Þjóðviljinn - 19.01.1985, Qupperneq 4
J
_______________LEIÐARI__________
Úiræðaleysi stjómarinnar
Efnahagsmál þjóðarinnar eru í ólestri. Ný-
samþykkt fjárlög fólu í sér gífurlegan viðskipta-
halla við útlönd. Erlend lántaka mun vaxa enn,
og er þó ærin fyrir. Verðbólgan er á hraðfluga
uppleið. Sjálfur Seðlabankinn spáir því, að
kaupmáttur kauptaxta muni lækka um fjögur
prósent á næsta ári. Bankinn spáir jafnframt að
samkeppnisstaða útflutningsgreinanna muni
versna á árinu sem svarar til tveggja prósenta.
Útlitið er því allt annað en glæsilegt. En ríkis-
stjórnin?Ætlar hún ekki að grípa til einhverra
ráða? Svarið er nei. Ríkisstjórnin mun ekki
grípa til neinna ráða af þeirri einföldu ástæðu að
hún er ráðlaus. Innan stjórnarinnar geta menn
ekki komið sér saman um neitt, nema halda
Þorsteini Pálssyni utan gátta.
Þetta hefur sést glögglega á síðustu dögum. (
fjölmiðlum hafa blossað upp deilur milli stjórn-
arflokkanna um hvaða úrræðum megi beita til
að rétta við fjárhag þjóðarinnar. Innan þing-
flokks Framsóknarflokksins hefur Alexander
Stefánsson tekið upp gamlar tillögur Alþýðu-
bandalagsins og gert að sínum: Hann vill efla
eignaskatt, koma upp stóreignaskatti og leggja
skyldusparnað á hátekjufólk.
Morgunblaðið hefur að sjálfsögðu tekið þess-
ar tillögur Framsóknar óstinnt upp, og segir fyrr í
þessari viku að þingflokkur Sjálfstæðismanna
hafi hafnað þeim. Forsætisráðherra reynirsvo í
framhaldi af þessu að draga sem mest úr
ósættinu, og segir í viðtali við Þjóðviljann í gær,
að Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, hafi fullvissað sig um að Sjálfstæðis-
menn muni ekki hafna tillögunum. Með því held-
ur hann auðvitað fram, að Morgunblaðið hafi
farið með ósannindi.
Ástandið er einfaldlega þannig, að milli
stjórnarflokkanna og einnig innan þeirra er
óeining um úrræði. Það skiptir í sjálfu sér litlu
fyrir þjóðina, því ástandið í efnahagsmálum
hennar í dag er einmitt spegilmynd af því hversu
haldbær fyrri „úrræði" núverandi stjórnar hafa
reynst.
Hins vegar er rétt að benda á það, í tilefni af
úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar, að það eru til
lausnir. Flokkar í stjórnarandstöðu hafa lagt
fram grundaðar tillögur sem geta leyst úr vanda
þjóðarbúsins.
Alþýðubandalagið hefur lagt til, að skattur af
verslunar- og skrifstofuhúsnæði verði tvöfald-
aður. Það hefur líka lagt til að allur hagnaður
Seðlabankans verði gerður upptækur, og veltu-
skattur verði í ofanálag lagður á alla banka. Fé
sem kæmi úr slíkri skattheimtu - sem kæmi
alls ekki við pyngju launafólks - mætti verja
til að styrkja stöðu sjávarútvegsins, meðal ann-
ars til að tryggja hlut sjómanna og lækka olíu-
kostnað útgerðarinnar.
Jafnframt vill flokkurinn að vextir verði stór-
lækkaðir og verðtrygging skammtímalána verði
hreinlega bönnuð með lögum. Þetta myndi
auðvitað efla mjög hag húsbyggjenda, en vax-
talækkun myndi að sjálfsögðu líka skila miklu í
vænkandi gengi sjávarútvegsins.
Alþýðubandalagið hefur líka lagt til, að vaxta-
tekjur verði skattskyldar. Þannig mætti afla um
570 miljónum króna á ári, sem flokkurinn vill
verja til Byggingarsjóðs verkamanna. En það
þarf að gera stórátak í húsbyggingarmálum
verkafólks, þó Alexander Stefánsson geri sér
ekki næga grein fyrir því enn sem komið er.
Þessa valkosti verður fólk að hugleiða og
hugfesta, mitt í úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar.
-ÖS
Ó-ÁLIT
Efþú lœtur Kjaradóm úr-
skurða um peninga í Kvik-
myndasjóð Ragnhildar, þá
skal éggera þá allra listrœn-
ustu auglýsingu um þigsem
sésthefur.
DJÖÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Pjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Öskar Guðmundsson.
Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón
Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Jóna Pálsdóttir, Lúðvík Geirsson,
Magnús H. Gíslason, Mörður Árnason, ólafur Gíslason, Sigurdór
Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir).
Ljósmyndir: Einar ólason, Einar Karlsson.
Útlit og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvaemdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrtfstofustjóri: Jóhannes Haröarson.
Auglýsingaatjórl: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir.
Afgrsiðslustjóri: BakJur Jónasson.
Afgrsiðsla: Bóra Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Simavarsla: Ásdís Kristinsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmssður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf HúnQörð.
Innhsimtumsnn: Brynjótfur Vilhjálmsson, Ólafur Bjömsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýslngar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, síml 81333.
Umbrot og setning: Prentsmlðja Þjóðvlljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í iausasökj: 30 kr.
Sunnudagsverð: 35 kr.
Aekrfftarverð á mánuðl: 300 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. janúar 1985