Þjóðviljinn - 01.02.1985, Qupperneq 1
1
febrúar
1985
föstu-
dagur
26. tölublað 50. árgangur
DJOÐVIUINN
LANDIÐ
GLÆTAN
Innflutningssvindl
Stórt fjársvikamál
Ríkisendurskoðun kœrir Mótorskip hf. fyrir fölsun og tollalagasvik.
Forstjórinní gœsluvarðhaldi. Umfangsmikið mál segir rannsóknarlögreglustjóri.
Mjög stórt og umfangsmikið
fjársvikamál sem tengist bif-
reiðainnflutningi fyrirtækisins
Mótorskip hf. er nú í rannsókn.
Samkvæmt heimildum Þjóðvilj-
ans hefur Mótorskip hf. í sam-
vinnu við viðskiptaaðila í Þýska-
landi falsað faktúrur fyrir Toyota
bifreiðar, sem eru keyptar frá
Þýskalandi en framleiddar í verk-
smiðju í Belgíu. Um miklar fjár-
hæðir er að ræða.
Ríkisendurskoðun hefur haft
málið í rannsókn og kært til ríkis-
saksóknara og hann hefur nú sent
Namm!
Hver landsmaður borðar að meðaltali 121/2 kg af saelgæti árlega. Það er
því ekki undarlegt að við skulum eiga heimsmet í tannskemmdum.
Mynd: E.OI.
rannsóknarlögreglunni málið.
Þetta staðfesti Hallvarður Ein-
varðsson, rannsóknarlögreglu-
stjóri, í samtali við Þjóðviljann í
gær.
Síðdegis í gær var svo fram-
kvæmdastjóri Mótorskips hf. úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 6.
febrúar nk., eftir húsrannsókn í
húsakynnum fyrirtækisins í
Reykjavík. Lögreglan lagði hald
á alla pappír'í sem þar fundust.
Hallvarður E .nvarðsson staðfesti
að um meint fölsunar- og tolla-
lagabrot væri að ræða.
Einn heimildarmanna Þjóð-
viljans kvað ríkisendurskoðun
hafa undir höndum skjöl er sönn-
uðu að samstarfsaðilar Mótor-
skips hf. í Þýskalandi hefðu skráð
verð Toyota bflanna - sem voru
ónotaðir þó fyrirtækið muni
stundum hafa skráð þá notaða -
mun lægra en hið raunverulega
verð. Þannig hefðu tollar orðið
miklu lægri og því hefði Mótor-
skipi hf. verið kleift að bjóða
Toyota bifreiðar á lægra verði en
Toyota umboðið í Reykjavík gat.
Fyrirtækið mun einnig hafa flutt
Mercedes Benz bfla til íslands.
S.dór/ÖS/lg.
Vertíðin
Smokklaust
í landinu
Smokkur frá Falklandseyjum
á leiðinni!
Alvarlegt ástand er að skapast í
verstöðvum víða um land, þar
sem smokkfískur til beitu er að
mestu uppurinn. Þetta gerist á
sama tíma og afburða góð veiði er
hjá línubátum vestanlands og
fyrir Norðurlandi og ekki eru
nema fáir mánuðir liðnir síðan
geysistórar smokkflskstorfur
gengu upp að Vesturlandi og
Vestfjörðum.
Jón Alfreðsson kaupfélags-
stjóri á Hólmavík sagði í gær að
mjög erfitt væri að fá beitu fyrir
línubáta sem þaðan eru gerðir út
og hafa aflað mjög vel síðustu
vikur. „Sfld er það eina sem er
fáanlegt en hvergi hægt að fá
keyptan smokk. Þetta kemur sér
mjög illa fyrir okkur“, sagði Jón.
Svipaða sögu er að segja frá sjáv-
arplássum víða á suður- og vest-
urlandi en víða á Vestfjörðum
eru útgerðir vel birgðar af
smokknum sem gekk í haust.
Nú standa menn frammi fyrir
því að þurfa að flytja inn smokk í
stórum stfl frá Sovétríkjunum,
Noregi og janfvel er búið að
kaupa smokk sem er veiddur við
Falklandseyjar. Óvíst er hins
vegar hvort þessi beita skilar sér
hingað í tæka tíð vegna far-
mannaverkfallsins. Þar að auki er
hér um mun dýrari smokk að
ræða en þann íslenska. - |g.
Umframorkulandið
Olíukeyrsla sparar miljónir
Rafmagnsveitur ríkisins nota díselvélar ístað þess að kaupa af Landsvirkjun. Gœti sparað
30 miljónir íár. Skyndifundur hjá ráðherra ígœr. Landsvirkjun skipað að lœkka taxtana
Rafmagnsveitur
ríkisins hafa
frá áramótum skipulega séð
til þess að keyra álagstoppinn á
orkukaupum frá Landsvirkjun
niður með því að notast við dísel-
vélar víða úti um landið. Þessi að-
ferð sem notuð var í minna mæli á
liðnu ári hefur sparað RARIK
stórar fjárhæðir í orkukaupum
þrátt fyrir olíueyðslu.
I gærmorgun voru forráða-
menn Landsvirkjunar og RAR-
IK kallaðir til fundar í iðnaðar-
ráðuneytinu þar sem Landsvirkj-
un var knúin til að taka gjaldskrár
sínar til endurskoðunar gegn því
að RARIK hætti að keyra dísel-
vélar.
Það vekur óneitanlega furðu
að á sama tíma og Landsvirkjun
býr við geysilegt umframafl og
umframorku getur RARIK spar-
að sér u.þ.b. 30 miljónir á þessu
ári með því að keyra álagstoppa
niður með díselvélum í stað þess
að versla við Landsvirlcjun.
„Þetta mál er núna til umræðu
eftir fundinn í iðnaðarráðuneyt-
inu í morgun. Landsvirkjun ætlar
að endurskoða sín mál og búa til
einhverja vitrænni gjaldskrá en
þá sem við búum við í dag og er
óbreytt að formi frá 1971. Við
höfum margoft óskað endur-
skoðunar á þessari gjaldskrá og
eins fleiri stórir raforkukaupend-
ur“, sagði Guðmundur Guð-
mundsson verkfræðingur hjá
RARIK í samtali við Þjóðviljann
í gær.
„Það sem hefur ráðið þessari
keyrslu á díselvélum hjá okkur
eru hreinir viðskiptahagsmunir.
Við erum sem fyrirtæki að reyna
að lækka okkar orkuöflunar-
kostnað eins og okkur ber skylda
til. Þetta var sú leið sem við
höfðum til þess og um leið sköp-
uðum við þrýsting á aðra. Nú á
síðan að reyna að leiðrétta þessi
mál“, sagði Guðmundur.
-•g-