Þjóðviljinn - 01.02.1985, Blaðsíða 14
Hjúkrunarfræðingar
takið eftir:
Hjúkrunardeildarstjóri óskast sem fyrst, einnig hjúkr-
unarfræðingar.
Skurðstofuhjúkrunarfræðingur óskast frá 1. júlí 1985
til 1. sept. 1986. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í
síma 96-41333 eða á kvöldin í síma 96-41774.
Sjúkrahúsið á Húsavík
Sjúkraliðar, takið eftir:
Óskum að ráða sjúkraliða í sumarafleysingar.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 96-41333
eða á kvöldin í síma 96-41774.
Sjúkrahúsið á Húsavík
-IL Einbýlishúsalóðir
Hafnarfjarðarbær mun á næstunni úthluta lóðum í
Setbergi. Um er að ræða nál. 40 lóðir, einkum fyrir
einbýlishús, en einnig nokkur raðhús og parhús. Lóð-
irnar verða byggingarhæfar á sumrinu 1985. Nánari
upplýsingar veitir skrifstofa bæjarverkfræðings
Strandgötu 6, þar með talið um gatnagerðargjöld,
upptökugjöld, byggingarskilmála o.fl.
Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum
sem þar fást eigi síðar en 12. febr. n.k..
Eldri umsóknir þarf að endurnýja.
Bæjarverkfræðingur
III
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í málningavinnu fyrir byggingadeild samkvæmt eftir-
farandi.
1. Ýmiss konar málningavinnu innanhúss í dagvistunarhúsnæði
Reykjavíkurborgar.
Tilboðin verða opnuð fimmtudaginn 21. febrúar nk. kl. 11.00 f.h.
2. Ýmiss konar málningavinnu innan- og utanhúss á ýmsum fast-
eignum Reykjavíkurborgar.
Tilboðin verða opnuðfimmtudaginn 21. febrúar nk. kl. 14.00e.h.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík
gegn kr. 2.500 skilatryggingu fyrir hvort verk fyrir sig. Tilboðin eru
opnuð á sama stað.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800
l«l
ifí UTBOÐ
Tilboð óskast í eftirfarandi fyrir Rafmagnsveitur Reykjavíkur:
1. Götuljósabúnað.
Tilboðin verða opnuð þriðjud. 5. mars n.k. kl. 11 f. hád.
2. 12860 götuljósaperur.
Tilboðin verða opnuð miðvikud. 6. mars n.k. kl. 11 f. hád.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 3 Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
eSt. Jósefsspítali
Landakoti
Laus staða
Fóstru eða annan starfskraft vantar nú þegar á barna-
dagheimilið Litla-Kot. Börn 1-31/2 árs.
Umsækjendur vinsamlega hafi samband við fóstrur á
Litla-Koti í síma 19600-297.
Reykjavík, 31.1. 1985.
St. Jósefsspítali Landakoti
Auglýsið í Þjóðviljanum
UM HELGINA
Tónlist
Myrkir músíkdagar á fullu
Myrkir músíkdagar hefjast
núna á fullu um helgina en þeir
eru einn helsti tónlistarviðburður
ársins. Tvennir tónleikar verða á
laugardag og sunnudag í Bú-
staðakirkju.
Á laugardag kl. 17 eru
strengjakvartettar eftir fjögur
tónskáld sem þau Guðný Guð-
mundsdóttir, Szymon Kuran,
Robert Gibbons og Carmel Russ-
il leika. Frumflutt verður verkið
Net til að veiða vindinn eftir
Gunnar Reyni Sveinsson en það
er samið á síðasta ári. Þá verður
fluttur Kaupmannahafnarkvart-
ett Þorkels Sigurbjömssonar frá
1978, Sex lög fyrir strengjakvart-
ett eftir Karólínu Eiríksdóttur frá
1983 og að lokum Strengjakvart-
ett nr. 7 í fís-moll eftir Sjostakó-
vitsj.
Á sunnudag kl. 17 verða flutt
verk eftir 5 íslensk tónskáld. Þau
eru: 1. Viva strætó fyrir einleiks-
flautu eftir Skúla Halldórsson.
Bemharður Wilkinson leikur á
flautuna. 2. Frumflutningur á
Dúó fyrir bassethorn og selló
eftir ungt tónskáld, Atla Ingólfs-
son. Kjartan Óskarsson leikur á
bassethornið og Inga Rós Ing-
ólfsdóttir á selló. 3. Hrím fyrir
einleiksselló eftir Áskel Másson.
Carmel Russil leikur. 4. Sextett
eftir Fjölni Stefánsson frá árinu
1983. Flytjendur: Martiel Narde-
au (flauta), Kjartan Óskarsson
(klarinett), Lilja Valdimarsdóttir
(horn), Björn Árnason (fagott),
Hlíf Sigurjónsdóttir (fiðla) og
Arnþór Jónsson (selló). 5. Þrír
þættir fyrir 9 blásara eftir þá Pál
P. Pálsson, Werner Schulze og
Herbert H. Ágústsson. Flytjend-
ur em Kristján Stephensen, Daði
Kolbeinsson, Sigurður I. Snorra-
son, Kjartan Öskarsson, Haf-
steinn Guðmundsson, Hans Plo-
der, Herbert H. Ágústsson, Jos-
eph Ognibene og Láms Sveins-
son.
-GFr
Nýlistasafnið
Reyktir
æskumenn
Föstudaginn 1. febrúar 1985
verður mikið sprell í Nýlistasafn-
inu. Þar stendur nú til 3. febrúar
yfir sýning ítalska málarans Corr-
ado Corno. Lesin verða upp ljóð,
önnur ritverk og úrgangur hug-
ans mun streyma um sali safnsins.
Hin helstu ungu úrvalsskáld
Reykjavíkur munu les upp úr
verkum sínum, þeir eru: Þorri,
Sjón, Matthías Magnússon, Sig-
urberg Bragi, Þór Eldon, Krist-
inn Sæmundsson. Síðan eftir orð-
in munu meðlimir úr Inferno 5
líklega leika fyrir dansi. Húsið
opnar kl. 21.30 og lestur byrjar
fljótlega upp úr því. Gestir mega
gefa 50 kr. til styrktar fyrir ánægj-
una, en bókmenntafræðingar
verða að borga þrefalt verð. Allir
velkomnir.
Rekaviður
í Snoirabúð
Sæmundur Valdimarsson opn-
ar um helgina sýningu á 16 reka-
viðarskreytingum í Snorrabúð,
félagsheimili verkalýðsfélaganna
í Borgarnesi.
Sýningin verður opin frá kl. 14-
22 laugardag og sunnudag.
Sæmundur hefur haldið nokkr-
ar sýningar á rekaviðarmyndum
áður, t.d. á Kjarvalsstöðum en
þetta er fyrsta sýning hans sem er
sett upp í samvinnu við verka-
lýðsfélög.
Páll Eyjólfsson gítarleikari.
Stykkishólmur
Gítartónleikar
Páll Eyjólfsson gítarleikari
heldur tónleika í kapellu St.
Fransískussystra í Stykkishólmi
laugardaginn 2. febrúar kl. 16.00.
Á efnisskrá verða verk eftir Luis
de Narvanez, Scarlatti, Bach, Te-
desco, Albeniz og Toroba.
Páll hóf tónlistarnám í Barn-
amúsíkskóla Reykjavíkur en
seinna í Gítarskólanum þar sem
kennari hans var Eyþór Þorláks-
son. Hann lauk einleikaraprófi
þaðan 1981 og árið 1982 hélt
hann til framhaldsnáms til Spán-
ar. Þar stundaði hann nám undir
handleiðslu spænska gítarleikar-
ans Jose Luis Gonzales í borginni
Alcoy. Þaðan kom hann í haust
sem leið og starfar nú sem gítark-
ennari í Reykjavík.
Boðunarkirkja Guðsmóður í
Murmanskhóraði (frá 1674).
MÍR
Kvikmynd
um húsa-
gerðarlist
Kvikmyndasýning verður að
venju í MÍR-salnum, Vatnsstíg
10, nk. sunnudag, 3. febrúar, kl.
16. Sýndar verða tvær hálftíma
langar myndir með skýringatali á
íslensku. Fjallar önnur kvik-
myndin um friðarbaráttu sov-
éskra kvenna, hin um húsagerð-
arlist í Sovétríkjunum. - Að-
gangur er ókeypis og öllum hei-
mill.
14 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. febrúar 1984