Þjóðviljinn - 01.02.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 01.02.1985, Blaðsíða 2
FRETTIR Kísiliðjan Gæðingar háskólans Sverrir Hermannsson: Málamyndarannsóknir. Björn Dagbjartsson: Gœðingar háskólans rannsökuðu Mývatn. Guðmundur Einarsson: Leyfisveitingin valdníðsla. Svavar Gestsson: Málflutningur Sverris og Björns með eindœmum Sverrir Hermannsson iðnaðar- ráðherra hélt því fram á Al- þingi í gær, að rannsóknir sem vísindamenn hefðu stundað við Mývatn væru málamyndarann- sóknir. Sagðist hann hafa beðið prófessor Pétur Jónasson um að hafa á hendi verkefnisstjórn við nýjar rannsóknir á Mývatni. Guðmundur Einarsson þing- maður Bandalags jafnaðar- manna hóf umræðu utan dag- skrár í sameinuðu þingi í tilefni af leyfisveitingu ráðherrans til Kísil- iðjunnar, þar sem henni er heimilað að vinna kísilgúr úr botni Mývatns í 15 ár. Kallaði Guðmundur veitingu leyfisins valdníðslu, því iðnaðarráðherra skorti lagalega heimild til að veita fyrirtækinu leyfið, án samþykkt- ar Náttúrverndarráðs. Fullyrðingar iðnaðarráðherra um 15 ára rannsóknarstarf fjöl- margra vísindamanna sæta að vonum miklum tíðindum. Á um- ræddu tímabili hafa verið unnin 35 ársverk við rannsóknarstörf og um þær hefur verið fjallað í fjöl- mörgum tímaritum og skýrslum innan lands og utan. Björn Dag- bjartsson þingmaður Sjálfstæðis- flokksins í NL eystra tók undir sjónarmið ráðherra og taldi þá sem að rannsóknunum hefðu unnið „gæðinga“ Háskólans. Svavar Gestsson taldi svör ráð- herra með endemum, hann hefði ekki svarað þeirri gagnrýni sem hann hefði orðið fyrir öðru en skætingi en auk þess væri dómur hans og Björns Dagbjartssonar um náttúruvísindamenn og rann- breyta lögunum um verndun, úruverndarráðs á Laxár- og Mý- sóknir þeirra með ólíkindum. Laxár og Mývatns ef nú kæmi í vatnssvæðinu. Taldi Svavar að Alþingi yrði að ljós að vafi væri á valdsviði Nátt- hágé. Kísiliðjan iTORGIÐ Smokklaust í landinu! Eins gott að aðmírállinn er farinn. Hljótum að leita til dómstóla Jón Gunnar Ottósson líffrœðingur: Iðnaðarráðherra segir engar rannsóknir hafa fariðfram við Mývatn en þær hafa staðið yfir síðan 1970 og á þeim byggir Náttúruverndarráð sína afstöðu N áttúruverndarráð getur ekki annað en látið reyna á málið fyrir rétti. Ráðið verður, úr því ráðherra valdi þessa leið, að beita þeim heimildum sem það hefur í lögum. Náttúruverndarráð er sett yfir þetta svæði með lögunum um verndun Mývatns og Laxár og því getur ráðið hnekkt ákvörðun ráðherra og ber skylda til þess, sagði Jón Gunnar Ottósson líf- fræðingur, en hann á sæti í Nátt- úruverndarráði. Jón sagði að það væri alveg sama hvar á málið væri litið, ákvörðun Sverris Hermanns- sonar iðnaðarráðherra væri útí hött. Náttúruverndarráð getur aldrei sætt sig við leyfisveitinguna til Kísiliðjunnar. Hann gefur verksmiðjunni leyfi til að fara ó- takmarkað hvert sem er í Mý- vatni til efnistöku. Náttúruvern- darráð lagði til að henni yrðu settar reglur um röð vinnslu- svæða. Pá veitir hann verksmiðj- unni leyfi til að semja við bændur um að vera með námagröft innan netalagna. Leyfistíminn, 15 ár, þýðir það að verksmiðjan fær að flytja sig úr ytri flóanum yfir í þann syðri. Sú ákvörðun setur allt lífríki Mý- vatns í hættu. Ef óhapp hendir er allt lífríki vatnsins og raunar Lax- ár líka í hættu. Málsmeðferðin er líka fyrir neðan allar hellur. Ráðherra hef- ur hreinlega ekkert kynnt sér þetta mál. Hann segir í viðtali við Mbl. að engar rannsóknir hafi farið fram á svæðinu. Þetta er þvflíkt bull að engu tali tekur. Það hafa verið rannsóknir í gangi þarna síðan 1970 og Náttúru- verndarráð byggir sína afstöðu á grundvelli þessara rannsókna. Þetta sýnir að maðurinn hefur ekki kynnt sér það sem verið er að gera þarna. Auðvitað er þetta ekki lagaspursmál heldur hreint náttúruverndarsjónarmið, sagði Jón Gunnar að lokum. -S.dór Kísiliðjan Tiltölulega ánægðir SigurðurR. Ragnarsson stjórnarformaður Kísiliðjunnar: Ekkert komiðfram á lífríki Mývatns til hins verra. 180þúsund krónurá mánuði til rannsókna á lífríkinu ALÞYÐUBANDALAGHE) Guómundur J. Helgi. Sigrún. Hansína. Pröstur. Krlstfn Haraldur. Reynslan 1984 - Baráttan 1985 Aðalfundur verkalýðs- málaráðs Alþýðubandalagsins 1.-2. febrúar 1985 Fundarstaður: Hverfisgata 105, Reykjavík Aðalfundur Verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins verður haldinn að Hverfisgötu 105 í Reykjavík föstudagskvöldið 1. febrúar og laugardag- inn 2. febrúar nk. Föstudagur 1. febrúar: Kl. 20.30-20.45 Þröstur Ólafsson formaður setur aðalfundinn með ávarpi. Kl. 20.50-11.20 Panelumræður: „Reynslan 1984 - Baráttan 1985". Fulltrúar frá BSRB og ASÍ verða i panelnum. Þátttak- endur: Haraldur Steinþórsson, Valgerður Eiríksdóttir og Sjöfn Ingólfsdóttir frá BSRB. Frá ASÍ: Guðmundur J. Guðmundsson, Ásmundur Stefánsson og Sigrún Clausen. Stjórnendurumræðnanna verðaHelgi Guð- mundsson og Kristín Guðbjörnsdóttir. Laugardagur 2. febrúar: Kl. 10.00-12.00 Umræður um skipulag á starfi verkalýðsmálaráðs. Framsögumaður verður Hansína Stefánsdóttir. Kl. 12.00-13.00 Léttur hádegisverður að Hverfisgötu 105. Kl. 13.00-13.30 Skýrsla um kjarabaráttu sjómanna: Hafþór Rós- mundsson framkvæmdastjóri Sjómannasambands- ins. Kl. 13.30-16.00 Almennar umræður. Kl. 16.00-17.00 Afgreiðslur. Stjórnarkjör. Aðalfundur verkalýðsmálaráðs er opinn öllum Alþýðubandalags- mönnum og öðrum áhugamönnum um verkalýðsmál. Sjöfn Valgerður. Við erum tiltölulega ánægðir með afgreiðslu ráðherra, sagði Sigurður Rúnar Ragnars- son stjórnarformaður Kísiliðj- unnar við Mývatn við Þjóðvilj- ann í gær. - Breytingar frá eldri samn- ingi eru nokkrar; þær veigamestu eru að hann er til styttri tíma en sá gamli, nýja ákvæðið um um- hverfisnefnd og það veigamesta rannsóknir af áhrifum náma- vinnslunnar í Mývatni. Sam- kvæmt lögum er sú skylda lögð á herðar Náttúruverndarráðs, að rannsaka lífríkið á þessu svæði. Rannsóknarstöðin við Mývatn var stofnuð í þessu skyni. Því miður hefur fjárhagur Rannsóknarstöðvarinnar ekki leyft miklar rannsóknir. Og þær sem samt hafa verið gerðar hafa ekki beinst að námavinnslunni sérstaklega. Með nýjum samn,- ingi er gert ráð fyrir að námagjald sem Kísiliðjan greiðir til ríkis- sjóðs renni til rannsókna næstu árin og að auki leggi Kísiliðjan annað eins á móti. Þetta eru um 180 þúsund krónur á mánuði á núvirði út samningstímann. Sigurður Rúnar taldi afstöðu Náttúruverndarráðs óþarflega harða. „Engar breytingar hafa komið fram á lífríki Mývatns til hins verra sem rekja má til staf- semi Kísiliðjunnar. Fólk verður að skilja að það er erfitt að reka fyrirtæki sem ekki hefur rekstrar- leyfi nema til fimm ára“. Sigurð- ur kvað örlög Mývatns verða þau náttúrulögmálunum samkvæmt að verða að mýri. „Svo er það hlutlægt mat hvort menn eigi yfir- leitt að taka fram fyrir hendurnar á framrás náttúrunnar“, sagði Sigurður Rúnar Ragnarsson að lokum. —óg Fiskur 28% aukning á sölu til Bretlands Hjá Iceland Seafood Corporat- ion í Bandaríkjunum varð. heildarsalan á sl. ári, í verð- mætum talið, því nær hin sama og árið áður, rúmar 120 miy. doll- ara. Tókst þannig að halda hinni miklu söluaukningu frá 1983, sem var um 19%. Að magni til jókst salan um 4%. Sýnir hlutfall þess- ara talna að verðlag hefur nokk- uð lækkað á árinu 1984. Hjá Seafood Limited í Bret- landi varð salan rúmar 12 milj. punda, jókst um 28% frá árinu áður. Að magni jókst salan hins- vegar um 34%. Mikið hefur áunnist á þeim fjórum árum, sem fyrirtækið hefur starfað því fyrsta árið, 1981, nam salan aðeins 3,5 milj. punda. Hjá Hamborgarskrifstofu SIS minnkaði salan um 4%, varð 5,7 marka. Að marki til jókst salan samt um 5%. Hún hefur þó vaxið úr 3,2 milj. marka frá 1981. Sýnt er að salan til Japans hefur dregið úr Þýskalandssölunni. Á það einkum við um karfann og grá- lúðuna en báðar þessar afurðir hafa verið seldar til Þýskalands. -mhg 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. tebrúar 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.