalið velur
Björn Arnason þjálfara Víkings-
liðsins. Luton þykir sókndjarft en
er líka frægt fyrir að fá á sig mörk
þegar svo ber undir. Helstu
stjörnur eru Brian Stein, lands-
liðsmaður, markaskorari í fram-
línu, og Rickie Hill, einn
leiknasti miðjumaðurinn í ensku
deildinni, við landsliðið.
Þessi leikur verður einskonar
vígsluleikur gervigrasvallarins í
Laugardal. í Englandi er aðeins
einn slíkur, völlur QPR í
London, en Luton-liðið kann
prýðilega við sig á slíkum velli
sem sést á því að það hefur unnið
útileiki sína gegn QPR síðan
gervigrasið var þar lagt.
Leikurinn hefst klukkan þrjú
og má gera ráð fyrir að seinni
hálfleikur verði leikinn i flóðljós-
um.
Á Vesturgötunní er nú loksins búið að koma upp hraðahindrunum
og þar með er margra ára baráttumál íbúa í Vesturbænum komið í
höfn. Upphaflega beittu íbúasamtök Vesturbæjar sér fyrir því að há-
markshraðinn á Vesturgötunni yrði lækkaður niður í 30 km en öku-i
menn virtu það oftast að vettugi. Þá var hafin barátta fyrir því að settar
yrðu niður hraðahindranir og það er nú loksins orðið að veruleika.
Jámgrindur, sem skaga fram í götuna, gera bílum mjög erfitt fyrir að
aka á miklum hraða eftir götunni. Einsog sjá má á þessum hressu
krökkum úr Vesturbæjarskólanum eru allir yfir sig ánægðir með
breytinguna, nema kannski ósvífnirökuþórarsem bölva breytingunni í
laumi.
-ÖS
Borgin
Skúbgötumúrinn sýndur lóðartiöfuni
Kjörnirfulltrúarsjá skipulagið fyrst á mánudag
Ífyrradag var haldin sérstök
sýning á tillögum um skipulag á
Skúlagötusvæðinu fyrir stærstu
lóðareigendurna þar, Eimskip,
Sláturfélag Suðurlands og Völ-
und. Tillögurnar hafa ekki komið
fyrir augu fbúa í hverfinu og
kjörnir borgarfulltrúar sjá þær
ekki fyrr en á mánudag, á skipu-
lagsnefndarfundi.
Heimildir Þjóðviljans herma
að nokkuð hafi verið dregið úr
múrnum frá fyrstu uppköstum,
en skipulagið sé þó í öllum meg-
indráttum í samræmi við upphaf-
legar hugmyndir.
Þorvaldur S. Þorvaldsson for-
stöðumaður Borgarskipulags
staðfesti við Þjóðviljann að til-
lögumar hefðu verið kynntar
fyrir nokkrum lóðareigendum,
enda var í samþykkt skipulags-
nefndar, sagði Þorvaldur, ákvæði
um að vinna verkið í samráði við
þá og taka tillit til þeirra.
Höfundar tillagnanna eru
Guðmundur Kr. Gieðmundsson,
Ólafur Sigurðsson og Bjöm
Hallsson. Meirihluti skipulags-
nefndar ákvað á sínum tíma að
fela þeim verkið án samkeppni.
-m
Friðarverðlaun í Kanada - leiðtogafundur í Dehli
Viðtal við ÓlafRagnar Grímsson bls. 4 í Sunnudagsblaði