Þjóðviljinn - 19.01.1985, Side 2
FRETTIR
Fiskvinnslukonur
Aðeins viku uppsagnarfrestur
Konur eru 3M hlutar starfsfólks ífiskvinnslunni
Reknar heim með viku fyrirvara þóttþœr hafi unnið í30 ár
Sigrún Clausen Akranesi: 180 atvinnulausir
F erkamannasamband íslands
hefur vakið athygli fjölmiðla
á því ófremdarástandi, sem ríkir
og ríkt hefur í atvinnumálum fisk-
verkunarfóiks. Á Akranesi og
Suðurnesjum hafa mörg hundruð
manns verið á atvinnuleysisskrá í
nokkrar vikur. Sé Hafnarfirði
bætt við hafa nálega þúsund
manns verið á atvinnuleysisskrá í
þessum byggðarlögum síðan
nokkru fyrir jól auk mikils fjölda
á mörgum öðrum stöðum á
landinu. Konur eru þrír fjórðu
hlutar starfsfólks í fiskvinnslunni
en milli 80 og 90% atvinnulausra í
starfsgreininni á Akranesi
samkv. upplýsingum Herdísar
Ólafsdóttur hjá verkalýðsfélagi
Akraness.
Uppsagnarfrestur í fiskvinnsl-
unni er ein vika. Gildir þá einu
hvort viðkomandi hefur starfað í
þrjá mánuði, eða þrjátíu ár. í
flestum öðrum störfum er upp-
sagnarfrestur einn til þrír mánuð-
ir og stundum lengri.
Sigrún Clausen, formaður
kvennadeildar Verkalýðsfélags
Akraness, sagði í samtali við
Þjóðviljann, að í þessari viku
fengju um hundrað og áttatíu
manns greiddar atvinnuleysis-
bætur á Akranesi. Síðasta ár
sagði hún hafa verið mjög slæmt á
Akranesi, og hefðu t.d. 60-80
manns stöðugt verið á atvinnu-
leysisskrá frá því í haust. Hún
sagðist telja að ástandið myndi
lagast á næstunni. Frystihúsin
væru að fara í gang. Tvö hefðu
verið stækkuð og tækju fleira fólk
í vinnu en áður en auk þess bjóst
hún við að saumastofna Henson
myndi taka til starfa á næstunni á
Akranesi. Mætti reikna með all
mörgum konum til vinnu hjá
fyrirtækinu sem væri nýr aðili í
atvinnulífi Akraness. Eitt frysti-
hús er hætt starfsemi fyrir fullt og
allt.
Óskar Hallgrímsson í vinnu-
máladeild fél-
agsmálaráðuneytisins sagði í
Sigrún Clausen: hundrað og áttatíu
atvinnulausir á Akranesi. Ljósm. eik.
HAPPDRÆTTI ÞJÓÐVILJANS
Síöustu forvöö aö gera skil
Dregiö verður 21. janúar.
Nnr viðtakanda lilvisunarnr Vd TXT Slolnun Hb Reikn nr viólakanda
7124,8844, 801 £6 1677
Viðtakandi Happdrætti Þjóðviljans
Síðumúla 6
GlRÓ-SEÐILL Q
NR.
Jón Jónsson
Laugavegi 200
105 Reykjavík
Viðskiptastolnun viótakanda
Alþýðubankinn h.f.
Afgreiöslustaður viöskiptastolnunar
Aðalbanki
Tegund reikmr.gs ' .
, Giroreikningur
. Avisanareiknmgur X- Hlaupareiknmgur
g greiöslu
Happdrættismiðar
Hægt er að gera skil á afgeiðslu Þjóðviljans Síðumúla 6, hjá Alþýðubandalaginu Hverfisgötu 105,
hjá umboðsmönnum um land allt, greiða með gíróseðli í banka eða pósthúsi (sjá sýnishorn um
útfyllingu). Á Reykjavíkursvæðinu er hægt að sækja greiðslu til þeirra sem þess óska og er tekið
við þeim beiðnum í síma 81333.
samtali við blaðið að atvinnu-
lausum færi nú fækkandi á
landinu öllu þar sem fiskvinnslan
væri yfirleitt að komast í fullan
gang.
Nánar í blaðinu eftir helgi.
-hágé
Elliði hét maðr. Hann var maðr
hefnigjarn. Hann var mjök á
móti hraðbrautum. Þar kom að
kjósa skyldi...
Kjarnorkuvopn
Mótmæltum líka
Steingrímur: Líta má á kröfur Islendinga
um skýringar
sem mótmœli við slíkum hugmyndum
Eg lít svo á, að þegar við krefj-
umst skýringa á þessu og ítr-
ekum það að hingað komi ekki
kjarnorkuvopn nema með leyfi ís-
lenskra stjórnvalda, þá séum við
um leið að mótmæla slíkum hug-
myndum, sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra í
samtali við Þjóðviljanna í fyrra-
dag, er blaðið leitaði viðbragða
hans við fregnum af mótmælum
forsætisráðherra Bermuda og
staðfestingu yfirhershöfðingja
herafla Kanda á tilvist skjalanna
sem Arkin kynnti íslenskum
ráðamönnum í desember sl.
Steingrímur kvað það að vissu
leyti vera létti, sem fram hefði
komið í fréttum af þessu máli, að
í sama skjalinu væri einnig að
finna staðfestingu þess, að hing-
að yrðu ekki flutt kjarnorkuvopn
nema ieyfi stjórnvalda kæmi til.
„Ég efa það ekki að kjarnorku-
veldin eru með heilan bunka af
plönum um alls konar hluti sem
við vitum ekkert um, ég hugsa að
við komumst aldrei til botns í því.
En það mikilvægasta er að kjarn-
orkuvopn verði aldrei flutt hing-
að án heimildar stjórnvalda, og á
það legg ég áherslu". -óg
Kaffibaunaafslátturinn
Jafngildir tekjum
Akureyrar
5,5 miljóna dollara afslátturinn
jafngildir gjöldum allrafjölskyldna til
bœjarins á síðasta ári
Fjölmiðlar hafa undanfarnar
vikur skýrt frá athyglisverð-
um viðskiptum Sambandsins með
kaffi. Upplýst hefur verið að dótt-
urfyrirtæki þess, Kaffibrennsla
Akureyrar h/f, hafi fengið 5,5
miljónir dollara í afslátt frá selj-
endum kaffis í Brasilíu árið 1979-
1981.
Ef þessar 5,5 miljónir dollara
eru færðar til verðlags nú um
stundir kemur ýmislegt athyglis-
vert í ljós. Upphæðin er u.þ.b.
225.000.000.- í íslenskum krón-
um. Fyrir þá upphæð má fá prýði-
lega útbúinn skuttogara, og hugs-
anlega 50 tonna bát í kaupbæti,
allt saman splunkunýtt. Það má
sem hægast fá hundrað stykki af
hundrað fermetra íbúðum fyrir
þann pening. Fyrir ýmsa getur
verið fróðlegt að vita, að allar
tekjur bæjarsjóðs Akureyrar af
útsvörum og aðstöðugjöldum
voru á sl. ári nokkru lægri, eða
um 210.000.000,-. f þessu sam-
bandi séð er hinn umdeildi af-
sláttur dálagleg summa, já raunar
svipaður gjöldum allra fjöl-
skyldna til sveitarfélagsins í
13.000 manna bæ á árinu 1984, og
nærri helmingi hærri en öll fram-
lög ríkisins til grunnskólabygg-
inga samkvæmt fjárlögum 1985.
- hágé.
Reiðhöll
Hlutafélag stofnað
Um skeið hefur verið í undir-
búningi að reisa reiðhöll í
Reykjavík og hefur byggingin
þegar verið hönnuð og kostnað-
aráætlanir gerðar. Þjóðviljinn
skýrði ítarlega frá þessari fyrir-
huguðu byggingu á sínum tíma
sem á jöfnum höndum að þjóna
hagsmunum hestamanna og
bænda.
Á fundi sem haldinn var um
það þann 12. þ.m. var samþykkt
að stofna hlutafélag, Reiðhöllina
hf., er hefði það að markmiði að
reisa og reka reiðhöll. Skal hún
„vera vettvangur þjálfunar,
keppnis- og sýningaraðstöðu
fyrir hross og hestamennsku...
stuðla að sýningum tengdum
landbúnaði og starfsemi tengdri
reiðskóla og æskulýðsstarfi",
ásamt nauðsynlegum rekstri.
Fundurinn samþykkti að hlutaíé
skyldi vera 10 milj. kr. og söfnu-
ðust þegar á fundinum 4 milj. Að
því er stefnt að höllin verði fok-
held sem fyrst og fullgerð í tengs-
lum við landbúnaðarsýningu
1987.
Stjórn Reiðhallarinnar hf.
skipa: Agnar Guðnason, Gísli B.
Björnsson, Sigurður Líndal, Sig-
urbjörn Bárðarson, Eyjólfur
ísólfsson, Rosmarie Þorleifsdótt-
ir og Gunnar R. Magnússon.
- mhg.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. janúar 1985