Þjóðviljinn - 19.01.1985, Page 3
FRETTIR
Líftœkni
Ensím seld til útlanda
Unnin úrfiskslógi. Geipihátt verð. 200 grömm seld ífyrstu lotu. 100þúsundfyrir kílóið. Mikill áhugi erlendis.
Fleiri ensímframleidd á nœstunni. Tímamót
Fyrsti skammturinn af lífræn-
um efnahvötum sem framleiddur
hefur verið hérlendis var nýlega
seldur til Bandaríkjanna fyrir
mjög gott verð. Hér er um kalt
ensím að ræða sem unnið er úr
fiskúrgangi. Vinnslan fór fram á
tilraunastofu Raunvísindastofn-
unar Háskólans en þar er einnig
unnið að framleiðslu hvera-
ensíma.
Alls voru seld um 200 g af fisk-
ensíminu til Bandaríkjanna fyrir
um 20 þús. kr. Það gerir 100 þús.
kr. fyrir hvert kg af efnahvatan-
um en að jafnaði fást um 400-
4000 kr. fyrir hvert kg af iðnaðar-
ensímum.
„Verðið sem við fengum er
mjög gott og greinilega verð fyrir
rannsóknarvöru, þetta eru tíma-
mót hjá okkur“, sagði Jón Bragi
Bjarnason lífefnafræðingur, sem
er verkefnisstjóri við tilrauna-
framleiðsluna á hinum lífrænu
hvötum.
„Þetta eru mikil tímamót hjá
okkur því þetta er fyrsta skrefið
sem við tökum til að hreyfa okkur
áfram í þessum málum. Við höf-
um hingað til verið við tilrauna-
vinnslu en vonumst til að geta
gengið iengra á næstu mánuðum
og árum. Við ætlum að halda
þessu áfram og reyna að selja
heilli útgáfu af þessu sama ens-
ími, önnur efni úr fiskúrgangi og
hveraörveruefni en við Jakob
Kristjánsson og Guðni Alberts-
son erum byrjaðir rannsóknir á
þeim örverum“, sagði Jón Bragi.
Erlendir aðilar hafa haft mik-
inn áhuga á þeim ensímum sem
verið er að gera tilraunir með
framleiðslu á hérlendis en ekki
hefur verið mögulegt að bjóða
vöruna hingað til, þar sem hún
Alþýðu-
bandalagið
AB óskar eftir viðræðum
við Kvennalista,
kvennaframboð og
Alþýðuflokk
um nýtt landsstjórnarafl
I vikunni sendu forystumenn
Alþýðubandalagsins bréf til Al-
þýðuflokks, Bandalags jafnaðar-
manna, Samtaka um kvennalista,
Kvennaframboðsins á Akureyri
og Kvennaframboðsins í Reykja-
vik þar sem óskað er eftir við-
ræðum.
I>á hefur Alþýðubandalagið
sent samböndum og aðildarfé-
iögum innan ASÍ og BSRB svo
og mörgum öðrum félagasam-
tökum bréf til kynningar á þessari
málaleitan.
Viðræðurnar fara fram á
vinnustöðum, í samtökum launa-
fólks, við aðra stjómarandstöðu-
flokka og samtök og einstaklinga
utan þings. Af hálfu Alþýðu-
bandalagsins er gert ráð fyrir að
þessar viðræður verði allar opnar
og jafnóðum verði skýrt opinber-
lega frá því sem þar kemur fram.
í bréfum til stjórnarandstöðu-
flokkanna og í kynningu til fé-
lagasamtaka er gerð nánari grein
fyrir þessum viðhorfum, og einn-
ig vakin sérstök athygli á sam-
þykkt 35. þings ASÍ um „nýtt
landsstjómarafl“.
Rafmagnsveita Reykjavíkur
Fastagjald 1400kr.ámæli
Ranglát og vitlaus tillaga, segir Sigurjón Pétursson. Veldur hœkkun hjá minnstu neytendunum
Það er engin sanngirni í þessari
tillögu - hún er bæði ranglát
og vitlaus, sagði Sigurjón Péturs-
son borgarstjórnarfulltrúi á fundi
borgarstjórnar á fimmtudags-
kvöld þar sem endanlega var sam-
þykkt breyting á gjaldskrá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur sem fel-
ur í sér að tekið verður upp 1400
króna fastagjald á ári á sérhvern
rafmagnsmæli í borginni.
Breytingin felur í sér hækkun á
raforkuverði til lítilla fjölskyldna
og lækkun orkuverðs til stærri
notenda.
Sigurjón Fjeldsted fulltrúi
borgarstjórnarmeirihlutans sagði
að markmiðið með þessari
breytingu væri að hver notandi
rafmagns greiði þann kostnað
sem hann stofnar til. Taldi hann
að breytingin gæti þýtt um 90
króna hækkun á mánuði fyrir
minnstu neytendurna.
Sigurjón Pétursson sagði að
eðlilegra væri að hækka lág-
marksgjald fyrir raforkuna, þar
sem með því mætti ná fram þeirri
hagræðingu sem að væri stefnt,
að fækka mælum, án þess að það
bitnaði á minni háttar raforku-
neytendum, einhleypingum og
einstæðu fólki. Sigurjón Péturs-
son taldi þá röksemd nafna síns,
að stórir neytendur ættu að njóta
þess í viðskiptakjörum að þeir
eru stórir, vera ranga, en setti sig
ekki upp á móti markmiðum Raf-
magnsveitunnar um hagræðingu.
Fastagjaldið var samþykkt að
viðhöfðu nafnakalli með 12 at-
kvæðum gegn 8 atkvæðum Al-
þýðubandalags, Kvennalista og
Framsóknarflokks. Sigurður E.
Guðmundsson fulltrúi Alþýðu-
flokksins sat hjá.
ólg.
Borgin
Mesttil
félagsmála
Tekjur Reykjavíkurborgar
fóru fram úr áætlun á sl. ári um
179.000 krónur og voru 2.578
miljónir króna. Rekstrargjöld
voru hins vegar um 5 miljónum
króna undir áætlun og námu
1,870 miljónum króna.
Stærstu útgjaldaliðirnir við
rekstur borgarinnar á síðasta ári
voru til félagsmála, 629,8 miljón-
ir kr., og til gatnagerðar, 395,3
miljónir kr.. Helstu tekjuliðirnir
voru: útsvör 1,095 miljónir, að-
stöðugjöld 428 miljónir, fast-
eignagjöld 366 miljónir og gatna-
gerðargjöld og bensínfé 297 milj-
ónir króna. -ólg-
Myndbönd
Hreinsað til á leigunum
Haft hefur verið í hótunum
við stjórnarmenn samtaka rétthafa
Rannsóknarlögreglan hefur nú
til meðferðar kæru á hcndur
myndbandaleigunni Videoheim-
ur í Tryggvagötu en þar hefur
undanfarna mánuði verið gerður
upptækur mikill fyöldi mynd-
banda sem leigð hafa verið út án
heimildar rétthafa sem í flestum
tilvikum eru kvikmyndahús borg-
arinnar.
Að sögn Helga Daníelssonar
yfirrannsóknarlögregluþjóns
miðar rannsókn málsins vel en
henni er ekki fulllokið.
Rannsóknarlögreglunni hafa
borist fleiri kærur á hendur
myndbandaleigum sem dreifa ó-
löglega myndefni en Helgi sagði
að ekki hefði enn ekki gefist tími
til að taka þær kærur fyrir. Þar að
auki sagðist hann vita um fleiri
kærur vegna ólöglegra mynd-
banda sem væru á leiðinni.
Fulltrúar samtaka rétthafa
myndbanda hafa undanfarna
daga gert víðreist á myndbanda-
leigur á höfuðborgarsvæðinu og
lagt hald á hundruði myndbanda-
spóla sem hafa verið í ólöglegri
útleigu. Hefur verið haft í hótun-
um við stjórnarmenn samtaka
rétthafa vegna þessarar hreinsun-
arherferðar á myndbandaleigun-
um og unnin skemmdarverk á
fyrirtæki eins stjórnarmanna en
engar kærur hafa verið lagðar
fram vegna þessara atburða.
-•g-
að sinna þessu ákveðna sviði og
mér sýnist vera gott útlit á fjár-
m ögnun frá hinu opinbera“
sagði Jón Bragi Bjamason. -|g
Lífefnafræðingarnir Bjarni Ásgeirsson, Jón Bragi Bjarnason og Ingólfur Kristjánsson með smáskammt af fisk-ensímunum á rannsóknarstofu Raunvísinda-
deildar Háskólans í gær. Mynd -eik.
hefur ekki verið til í nægjanlegu
magni.
„Við áttum þessi 200 gr sem við
létum frá okkur en annað fyrir-
tæki óskaði eftir 10 kg. Við verð-
um því að fara af stað með miklu
stærri tilraunavinnslu eins fljótt
og við getum. Það er búið að
semja rannsóknaráætlun til
þriggja ára á vegum fjögurra
stofnana og það er mjög merkileg
viðleitni að sameina stofnanir til
Laugardagur 19. janúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA